Dagblaðið - 16.10.1978, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR ló.OKTÓBER 1978.
BILAPARTASALAN
Höfum úrval notaöra varahluta íýmsar
tegundir hifreiöa, tildæmis:
* Rambler American '67, Saab '67, Fiat
128 árg. '72, Taunus 17 M '67, Volvo
Amazon '65, Chevrolet Bel Air '65,
Willys '47.
Einnig höfum viö úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleda.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höfdatúni 10 - Simi 11397
Örkin s/f C 4,4904
FASTEEGNASALA
Við erum í HJARTA Kópavogs, að Hamra-
borg 7. Úrval eigna á söluskrá.
Seljendur athugið:
Látið skrá ykkar eignir hjá okkur. Önnumst
makaskipti, svo og allar sölur.
Lögmaður Sigurður Halgason.
Grindavfk
Dagblaðið vantar umboðsmann frá 1.
nóven.ber.
Uppl. gefa Elín Þorsteinsdóttir. sími
8163 og afgreiðsla 22078.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjóðleikhúsinu
Til sölu
BMW árgerð 1970 rWÁUlTj
Renault 16 TL árg. 1972
Renault 12 Station árg. 1974
Renault 5 TL árg. 1978
Kristinn Guðnason hf.
bifreiða- og varahlutaverzlun,
Suðurlandsbraut 20, sími 86633.
Frá xfingastaðnum við Vifilsstaðavatn um helgina. Hundaeigendur voru fjölmennir á æfingunni með hunda sína. Augljöst var
að keppnin í Garðabæ verður hörkuspennandi um næstu helgi.
DB-mynd Hörður
Þrátt fyrir hundabannið:
HUNDAR ALDREI
VINSÆLLI^H
Þrátt fyrir svokallað iiundabann á
stærsta ibúðasvæði landsins virðist það
staðreynd að aldrei hafa menn fest eins
mikla ást á hundinum eins og einmitt nú
siðustu árin.
Næstkomandi sunnudag ætla hunda-
vinir að efna til mikillar sýningar og
keppni i íþróttahúsinu í Garðabæ. Þar
munu koma fram hátt i 100 hundar og
keppa um titilinn „fegursti hundur
íslands”.
Matthías Pétursson, einn af frum-
kvöðlum þessarar sýningar og keppni,
sagði Dagblaðinu að hundarnir kæmu
—100 hundar keppa um
titil íkeppni um
næstu helgi
hvaðanæva að af landinu, en eingöngu
væru teknir með hreinræktaðir hundar.
þ.e. þeir sem hægt væri að sanna hrein-
rækt með ættartölu eða upplýsingum
sem þættu óyggjandi.
Um helgina mættu 50—60 hundaeig-
endur til æfingar við Vifilsstaðavatn og
þótti æfingin gefa góð fyrirheit um
stranga keppni um næstu helgi. Þar voru
margir bráðfallegir hundar, gæddir réttu
byggingarlagi og útliti og hegðunin var
til fyrirmyndar.
Hingað til lands er væntanleg Jean
Lanning frá Bretlandi, en hún verður
adaldómari keppninnar. Mark Watson,
hinn mikli vinur hundaeigenda hér á
landi, greiddi fargjald ungfrúarinnar og
hefur enn einu sinni sýnt í verki velvilja
sinn i garð hunda og eigenda þeirra hér á
landi.
Hundar eru orðnir mjög dýrir ef þeir
eru hreinræktaðir. Þannig kostar t.d.
labradorhundur rúmlega 150 þúsund
og hreinræktaður „lslendingur" kostar
yfir 50 þúsund krónur, að sögn Matthí-
asar Péturssonar. -JBP
Hárgreiðslustofan Yr í efra Breiðholti: Guðfinna Jóhannsdóttir þjónar einum viðskiptavini sínum.
TVÆR NÝJAR HÁRGREIÐSLU-
ST0FUR í BREIÐH0LTINU
Þjónustustofnunum i Breiðholtshverf-
unum fjölgar hægt og sigandi. Um helg-
ina var opnuð hárgreiðslustofa i verzl-
unarhúsinu við Leirubakka 36 og ber
hún nafnið Aþena.
Eigendur og starfsmenn stofunnar eru
þær Lára Daviðsdóttir og Björk
Hreiðarsdóttir. Bjóða þær upp á alhliða
hárgreiðsluþjónustu og báðar hafa langa
reynslu í faginu. Þær voru áður hjá Sig-
urði „Brósa” Benónýssyni.
Aþena er opin alla virka daga kl. 9—
18 ogá laugardögum kl. 8—16.
Þá var fyrir nokkru opnuð ný hár-
greiðslustofa i efra Breiðholti. í Dúfna-
hólum 2, og ber sú stofa heitið Ýr. Eig-
andi stofunnar og meistari er Guðfinna
Jóhannsdóttir, en henni til aðstoðar er
Inga Gunnarsdóttir. Guðfinna hefur
verið lengi í hárgreiðslu, lengst af á hár-
nroiAclnctAfiinm Dnrmn
Hárgreiðslustofan Ýr er opin daglega
kl. 9— 18 og kl. 8—14 á laugardögum.
Aþena heitir nýja hárgreiðslustofan I neðra Breiðholtshverfi. Á myndinni eru
eigendurnir, Lára Daviðsdóttir (til vinstri) og Björk Hreiðarsdóttir með hendur f
hári viðskiptavina sinna. DB-myndir: Hörður