Dagblaðið - 26.01.1979, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979.
I
D
Útvarp
Sjónvarp
/-------------------------------------------v
í DÖGUN—sjónvarp íkvöld kl. 22.20:
H jartaknúsarinn Flynn í aðalhlutverki
1 dögun nefnist biómynd sjón-
varpsins i kvöld og er hún svarthvít.
Myndin er bandarisk frá árinu 1938 með
Eroll Flynn, Daid Niven og Basil Rath-'
bone í aðalhlutverkum.
Myndin greinir frá hermönnum, sem
berjast í fyrri heimsstyrjöldinni. Flug-
menn brezka flughersins eru aðalsögu-
hetjurnar og eiga þeir við sterkan and-
stæðing að etja. Yfirmenn flugsveitanna
lenda í miklum erfiðleikum er þeir þurfa
að senda félaga sina út i opinn dauðann
til þess eins að þjóna markmiöum
hershöfðingjanna og stjórnmálamanna.
Kvikmyndabókin okkar gefur
myndinni þrjár og hálfa stjörnu af
fjórum mögulegum sem þýðir að kvöld-
stund fyrir framan skjáinn ætti ekki að
vera svo illa varið.
Eroll gamli Flynn leikur eins og áður
sagði aðalhlutverkið i myndinni.
Myndin var tekin á þeim tíma er Flynn
var aðalhjartaknúsarinn i Hollywood og
reyndar víðar um heiminn. Þótt gagn-
rýnendur væru sammála um það að
Flynn gæti ekki leikið var samt eitthvað
við hann sem fékk fólk, þó aðallega
konur, til þess að fá djúpa samkennd
með honum og dá allt sem hann gerði.
Flynn var fæddur á eyjunni
Tasmania og nam i Ástralíu og
Englandi. 1933 lék hann á sviði í
London og var þá uppgötvaður af einum
forráðamanna Warner kvikmynda-
félagsins. Hann fór vestur til Banda-
ríkjanna þar sem hann sló í gegn með
leik í myndinni Captain Blood. Hann
þótti hæfa sérlega vel i hlutverk
sögufrægra persóna eins og Hróa hatt-
ar, DonJuans og fleiri.
Olivia de Haviland lék í mörgum
Flynn f hlutverki sfnu f föstudagsmynd sjónvarpsins.
myndum á móti Flynn og sagði hann í
ævisögu sinni að enginn einn hefði gert
sér betra en hún. Hún hefði gert hann að
þvi sem hann væri.
En frægð Flynns byrjaði að dala strax
uppúr 1942 er hann lék i mjög umdeildri
mynd, Objective Burma, þar sem deilt
var á Breta fyrir að berjast ekki í Burma.
Myndin var bönnuð í Bretlandi.
Á sama tíma hættu þau Olivia að
leika saman og Flynn var ákærður fyrir
nauðgun. Ákæran reyndist ekki eiga fót
fyrir sér en skemmdi samt töluvert fyrir
honum.
I byrjun sjötta áratugsins reyndi
Flynn að stofna eigin kvikmyndafélag
en það fór á hausinn og gerði hann nær
gjaldþrota.
Þá fór hann til Bretlands og endaði
leikferil sinn með þvi að leika fyllibyttur
í þrem myndum. Reyndar lék hann eftir
það i einni áróðursmynd fyrir Kúbu-
stjórn, en sú mynd var bönnuð í Banda-
rikjunum og er sjaldan minnzi á hana.
Flynn dó árið 1959 af. hjartaslagi,
einn og yfirgefinn af öllum konunum
sem vildu eiga hann á árum áður.
DS.
K ASTUOS — s jónvarp í kvöld kl. 21.20
TANNRÉTTINGAR
0G HEIMASTJÓRN
Á GRÆNLANDI
Kastljósið í kvöld er í umsjón Guð-
jóns Einarssonar fréttamanns. Hann
hafði þetta að segja um þáttinn:
„í þættinum verður rætt um tannrétt-
ingar og þátttöku hins opinbera í kostn-
aði við þær. Eins og kunnugt er hafa ekki
allir tannréttingasérfræðingar viljað ger-
ast aðilar að samningi við tryggingar-
stofnunina um endurgreiðslu hins opin-
bera og hafa því fjölmargir orðið að
greiða fullt verð fyrir þessa þjónustu og
það reynzt þungur baggi á sumum heim-
ilum. Vilhelm G. Kristinsson fréttamað-
ur annast þennan þátt Kastljóssins.
Síðan verður fjallað um ástand mála á
Grænlandi, en sjónvarpsmenn voru á
Suður-Grænlandi í fyrri viku og kynntu
sér afstöðu manna til heimastjórnar og
þeirra breytinga sem hún hefur i för með
sér fyrir Grænlendinga. Einnig verður
fjallað um þau vandamál sem skapazt
hafa á Grænlandi siðustu áratugina
vegna hinnar öru þróunar frá veiði-
mannasamfélagi til nútímalifnaðar-
hátta.”
DS.
J
Grænlendingar kusu nýlega heimastjórn
og var hón samþykkt með 70% meiri-
hluta. Um það verður fjallað I Kastljósi i
kvöld.
Mynd: Jim Smart.
________________________________/
Útvarp
Föstudagur
26. janúar
12.25 Veöurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Húsið og hafið” eftir
Johan Bojer. Jóhannes Guðmundsson þýddi.
Gísli Ágúst Gunnlaugsson les (6).
15.00 Miðdegistónleikan Arnold van Mill
syngur óperuariur eftir Lortzing ásamt kór og
hljómsveit undir stjórn Roberts Wagners / Út-
varpshljómsveitin i Berlin leikur „Uppsala-
rapsódiu” nr. 2 op. 24 eftir Hugo Alfvén; SUg
Rybrant stj.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.00 Popphorn: Dóra Jónsdóttir kynnir.
17.20 Útvarpssaga barnanna: „Depill”, smásaga
eftir Margaret Rey. Guðrún ö. Stephensen les
eigin þýöingu.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. FréttaaukL Tilkynningar.
19.35 Kampútsea — og framvinda þar siðustu
árin. Þorsteinn Helgason kennari flytur annað
erindi sitt.
20.00 Frá hljómleikum í Tónlistarháskólanum I
Búdapest 1 janúar 1977. Flytjendur: Andreas
Schiff, Sylvia Sass og Ungverski útvarpskór-
inn. Stjórnandi: Laszló Révesz. a. Píanósónata
í C-dúr eftir Joseph Haydn. b. Fimm sönglög
eftir Béla Bartók. c. Söngvar og rómönsur op.
93 eftir Johannes Brahms.
21.00 Janúar. Kjartan Ámason og Páll Stefáns-
son tóku saman þátt með blönduðu efni.
21.40 Klarinettukvintett i A-dúr (K581) eftir
Wolfgang Amadeus MozarL Antone de
Bavier og Nýi italski kvartettinn leika.
22.05 Kvöldsagan: „Hin hvitu segl” eftir
Jóhannes Helga. Heimildarskáldsaga byggð á
minningum Andrésar P. Matthíassonar. Krist-
inn Reyr les(9).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.50 Úr menningarlifinu. Hulda Valtýsdóttir
talar við Einar Hákonarson skólastjóra Mynd-
listar- og handiðaskóla íslands.
23.05 Kvöldstund meðSveini Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
i
Föstudagur
26. janúar
20.00 Fréttirog veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 James Taylor. Poppþáttur með söngvar-
anum og lagasmiðnum James Taylor.
21.20 Kastljós. Þáttur um innlend málefni.
UmsjónarmaðurGuðjón Einarsson.
22.20 í dögun s/h. (Dawn Patrol) Bandarísk bió
mynd frá árinu 1938. Aðalhlutverk Errol
Flynn, David Niven og Basil Rathbone. Sagan
gerist i fyrri heimsstyrjöldinni. Sveit manna úr
breska flughernum er á vígstöðvunum i
Frakklandi. Við öflugan óvin er að etja og
manntjóniö er mikið. Þýðandi Rannveig
Tryggvadóttir.
00.00 Dagskrárlok.
27
Vinsælustu
herrablöðin
MMhCjsio
Laugavegi 178- Sími86780
Smurbrauðstofan
NjúUgötu 49 — Simi 15105
til
tækifærisgjafa
LANDSINS
MESTA
LAMPAÚRVAL
BJORNINN
PÖSTSENDUM
LJOS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
simi 84488