Dagblaðið - 16.10.1978, Side 35
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR ló.OKTÓBER 1978.
«
Utvarp
Sjónvarp
D
Kvennarirkið nefnist leikritið sem sýnt verður á mánudagskvöld. Á myndinni sjáum við fjörar leikkonur sem fara með
aðalhlutverk. Það eru þær Linda Kriiger, Gunilla Olsson, Eva-Britt Strandberg og Inga Gill.
KVENNAVIRKIÐ - sjónvarp kl. 21.00:
Þegar karlmaður leggst inn
á kvensjúkdómadeild
Á mánudag sýnir sjónvarpið sænskt
sjónvarpsleikrit i gamansömum dúr
eftir Önnu-Mariu Hagerfors. Leik
stjóri er Judith Hollander og með aðal-
hlutverk fara Inga Gill, Eva-Britt
Strandberg. Gunilla Olsson og Linda
Kriiger.
Leikritið fjallar um fjórar konur
sem allar eru sjúklingar á kvensjúk-
dómadeild. Þær frétta af sjúklingi sem
kominn er á deildina en fær hvergi inni
vegna þrengsla. Konurnar eiga við
ólík vandamál að stríða en eru þó
nokkuð hressar. Þær ræða vandamál
sín á opinskáan og gamansaman hátt.
Þegar þær frétta af sjúklingnum
sem verið hafði á geðdeild en er nú
kominn á kvensjúkdómadeildina vilja
þær ólmar rýma til á stofunni, svo
hægt sé að bæta við rúmi. Sjúklingur-
inn er dálítið ólikur þeim. þvi hann er
karlmaður. Karlmaðurinn er í rann-
sókn á kvensjúkdómadeildinni vegna
þess að hann er með stóra kúlu á
maganum og heldur hann að hann sé
óléttur.
Leikritið lýsir síðan samræðum sem
eiga sér stað á deildinni og er gert
heldur litið úr karlmanninum. Hann
vill ólmur komast burt eftir að hafa
verið skoðaður á fæðingarbekk og
fleira í þeim dúr. Það má segja að leik-
ritið sé kvenréttindaleikrit og er tals-
vert um ádeilu á karlmanninn. En
engu að síður er leikritið fyndið og
mjög svo opinskátt. Að sögn þýðanda
er vel hægt að mæla með því og ætti
engum að leiðast.
Leikritið er í lit og tekur rúmlega
klukkustund i flutningi. Þýðandi er
Dóra Hafsteinsdóttir.
ELA
/
\
Popphorn í útvarpi í dag kl. 16.20:
„Synd að hljómplötur skuli
ekki lengur ætlaðar
almenningi” — segir Þorgeir Ástvaldsson
„Ég ætla að kynna glænýja plötu
með Billy Joel sem kemur út i dag,
samtimiá hér á landi og i Bandarikjun-
um,” sagði Þorgeir Ástvaldsson,
kynnir Popphornsins i dag. „Billy Joel
er einn athyglisverðasti hljóm-
flutningsmaður sem fram hefur komið
á þessu ári, enda þótt hann sé mikið
búinn að hafa fyrir þvi að öðlast frægð
og frama. Billy er lífsreyndur maður,
hann hefur starfað sem klassískur
píanóleikari og hann hefur einnig lagt
fyrir sig hnefaleika. Það má segja að
hann muni timana tvenna, allt frá
ræsinu og til listamanns sem er
hampað.
„Hann hefur gefið út sex breið-
skifur og semur hann allt sjálfur.
Nýjasta plata hans hefur að geyma
svipaðar lagasmiðar og fyrri plötur
hans. Tónlist hans er frá rólegri
rómantiskri tónlist og allt upp í kraft-
mikið rokk. Billy ' hefur alltaf frá
einhverju að segja i textum sinum og
lýsa þeir gjarnan lifsskoðunum hans
og því sem hann hefur upplifað," sagði
Þorgeir.
Þorgeir sagðist ennfremur verða
með eldri lög frá Billy Joel og reyna að
blanda gömlu og nýju saman.
„Eitthvað verð ég með meira af nýju
efni," sagði Þorgeir „en ekki er alveg
ákveðið hvað það verður. Það er svo
mikið til af nýju efni að maður nær því
ekki að fylgjast með. Það er bara verst
að hljómplötur skuli ekki lengur vera
ætlaðar almenningi, að minnsta kosti
bendir verðlagið til þess,” sagði
Þorgeir ennfremur.
Þorgeir hefur nú séð um mánudags-
popphornið í um tvö ár og sagði hann
að þátturinn sinn myndi ekkert
breytast með tilkomu vetrardagskrár.
Popphorn hefst kl. 16,20 i dag og er
klukkustundar langur.
ELA
35
Nióttu dagsins með
Dentokej
Xylilwl cr núilúrulcgl sxticfni
i.sykurlaust
tyggigúmmí frá Wriglcys
Seljum f dag:a
Saab 99 GL
árg. ’77, 2 dyra beinskiptur, ekinn 25 þús. km, verð 4,5
milljónir.
Saab 99
árg. ’74, ekinn 18 þúsund km, úrvals bill, verð 2700 þús.
Saab 99
árg. '76, ekinn 23 þúsund km, verð 3700 þús.
Saab 99 GL
árg. ’78, ekinn 20 þús. km, 4 dyra, beinskiptur, verð 5 m
Saab 96
árg. ’74, ekinn 46 þús. km, bíll i sérflokki, verð 2200 þús.
Pontiac LeMans
árg. ’73, ekinn 81 þús. km, 2ja dyra sjálfskiplur með öllu,
verð 3000 þús.
Toyota Corolla SL
árg. '71, litað gler, ekin 78 þús. km, sportfelgur, verð 1000
þús., skipti möguleg á Saab 99 árg. ’74. lánum 600 þús.
Autobianchi
árg. '11, ekinn 34 þús. km, verð 1700 þús.
Saab 95
árg. ’72, ekinn 120 þús. km, verð 1400 þús.
Saab 96
árg. ’73, ekinn 74 þús. km, verð 1500 þús.
Saab 99
árg. '12, ekinn 100 þús. km, verð 1800 þús.
Saab 99 EMS
árg. '75, ekinn 47 þús. km, verð 350Ó þús.