Dagblaðið - 16.10.1978, Síða 34
Demantar
Spennandi og bráðskemmtileg ísraelsk-
bandarísk litmynd með Robert Shaw.
Richard Roundtree og Barbara Seagull.
Leikstjóri Menahem Golan.
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýrtdkl. 3,5,7,9og 11.
j salur
Stardust
//
Skemmtileg ensk litmynd um lif popp-
stjörnu með hinum vinsæla David
Essex.
íslenzkur texti.
Endursýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og
11.05.
•salur
Átök í Harlem
siarrm, FRED WILLIAMSON
A Larco Production COLOR by movielab
An American International Release
(Svarti guðfaðirinn 2)
Afar spenna/idi og viðburðarík litmynd.
beint framhald af myndinni „Svarti guð
faðirinn.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og
11.10.
■ ■ ■ salur P
Kvikmynd Reynis Oddssonar
Morðsaga
Áðalhlutverk: Þóra Sigurþórsdóttir,
Steindór Hjörleifsson og Guðrún
Ásmundsdóttir.
Bönnuð innan 16 ára
Sýndkl. 3.15,5.15,7.15,9.15 og 11.15.
Ath. að myndin verður ekki endursýnd
aftur í bráð og að hún verður ekki sýnd í
sjónvarpinu næstu árin.
GAMLA BIO
D
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16.0KTÓBER 1978.
Simi 11475.
Valsakóngurinn
\W3 ** J,- 1 1
<
Skemmtileg og hrífandi ný kvikmynd
um JóhannStrauss yrigri.
Horst Bucholz
Mary Costa
Islenzkur texti
Sýnd kl. 7 og 9.
Einvígið
Bandarískur vestri.
Endursýndur kl. 5.
I
HAFNARBIO
I
Shatter
Hörkuspennandi og viðburðahröð, ný
bandarisk litmynd, tekin í Hong Kong.
STUART WHITMAN,
PETERCUSHING.
Leikstjóri: MICHAELCARRERAS.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5,7,9 og 11.
AUSTURBÆJARBÍÓ: Sekur eða saklaus? (Verdict).
Aðalhlutverk: Sophia Loren. Jean Gabin. Sýnd kl. 5,7
og 9. Bönnuð innan 14 ára.
GAMLA BÍÓrSjáauglýsingu.
HAFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu.
HÁSKÓLABÍÓ: Saturday Night Fever. Aðalhlut-
verk: John Travolta. Sýnd kl. 5 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ: Dóttir hliðvarðarins, kl. 5, 7, 9 og
11. Bönnuð innan 16 ára.
NÝJA BÍÓ: Þokkaleg þrenning (Le Trio Infernal).
Aðalhlutverk: Michel Piccoli. Romy Schneider.
Leikstjóri: Francis Girod. Sýnd kl. 5. 7 og 9. Strang-
lega bönnuo uörnum innan 16 ára.
REGNBOGINN: Sjá auglýsingu.
STJÖRNUBÍÓ:Close Encountersof theThird Kind.
kl. 2.30.5,7.30 og 10.
TÓNABÍÓ: Sjónvarpskerfið (Network) Sýnd kl. 5.
7.30 og 10. Bönnuð börnum innan 16 ára.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Karate meistarinn (The
big boss), kl. 5og9.
"f?WÓÐLEIKHÚSW
Sonur skóarans
og dóttir bakarans
þriðjudag kl. 20
Uppselt.
Fimmtudagkl. 20.
Á sama tima
aðóri
7. sýning miðvikudag kl. 20.
Litla sviðið
Mœður og synir
i kvöld kl. 20.30.
Fáarsýningarcftir.
Sandur og kona
eftir Agnar Þórðarson.
Leikmynd: Björn G. Björnsson.
Leikstjóri: Gisli Alfreðsson.
Frumsýning fimmtudag kl. 20.30.
Miðasala 13.15—20. Sími 11200.
G
Útvarp
Sjónvarp
gi
Fréttaþátturinn Víðsjá — útvarp á morgun kl. 10.25
Enn um hávaða í Víðsjá
„Það má segja að þetta sé einhvers
konar framhaldsþáttur Víðsjár í
síðustu viku.” sagði Ögmundur Jónas-
son um þáttinn sinn, Víðsjá, sem er á
dagskrá útvarpsins í fyrramálið kl.
10,25. „1 síðustu viku fjallaði ég um
heyrnarmælingar sem gerðar hafa
verið á ýmsum hávaðasömum vinnu-
stöðum hérlendis. Þessar kannanir
hafa sýnt svo vart verður um villzt að
skert heyrn má hiklaust teljast til at-
vinnusjúkdóma i ýmsum iðngreinum
hér á landi. í þættinum í síðustu viku
voru einkum reifaðir læknisfræðilegir
þættir þessa máls. Nú verður hins
vegar reynt að grafast fyrir um á
hvern hátt uggvænlegum niður-
stöðum kannana á þessu efni sé fylgt
eftir í atvinnulífinu. í því sambandi
ræði ég við Hrafn Friðriksson hjá
Heilbrigðiseftirliti rikisins og Sigurð
Þórarinsson hjá Öryggiseftirlitinu.
Hugsanlega ræði ég við fleiri aðila.
Hávaði virðist vera fylgifiskur vél-
væðingarinnar. ekki eingöngu í
alvinnulífinu heldur einnig í daglega
lifinu. Fyrir nokkrum dögum var
einmitt mjög athyglisverð grein um
þetta efni í Dagblaðinu,” sagði
Ögmundur að lokum. Þegar
vetrardagskrá útvarpsins hefst 21.
október mun Víðsjá flytjast yfir á
fimmtudagskvöld kl. 22,45 og verður
þátturinn þá einu sinni í viku en ekki
tvisvareinsognú. ELA
Ögmundur Jónasson hefur nú um tfma séð um þáttinn Viðsjá á þriðjudögum.
Ögmundur er fréttamaður hjá útvarpinu og mun hann i vetur sjá um blandaðan
þátt á laugardögum ásamt þrem öðrum.
Á skjánum kl. 22.05:
Frost ræðir við Wilson
Wilson spjallar um forvera sina
nefnist brezkur þáttur sem sjónvarpið
sýnir í kvöld kl. 22,05. Þættirnir verða
fjórir og mun hinn kunni sjónvarps-
maður Breta David Frost. ræða viðSir
Harold Wilson fyrrum forsætisráð-
herra. í fyrsta þættinum segir Wilson
frá kynnum sínum af Harold
MacMillan sem var forsætisráðherra
1957—1963. Þættir þessir verða á
dagskrá annan hvern mánudag og í
síðari þáttum ræða Frost og Wilson
um Clement Attlee, Winston
Churchill og William Gladstone.
Þátturinn er fjörutíu mínútna langur
og í lit. Þýðandi er Jón O. Edwald.
ELA
ý. .
Sir Harold Wilson, fyrrum forsætisráðhcrra Breta, ræðir um forvera sina I viðtali
við David Frost I sjónvarpi i kvöld.
Mánudagur
16. október
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Frétíir. Tilkynningar. Viö
vinnuna: Tónleikar.
15.00 Miðdegissagan: „Ertu manneskja?” eftir
Marit Paulsen. Inga Huld Hákonardóttir
byrjar að lesa þýðingu sina.
15.30 Miðdegistónleikar: Islenzk tónlist. a.
„Rondo Islandia" eftir Hallgrím Helgason.-
Rögnvaldur Sigurjónsson leikur á pianó. b.
Sönglög eftir Sigursvein D. Kristinsson. Guð-
mundur Jónsson syngur; strengjakvartett
leikur með.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir).
16.20 Popphorn: Þorgeir Ástvaldsson kynnir.
17.20 Sagan: „Erfingi Patricks” eftir K.M.
Peyton. Silja Aðalsteinsdóttir les þýðingu sína
17.50 „Allt er vænt, sem vel er grænt”. Endur-
tekinn þáttur Everts Ingólfssonar frá siðasta
fimmtudegi.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Eyvindur Eiríksson flytur
þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn. Jón Haraldsson
arkitekt talar.
20.00 Lög unga fólksins. Ásta R. Jóhannesdóttir
kynnir.
21.00 Ferðaþankar frá ísrael. Hulda Jensdóttir
forstöðukona flytur annan þátt sinn og talar
um fjóra staði: Massada. Eingedi, Eilat og
Sínaí.
21.45 „Suite Provencale” eftir Darius Mil-
haud. Concert Arts hljómsveitin leikur undir
stjórn tónskáldsins.
22.00 Kvöldsagan: „Sagan af Cassius Kennedy”
eftir Edgar Wallace. Ásmundur Jónsson
þýddi. Valdimar Lárusson les (3).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Frá tónleikum Sinfóniuhljómsveitar
íslands í Háskólabiói á fimmtudaginn var;
siðari hluti. Stjórnandi: Rafael FrUhbeck de
Burgos. Sinfónia nr. 5 i c-moll „örlagahljóm-
kviðan" op. 67 eftir Ludwig van Beethoven.
23.20 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
17. október
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.I0 Létt lög og morgunrabb. (7.20 Morgun
leikfimi).
7.55 Morgunbæn.
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.)
8.30 Af ýmsu tagi: Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Valdis óskars
dóttir les sögu sina „Búálfana” (7).
9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Tilkynningar. 9.45
Þingfréttir.
10.00 Fréttir. I0.I0 Veðurfregnir.
10.25 Viðsjá: ögmundur Jónasson fréttamaður
stjórnar þættinum.
10.45 Sjávarútvegur og fiskvinnsla. Umsjónar
menn: Ágúst Einarsson og Jónas Haraldsson.
I l.OO Morguntónleikar: Anne Shasby og
Richard McMahon leika á tvö píanó „Nætur-
Ijóð" eftir Claude Debussy / André Gertler og
Diane Andersen leika Sónötu nr. I fyrir fiðlu
og pianóeftir Béla Bartók.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. Við
vinnuna:Tónleikar.
15.00 Miðdegissagan: „Ertu manneskja?” eftir
Marit Paulsen. Inga Huld Hákonardóttir les
(2).
15.30 Miðdegistónleikar: Filharmoníusveit
Lundúna leikur „Siesta”, stutt hljómsveitar-
verk eftir William Walton; Sir Adrian Boult
stj. / Rikishljómsveitin i Berlin leikur Konsert i
gömlum stil op. 123 eftir Max Reger; Otmar
Suitner stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn
ir).
16.20 Popphorn: Halldór Gunnarsson kynnir.
17.20 Sagan: „Erfingi Patricks” eftir K.M.
Peyton. Silja Aðalsteinsdóttir les þýðingu sina
(10).
17.50 Viðsjá: Endurtekinn þáttur frá morgnin-
um.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Á Gleipnisvöllum. Hallgrimur Jónasson
rithöfundur flytur siðari hluta erindis síns um
leitina að hólmgöngustað Gunnlaugs orms-
tungu og Hrafns önundarsonar.
20.00 Sænsk og pólsk tónlist.
í
Sjónvarp
Mánudagur
16. október
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
21.00 Kvennavirkið. Sænskt sjónvarpsleikrit i
gamansömum dúr eftir Önnu-Mariu Hager-
fors. Leikstjóri Judith Hollander. Aðalhlut-
verk Inga Gill, Eva-Britt Strandberg, Gunilla
Olsson og Linda KrQger. Á stofu nokkurri á
kvensjúkdómadeild eru fjórar konur. Þær
frétta af sjúklingi, sem kominn er á deildina en
fær hvergi inni vegna þrengsla. Þær bjóðast
þvi til að rýma til inni hjá sér, svo að unnt sé
að bæta við rúmi. Þýðandi Dóra Hafsteins
dóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpið).
22.05 Wilson spjallar um forvera ^ína. Fyrsti
þáttur af fjórum, þar sem sjónvarpsmaðurinn
David Frost ræðir við Sir Harold Wilson, fyrr
um forsætisráðherra Bretlands. í fyrsta þætti
segir Wilson frá kynnum sinum af Harold
MacMillan, en hann var forsætisráðherra
1957—1963. Þættir þessir verða á dagskrá
annan hvern mánudag, og i síðari þáttum
ræða Frost og Wilson um Clement Attlee,
Winston Churchill og William Gladstone.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.45 Dagskrárlok.