Dagblaðið - 13.01.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1979.
7
Fjölbrautaskólarnir:
SAMRÆMT FYRIR-
KOMULAG OGINNI-
HALD NÁMS
Þrír fjölbrautaskólar, Fjölbrautaskól-
inn á Akranesi, Fjölbrautaskóli Suður-
nesja og Flensborgarskólinn í Hafnar-
firði, hafa gefið út sameiginlegan Náms-
vísi og þar með samræmt fyrirkomulag
og innihald náms á stöðunum öllum.
Skólamir starfa allir eftir áfangakerfi
og samræmingin felur það í sér að nú
eru námssvið og námsbrautir í skólun-
um öllum eins uppbyggð og námsáfang-
ar skilgreindir á sama hátt. Það þýðir að
nemendur skólanna geta farið óhindrað
á milli þeirra og fá nám á einum staðn-
um metið að fullu á öðrum.
Frá upphafi hefur mikil og náin sam-
vinna átt sér stað milli þessara þriggja
skóla, þótt um algjöra samræmingu hafi
ekki verið að ræða fyrr en nú. Samræm-
ingarstarfið hefur tekið talsverðan tíma
og meðan á því stóð hafa ýmsir aðrir
skólar sýnt því áhuga, þannig að Náms-
vísirinn nýi verður notaður allmiklu víð-
ar en í skólunum þremur, þar á meðal í
framhaldsdeildum á Vesturlandi og á
Austfjörðum og í Garðaskóla í Garða-
bæ.
-GAJ-
Heimkoma eiginkvenna skipverja á Bjarti á Neskaupstað:
FRAMVÍSUÐU STRAX
ÖLLUM TOLLSKYLD-
UM VARNINGI
„Við komu togarans framvísuðu
skipverjar ákveðnum hlutum sem toll-
ar voru lagðir á,” sagði Böðvar Braga-
son bæjarfógeti á Neskaupstað í við-
tali við DB í gær.
Tilefnið var frétt blaðsins sl. mið-
vikudag þess efnis að togarinn Bjartur
hefði farið i söluferð til Bretlands fyrir
jólin og tíu eiginkonur skipverja, sem
fóru með, gert þar mikil innkaup. Var
sú frétt höfð eftir brezku blaði.
Sagði Böðvar að fólkið hefði að
fyrra bragði framvísað hlutunum og
við tollskoðun hefði komið i ljós að
ekkert tollskylt umfram það var i skip-
Er hann var spurður hvort mikill
varningur hefði verið í skipinu sagðist
— ekkertsmygl
varískipinu
hann ekki hafa gögnin alveg við hönd-
ina en ekki hefði það verið umtalsvert.'
Þess má að lokum geta, eins og reynd-;
ar kom fram í fyrri fréttinni, að ferð
Bjarts með eiginkonur skipverja er
ekkert einsdæmi innan flotans og bæta
má við að Bjartur hefur ekki farið 1
söluferð í fjögur ár.
-G.S.
SeiðkaHinn með svarta kassann
Maður stendur úti á götu í glaða
sólskini. ímynd hans smýgur gegnum
kúpta linsu og fellur á ljósnæma
ræmu. Ljósmynd hefur verið tekin.
Hvers mjög sem ljósmyndarinn reynir
að færa til eða skrumskæla þá gengur
ofangreind atburðarás fyrir sig
næstum sjálfkrafa. Ljósmyndin virðist
sanna að eitthvað hafi skeð — að
maðurinn hafi í raun og veru staöið
þar sem hann stóð. Að því leyti er ljós-
myndun ólík öllum öðrum greinum
sem fást við gerð eftirmynda. Hún
kemur nefnilega á næstum yfirnátt-
úrulegu (og aldagömlu) sambandi milli
manns og myndar. Við vitum þaö öll
hve erfitt okkur reynist stundum að
rifa í tætlur ljósmyndir af nánum vin-
um eða ættingjum. Ljósmyndin er
töfragripur sem er ekki bara „eins” og
fyrirmyndin, svipað og málverk,
heldur er hún hluti af fyrirmyndinni
og kannski gegnir sama hlutverki og
galdralíkön seiðkarla I frumstæðum
löndum. Með henni er hægt að
„eignast” fyrirmyndina, ná taki á
henni.
Við erum ljósmyndaskynslóðin og
við rekumst á ljósmyndir hvert sem
við förum. Við lítum ekki bara á Ijós-
myndina sem eftirmynd heldur er hún
eins og hver annar hlutur. Ljósmyndin
er jafnvel farin að kenna okkur að sjá.
Þessu fylgja ýmsar hættur. Þegar
myndir breytast þá höldum við að
einhverjar breytingar hafi átt sér stað í
þjóðfélagiuu. Kannski höldum við lika
að það sé hið eina sanna frelsi að fá að
sjá myndir af því sem við viljum.
Aðrar hættur mætti nefna: ljós-
myndin býr til falska mynd af þvi sem
er að gerast í heiminum og sömuleiðis
um saman og sýningin er sett upp
undir titlinum „Á leið i paradís” og
skipt niður í deildir eftir efni. Óneitan-
lega minnir þetta fyrirkomulag á hina
miklu sýningu Steichens, The Family
of Man, en þar sem Steichen reyndi að
fara bil beggja og nota ljósmyndina
bæði sem listaverk og þjóðfélagslega
heimild þá undirstrika þeir Stern-
menn fyrst og fremst heimildagildi
ljósmynda sinna. Þetta er kannski
ágætt þvi ekki er verið að þröngva upp
á okkur listrænum skilgreiningum á
meðan. Góð Ijósmynd er eins konar
list, mikil ósköp — en hún er fyrst og
fremst Ijósniynd. Og „góð” er hún
kannski vegna þess að hún segir okkur
eitthvað nýtt og eftirminnilegt um
Merkilegt nokk, þá halda þeir því fram
að þær mörgu myndir sem lýsa eymd
og volæði manna víða um heim séu
andhverfa sem í raun renni stoðum
undir þeirra „argúment” — með þvi
að sýna hve langt mannkynið sé frá
paradis. Hér renna á mig tvær grímur,
því svona lógík skil ég ekki. Ég held að
nær hefði verið að hleypa þessari sýn-
ingu af stokkunum með þeim for-
merkjum einum að hún sýndi hegðan
mannfólksins viða um heim á því herr-
ansári 1973, punktur.
Og það gerir hún sannarlega. Þar
koma deildarskiptingar sýningarinnar
að gagni og hinir ýmsu flokkar verða
stundum eins og heillegir og skáldlegir
bálkar, þrátt fyrir það að Ijósmyndar-
^ Myndir afsýningunni. 4^.
arnir séu dreifðir um alla
jarðkringluna. Það hefur tekist
nokkuð vel að koma henni fyrir I
vestursal Kjarvalsstaða og niður-
skurður myndanna virðist ekki
skemma heildina. Þó finnst mér marg-
ar myndanna nokkuð sjúskaðar eftir
Myndlisl
langt ferðalag og yfir þær hefur verið
lög einhverslags plasthúð sem i sum-
um tilfellum skemmir fyrir. Ekki er
nokkur leið að telja upp uppáhalds-
myndir i þessum mikla fjölda. Vil ég
aðeins hvetja alla — Ijósmyndara,
persónufræðinga og áhugamenn um
mannlíf yfirleitt — að sækja þessa
sýningu og kennarar ættu einnig að
labba með bekki þangað.
Loðfóðruð leðurstígvél nýkomin
getur Ijósmyndin verið tæki I höndum
ein- og skrifræðis. Þessum brotalöm-
um ljósmyndarinnar hefur bandariska
skáldkonan Susan Sontag lýst skil-
merkilega i bók sinni, On Photo-
graphy, sem nánar verður rætt um
síðar.
Tilefni þessa formála er að sjálf-
sögðu ljósmyndasýning á vegum
félagsins Germaníu að Kjarvals-
stöðum, þar sem um 300 Ijósmyndir
víða úr heimi eru til sýnis. Þýska tíma-
ritið Stern hefur safnað þessum mynd-
mannlífið. En í eðli sinu er ljósmyndin
hlutlaus miðill.
Stern vill með þessari sýningu lýsa
einhvers konar þróun og i sýningar-
skrá, sem er vönduð bók, er því haldið
fram fullum fetum, að hún sýni fram á
að mannkynið sé smátt og smátt að
fikra sig í átt að nýjum og betri heimi,
nýju frelsi, ergo: „Á leið í paradís”. Ég
held að ekki þurfi maður að vera for-
fallinn bölsýnismaður til að efast um
að mannkynið sé á leið fram á við
eins og þeir Stem-menn halda.
Lrtur:
Natur
Stærðir:
36-40
Verðkr.
19.000,-
Skóbúðin Snorrabraut 38—Sími 14190
Lipurtá,Hafnargötu,Keflavík