Dagblaðið - 16.11.1979, Síða 8

Dagblaðið - 16.11.1979, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1979. Bretland: Njásnarinn var inni a gafii drottningar dularfulli maðurínn sem aðvaraði njósnarana Burgess og McLean þar með fundinn Enn eilt njósnamálið skekur nú Bretland og samkvæntt nýjustu gögnum, sem Margrét Thatcher for- sætisráðherra landsins lagði fram i gær, jtá hefur lávarður einn, sem viðurkennt hefur að hafa starfað fvrir Sovétríkin, verið innsti koppur i búri varðandi listaverkamál Elisa- betar drottningar. Lávarðurinn — Sir Anthony Blum er sagður hafa njósnað fyrir Sovét- menn bæði fyrir og eftir síðari heims- styrjöldina og auk jiess meðan á henni stóð. Var hann þá starfsmaður leyniþjónustu landsins. Hann er 72 ára að aldri. Sir Anthony, sem reyndar hefur nú verið sviptur aðalstign, mun hafa verið sá aðili, sem varaði njósnarana Burgess og Maclean við árið 1951 og gaf þeim þar með færi á að flýja austur fyrir járntjaldið. Það mál er eitthvert umtalaðasta njósnamál síðari tíma. Sir Anthony stundaði það fyrir styrjöldina síðari , að velja og komast í samband við efnilega unga menn í Cambridge, sem hugsanlega mættu verða til að aðstoða Sovét- ríkin við njósnir. Frú ThatCher forsætisráðherra hefur nú fengið aðra fyrirspurn frá þingmönnum. Er þar spurt um tengsl brezks eðlisfræðings, dr. Wilfrid Mann, við mál þeirra Burgess og Maclean. Mann býr nú i Washington. Hann hcfur þegar neitað sjálfur öllum tengslum við þá tvímenninga. í morgun var ekki vitað hvar Sir Anthony Blunt var niðurkominn en að sögn þjóns á heimili hans er líklegast að hann hafi farið flugleiðis til Ítalíu. Frakkland: GottBeaujolais vín íár Vin frá Beaujolais héraði í Frakk- landi var kynnt í gær. Sérfræðingar eru sammála um að í ár sé það gott og i góðu jafnvægi þó svo að það jafnist ekki á við árganginn frá því í fyrra. ísrael: Borgarstjóri Nablusí hungurverkfall Borgarstjórinn í Nablus á vestur- bakka árinnar Jórdan, sem ísraelsk yfirvöld hafa rekið úr embætti, hefur tilkynnt að hann hyggist fara í hungur- verkfall í mótmælaskyni. ísraelskir hermenn eru við öllu búnir ef til upp- þota kæmi á vesturbakkanum og Gaza- svæðinu vegna þessa máls. Allir arab- iskir bæjarstjórar þar um slóðir hafa sagt af sér í mótmælaskyni við brottvis- un starfsfélaga sins í Nablus. íran: Bandaríkjamenn þjófarogræningjar Myndin er af slökkviliðsmönnum berjast við elda i gasi sem kviknaði i er Ist för út af sporínu rétt við Toronto I Kanada. í morgun var tilkynnt að átta slökkviliðs- menn hefðu veríð fluttir i sjúkrahús, þar sem talið var að þeir hefðu orðið fyrír gaseitrun, jafnvel banvænni. London: Bermuda-stúlka ungfrú heinuir Sérfræðingar Reuter fréttastof- unnar i kvenlegri fegurð sögðu i morgun að hlutur kvenna frá eyjum hefði verið góður við úrslit Miss World fegurðarsamkeppninnar sem fóru fram í London í gær. Sigurvegarinn var Gina Swainson frá Bermuda eyjalýðveldi í Karabiska hafinu. önnur varð ungfrú England og í þriðja sæti ungfrú Jamaika, einnig frá eyju. í fjórða sæti kom ungfrú Ástralía. Gina frá Bermuda er 21 árs og vakti athygli fyrir að gráta ekki er úr- slit voru tilkynnt um að hún hefði verið kjörin Ungfrú alheimur árið 1979. Stöllur hennar frá Englandi og Jamaika munu hins vegar hafa séð um þá hlið málanna. Verkfall sjónvarpsmanna i Bret- landi setti nokkurn skugga á úrslita- keppnina og sást Ungfrú alheimur stutt í brezka sjónvarpinu í gær- kvöldi. Gina starfar fyrir vinfyrir- tæki í heimalandi sínu. Verðlaun hennar eru 5000 pund eða jafnvirði rúmlega fjögurra milljóna íslenzkra króna. Auk þess eru drottningunni tryggð laun, sem ekki eru minni en tólf milljónir á komandi ári. Hin nýkrýnda fegurðardrottning hefur áður verið í slíkum stórkeppn- um. Fyrr á þescu ári var hún í Ástralíu, þegar keppnispallurinn hrundi undan stúlkum sem kepptu um titilinn Miss Universe. Var Gina þá ein af þeim sem slapp við að falla niður um gat sem myndaðist á pallin- um. Úrslitin i Miss World keppninni i gærkvöldi fóru alveg í bága við spár veðmangara en staða ensku stúlkunn- ar í veðbúðum í London var 3—1 í gær. Fimmtíu sjómenn fór- ust er skipið sprakk Tyrkneskir slökkviliðsmenn voru í morgun búnir að ná tökum á brenn- andi olíuflákum rétt við höfnina i Istanbul. Olían er frá rúmensku olíu- skipi, sem sprakk í loft upp i gærkvöldi við árekstur við grískt flutningaskip. Óttazt er að rúmlega fimmtíu af áhöfn rúmenska skipsins hafi farizt. Sjö lík eru þegar fundin, fjörutíu og fjögurra er saknað en aðeins hafði verið bjargað þrem af rúmensku áhöfn- inni í morgun. Þrjátíu og þriggja manna áhöfn gríska flutningaskipsins var bjargað. Tyrknesk yfirvöld til- kynntu í morgun að skipstjórinn og nokkrir af áhöfn hans hefðu verið handteknir. Gríska skipið mun aðeins hafa skemmzt lítillega af eldi auk þess sem áreksturinn hefur sett mark á það. Var það dregið af slysstað. Talið er að hag- stæð vindátt hafi komið í veg fyrir að oliuflekkir dreifðust yfir meira svæði en raun ber vitni. Erlendar fréttir Khomeini trúarleiðtogi í iran kallaði Bandaríkjamenn bæði þjófa og ræn- ingja í gær er hann ávarpaði landa sína. Hann hvatti stúdenta, sem hafa sendi- ráð Bandaríkjanna í Teheran á valdi sínu, til að standa óhagganlegir og full- vissaði þá um fullan stuðning sinn í að krefjast framsals keisarans fyrrverandi gegn framsali bandarísku gíslanna í sendiráðinu. Fer þetta heldur i bága við túlkun Bandarikjanna á orðum núver- andi utanríkisráðhera írans í bréfi sem hann hefur sent til Sameinuðu þjóð- anna. Þetta eru fyrstu opinberu viðbrögð Khomeinis eftir að íransstjórn tilkynnti að ætlunin væri að innkalla allar íranskar inneignir í Bandarikjunum og síðan tilkynningu Bandaríkjastjórnar í kjölfar þess, þar sem tilkynnt var að ir- anskar eigur vestra yrðu frystar. Skákmótið íHollandi: Karpov sigraði iþriðja sinn Anatoly Karpov heimsmeistari sigraði á skákmótinu sem haldið hefur verið í Tilburg í Hollandi að undanförnu. í elleftu og síðustu um- ferðinni bar hann sigurorð af landa sínum og fyrrverandi heimsmeistara, Vasily Smyslov. Það var þó ekki fyrr en að skák þeirra hafði farið í bið. Þetta er í annað skiptið sem Karpov sigrar á skákmótinu í Tilburg, en það hefur verið haldið þrisvar. Verð- launin voru 6000 gyllini sem mun vera hátt á aðra milljón íslenzkra króna. Voru auk þess greidd 1000 gyllini fyrir unna skák. Oleg Romanishin frá Sovétríkjun- um náði öðru sæti á mótinu. Hann lagði fyrrum heimsmeistara að velli í siðustu umferðinni eins og Karpov. Var það Boris Spassky, landi þeirra, sem reyndar býr nú í París. Frammi- staða Romanishin á þessu móti hefur vakið athygli en hann mun vera um þrí'tugt, aðeins nokkru eldri en Karpov. Önnur úrslit: Sosonko tapaði fyrir Timman, Sax og Hort gerðu jafn- tefli, Portisch sigraði Kavalek og Bent Larsen og Húbner gerðu jafn- Anatoly Karpov heimsmeistarí tefldi af öryggi I Tilburg og tryggði sér sigur- inn. tefli. Lokastaðan er þá: Karpov 7,5,. Romanishin 7, Portisch, 6,5, Sax 6 , Spasský, Timman og Larsen 5,5, Hort og Húbner 5, Kavalek 4,5, og Smyslov rekur lestina með 2,5 vinninga.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.