Dagblaðið - 24.10.1978, Page 24
Loönuveiðamar
lífshættulegar
i desember?
I
wam\
sjómenn
hugleiða
að knýja
á um veiði-
bann þá J
Á þingi sjómannasambands íslands,
sem hefst bráðlega, verður m.a. rætt
um að knýja á um að bann verði lagt
við loðnuveiðum í desembermánuði af
öryggisástæðum.
Veiðar þessar eru stundaðar á mjög
norðlægum slóðum um þetta leyti og í
desember er allra veðra von með
skömmum fyrirvara. Þá er einnig
algengt að hitastig sjávar fari niður
fyrir frostmark, sem þýðir geysilega
ísingarhættu, svo sem í Ijós hefur
komið. Einnig er hverjum þeim
sjómanni, sem fellur fyrir borð við
slíkar aðstæður, bráður bani búinn
þótt hann náist nær samstundis upp.
Má í því tilviki nefna að fyrir stuttu
féll sjómaður útbyrðis af loðnuskipi í
fjögurra stiga sjávarhita og var hann I
sjónum i aðeins þrjár mínútur. Samt
sem áður hugðu félagar hans honum
vart líf i fyrstu, þótt úr rættist.
Ekki hyggjast sjómenn að svo
stöddu grípa einhliða til þessara
veiðitakmarkana. í Ijósi undirtekta á
þinginu verður rætt við hlutaðeigandi
hagsmunaaðila, svo sem’ fiskimjöls-
verksmiðjurnar. -G.S.
MIKILL ÁHUGI L
Á FRAMLEIÐSLU^
LÉTTMJÓLKUR V
— segir nýráðinn forstjóri Mjólkursamsölunnar
„Viö höfum lengi haft fullan hug á
framleiðslu léttmjólkur enda teljum við
okkur með því koma til móts við fjölda
neytenda, en óvissa um verðlagningu
hennar kemur hins vegar í veg fyrir að
unnt sé að hefja framleiðsluna,’ sagði
Guðlaugur Björgvinsson nýráðinn for-
stjóri Mjólkursamsölunnar I viðtali við
DB í morgun.
Björgvin tekur við starfinu af Stefáni
Björnssyni um næstu áramót en hefur
gegnt framkvæmdastjórastöðu hjá fyrir-
tækinu síðan I ársbyrjun 1975. Hann
lauk viðskiptafræðiprófi frá Háskóla
Islands 1971 og hóf störf hjá Mjólkur-
samsölunni 1974, þá sem fulltrúi for-
stjóra.
- GS/JH
Hvað á að gera í meiri
háttar jarðhræringum?
Þangað til á fundi Hjálparsveitar
skáta í Hveragerði sl. fimmtudag hafa
Sunnlendingar sýnt tómlæti fræðslu-
og umræðufundum um jarðskjálfta-
hættu. Fundurinn í Hveragerði var
fjölsóttur og málefnalegur með al-
mennri þátttöku í umræðum.
Þeir Guðjón Petersen, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna, og.
Sveinbjörn Bjömsson eðlisfræðingur
héldu framsöguerindi. Þarf ekki að
orðlengja það, að þau vöktu áhuga
fundarmanna, sem notuðu tækifærið
og spurðu fjölmargra spurninga. Þeir
Guðjón og Sveinbjörn gerðu þeim
síðan skil. Fóru á annað hundrað
fundarmanna margs visari heim af
fundinum. Var það mál manna, að
slíka fundi ætti að halda viðar og
oftar.
Hjálparsveitir skáta eru með þeim
fyrstu, sem kallaðar eru til aðstoðar, ef
til jarðhræringa kemur og hætta
virðist steðja að. Hafa þær ekki áður
boðað til funda eins og þess, sem
Hvergerðingar rpma nú.
Vera má, að Hveragerðisfundurinn
sé til marks um, að efna mætti til
fræðslu- og umræðufunda um þetta al-
varlega efni. Að sjálfsögðu varðar það
meiru en orð lýsa, hvernig almenning-
ur bregzt við vágestum eins og jarð-
skjálftum og öðrum náttúruhamför-
um.
- BS
Heimsnöfnin í Reykjavík — Souzay heldur námskeið hér — Moffo kemur f kvöld:
„Svona fallegur kven-
maður getur ekki sungið”
— sagði Ormandy og neitaði að hlýða á Moffo
Borgarbúar geta heldur betur svifið
á vængjum söngsins þessa votu haust-
daga Ljóðasöngvarinn heimsfrægi,
Gerard Souzay, lýkur námskeiði sínu I
Hamrahlíð I dag (viðtal við hann
birtist í DB næstu daga) og i kvöld
kemur Anna Moffo fljúgandi til að
halda tvenna tónleika á vegum
Fulbright stofnunarinnar á íslandi og
H.í.
Til að rekja söngafrek Önnu Moffo
þyrftum við að gefa út aukablað.
Látum nægja að geta þess, að hún
hefur sungið 17 aðalhlutverk I
Metropólitan óperunni i New York.
Og þegar I fyrsta sinn var flutt ópera
undir berum himni þar I borg, I
Central Park garðinum, var það Anna
Moffo sem söng aðalhlutverkið. Mimi
I La Boheme fyrir fimmtíu þúsund
áheyrendur. Auk þess hefur hún
sungið í óperuhöllum út um allan
heim, í kvikmyndum og inn á óteljandi
plötur.
‘ Það hlutverk sem hún hefur hvað
oftast sungið er hin ástfangna og
berklaveika Violetta í La Traviötu
Verdis. Hún hefur líka oft sungið hið
erfiða hlutverk Luciu di Lammermoor
i meistaraverki Donizettis, en auk þess
fjölda frægra hlutverka og bætir
stöðugt við sig.
Þaö allra nýjasta er aðalhlutverk I
áður óþekktri óperu Verdis, Stiffelio,
og syngur hún tvær aríur þaðan á
tónleikunum hér.
Faðir önnu Moffo var italskur
skósmiður úr fjallahéraðinu Abruzzi,
sem fluttist með fjölskyldu sin til
Ameríku I von um betri daga. Anna
fór ung á vegum Fulbright-stofnunar
aftur til ættlands feðra sinna að læra
að syngja og sló þar i gegn rúmlega
tvítug í sjónvarpsupptöku á Madame
Butterfly með sinni dramatísku
sópranrödd.
Anna Moffo er mjög fögur kona.
Það er sagt að eitt sinn er hún var ung
og óþekkt hafi hún ætlað aö syngja
fyrir Eugene Ormandy. En hann
þverneitaði að hlusta á hana, með
þeirri röksemdafærslu, að það væri
útilokað að svona fallegur kvenmaður
gæti nokkuð sungið. Loks féllst hann á
að hlusta, með lokuð augun til að
ruglast ekki. Siðan hefur útlitið ekki
verið þessari frægu söngkonu til
trafala eins og okkur gefst kostur á að
sjá og heyra á tónleikum hennar í Há-
skólabiói siðar I vikunni.
-ÍHH.
Tónleikar í Háskólabíói
Fintmtudaginn 26. október I97S hl. 20.il)
Sunnudaginn 29. október 1978 kl. 1430
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKT. 1978.
Þeir óttuðust
stórhríð
nyrðra
— en veðurfræðingar
telja litla hættu á
henni að þessu sinni
í morgun var slydda og hríð á annesj-
um nyrðra og allhvass og hvass vindur
af norðri og norðvestri. Var ekki laust
við að uggur væri I mönnum er DB
talaði við nyrðra í morgun, um að nú
liti út fyrir stórhrið.
Markús Einarsson veðurfræðingur
tókaf skariðum Það er DBræddi
við hann um niuleytið. Taldi hann þetta
áhlaup myndi ganga fljótt austur yfir
landið og yrði ekki um mikla snjókomu
að ræða að þessu sinni. Úrkomulaust
var í innsveitum og t.d. á Akureyri í
morgun, en ekki var ólíklegt talið að þeir
myndu fá aðsjá einhvern snjó.
Hér sunnanlands er útlit fyrir að birti
til i dag með norðan kalda en siðan
þykknar aftur upp af suðaustri.
- ASt.
250 þúsund-
um stolið
ígær
— úr herbergi sem
lokað var með
hespu og hengilás
Enn varð Breiðfirðingabúð við Skóla-
yörðustíg miðpunktur atburða í gær-
kvöldi. Lögregla var þangað kvödd
klukkan um ellefu og skýrði húsráðandi
svo frá að horfnar væru úr húsinu 250-
þúsund krónur í peningum.
Kveðst hann hafa brugðið sér frá um
fimmleytið i gær. En svo var það ekki
fyrr en um kl. 11 að hann sá að hurð á
herbergi innan við útidyr, sem lokað var
með hespu og hengilás, hafði verið
sprengd upp með einhverju móti. Hús-
ráðandi viðurkenndi að útidyraumbún-
aður hefði verið ótryggur, og það svo að
sparka hefði mátt upp útihurðinni þó
læst væri. Rannsóknarlögreglan mun fá
mál þetta til meðferðar.
- ASt.
BHM-menn mótmæla
harðlega — Setja
þeir úrslitakosti?
Bandalag háskólamanna fundar í dag
út af kjaramálum. Fundurinn hefst kl.
13.30 á Hótel Sögu. Fundarefnið er
einkum sú lögboðna kauplækkun, sem
BHM-menn telja sig búa við.
Allur þorri BHM-manna býr við
tekjumörk, sem eru ofan við launaþakið,
sem kauplagsvisitala fer ekki upp fyrir.
BHM-menn telja, að sú stefna, sem nú
^rikir I samhengi mánaðarlauna og vísi-
töluuppbótar á þau, sé svo óhagstæð
sér, að ekki sé þolandi. Séu þeir beittir
órétti samanborið við aðrar stéttir laun-
þega. Þykir fullvíst, að BHM-fundurinn
I dag geri harðar ályktanir til þess að
mótmæla launastöðu háskólamanna.
- BS