Dagblaðið - 25.05.1979, Blaðsíða 15
14
í íslenzka landsliðshópinn gegn
V-Þjóðverjum á morgun
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Annars var leikurinn í gær fjarri því
að geta talizt góður eða vel leikinn
knattspyrnulega séð. Þróttarar gerðu
reyndar mjög heiðarlega tilraun til þess
að leika knettinum á milli sín en árang-
urinn var sjaldnast meiri en þrjár send-
ingar samherja á milli. Eyjamenn virk-
uðu nokkuð þungir en voru greinilega í
góðri úthaldsþjálfun því leikur þeirra
batnaði eftir því sem á leið.
Þróttarar hófu leikinn al' miklum
krafti — nokkuð, sem 'einkennir gjarn-
an leik þeirra, en þrátt fyrir nokkur
upplögð tækifæri tókst þeim ekki að
skora mark, en það hefði þó verið fylli-
lega verðskuldað. Á 10. mínútu komst
Ársæll Kristjánsson, sem lék stöðu
miðherja að þessu sinni, í gott færi en
hikaði alll of lengi og Eyjamenn náðu
að bægja hættunni frá. Skömmu síðar
skoraði Þorvaldur í. Þorvaldsson gott
mark, að því er virtist, en það var
dæmt af vegna rangstöðu og voru ekki
allir á eitt sáttir um þáákvörðun.
Þróttarar höfðu frumkvæðið áfram,
en síðan kom fyrra mark Eyjamanna
eins og þruma úr heiðskíru lofti og það
í orðsins fyllstu merkingu. Sveinn
Sveinsson skaut hálfgerðu himnaskoti
af rúmlega 30 metra færi og engin
hætta virtist á ferðum. Boltinn skrúf-
aði sig hins vegar niður og datt síðan í
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. MAÍ1979.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1979.
Herfileg mistök markvarðar Þróttar
—færðu Vestmannaeyingum bæði stigin í 1. deild í gær
Mistök markvarðar Þróttar, Ólafs
Runólfssonar, munu vafalílið verða
dyggum stuðningsmönnum Þróttar og
öðrum vallargestum á Melavellinum í
gær minnisstæð lengi. Óheppni hans
var mikil. í báðum mörkum Eyja--
manna urðu honum á hcrfilcg mistök í
markinu cnda fór svo að Eyjamcnn
l'óru með sigur af hólmi, þrátt fyrir að
vera mun lakari aðilinn framan af
leiknum. l.okatölur 2-0 Eyjamönnum i
hag eftir að þeir höfðu leitt 1-0 óverð-
skuldað í leikhléi.
bláhornið efst, 1 -0. Ólafur markvörður
var algerlega óviðbúinn þessum ósköp-
um, en með því að færa sig til í mark-
inu eftir skotstefnunni átti hann að geta
komið i veg fyrir þetta klaufalega
mark.
Við markið var eins og örlítið drægi
af Þrótturum, en þrátt fyrir það var
ckki hægt að tala um svo mikið sem eitl
marktækifæri Eyjamanna í hálfleikn-
um.
í síðari hálfleik óx Eyjamönnum hins
vegar ásmegin og þeir sóttu meira en
áður án þess þó að skapa sér nokkur al-
mennileg færi. Sömu sögu var að segja
um Þróttara, þvi marktækifæri þeirra
voru teljandi á fingrum annarrar hand-
ar. Síðara mark Eyjamanna kom á 59.
mín. og var hálfu klaufalegra en það
fyrra.
Tómas Pálsson gaf vel fyrir markið
þar sem Gústaf Baldvinsson var í mjög
góðu færi. Skot Gústafs misheppnaðist
hins vegar algerlega og stefndi fram hjá
markinu, þegar Ólafur markvörður sá
skyndilega ástæðu til að henda sér á
knöttinn. Hann náði að grípa boltann
en missti hann síðan og í öllum
látunum sló hann boltann i átt að
markinu og það var létt verk og löður-
mannlegt fyrir Ómar Jóhannsson að
pota boltanum í netið.
Eftir markið jukust yfirburðir Eyja-
manna jafnt og þétt og nokkrum sinn-
um skall hurð nærri hælum við
Þróttarmarkið. Þegar upp var staðið
varð ekki annað sagt en Eyjamenn
væru verðugir sigurvegarar.
- SSv.
Argentínumenn
komnirtil Ítalíu
,,Það var góður leikur við Hollend-
inga,” sagði Cesar Luis Menotti, þjálf-
ari HM-meistara Argentínu, þegar
hann kom ásamt leikmönnum sínum til
Ítalíu. Á morgun leika Italía og
Argentína í Róm — en á HM í fyrra var
ítalia eina liðið, sem sigraði Argenlinu
(1-0).
Johan Crijuff skoraði tvö mörk i
fyrsta leik sínum með Los Angeles
Aztec í gær. Liðið sigraði 3-0.
Gautaborg var sænskur bikarmeist-
ari í gær — sigraði Atvidaberg 6-1 í úr-
slitum. Ralf Edström skoraði
þrisvar. Shrewsbury, sem sigraði í 3.
Borussia hirti
UEFA bikarinn
Vil engu spá — þekki ís-
lenzka knattspymu lítið
sagöi hinn heimsf rægi markvöröur V-Þýzkalands, Sepp Maier, viö komuna til íslands
,,Ég þekki ákaflega litið til íslenzkrar
knattspyrnu og vil því ekki spá neinu
um úrslit leiksins á laugardaginn,”
sagði markvörðurinn heimsfrægi, Sepp
Maier, er hann og félagar hans komu
til landsins á miðvikudag. Sem kunnugt
er eiga sjálfir V-Þjóðverjar að leika hér
á Laugardalsvellinum á morgun gegn
Karl Guðmundsson til hxgri heilsar
heiðursgesti þýzka kanttspyrnusam-
bandsins, Fritz Bucholh, við komuna til
íslands.
DB-mynd Bjarnleifur.
islenzka landsliðinu kl. 14. Með þýzka
hópnum kom að sjálfsögðu þjálfarinn,
Jupp Derwall, ákaflega hægur og geð-
felldur maður á allan hátt. Þá var og
heiðursgestur, Fritz Buchloh, með í
ferðinni, en hann er mörgum íslending-
um kunnur.
Buchloch þjálfaði Víking 1939 og
síðan aftur eftir stríð og hann var ákaf-
lega virtur af öllum. Glæsilegur maður,
segja þeir, sem til hans þekktu þá. Við
komuna til Keflavikurflugvallar tók
Karl Guðmundsson, góður vinur hans,
á móti honum og það var greinilegt á
látbragði beggja að þar voru miklir
fagnaðarfundir. Buchloh mun verða
heiðursgestur á landsleiknum á
morgun, en hann er og hefur alla tið
verið einlægur Islandsvinur.
Þýzku leikmennirnir voru flestir
frekar alvarlegir við komuna utan að
yngsti maðurinn í hópnum, hinn svart-
hærði Hansi Múller, gerði að gamni
sinu.
Þýzka liðið æfði i hádeginu i gær og
dreif þá að múg og margmenni til að
sjá þessa snillinga leika listir sinar með
knöttinn. Bar öllum saman um það að
sjaldan hefðu betri knattspyrnumenn
heimsótt okkur.
En það er landsleikurinn á morgun,
sem allra augu beinast að. V-Þjóðverj-
arnir unnu frana afar sannfærandi á
þriðjudag — 3-1 í Dublin og írarnir
tefldu fram sínu bezta liði. Þjóðverjana
virðist hins vegar ekki muna neitt um
þó 4—5 af þeirra fastamönnum séu
ekki með — þeir eiga gnótt snillinga.
Það verður Viðar Halldórsson, FH,
sem tekur stöðu Karls Þórðarsonar, La
Louviere, í landsliðshópnum gegn V-
Þjóðverjum á morgun. Karl gat, sem
kunnugt er, ekki leikið vegna þess að
forráðamenn La Louviere gáfu honum
ekki leyfi. Viðar er enginn nýgræðingur
i landsliðinu þvi hann hefur leikið 4
landslciki fyrir ísland. Þá koma þeir
Pétur Ormslev, Trausti Haraldsson og
Ingi Björn Albcrtsson í stað þeirra
Péturs Péturssonar, Arnórs Guðjohn-
sen og Ásgeirs Sigurvinssonar í hópn-
um.
DB leit á æfingu hjá landsliðinu i
gærdag inn i Laugardal i blíðskapar-
veðri undir stjórn dr. Youri llitchev,
landsliðsþjálfara. Leikmenn æfðu þar
ýmis smáatriði, en sérstaklega var
gaman að sjá til markvarðanna, Þor-
steins Ólafssonar og Bjarna Sigurðs-'
sonar. Þar var tekið hressilega á.
Bjarni varð þó að hverfa af æfingunni
áður en henni lauk þar sem hann
kenndi eymsla í höfði, en hann mun
eiga við litilsháttar erfiðleika að stríða
vegna of lágs blóðþrýstings. Strákarnir
gerðu að gamni sinu og augljóst var á
öllu, að þar fór samstilltur hópur.
DB hefur fregnað, að Skagamaður-
inn ungi, Kristján Olgeirsson, hafi
verið mjög undir smásjánni þegar
landsliðsnefnd var að leita að manni i
stað Karls. Viðar mun þó hafa orðið
ofan á, ekki hvað sízt vegna leikreynslu
sinnar.
Jafntef li Eng-
landsogWales
Englendingar og Walesbúar gerðu
jafntefli 0—0 í meistarakeppni brezku
landsliðanna á Wembley á miðviku-
dagskvöld að viðstöddum rúmlega
70.000 áhorfendum. Leikurinn var afar
jafn lengst af en Englendingar sóttu
heldur meira og hefðu verðskuldað sig-
urinn ef eitthvað. Eftir þetta jafntefli
hafa Walesbúar mjög góða möguleika
á að sigra í þessari keppni i fyrsta sinn i
42 ár.
Terry McDermott átti gott skot í
þverslá og bjargað var af línu frá Steve
Coppell, sem kom inn á sem vara-
maður fyrir Bob Latchford seint í
leiknum. Latchford hafði átt afleitan
dag og klúðrað auðveldustu færum,
sem flest sköpuðust eftir snilldarsend-
ingar Kevin Keegan.
Englendingar tefldu fram tveimur ný-
liðum — Keny Sansom og Laurie
Cunningham og Sansom sér í lagi átti
stórkostlegan dag og þessi 21 árs vinstri
bakvörður er talinn eitt bezta efni Eng-
lendinga í iangan tíma.
Stigum deilt
í Sandgerði
—lafntefli Reynis og ÍBÍ í 2. deild
sen skoraði sjálfur úr vítaspyrnunni,
sem dæmd var. Þessir úrslitaleikir
verða Ivan Juristic sennilega ógleyman-
lcgir með öllu. í fyrri leiknum skoraði
hann sjálfsmark og tryggði Borussia
jafntefli og á miðvikudag orsakaði
hann vitaspyrnu.
Vítaspyrnan var þó mjög umdeild og
t.d. sagði Berti Vogts að Borussia hefði
aldrei fengið hana ef leikið hefði verið í
Belgrað. Rauða stjarnan var þó virki-
lega óheppin að jafna ekki a.m.k. Átta
minútum fyrir leikslok átti Muslin skot
í samskeytin og rétt á eftir skaut Sestic
framhjá úrdauðafæri.
Þetta var fjórði Evrópuúrslitaleikur
Borussia á sl. sex árum og eftir hann
sagði Vogts: ,,Ég verð að viðurkenna
að við vorum mjög heppnir að sigra í
leiknum og leikmenn Rauðu stjörnunn-
ar stóðu okkur fyllilega á sporði hvað
getu snerti og siðustu 15 mínúturnar
voru mjög erfiðar fyrir okkur.
Þýzki landsliðshópurinn við kornuna til Keflavikur á miðvikudag.
Reynismenn réðu mestu um gang
leiksins, i seinni hálfleik. Sóttu mjög
fast að ÍBÍ-markinu, en þeir vestan-
menn röðuðu sér í vörnina, undir
stjórn þjálfara síns, Benedikts Valtýs-
sonar, áður ÍA. Lengi leit út sem þeir
ætluðu að halda fengnum hlut. Knött-
inn bar oftast af leið í skotum Reynis-
manna eða hafnaði í öruggum höndum
Péturs Guðmundssonar, markvarðar.
Loks, eftir að úthald Ísfirðinga var
tekið að þverra, fékk Ari Arason, mið-
herji Reynis, fallega sendingu frá Þórði
marelssyni og skallaði í markið, 1:1.
Liði Reynis vex greinilega ásmegin
með hverjum leik. Kraftur og leikni er
mikil i liðinu, undir stjórn hins enska
Smiths, — þegar það smellur saman
ógnar það beztu liðum deildarinnar.
Ísfirðingar eru með stóra og stælta
leikmenn, sæmilega knattleikna, sem
eiga vafalitið eftir að auka getu sina
þegar þrekið ler að endaxt þeim í heilan
leik. emm.
Berti Vogts, fyrirliði Borussia
Mönchcngladbach, gat ekki hugsanlega
'fengið skemmtilegri endi á keppnisferli
sínum en þegar lið hans sígraði Rauðu
stjörnuna frá Belgrað 1-0 í síðari úr-
.slilaleik liðanna i UEFA bikarkeppn-
inni i Dússeldorf á miðvikudagskvöld.
Eina mark leiksins var skorað á 18.
mínútu. Ivan Juristic brá þá Dananum
Allan Simonscn inn í vítateig og Simon-
K
Sir Stanley Rous, fyrrum formaður
FIFA, lengst til vinstri í annarri röð í
heiðursstúkunni á leikvanginum i Bern á
þriðjudag. Hann bað blaðamann DB um
kveðjur til tslands. Fremst til hægri er
dr. Havalange, núverandi formaður
FIFA.
Db-mynd Peter Weisshaupt, Bern.
deild á Englandi, varð bikarmeistari í
Wales. Sigraði Wrexham 1-0 í síðari
leik liðanna. Jafntefli varð í hinum
fyrri, 1-1.
Öster sigraði Norrköping, efsta liðið
i Allsvenskan, 3-0 á þriðjudag.
í 6. umferð i 1. deild i Norcgi gerði
Vikingur jafntefli á heimavelli við
Mjöndalen 2-2 og heldur efsta sætinu.
Skeid og Lilleström gerðu jafntefli í
Osló.
Staða efstu liðanna:
Viking 6 3 3 0 9-5 9
Start 6 3 2 1 12-4 8
Lilleström 5 2 3 0 6-2 7
Rosenborg 6 3 1 2 10-7 7
Moss 6 3 1 2 9-9 7
Bryne 6 3 0 3 12-9 6
2. deild, Sandgerðisvöllur, ReynirtÍBÍ,
1:1 (0:1).
Veður til knattspyrnu var ekki upp á
það bezta í Sandgerði í fyrrakvöld,
norðanbeljandi og kuldi, þegar Reynis-
menn léku við ísfirðinga i 2.-deildinni.
Þrátt fyrir það var leikurinn allgóður á
köflum, sérstaklega hjá Reynismönn-
um, sem hefðu miðað við gang leiksins,
átt að fara með sigur af hólmi.
ísfirðingar léku undan vindi fyrri
hálfleikinn, en áttu þó í nokkrum erfið-
leikum með að finna smugu í Reynis-
vörninni. Um miðjan hálfleikinn skall
hurð nærri hælum hjá Reyni, þegar
Kristinn Kristjánsson, hinn eldfljóti
miðherji ÍBÍ, hljóp af sér varnarmenn-
ina en Jón Örvar markvörður náði að
spyrna frá örlagastundu. Skömmu
síðar var Kristinn aftur á ferðinni og
skoraði, 1:0, en mörgum sýndist sem
um rangstöðu væri að ræða.
Glæsileg markvarzla
Þorsteinn Ólafsson, markvörður tslands í Evrópuleiknum 1 Bern, sýndi á stundum tilþrif, sem
Ifrægustu tnarkverðir heims hefðu getað verið stoltir af. Hann bjargaði á hreint undraverðan hátt á 15.
' mín. frá miðherja Sviss, Hermann, og sýna myndirnar að ofan atvikið. Á þeirri efri kemst hann fyrir
jknöttinn, sem Hermann sendi á markið af örstuttu færi — og þar er Janns Gnðlangsson kominn að
' miðherjanum. Á neðri myndinni er Þorsteinn að falla niður í markið — :.i igt rir nnan marklínu.
| Árni Sveinsson, sem stendur við vinstri markstöngina, taldi að Þorsteinn hclði tarið fvrir innan mark-
linu en það dregur ekki úr afrekinu. Viðbragð Þorsteins var með ólikindum snöggt — „maður bein-
(línis sá knöttinn í markinu”. skrifaði t)lt um atvikið.
Þorstcinn Ólafsson ver mark tslands gegn Yestur-Þjóöverjum á morgun á Laugardalsvelli og þá
I fxr hann að glima við skol nokkurra Irábærra sóknarmanna þýzka liðsins. Þá verða þeir Janus og
L Árni einnig í sviðsljósinu i islenzka liðinu.
DB-myndir Peter Weisshaupt, Bern.
DB-mynd Bjarnleifur.