Dagblaðið - 16.10.1978, Page 12

Dagblaðið - 16.10.1978, Page 12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16.QKTÓBER 1978. Sími 29922 Fasteignir Opiö alla daga og öll kvöld vikunnar Dalsel 2 herb. 80 ferrrí sérlega vel hönnuð og vönduð íbúð í sérflokki með bilskýli. Skúlagata 3 herb. 80 ferm. íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Vesturbær Gamalt en vel við haldið einbýlishús ásamt byggingarlóð til sölu eða i makaskiptum fyrir góða haeð i vesturbæ. Bárugata 4 herb. 116 ferm góð ibúð á 2. hæð í góðu steinhúsi til sölu eða i skiptum fyrir góða hæð í vesturbæ. Sólvallagata 100 ferm 4 herb. vönduð og sólrik íbúð til sölu eða í makaskiptum . fyrir 4—5 herb. hæð. Álfheimar 3—+herb. 1 lOferm toppíbúðí fjórbýli, lausstrax. Barmahlið 3 herb. 75 ferm jarðhæð i fjórbýlishúsi, sérstaklega snyrtileg og vel umgengin ibúð, til sölu eða i skiptum fyrir2 herb. íbúð. Efstasund 3 herb. 80 ferm jarðhæð i þríbýlíshúsi, björt og\falleg íbúð, í sér- flokki, til sölu eða i skipiunt fyrir ibúð á 1. eða 2. hæð. Norðurbraut Hafnarfirði 2 herb. risíbúð i tvíbýli, sem nýtt hús með góðum garði. Blöndubakki 4 herb. 110 ferm 'íbúð með herbergi i kjallara ti. sölu eða i skiptum fyrir einbýlishús. má vera gamalt. Skólagerði 96 ferm ibúð á 1. hæð i fjórhýli sérlega vönduð og góð eign. Höfurr til sölu neðri hæð i tvíbýli '0 ferm, 3 herb., á góðum stað i Árbæjar hverfi, lausstrax. Melgerði Sérhæð I tvibýli, 3 herb.. giið stofa, sérinngangur, sérhiti, suðursvalir 40 ferm upphitaður bilskúr. falleg og góð eign i fallegu umhverfi. Makaskipti Höfunt ávallt fyrirliggjandi fjölda góðra eigna í makaskiptum, s.s. í Hliðum, vesturbæ, Hraunbæ, Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði. Höfum fjársterka kaupendur að öllum gerðum eigna. Góð útborgun. Staðgreiðsla kemur til greina fyrir rétta eign. <ÍS FASTEIGNASALAN ^Skálafell Mjóuhlíð 2 (>ið Miklatorg) Sölustjóri: Svcinn Frcyr Sölum. Valur Magnússon. Hcimasími 85974. Lögm: Ólafur Axelsson hdl. Staða skólastjóra Verzlunarskóla íslands Staða skólastjóra Verzlunarskóla íslands er laus til umsóknar. Ráðningartími er fráogmeð 1. júní 1979. Ráðgert er að væntanlegur skóla- stjóri kynni sér kennslu í viðskiptafræðum erlendis fyrir næsta skólaár er hefst 1. september 1979. Þá er einnig æskilegt að umsækandi geti annazt kennslu í viðskipta- greinum. Launakjör eru samkvæmt kjara- samningi Félags menntaskólakennara. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, ásamt greinargerð um ritsmíðar og rannsóknir, skulu sendar skóla- nefnd Verzlunarskóla íslands, Laufásvegi 36, Reykj^vík, fyrir 1. desember nk. | Skólanefnd Verzlunarskóla íslands. Keflavík - Ný námskeið Ný námskeið eru að hejjast. Barna- og full- orðinsflokkar. Innritun í húsi UMFK Hafnargötu 6 mánu- dag og þriðjudag kl. 20. Walt Disney Þórarinn Eldjárn er án efa mestur skemmtikraftur af okkar yngri skáld- um og hér nota ég starfsheitið/lýsing- arorðið alls ekki í niðrandi merkingu. Svo næm er meðvitund hans um þver- stæður og skrýtilega afkima mannlifs- ins og hugarflug hans ríkulegt að honum er ómögulegt að setja sig í há- tiðlegar stellingar gagnvart tilverunni, rekja úr sér garnir eða predíka. Þar á ofan hefur hann fengið í arf gott brag- eyra og ást á hefðbundnum kveðskap og útkomuna má finna í bókum hans en sú nýjasta er Disneyrímur. En heyrt hef ég tortryggna menn saka Þórarin um iþróttamennsku og ábyrgðarleysi i kveðskapsinum. Orðfimi og málkennd Orðfimi og málkennd eru út af fyrir sig ekki trygging fyrir góðum kveð- skap en Auden áleit að þeir eiginleikar væru allténd góð byrjun á skáldferli. Þá hefur Þórarinn i talsverðum mæli og misnotar á stöku stað en þó held ég að okkur sé ætlað að greina alvarlegan undirtón i sumum ærslafyllstu ljóðum hans. Ljóðið um Roy Rogers og Trigger spilar ekki einungis á fyndnina og andstæðurnar „ameríska goðsögn- in i íslensku samhengi”, heldur er tæpt á því hve varasamt það er að gleypa við slikum goðsögnum gagnrýnislaust. Þessi undirtónn ádeilu verður sterkari, en þó ekki áleitinn, í Ijóði Þórarins um Sveinbjörn Egilson og stangarstökk hans þar sem gríninu um þetta kyn- lega atferli skáldsins og fræðimannsins er smátt og smátt snúið yfir í hómilíu um stangarstökk dagsins i dag, vél- í skugga styrjaldar Asbjörn Hyldremyr, Afdrep íofviöi. Saga um norskan dreng ísíðari heimsstyrjöldinni. Guðmundur Daníelsson íslenzkaði. AB, 1978.115 s. Endurminningabók Hér er á ferðinni mjög vel skrifuð bók, sem fjallar um bemsku höfundar í byrjun síðari heimsstyrjaldar. Strax á fyrstu síðu bókarinnar vitum við að Þjóðverjar hafa gert innrás í Noreg „Það var stríð. Ekki i okkar sveit, en i landinu, og ekki langt burtu." (s. 5) Hættan færist stöðugt nær heima- slóðum drengsins, sem er friðsælt iðnaðarþorp, Brattivogur, á vestur- sttönd Noregs. Fólkið i þorpinu gerist órólegt og sumir ákveða að flýja land. Þar í hópi eru foreldrar drengsins, en hann veit ekkert um þessa örlagariku ákvörðun fyrr en eina nóttina að „niamma og pabbi komu og vöktu okkúr og sögðu að við ættum að leggja af stað til Ameríku;.(s. 8) Drengurinn fer siðan með skipi til Færeyja. sem er fyrsti áfangastaður ferðarinnar til fyrirheitna landsins, ásamt fjölskyldu sinni og öðru flótta- fólki úr þorpinu, og þar dvelst hann i ótryggu afdrepi eitt sumar og fram á haust við leiki og störf. 1 bókarlok er norska flóttafólkið á leið til íslands: striðið er komið hættulega nærri Færeyjum. Þroskasaga Bókin lýsir rúmlega 5 mánuðum af ævi hins 7 ára drengs, en á þessum stutta tínta tekur líf hans gagngerum breytingum: hann lærir svo margt nýtt og reynir í rás sögunnar, að hug- myndir hans um lifið og tilveruna ger- breytast. Bókin er því með réttu þroskasaga. 1 byrjun sögunnar er sjón- deildarhringur drengsins vægast sagt þröngur. Hann hefur alizt upp í sveita- þorpi þar sem „allt liggur innan hrings þar sem radiusinn er ekki nema nokkur hundruð metrar”. (s. 12) Og vitund drengsins um heiminn er álika óljós og skynreynsla hans er tak- mörkuð: „heimurinn var það sem ég gat séð frá þorpinu heima..." (s. 8) En hann er ekki kominn langt út á hafið á leið sinni til Færeyja, að honum opnast smávegis gægjugat inn í nýjan heim”. (s. 29) Úr þessu sjónarhorni virðast heimafjöllin „sem ókunnug fjöll” og „önnur fjöll sem venjulega földu sig bak við fjöllin sem maður hafði daglega fyrir augum, komu i Ijós." (s. 14). 1 Færeyjum heldur þessi þroskaferill áfram. Drengurinn er sífellt að læra, reyna og uppgötva eitt- hvað nýtt, og þar kemur að hann reynir að ráða fram úr vandamálum sinum upp á eigin spýtur: „Áður hafði ég alltaf spurt full- orðna fólkið þegar eitthvert furðuefni bar fyrir mig, en þegar fram liðu stundir, urðu það fleiri og fleiri spurningar sent það gat ekki eða vildi ekki svara. . . þetta varð til þess að maður reyndi sjálfur að búa sér til svarið...” (s. 86) Lengra nær þroskasaga drengsins ekki, eh það er augljóst, að hann er á góðri leið með að verða sjálfstæður einstaklingur, þótt ungur sé aðárum. Áhrif stríðsins Þó að þroskasaga sé meginviðfangs- efni bókarinnar, þá spilar striðið, þessi „mikilfenglegi en ópersónulegi kappleikur”, einnig stórt hlutverk í sögunni. Það er bæði i senn áhrifa- valdur atburðarásar og sá stóri bak- veggur, sem kastar skugga sinum yfir sögusviðið. Upplýsingar af gangi styrjaldarinnar berast til Færeyja í formi útvarpsfrétta og orðróms, og stöðugt færist hættan nær: Frakkland er sigrað, Norðmenn eru að gefast upp

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.