Dagblaðið - 24.10.1978, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978.
Sauðfé hefur verið mikið til umfjöllunar upp á síðkastið og ætlar ögmundur Jónasson fréttamaður að leita svars við nokkrum
spurningum i þvi sambandi i þættinum Viðsjá i kvöld.
Eiga íslendingar að
flytja út fé á fæti?
„Nýlega komst til tals að íslendingar
flyttu út fé á fæti til slátrunar erlendis. 1
fjölmiðlum svo og manna á meðal hefur
einkum verið rætt um það á hvern hátt
fénu yrði slátrað, og hefur marga óað
við slátrunaraðferðum sem sums staðar
eru viðhafðar,” sagði ögmundur Jónas-
son fréttamaður en hann er umsjónar-
maður Vtðsjár í kvöld.
ögmundur sagði ennfremur: „Á
þessu máli eru einnig margar aðrar
hliðar, t.d. hvaða þýðingu það hefði fyrir
íslenzkan skinnaiðnað ef lifandi sauðfé
yrði flutt úr landi i stórum stíl. Aðrir
telja að um ofbeit sé að ræða víða á land-
inu og ætti því fremur að draga úr sauð-
fjárrækt en efla hana.
í þættinum í kvöld ræði ég við Hall-
dór Pálsson búnaðarmálastjóra um þessi
atriði og önnur sem málinu tengjast. En
þess má geta að sauðfé á fæti var flutt út
í miklum mæli á seinni hluta síðustu ald-
ar."
Víðsjá hefur nú breytt um tíma. í stað
þess aö vera fyrir hádegi hefur þátturinn
nú fengið fastan tíma kl. 22.45 á þriðju-
dagskvöldum. Víðsjá tekur fimmtán
minútur.
- ELA
)-----:-------------------------<
ATVINNULYÐRÆÐI - sjónvarp kl. 21,00:
Á starfsfólk að ráða?
Atvinnulýðræði nefnist umræðuþátt-
ur I umsjá Ólafs Ragnarssonar sem
sýndur verður í kvöld í sjónvarpinu. Þrír
eða fjórir menn koma í þáttinn og ætla
að gera grein fyrir atvinnulýðræði og á
hvaða stigi það mál er hér á landi. Þróun
hefur verið ör hvað atvinnulýðræði
snertir á hinum Norðurlöndunum og
verður miðað við það I þættinum.
Það var útvarpsráð sem vakti þetta
mál til umræðu og verður rætt um það
vítt og breitt. Atvinnulýðræði byggist
upp á stjórn og rekstri fyrirtækis, hvaöa
áhrif starfsmenn hafa þar á. Mikið hefur
verið rætt um atvinnulýðræði hér á
landi og hefur málið verið lagt fram sem
frumvarp á Alþingi, sem þó gekk ekki
lengra en það. Þátturinn verður I beinni
útsendingu, en ekki hafði verið ákveðið
hvaða menn kæmu til viðræðna er DB
hafði samband við Ólaf Ragnarsson. Þó
sagði Ólafur að það yrðu menn sem
væru inni I þessum málum og gætu gert
grein fyrir þeim. Þátturinn er fimmtlu
mín. langur.
- ELA
K
Ólafur Ragnarsson ritstjóri verður meó
umræðuþátt um atvinnulýðræði i sjón-
varpi i kvöld.
Verkfall i Bæjarútgerð Hafnarfjarðar út
af deilum við verkstjóra. Hversu mikil
áhrif á starisfólk fyrirtækja að hafa á
stjórn mála?
Innflytjendur - Kaupmenn
Get aðstoðað við að leysa út vörupartí.
Tilboð sendist Dagblaðinu fyrir 27. okt. merkt
„Beggja hagnaður 16084”.
Laus staða
Laus er til umsóknar önnur staða læknis við Heilsu-
gæslustöðina í Keflavík. Auk læknisstarfa í Keflavík
annist viðkomandi móttöku sjúklinga í Grindavík,
Sandgerði og Gerðum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist ráðuneytinu fyrir 15. nóvember nk. Staðan
veitist frá og með í. janúar 1979.
Heilbrigflis- og tryggingamélaróðuneytið
18. október 1978.
UREVnil
Simi 8 55 22
GLÆSILEG SÝNING
ÍÁGHÚSINU.
ÁRTÚNSHÖFÐA
Skoóió nýjungar innkncira fvcimleióendct.
hiisgögn. ciklœói og innréttingar.
Opió virka daga kl. 17— 22
Laugardaga og sunnudaga kl. 14—22