Dagblaðið - 25.05.1979, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1979.
Uganda:
Asíumönnum skilaö eignum sínum
Lule hinn nýi forseti tilkynnti að hinum þjóðnýttu eignum frá 1972 yrði skilað aftur
Hinn nýi forseii Uganda, Yusuf
Lule, hefur tilkynnt, að allir þeir
íbúar landsins sem misstu eigur sínar
á valdatíma Idi Amins eigi þess kost
að snúa aftur til landsins og endur-
heimta þær.
Þetta þýðir að þeir Ugandamenn,
sem eru af Asíuuppruna og hröktust
úr landi árið 1972, þegar Amin ákvað
að þjóðnýta allar eigur þeirra, geta
snúið aftur til landsins og haftð aftur
rekstur atvinnufyrirtækja sinna.
Tugir þúsunda fólks af Asíuupp-
rúna, sem flutzt hafði til Uganda á
nýlendutíma Breta, flutti frá Uganda
árið 1972. Flestir þeirra höfðu brezkt
vegabréf og gátu því haldið til Bret-
lands en misstu jafnframt mest af
eigum sinum.
Idi Amin krafðist þess meðal ann-
ars af þessu fólki að það gerðist full-
komnir ríkisborgarar í Uganda og af-
salaði sér hinum brezka ríkisborgara-'
rétti. Fles.tir voru tregir til þess.
/*
Flutningur fólksins til Bretlands
vakli töluverða ólgu þar í landi.
BJÖRNINN
Njáísgötu 49 - Simi 15105
T
I
í
Hárskera vantar
til að reka rakarastofu í minnst 3
mánuði kannski lengur, mjög góð laun í
boði. Upplýsingar í síma 33444.
minning sem ekki gleymist
Veró aóeins kr 12.900
Póstsendum
Úr og Skartgripir
JÓNog ÓSKAR
LAUGAVEGI 70 - SÍMI 24910 «
Ungur drengur frá Kambödlu við þjöðveg 1 Thailandi og skilur litið l þvt sem fram fer. Úm veginn
fara kambödiskir flóttanienn á leið sinni aftur til Kambódiu.
VÍSA 40.000 AFTUR
HEIM TIL KAMBÓDÍU
Nærri fjörutíu þúsund flóttamenn og'
hermenn frá Kambódíu verða sendir
aftur til heimalands síns fráThailandi á
næstunni. Tilkynntu yfirvöld í Thai-
landi þetta fyrir nokkrum dögum.
Meðal flóttafólksins munu vera her-
menn, sem enn eru tryggir Pol Pot,
fyrrum foringja Rauðu kmeranna. Þeir
eru þó ekki taldir vera nema um það bil’
átta þúsund.
Talið er að flóttamenn frá Kambódiu
séu samtals um það bil fimmtíu þúsund
í Thailandi. Þar af munu vera ellefu
þúsund af kínverskum uppruna, sem
ekki mun vera ætlunin að senda aftur
til Kambódíu.
Hinir fjörutiu þúsund flóttamenn,
sem ætlunin er að láta snúa aftur til
síns heima, voru stöðvaðir af víet-
nömsku herliði innan landamæra
Kambódiu. Var fólkið þá á leið suður
á bóginn. Herliðið var þarna á ferð til
að bæta stöðu sína áður en regntíma-
bilið hefst um leið og monsúnvindarn-
ir.
Vitað er um rúmlega fimm hundruð
hermenn úr sveitum Pol Pots sem flúið
hafa til Thailands frá Kambódíu á sið-
ustu dögum. Ekki er ljóst hvar þessi
fyrrum leiðtogi stjórnar Kambódíu
heldur sig um þessar mundir en her-
menn hans virðast á stöðugum flótta
undan Vietnömum og hermönnum
nýju stjórnarinnar, sent er undir vernd-
arvæng þeirra.
Bandaríkin:
Bameignir tán-
inga kosta2000
milljarða á ári
Barneignir stúlkna á táningaaldri
kosta bandaríska skattgreiðendur í
það minnsta jafnvirði 2000 milljarða
íslenzkra króna á ári, samkvæmt
rannsókn sem nýlega var gerð við
Stanford háskólann þar í landi. Er þá
tekið tillit til þess kostnaðar sem
ýmsir opinberir aðilar verða fyrir
vegna sjúkrakostnaðar og annarrar
félagslegrar hjálpar.
Lengi hefur verið vitað að hinar
um það bil sex hundruð þúsund
fæðingar stúlkna á táningaaldri
hefðu ýmsan kostnað i för með sér
umfram fæðingar annarra aldurs-
hópa. Ekki hefur þó verið gerð til-
raun til að mæla þann kostnað fypr
en nú.
Stjórnandi rannsóknar þessarar
hjá Stanford háskóla sagði að kostn-
aður vegna fæðinga táningastúlkna
mundi um það bil tvöfaldast ef hert
yrði á reglum um fóstureyðingar eða
felldur yrði niður opinber styrkur
vegna slíkra aðgerða á stúlkum á tán-
ingaaldri.
Til samanburðar er sagt frá því að
hinir 2000 milljarðar séu hærri upp-
hæð en eyðsla margra ráðuneytanna í
Washington. Má þar nefna bæði við-
skiptaráðuneyti og utanríkisráðu-
neyti. Upphæðin er aðeins litlu lægri
en árleg eyðsla orkumálaráðuneytis-
ins bandaríska.
í rannsókninni kom fram að mikill
hópur þessara mæðra kemur úr hópi
hinna fátækari þar sem ættingjar
geta ekki styrkt þær fjárhagslega.
Þriðjungur mæðranna, eða rúmlega
það, er ekki i hjónabandi þegar börn-
in fæðas.t.
30—70% afsláttur
á barna-
og kvenfatnaði