Dagblaðið - 26.01.1979, Síða 15

Dagblaðið - 26.01.1979, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979. 19 Heldur Dizzy Gillespie hljómleika nér á landi? Jazzvakning hefurgóöar vonir um að fá hann iheimsókn um miöjan næsta mánuð Jazzvakning vinnur að því þessa dagana að fá til landsins heimsfræg- an hljóðfæraleikara, sjálfan Dizzy Gillespie. Fari svo að hann komi, verða haldnir einir hljómleikar með kappanum og hljómsveit hans i Há- skólabíói um miðjan febrúar. „Það hefur verið draumur okkar hjá Jazzvakningu, allt frá því er félagið var stofnað, að fá Dizzy Gillespie hingað til lands og halda með honum hljómleika,” sagi Jóna- tan Garðarsson í samtali við Dag- blaðið. „Það er mikið átak fyrir okkur að fá hann í heimsókn, sér- staklega af því að hann er dýr skemmtikraftur. En við erum tilbúnir að reyna að láta þennan gamla draum rætast.” Til marks um það, hve dýrt er að halda hljómleika með Dizzy Gillespie þarf aðgöngumiðaverðið að þeim að vera 5.500 krónur. Verði selt í hvert sæti í Háskólabiói, — tæplega eitt þúsund miðar, fær Jazz- vakning í sinn hlut aðeins um hundrað þúsund krónur. Sú upphæð er aðeins smábrot upp i þá vinnu, sem Jazzvakningarmenn verða að inna af hendi til að standa undir slíku fyrirtæki. „Við erurn nokkuð bjartsýnir um að geta fyllt Háskólabíó — ef af heimsókn Gillespies verður. — Hann er eitt af þremur stærstu nöfn- unum í jazzheiminum frá upphafi, i hóp með Louis heitnum Armstrong og Miles Davis,” sagði Jónatan Garðarsson. „Á trompett hafa hann og Armstrong verið hvað atkvæða- mestir allra og eiga mestan þátt i að útvíkka möguleika þess hljóðfæris.” Jónatan Garðarsson var að lokum inntur eftir þvi, hve miklir möguleik- Þokkabótarplatan verðurfyrstá markaðinn í ár — þegarfrá ertalin reykingaplatan Fyrsta hljómplatan, sem kemur á markaðinn i ár, er plata Þokkabótar, / veruleik. — Þá er reyndar frátalin áróðursplata Samstarfsnefndar um reykingavarnir, sem út kom á þriðju- daginn. Útgáfudagur / veruleik hefur verið ákveðinn 10. febrúar næstkomandi. Eins og frá var skýrt á poppsíðu Dagblaðsins fyrir nokkrum mán- uðum, var áformað að gefa Þokka- bótarplötuna út fyrir jól. Frá því var þó horfið vegna tímaskorts. Að sögn Björns Valdimarssonar útgáfustjóra hjá Fálkanum barst fyrsta sending plötunnar ekki til landsins fyrr en 19. desember síðastliðinn. Því var ákveðið að biða með útgáfu hennar fram yfir janúarútsölur. Platan / veruleik var tekin upp í Hljóðrita í Hafnarfirði á siðasta hausti. Hún hefur að geyma tón- smíðar þeirra Halldórs Gunnars- sonar og lngólfs Steinssonar. Þriðji Þokkabótarmaðurinn, sem stendur að gerð plötunnar er Lárus Grimsson. Áformað er að Þokkabót leiki á nokkrum tónlistarkvöldum eftir að / veruleik kemur út. önnur hljómsveit, Eik, kemur einnig fram, og leikur jafnframt með Þokkabót. Eikin hefur nú verið endurreist á ný eftir árs hlé. Hana skipa að mestu leyti sömu menn og er hljómsveitin var lögð niður. Nýr trommuleikari, Sigurður Karlsson, hefur þó bætzt í hópinn. Hann leysir af hólmi Ásgeir Óskarsson Þursaflokkstrommara. Það var hljómplötudeild Fákans sem, líkt og nú, gaf út fyrstu hljóm- plötu ársins í fyrra. Hún kom þóekki á markaðinn fyrr en i marz. Hljóm- plötuútgáfan fer því nokkru fyrr af stað nú en siðast, þó að illa ári. - ÁT Rolling Stones taka upp á Bahamaeyjum Næsta plata er væntanlegí febrúar Rolling Stones hafa bókað sér tveggja vikna tíma í hljóðveri í Nassau á Bahamaeyjum, síðar i þess- um mánuði. Það kemur nokkuð á óvart, því að hljómsveitin á hljóðrit- uð lög fyrirliggjandi á einar þrjár breiðskífur. Þau voru tekin upp í Paris I fyrra um leið og lögin á plöt- unni Som Girls voru hljóðrituð. Lögin sem tekin verða upp á Bahamaeyjum eru að sjálfsögðu öll eftir Mick Jagger og Keith Richards. Þau eru samin á síðustu vikum og mánuðum. Reiknað er með því að næsta plata Rolling Stones verði gefin út i næsta mánuði. Einhvern tíma láku þær upplýsingar út vestanhafs að nafn hennar ætti að verða Certain Women. Þá herma fréttir jafnframt að Steinarnir séu að undirbúa hljóm- leikaferð til Ástralíu og Nýja Sjálands í vetur. I sumar hyggst hljómsveitin síðan vísitera fornar slóðir í Evrópu, England. OrMELODY MAKER arnir á komu Dizzy Gillespie til landsins væru. Hann svaraði: „Ef ég ætti að nefna einhverja prósentutölu, þá myndi ég segja að möguleikarnir væru ... ja, 85 pró- sent.” - ÁT Dizzy Gillespie. FÁLKINN Í FARARBRODDI «IOW ÍffiEBr.'T □ Barry Manillow — Greatest Hits Barry Manillow var á síðasta ári söluhæsti söngv- ari í Bandaríkjunum og skaut t.d. Billy Joel og Andy Gibb aftur fyrir sig. Nú getum við boðið tvær plötur með öllum hans vinsælustu lögum á aðcins kr. 7.800. □ Olivia Newton-John — TotallyHot Þessi nýja plata Oliviu hefur fengið einstakar við- tökur og er nú ofarlega á vinsældalistum víða um heim. Þetta kemur engum á óvart þar sem þessi plata er jafnvel enn hressilegri en lögin henng Grease. Fft JíSsjó V2Tt#- ******** tiM Klippið út og sendið Nýjar plötur: Vinsælar plötur: □ Toto — Toto Earth Wind & Fire — Best of D Rod Stewart — Blondcs have more fun □ Dr. Hook — Pleasurc & Pain 1 Neil Diamond — You don’t bring me Kate Bush — Lionheart flowers Billy Joel — 52nd Street f Erick Clapton — Backless C: Meat Loaf — Bat out of hell □ Doobie Brothers — Minute bv minute [ IJethroTull — Live □ Jim Morrison — American Prayer □ Boh Marley — Babylon by bus Vmsir — Don’t walk, boogie Klassískar rokkplötur: íslenzkar plötur: [ Quicksilver Messanger Service Þursailokkurinn — Hinn ísl. þursaflokkur Beatles — Sgt. Peppers Lonely Hearts Bessi o.fl. — Ævintýralandið Club Band Ýmsir—Beztu lög 6. áratugsins [ ! Kinks — Lola versus Powerman Vmsir— Einsöngspcrlur □ Pink Floyd — Dark Side of the Moon Gunnar Þórðarson □ Jackson Browne — Running un Empty Björgvin Halldórsson — Ég svng fvrir þig □ Roger McGuinn — Cardiff Rose : Spilverk þjóðanna — ísland VERZUD (Nafn) ÞARSEM URVALIÐ rp /LfCOT (Heimilisfang) £71 /r/CO # (Póstn. KaupstJsýsla) W~ A M l/lliai m m m mm mm m*. mm. mm. m FÁLKINN í FARARBRODDI - FÁLKINN í FARARBRODDI

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.