Dagblaðið - 30.03.1979, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979.
ATVINNUREKENDUR
sendibIlstjórar
Nú er tækifærið, látið ekki happ úr hendi
sleppa.
Tilboð óskast í Ford Custom Dodge árg. 1977,
viðgerðan eftir veltu. Ekinn aðeins 510 km.
Burðarþol allt að 5 tonnum. Sem nýr. Uppl. í
síma 51411 um helgina og næstu viku á
kvöldin.
Geymsluhúsnæði
120 ferm geymsluhúsnæði í kjallara nálægt
Hlemmi til leigu. Uppl. hjá auglþj. DB í síma
27022.
H-434
Þaðerekki
allt fengið með
miklum hita
Nú hefur Braun sett á markaðinn hárblásara,
sem í raun og veru verndar hárið,
BRAUN SDE 850.
Braun hárblásarinn hefur innbyggðan raf-
eindaskynjara, sem sér um að hitastigið
haldist algjörlega rétt, hvort sem blásarinn er
þétt við hárið eða langt frá því.
Þreplaus stilling hitans.
Tveir hraðar.
Stilling fyrir allar gerðir af hári.
Fimm nytsamlegir fylgihlutir.
Braun hárblásarinn er árangur þrotlausra
rannsókna og tilrauna í sambandi við
hárgreiðsiutækni.
Fullko.nin viðhalds- og varahlutaþjónusta.
VERSUUNIN
PFAFF
Skolavöröustig 1-3 Bergstaóastræti 7 Simi 26788
Helgarpóstsmenn um prentdeilumar í Blaðaprenti:
Þrátt fyrir öll lætin i fjármálaheiminum er engan bilbug á blaðamönnum Helgarpóstsins að finna. Frá vinstri er Ami
i-ór<.:insson, Björn Vignir Sigurpálsson, Guðjón Arngrímsson, Friðþjófur Helgason Ijósmyndari, Aldis Baldursdóttir
og Guðlaugur Bergmundsson. Af öðrum mönnum úr „kjarnanum” vantar á myndina þá Jón Óskar Hafsteinsson og
Guðmund Arna Stefánsson. -DB-mynd R.Th.
HÖFUM GAMAN AF
ÞESSUM TITRINGI í
BLAÐAHEIMINUM
—blaðið kemur út um aðra helgi
— prentmálið fyrir gerðardóm
„Við höfum gaman af þeim
titringi, sem þetta nýja blað veldu' í
blaðaheiminum,” sagði Árni Þórai
insson, einn blaðamanna og aðstand-
enda Helgarpóstsins, er DB menn litu
þar inn í gær til að fylgjast með
fæðingu þessa nýja blaðs, sem á að
koma á markaö um aðra helgi.
Svo sem áöur hefur verið skýrt frá
telja aðstandendur blaðsins sig ekki
vcra að fara í 'samkeppni við neitt
annað blað, né helgarblöð dagblað-
anna, heldurað iialda inn á óplægðan
akur.
Þó kveða við miklir brestir i blaða-
heiminum í kjölfar þess að Helgar-
pósturinn er að brjótast út úr egginu.
Samstarf tókst með Helgarpóstinum
og Alþýðublaðinu um að hið fyrr-
nefnda skyldi prentað í Blaðaprenti á
AB kjörum, enda tekur AB þátt í
25% fastakostnaði þess fyrirtækis,
en nýtir sinn þátt mun minna en
önnur blöð.
Því telur útgáfustjórn AB sig hafa
fullan rétt til að nýta sér breytilegan
kostnað, umfram fastakostnað í hlut-
falli viö eignarhlut sinn, eins og hin
blöðin þrjú gera.
Fyrir frumkvæði fulltrúa Vísis i
stjórn Blaðaprents var sett fram sú
krafa að Helgarpósturinn skyldi
merktur AB á forsíður, en aðrir
yfir leiðara, eftir því hvaða fuUtrúar
áttu hlut að máli.
Hins vegar hefur flokksstjórn
Alþýðuflokksins samþykkt þetta
samstarf AB og HP án þess að áskilja
sér neinn rétt til afskipta af ritstjórn
blaðsins, henni eru gefnar alveg
frjálsar hendur, en HP verður dreift
til áskrifenda AB.
Svo virðist sem andstæðingar HP
sjái sér hag í að HP verði merktur
AB, þar sem það síðarnefnda hefur
beðið nokkurn álitshnekki vegna
samdráttar í útgáfu í kjölfar lang-
vinnra fjárhagsörðugleika. Halda
þeir því fast við að HP verði gefið út
sem nokkurs konar sunnudagsblað
AB til að freista þess að rýra álitið á
HP.
Túlkun útgefenda AB er hins vegar
að AB sé að nýta sjálfsagðan rétt sinn
í Blaðaprenti, þótt þeir geri það með
útgáfu annars blaðs en AB.
Hvorki gengur né rekur í þessu
máli og sú staða kom upp á síðasta
stjórnarfundi í Blaðaprenti að visa
málinu: Alþýðublaðið eeen Blaða-
prenti, til gerðardóms. Vænta má
nokkurra vikna biðai á úrskurði hans.
Þrátt fyrir það mun Helgarpóstur-
inn koma út á tilsettum tíma, en
prentaður á fullu verði, þ.e. á sama
verði og Blaðaprent tekur fyrir að
prenta ýmis utanaðkomandi blöð.
Þess má að lokum geta að fulltrúi
Alþýðublaðsins í stjórn Blaðaprents,
Eyjólfur Sigurðsson, hefur nú sagt af
sér því embætti, en það er ekki af
andstöðu við Helgarpóstinn.
Vísitala byggingarkostnaöar
Hagstofan hefur reiknað vísitölu
byggingarkostnaðar eftir verðlagi í
fyrri hluta marz 1979 og reyndist hún
vera 279,60 stig, sem hækicar í 280
stig (október ’75 = 100). Gildir þessi
vísitala á tímabilinu apríl—júní 1979.
Samsvarandi vísitala miðuð við eldri
grunn er 5552 stig og gildir hún einnig
á tímabilinu apríl—júní 1979, þ.e. til
viðmiðunar við vísitölur á eldri
grunni (1. okt. 1955 = 100).
Samsvarandi visitölur reiknaðar
eftir verðlagi í fyrri hluta desember
1978 og með gildistima janúar—marz
1979 voru 258 stig og 5126 stig.
Hækkun frá desember 1978 til marz
1979er 8,5%.
Kjörínn í hafn
arstjóm
Valtýr Guðmundsson hefur verið
kjörinn í hafnarstjórn Reykjavíkur sem
fulltrúi hafnarstarfsmanna með mál-
frelsi og tillögurétti. Er hann fyrsti full-
trúi hafnarstarfsmanna í hafnarstjórn-
inni. Kjöri hans var lýst á fjölmennum
fundi Starfsmannafélags Reykjavíkur-
hafnar á miðvikudaginn, en áður hafði
farið fram allsherjaratkvæðagreiðsla
um fulltrúann. Var Valtýr kjörinn með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Valtýr hefur starfað í skipaleiðsögu
— semfulltrúi
starfsmanna
Reykjavíkur-
hafnar
Reykjavíkurhafnar síðan 1948. Auk
hins nýja starfa situr Valtýr fyrir
Alþýðuflokkinn í atvinnumálanefnd
Reykjavíkurborgar.
Á áðurnefndum fundi var Hannes
Valdimarsson yfirverkfræðingur kos-
inn formaður Starfsmannafélagsins til
næstu tveggja ára. -ASt.
V altýr Guðmundsson.