Dagblaðið - 25.05.1979, Blaðsíða 3
\GBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1979.
BÖRNIN SEND HEIM
Spurning
dagsins
Myndin cr lckin á skemmlun sem haldin var fyrir vislfólk Kópavogshælis.
Mynd Bj.Bj
—vegna spamaðar hjá ríkinu
Kristján Árnason á Hellu hringdi:
Við hjónin eigum eitt barn sem
dvelur á Kópavogshæli. Fyrir stuttu
fengum við bréf frá stofnuninni þess
efnis að þar sem fjármálaráðuneytið
krefðist þess að starfsmannafjöldi
færi ekki fram úr fjárlögum væri
nauðsynlegt í sparnaðarskyni að út-
skrifa þau börn sem það þyldu í tvær
til þrjár vikur og senda þau til for-
eldra sinna. Nú er ekki aðalmálið að
barnið skuli sent heim, því það er vit-
anlega ekkert athugavert við það að
fá bamið sitt heim i nokkurn tíma.
En að þetta skuli vera sparnaðarráð-
stöfun finnst mér sýna að verið sé að
ráðast á garðinn þar sem hann er
lægstur og finnst mér slikt ekki hæfa
vestrænni menningarþjóð. Börnin
eru í stöðugri leiðsögn og þjálfun í
Kópavogshæli sem þau tapa niðui
við slíka útskrift. Þetta kalla ég ekk
að hlúa vel að þeim sem minnst mega
sin. Þar sem þetta er sparnaðarráð
stöfun langar mig til þess að benda é
að víða er bruðlað með opinbert fé.
Hér er t.d. ný heilsugæzlustöð. Nú et
verið að rífa niður veggi i þessu nýja
húsi og breyta innréttingum vegna
tannlæknaþjónustu á staðnum.
Hversu margar milljónir ætli fari i þá
niðurrifsstarfsemi?
Ég vil að lokum endurtaka að það
er ekki aðalmálið að barnið skuli vera
sent heim til sín heldur að þetta skuli
vera sparnaðarráðstöfun hjá rikinu
þegar bruðlað er með fé á öðrum
slöðum.
Gömlu húsin týna tölunni
— síðasta fórnariamb
við Laugaveginn
Lesandi skrifar:
Niðurrifsstarfsemin lifir góðu lifi
hér í borginni. Nú nýlega var rifið
gamalt timburhús neðarlega við
Laugaveginn og sakna ég þess
mikið. Að vísu var húsið kannski
ekki svo ýkja fagurt eins og það var,
en ég er viss um að ef það hefði verið
gert upp og málað fallega hefði það
getað orðið augnayndi allra sem leið
eiga um Laugaveginn. Það eru
nefnilega þessi gömlu hús sem við
eigum að gera meira af að halda uppá
en rífa. Líklega hefur það stungið í
stúf við háhýsið við hliðina og vafa-
laust á þarna að ri sa stórhýsi í stíl við
það sem það gamla passaði ekki við.
Hvað ætli langur timi liði svo þar til
gamla húsið viö hina hlið stórhýsisins
verður rifið?
y
ROKKHÁTIÐHLH
í Laugardalshöll í kvöld kl. 20.00 verður
ÍGÓDULAGI
HLH-flokkurinn hefur þeysireið sína um landið
með þessari stóiítostlegu hátíð
★ Diskótekið Áslákur
á fullu dúndri
★ Módel 79 sýnir rokktísku
með klístri
★ Sæmi og Didda rokka ★ Disco Maniacs ganga berserksgang
I HLH-flokkurinn I
IHIjómplötuútgáfanl
Hvað finnst þér um
störf Alþingis á
liðnum vetri?
Sonja Berg húsmóðir: Mér lizt trckar
illa á þau. Þingmenn komu mun minna
til leiðarenþeir lofuðu.
Kriðbjörn Kristjánsson sjómaður: Eg
fylgist fremur litið með störfunt Al-
þingis. Þó finnst mér þingmenn ckki
hafa staðið sig mjög vel. Þeir hafa t.d.
ekki gert neina tilraun til þess að levsa
farmannaverkfallið.
Jón KÍiasson sjómaður: Þingmenn hal'a
dregið mál fram á siðustu stundu. Það
er eins og það sé náttúrulögniál. Þessu
þarf að breyta og dreifa störfum
þingsins jafnar á veturinn.
Sigurlaug Jóhannsdótlir húsmóðir:
Frammistaða þingmanna hcfnr vcrið
léleg. Þeir hal'a komið litlu i serk af þs i
semgeraátti.
Ililma Magnúsdótlir hjúkrunurkonu:
l'rammistaða þeirra hclur serið önuir-
lcg. Ekki hefur náðsi samstnða um
neitt.
Kjartan Kinarsson nemi: Það er l’rckar
litið sem liggur eftir. S'mis mál scm
bryddað hefur vcrið upp á hala orðið
útundan.