Dagblaðið - 25.05.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1979.
5
Greiðslur
beint til
bændanna
Með 28 atkvæðum gegn 18
samþykkti Alþingi á miðvikudag
þingsályktun um beinar greiðslur
til bænda. Varð talsverður klofn-
ingur i þingflokkum en fram-
sóknarmenn stóðu gegn tillög-
unni og þorri sjálfstæðismanna
og flestir alþýðuflokksmenn með.
Ályktunin gengur út á að rikis-
stjórnin hlutist til um að setiar
verði reglur um rekstrar- og
afurðalán landbúnaðarins sem
tryggi að bændur fái í hendur þá
fjármuni sem þeim eru ætlaðir
um leið og lánin eru veitt. Þá á að
verða óheimilt að halda pening-
unum eftir í verzlunar- eða
afurðasölufyrirtækjum. Flutn-
ingsmenn tillögunnar voru
Eyjólfur K. Jónsson (S), Jónas
Árnason (AB) og Sighvatur
Björgvinsson (A). -HH
Hólmarar kvarta yfir þungatakmörkunum:
„KIR KVARTA MEST
SEM HAFA ÞAÐ BEZT'
Fá að f Ijúga
beint
Stjórnvöld i Luxemburg hafa
nú veitt samþykki sitt fyrir að
Fluglciðir hefji beint flug milli
Bandarikjanna og Luxemburg,
án viðkomu á islandi. Beiðni
þessa efnis liggur enn fyrir banda-
rískum flugmálayfirvöldum en
fullvíst er talið að hún hljóti sömu
afgreiðslu. Sem kunnugt er er
slikt flug m.a. talið nauðsynlegt
til að bæta afkomu Flugleiða á
leiðinni. -GS.
„Okkur ftnnst það hart hérna á
Snæfellsnesinu að karlar suður í
Reykjavík fyrirskipi takmarkaðan
öxulþunga þegar vegirnir eru þurrir og
harðir eins og um hásumar,” sagði
Högni Bæringsson bæjarverkfræð-
ingur í Stykkishólmi viðtali við DB.
„Við erum að bera hraungrýti ofan í
vegina hjá okkur en allt er stopp út af
þungatakmörkunum. Þetta eru 6 eða 7
bílar auk jarðýtu sem bíða eftir leyfi til
að fá að halda áfram. Við höfum sótt
um undanþágu en fengið þau svör að
takmarka verði öxulþunga fyrir sunnan
og skuli eitt yfir alla ganga. Það finnst
okkur alls ekki réttlátt.
Við erum einnig farnir að finna fyrir
vöruskorti vegna farmannaverkfalls-
ins. Hingað eru nær allar vörur fluttar
á bílum eins og er og kemur tak-
mörkunin sér þvi bagalega.”
— Hvað eru takmörkin?
„Miðað er við 3 tonna þunga á
öxul,” sagði Högni.
Bera sig verst,
hafa það
einna bezt
Hjörleifur Ólafsson vegaeftirlits-
maður var spurður álits á röksemdum
Högna.
„Það er kunnari staðreynd en frá
þurfi að segja að á vorin verður burðar-
þol veganna nær ekkert. Þetta er á
meðan klaki er að fara úr jörðu og.
myndast þá oft mikil aurbleyta. Til
þess að reyna að afstýra henni eru
settar þungatakmarkanir og reynf að
hlifa vegunum eftir því sem hægt er.
Alltaf er álitamál hvort heldur á að
setja þessar takmarkanir deginum fyrr
eða seinna. Sé það gert of snemma tefst
umferð en sé það gert of seint hljótast
af stórfelldar vegaskemmdir.
Þó að efsta lag veganna sé þurrt og
hart getur verið undir þeim lag af aur-
bleytu. Því er um að gera að brjóta
ekki skelina.
Ég veit ekki akkúrat hvernig ástand-
ið er á Snæfellsnesi en ég veit að fvrir
norðan, þar sem er frost á nóttunni
ekki siður en á Snæfellsnesi, er bull-
andi aurbleyta. Tæknimenn meta á
hverjum tíma hvort nauðsynlegt er að
takmarka öxulþunga eða ekki. Núna er
miðað við að venjulegur vörubíll megi
vega alls 11 tonn og bíll með tvenn
afturhjól 15 tonn. Það fer því eftir
þunga bílsins hversu mikið má setja á
hann. Venjulegur vörubíll vegur i
kringum 7 tonn og má þvi taka 4 tonna
hlass.
En ef égáaðhafa einhverja skoðun
á málefni manna í Stykkishólmi vil ég
segja að þeir sem lengra þurfa að fara
með hlass eru mun verr settir en þcir, til
dæmis þeir sem þurfa að fara með vöru
til ísafjarðar. En greinilegt er að
Stykkishólmsbúar ætla ekki að láta
segja sér fyrir verkum og kvarta þeir
meira en flestir aðrir sem ég hef talað
við, og fæ ég þó mikinn fjölda undan-
þágubeiðna.
Vegagerðin getur ekki metið hverjar
eru mikilvægari en aðrar og þvi verður
eitt yfir alla að ganga, annaðhvort tak-
markanir á alla eða engar takmark-
anir,” sagði Hjörleifur.
-DS.
OA0
óháó
ogfrjálst
Samþykktir þings SVFÍ:
STJÓRNARTÍÐINDI B 21 — 1979
11. mai 1979.
335
REGLUGERÐ
Sjálfvirkir neyðar-
sendar með flugvéla-
tíðni í alla gúmmíbáta
— og vélbátar 5 lestir og stærri gerðir tilkynningaskyldir
um breyting á reglugerð nr. 169/1970 um söluskatt með áorðnum breytingum.
1. gr.
20. tl. 13. gr. reglugerðarinnar (sbr. 1. gr. reglugerður nr. 316/1978, sbr. reglu-
gerð nr. 431/1978) orðist svo:
Svartolía og gasolia.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett cr samkvæmt heimild i lögum nr. 10/1960, öðlast
gildi 12. mai 1979.
Fjármálaráöuneytið 11, mai 1979.
Tómas Árnason. ________________
Árni Kolbeinsson.
Hið opinbera mál.
„Það er ósk SVFÍ til stjórnvalda að
þau veiti fé til aðkallandi endurbóta
og uppbyggingar strandstöðva svo
Póst- og símamálastofnunin geti full-
nægt þeim kröfum sem til hennar eru
gerðar í lögum um tilkynningaskyldu
ísl. skipa frá 13. maí 1977.” Á þessa
leið segir í tilkynningu frá SVFÍ um
þing félagsins og ályktanir þess.
Þá var einnig gerð samþykkt um
fjarskiptabúnað í opnum vélbátum, 5
brl, og stærri, og þessir bátar þar með
tilkynningaskyldir að lögum.
Vegna hinna hörmulegu sjóslysa í
vetur og umræðna að undanförnu um
gúmbjörgunarbáta voru gerðar ýmsar
samþykktir:
Að siálfvirkir neyðarsendar með
flugvélatiðninni 121.5 Mhz verði
settir í alla gumbjörgunarbáta og pakk-
aðir með þeim.
Að settur verði sjálfvirkur sleppibún-
aður við gúmbjörgunarbáta og gúm-
björgunarbátar verði pakkaðir í plast-
hylki.
Eindregnum tilmælum var beint til
Veðurstofu íslands að strandstöðvar
Landssimans og útvarp tilkynni storm-
viðvaranir hvenær sem við á.
Samþykktir voru og gerðar til ábend-
ingar þeim er fjallaferðir stunda um
búnað; klæðnað, merkjaskot o.fl.
Loks var stjórn SVFÍ falið að ræða
við sjávarútvegsráðuneytið vegna
ábendinga um hættu sem svipting
veiðileyfa netabáta hefur í för með sér,
ef ráðstafanir i fiskverndarmálum
stuðluðu jafnvel að of harðri sjósókn í
stundum. -ASt.
Frankfurt
viöskipta og verslunar- heldur ein stærsta
flugmiöstöö Evrópu. Frá Frankfurt, sem er
um þaö bil í miöju Þýskalandi, eru óteljandi
feröamöguleikar. Þaöan erstutt til margra
fallegra staöa í Þýskalandi sjálfu (t. d. Mainz
og Fleidelberg) ogþaöan erþægilegtaö halda
áfram feröinni til Austurríkis, Sviss, Ítalíu,
Júgóslavíu, eöa jafnvel lengra.
FRANKFURT-EINN FJÖLMARGRA STAÐA
íÁÆTLUNARFLUGI OKKAR
FLUGLEIDIR
fyrsti áfangi á leiö lengra
Frankfurt er ekki aöeins mikil miöstöö