Dagblaðið - 25.01.1980, Síða 20
24
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1980.
Gert er róð fyrlr austan- og
norðaustanátt á öllu landinu. Gert er
ráð fyrlr að lóttskýjað verði á Suður-
og Vesturlandi, einnig vlða fyrir
norðan. Gert er ráð fyrir éljum á
Austurlandi, norðantil á Austfjöröum
og ó annesjum fyrir norðan. Ýmist
verður vaagt frost eða hiti I kringum
frostmarkið. Klukkan nki í morgun
var mestur hiti á Stórhöfða I Vest-
mannaeyjum, 3 stig, en fjögurra
stiga frost var á Akureyri.
Veður klukkan nki i morgun:'
Reykjavik austsuðaustan 3, heiðskírt,
og -1 stig, Gufuskálar austsuðaustan i
4, léttskýjað og -1 stig, Galtarvitij
norðaustan 3, snjóál á síðustu
klukkustund og 1 stig, Akureyri hœg-
viðri, lóttskýjaö og -4 stig, Raufarhöfn
norðaustan 3, lóttskýjað og -1 stig,
Dalatangi noröan 3, snjóól og 1 stig,
Höfn í Hornafirði norðnorðaustan 3,
lóttskýjað og 1 stig og stórhöföi í
Vestmannaeyjum austan 8, lótt-
skýjaö og 3 stig.
Veður klukkan sex í morgun: Þórs-|
höfn í Færoyjum skýjað og 3 stig,l
Kaupmannahöfn skýjað og -3 stigj
Osló snjókoma og -13 stigj
Stokkhólmur veðurskeyti vantar,
London þokumóða, heiðskírt og -1!
stig, Hamborg þoka og 1 stig, París,
þoka og 3 stig, Madrid þoka og 8 stig,:
Lissabon skýjað og 12 stig, veður-!
skeyti vantar frá New York klukkan
Dr. Jón Gislason, fyrrverandi skóla-
sljóri Verzlunarskóla íslands, sem lézl
I6. janúar sl., var fæddur 23. febrúar
I909 i Gaulverjabæ í Flóa. Foreldrar
hnns voru Maigrét Jónsdóllir og Gísli
llann. sson hóndi Að loknu slúdents-
pró! i ' igði dr. Jón stund á háskólanám
í Þý/kalandi og lauk doktorsprófi árið
I934. Var liann kennari við Verzlunar-
skóla Islands frá árinu 1935, yfirkenn-
ari frá 1941 og skólastjóri frá árinu
1952. Eftirlifandi kona dr. Jóns er Lea
Cggertsdóttir og eignuðust þau hjón
tvo syni sem báðir eru uppkomnir.
Útför dr. Jóns Gíslasonar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag.
Guðbjörg F.inarsdóttir frá Akurprýði
sem lézt 21. janúar sl. var fædd 26.
marz 1892 og voru foreldrar hennar
Guðlaug Sigurðard., og Einar Gísla-
son útvegsbóndi. Guðbjörg giftist Jóni
Jónssyni skósmið og kaupmanni á
Akranesi, en þar bjuggu þau hjón allan
sinn aldur. Mann sinn missti Guðbjörg
árið 1940 og eftir það bjó hún hjá
dóttur sinni Guðlaugu. Guðbjörg og
Jón eignuðust sex börn og eru fimnr
þeirra á lífi.
Júlíus Emil Sigvaldason, fyrrverandi,'
verkstjóra hjá Rikisskip, em lézt 19.
janúar sl., var fæddur 31. júli 1911.
Hann er jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. I 3.30.
Sigurður Júlíusson, Dalbraut 29 Akra-
nesi, lézt í sjúkrahúsi Akraness 23.
janúar sl.
Anna Ester Sigurðardóttir, Faxastíg 351
Vestmannaeyjum, lézt 19. janúr sl.
Hún verður jarðsungin frá Landa-
kirkju á morgun, laugardaginn 26.
janúar kl. 2.
Margrét Gunnarsdóttir, Bjarmastíg 15 {
Akureyri, verður jarðsungin á morgun,1
laugardaginn 26. ian., kl. 13.30.
Guðrún F.rlendsdóttir, frá Norðurgarði
i Mýrdal verður jarðsungin frá
Skeiðflatarkirkju á morgun, laugar-
daginn 26, jan., kl. 2. Ferðir frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 9.30 i fyrra-
málið.
Iþróttlr
Reykjavíkurmeistaramót
í Sundknattleik
Reykjavíkurmeistaramót i sundknattleik á að hefj-
ast samkvaemt mótaskrá þann 30. janúar nk. Þau
félög sem hafa hug á að taka þátt i þesssu móti eru
beðin aðskila þátttökutilkynningum til SRR fyrir 24.
janúar. Þátttökugjald sem er 7.000 kr. fyrir hvert þátt
tökulið. skal greiða um leið.
Æfingatafla Handknattleiks-
deildar Vals veturinn 1979—
1980
M.fl. karla:
Mánudaga kl. 19.20—20.35. l.augardalshöll.
Miðvikudaga kl. 20.30—22.10. Valshcimili.
Fimmtudaga kl. 18.50—19.40. Valsheimili.
Laugardaga kl. 12.10—13.00. Valsheimili.
Þjálfari Hilmar Björnsson.
M.fl. kvenna:
Mánudaga kl. 18.50—20.30. Valsheimili.
Miðvikudaga kl. 21.50—23.05. Laugardalshöll. ’
Fimmtudaga kl. 19.40—20.30. Valsheimili.
Þjáll'ari Jón Hcrmannsson.
2. fl. karla: _
Mánudagakl. 21.20—22.10. Valsheimili.
Þriðjudaga kl. 21.20—22.10. Valsheimili.
Fimmtudaga kl. 21.20—22.10. Valsheimili.
Þjálfarar:
Ágúst ögmundsson. Jón Ágústsson.
2. fl. kvcnna:
Mánudaga kl. 20.30 -21.30. Valsheimili.
Eimmludaga kl. 20.30—21.20. Valsheimili.
Latigardaga kl. 13.50—14.40. Valsheimili.
Þjálfarar: Pétur Guðmundsson. Brynjar Kvaran.
Gisli Arnar Gunnarsson.
3. fl. karla:
Miðvikudaga kl. 19.40—20.30. Valsheimili.
Laugarúaga kl. 13.00— 13.50. Valshcimili.
Þjálfp-ar: Jón H. Karlsson, Þorbjörn Jensson. Gisli ,
Blöndal.
3. fl. kvenna:
Máiiudaga kl. 18.00— 18.50. VaIsheinii 1 iw
Fimmtudaga kl. 17.10—18.00. Valsheimili.
Þjálfarar: Þórarinn Eyþórsson. Björn Björnsson,
Karl Jónsson.
4. fl. karla:
Þriðjudaga kl. 20.30—21.20. Valsheimili.
Fimmtudaga kl. 18.00—18.50. Valsheimili.
Þjálfarar Gunnsteinn Skúlason. Bjarni Guðmunds
son. Stcfán Halldórsson.
5. fl. karla:
Laugardaga kl. 14.40—16.20. Valsheimili.
Þjálf^trar Stefán Gurinarsson. Ólafur H. Jónsson.
Markmannsþjálfun Ólafur Benediktsson. Brynjar
Kvaran, Jón Breiðfjörð.
Æfingar hcfjast 17. sept.
120 ár frá fæðingu
Antons Tsékhovs
Hinn 29. þ.m. eru 120 ár liðin frá fæðingu rússneska
rithöfundarins og leikskáldsins Antons P. Tsékhovs. í
tilefni afmælisins verða sýndar kvikmyndir, Ijós
myndir og bækur í MÍR-salnum, Laugavegi 178, um
ogeftir næstu helgi.
Kvikmyndasýningar verða: Laugardaginn 26.
janúar kl. 15 verða sýndar 2 myndir gerðar eftir smá .
sögum Tsékhovs: Óskilabarn og Sænska eldspýtan.
Fyrri sagan er ein af hinum stuttu, hnitmiðuðu kimni ;
sögum Tsékhovs, en hin er sakamálasaga I gamansöm !
um tón. Seinni myndin er með skýringartextum á I
ensku, sú fyrri textalaus.
Sunnudaginn 27. jan. kl. 16 verður sýnd kvik- •
myndin Harmleikur á veiðum, gerð eftir einni af
hinum lengri sögum Tsékhovs. Myndin er sýnd án
þýddra skýringatexta.
Þriðjudaginn 29. jan. kl. 20.30 verður sýnd i
heimildarkvikmynd um Tsékhov (með norsku tali) og
Vanja frændi, kvikmynd A. Mikhalov Kontsalovski
gerð Teftir hinu fræga, samnefnda leikriti. Myndin er
sýnd án þýddra skýringatexta.
í tilefni kvikmyndasýninganna í MÍR-salnum hefur
verið sett upp sýning á Ijósmyndum og bókum um og
eftir Anton P. Tsékhov. Aðgangur að MÍR-salnum cr
ókeypis og öllum heimill.
Kvennadeild Skagfirðinga-
félagsins í Reykjavík
efnir til handavinnunámskeiðs og eru félagskonur
beðnar að hafa samband við formanninn sem fyrst.
Ljóðalestur
í Norræna húsinu
Finnsk-sænska leikkonan May Pihlgren les upp finnsk
Ijóð á sænsku í Norræna húsinu laugardaginn 26.
janúarkl. 16. Allireru velkomnir.
Frá Ananda Marga
Þeir sem vilja kynna sér hreyfinguna Ananda Marga'
eru velkomnir i AÖalstræti 16, 2. hæð á fímmtudags-
kvöldum. x
Félagsmenn
Dagsbrúnar
sem breytt hafa um aðsetur á árinu 1979 eru beðnir að
hafa samband við skrifstofuna og tilkynna núverandi
heimilisfang. Verkamannafélagið Dagsbrún Lindar-
götu 9sími 25633.
Skákmót í öllum
grunnskólum landsins
Skólaskák, samræmd skákmót i öllum grunnskólum
landsins, er nú að fara af stað öðru sinni en keppnin
fór í fyrsta sinn fram á síðasta skólaári. Þá tóku alls
3770 nemendur frá 166 skólum þátt I henni en alls
voru haldin 293 mót í yngri og eldri flokki áður en að
úrslit réðust á landsmóti sem haldið var að Kirkju-
bæjarklaustri dagana 17.—21. april. Skólaskák-
meistarar íslands 1979 urðu Jóhann Hjartarson i
eldri flokki og Halldór G. Einarsson frá Bolungarvík í
yngri flokki.
Skákmótum skólanna þarf að vera lokiö fyrir 1.
marz nk. en sýslu og kaupstaðamótin (í þeim keppa
sigurvegarar skólamótanna) eiga að fara fram í marz-
mánuði. Að þeim loknum munu sigurvegarar í sýslu-
og kaupastaðamótum eigast við á kjördæmismótum.
Síðasti hluti skólaskákkeppninnar, landsmótið, verður
haldið í aprilmánuði og þá keppa sigurvegararnir á
kjördæmismótunum í báðum flokkum um titilinn
Skólaskákmeistari Islands 1980.
Skáksamband íslands og aðildarfélög þess vænta
þess að í ár muni fleiri nemendur frá fleiri skólum taka
þátt i keppninni en á síðasta ári.
Skólar munu njóta aðstoðar fulltrúa Skáksam-
bandsins og aðildarfélaga þess í einstökum sýslum og
kaupstöðum og munu þeir veita aila þá aðstoð sem
óskað kann að verða eftir.
Stefánsmótið
í Skálafelli
Stefánsmót KR á skíðum fer fram um helgina í Skála-
felli. Á laugardag verður keppt í yngri flokkum og
hefst keppnin kl. 11 en nafnakall verður kl. 10. Á
sunnudag fer svo fram keppni i kvenna- og karla-
flokki og hefst keppnin þar á sama tíma. Alls eru
skráðir 198 keppendur i mótið.
Mótsstjóri verður Marteinn Guðjónsson.
Unglingameistaramót
í sundi
Unglingameistaramót Reykjavíkur verður haldið í
Sundhöll Reykjavíkur þann 27. janúar nk. Þátttöku-
tilkynningar skulu hafa borist SRR fyrir 23. jan.
Skráningargjald er 400 kr. fyrir hverja grein.
Keppt er í eftirtöldum greinum:
1. gr. 100 m flugsund stúlkna.
2. gr. 100 m flugsund drengja
3. gr. 100 m bringus. telpna
4. gr. 100 m skriðs. sveina
5. gr. 200 m fjórs. stúlkna
6. gr. 200 m fjórs. drengja
7. gr. 100 m baksund telpna
8. gr. 100 m baksund sveina
9. gr. 100 m skriðs. stúlkna.
10. gr. 100 m bringus. drengja
11. gr. 4 x 100 m fjórs. stúlkna
12. gr. 4 x 100 m fjórs. drengja
Söfnun Mæðra-
styrksnefndar lokið
Hinni árlegu jólasöfnun Mæðrastyrksnefndarinnar
í Reykjavik er nú að Ijúka. Samtals söfnuðust kr.
5.411.639.00 en ráðstafað var kr. 5.897.665,00 til 243
bágstaddra aðila í Reykjavík. Þessa stuðnings nutu
um 80 fjölskyldur en að öðru leyti rann gjafafé þetta
til einstæðinga I borginni, einkanlega til einstæðra
mæðra, öryrkja og aldraðra, jafnt karla sem kvenna.
Auk þess var ráðstafað til þessara aðila miklu magni
fatnaðar sem nefndinni barst einnig að gjöf fyrir jólin.
Ofangreint söfnunarfé nemur hærri fjárhæð en
nokkru sinni áður og kom allt I góðar og brýnar þarfír
hjá þeim, sem þágu það að gjöf. Hið sama gildir að
sjálfsögðu um fatnaðinn. Eru því Reykvíkingum enn
einu sinni færðar þakkir fyrir örlæti og drengskap i
garð þeirra mörgu, sem minnst mega sln.
Mæðrastyrksnefnd barst svo mikið magn fatnaðar
fyrir jt^jin að enn er talsvert eftir. Er hér um hrein og
góð föt að ræða, sem þeir geta fengið að gjöf, sem búa
við þröngan hag og þurfa á þeim að halda. Verður
hann afhentur á skrifstofu nefndarinnar að
Njálsgötu 3 í dag, föstudaginn 25. janúar kl. 2—5
síðdegis.
Kvenréttindafélag
íslands
efnir til afmælisvöku að Kjarvalsstöðum á laugar-
daginn 26. janúar. Vakan, sem er öllum opin hefst kl.
14 og fer þá fram kynning á konum I listum og
visindum.
Sundmót KR
í Sundhöll
Reykjavíkur
Sundmót KR fer fram í Sundhöll Reykjavikur 6.
febrúar kl. 20.00 Keppt verður í eftirtöldum greinum:
1.400 m skriðsund karla.
2. 100 m baksund kvenna.
3. 50 m bringusund sveina 12 ára og yngri.
4. 100 m bringusund karla.
5. 100 m bringusund kvenna.
6. 100 m baksund karla.
7. 100 m skriðsund kvenna.
8. 50 m bringusund meyja 12 ára og yngri.
9. 200 m fjórsund karla.
10.4 x 100 m skriðsund kvenna.
11.4 x 100 m skriðsund karla.
Þáttökutilkynnningar þurfa að hafa borizt i siðasta
lagi 30. janúar til Erlings Þ. Jóhannssonar c/o Sund-
laug Vesturbæjar. Þátttökugjald er kr. 300 per.
skráning og skal það fylgja með skráningu.
Erik Stinus
í Norræna húsinu
Danski rithöfundurinn Erik Stinus gistir Norræna
húsið í næstu viku og heldur þar tvo fyrirlestra. Erik
Stinus sendi fyrstu bók sina frá sér 1958 og eftir það
ferðaðist hann vítt og breitt um Asíu og Afríku og var
reyndar búsettur árum saman í þeim heimshlutum.
Viðfangsefni sin sækir hann oftlega til þróunarland-
anna og með þeim er samstaða hans alger. í skáldskap
hans kemur fram, hve mjög ástandið í heiminum fær á
hann og eðlilegt er að hann tjái þar sín stjórnmálalegu
viðhorf, en fyrir honum eru stjórnmál og skáldskapur
óaðskiljanleg hugtök. Var þetta þegar Ijóst í fyrstu
bók hans, Ijóðabókinni, „ .Grænseland” (1958). Hann
hefur sent frá sér fjölda bóka, bæði Ijóð og laust mál,
og nýjasta bók hans, sem er mjög nöpur, ljóðasafnið
„Jorden under himlen” (1979) var önnur sú bóka, sem
Danir lögðu fram til keppninnar um bókmennta
verðlaun Norðurlandaráðs að þessu sinni. Fyrra
erindi sitt, sem hann heldur þriðjudaginn 29. janúar
kl. 20:30, nefnir hann „Rejser pá jorden” og er það
kynning á eigin skáldskap, en síðara erindið „De
mægtiges dörtrin", þar sem hann sýnir einnig lit-
skyggnur, heldur hann laugardaginn 2. febrúar kl.
16:00 og ræðir þá vandamál þróunarlandanna.
árangurslausar tilraunir hinna minni máttar til að
komast yfir þröskuld hinna voldugu.
Konur 1 listum og
vísindum kynntar
Konur í listum og visindum verða kynntar á af
mælisvöku Kvenréttindafélags Islands, sem verður
haldin á Kjarvalsstöðum laugardag 26. janúar.
Rithöfundurinn Ása Sólveig og Auður Haralds
munu flytja eigið efni: Laugardagur i íshúsi er heiti
smásögu Steinunnar Eyjólfsdóttur sem kynnt verður á
vökunni. Flutt verða Ijóð eftir Þuriði Guðmunds
dóttur. Sigriður Erlendsdóttir B.A. greinir frá
rannsóknum sinum á þátttöku kvenna í atvinnulífinu.
María Jóna Gunnarsdóttir byggingartæknifræðingur
ræðir um starfsvettvang sinn. Elisabet Eiriksdóttir
syngur við undirleik Jórunnar Viðar, m.a. lög eftir
Jórunni. Elisabet Waage leikur á hörpu. 3 stúlkur
úr skólakór Garðabæjar, Hildigunnur Rúnarsdóttir,
Marta og Hildigunnur Halldórsdætur, syngja nokkur
lög.
Gestum gefst kostur á að skoða ljósmyndir eftir
Emiliu Björgu Björnsdóttur blaðaljósmyndara og
keramikmuni eftir Borghildi Óskarsdóttur.
Myndlistarmennirnir: Hjördis Bergs. Gerður
Pálmadóttir, Ásdís Sigurþórsdóttir, Andrína Jóns-
dóttir og Kristjana Samper sýna verk sin.
Afmælisvakan hefst klukkan 14 og stendur i 2
tíma. öllum er heimill aðgangur.
Þorrablót Framsóknar-
félaganna í Kópavogi
verður haldið laugardaginn 26. janúar í Félagsheimili
Kópavogs og hefst kl. 19.30. Húsið opnað kl. 19.
Hið íslenzka
prentarafélag
— opið hús
Opið hús verður í félagsheimili HÍP að Hverfísgötu
21 laugardaginn 26. janúar kl. 14. Rætt verður um
sameiningarmálin. Kaffi og kökur á boðstólum. Prent-
arar eru hvattir til að fjölmenna.
Byggingaþjónustan opnuð
að Hallveigarstíg 1
Meginstarfsemi Byggingaþjónustunnar er m.a. fólgin i
því að hafa daglega sýningu á fjölbreyttu úrvali
byggingarefna, véla, verkfæra, heimilistækja,
innréttinga og tilheyrandi fylgihluta.
Veittar eru hlutlausar upplýsingar um verð, gæði.
meðhöndlun og notagildi þessara efna og tækja.
Það er augljóst að þessi þjónusta, að hafa á einum
stað margvísleg sýnishorn byggingarefna, þar sem allir
geta komið og gert samanburð og fengið um leið hlut
lausar upplýsingar og leiðbeiningar, sparar ótrúlega
mikinn tíma og fyrirhöfn i leit að byggingarefnum,
hvort heldur menn eru að byggja, endurnýja ibúðir
sínar eða til viðhalds þeim.
Byggingaþjónustan kappkostar jafnframt að hafa á-
vallt nýjungar til sýnis og kynna þær jafnóðum og
þær koma á markaðinn.
Þessi þjónusta er ókeypis fyrir almenning, en er
borin uppi m.a. af tekjum, sem fyrirtækin greiða, sem
þora að sýna sína vöru í heiðarlegri samkeppni og
veita þannig um leið mikla þjónustu viðalmenning.
Ráðstefnur, námskeið og fyrirlestrarhald víðs vegar
um landið um hvers konar málefni er snerta húsnæðis-
og by^gingarmál verða áfram á dagskrá hjá Bygginga
þjóriústunni.
Byggingaþjónustan opnar um næstu mánaðamót í
nýjum og rúmgóðum húsakynnum að Hallveigarstig
l.
Arshátíöir
Árshátíð ABK
Árshátíð Alþýðubandalagsins í Kópavogi verður
haldin I Þinghóli laugardaginn 2. febrúar nk. Þorra-
matur. Skemmtiatriði og dans. Nánar auglýst síðar.
Tónle.kar
Fyrstu básúnutón-
leikar á íslandi
William Gregory básúnuleikari og Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir píanóleikari halda tónleika á Kjar-
valsstöðum fimmtudaginn 3I. janúar kl. 20.30. Á
efnisskránni eru verk eftir Saint-Sáéns, Bozza Pryor
og fleiri.
William leikur á fyrstu básúnu í Sinfóniuhljómsveit
Islands. Hann er fæddur I Texas 1955. William
stundaði nám í Boston Conservatory og Julliars Scholl
og Music í New York. Árið 1974 vann hann fyrstu
verðlaun i ShenanUöah sólóistakeppni.
Sveinbjörg stundaði nám við Tónlistarskólann i
Reykjavík og Guidhall Scholl og Music í London.
Hefur hún oft komið fram sem undirleikari á Tón-
leikum i Reykjavik og úti á landi og í kammermúsik.
Sveinbjörg starfar nú sem kennari við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar.
r . ^
Aöalfundi r
Jöklarannsóknarfélag
íslands
Aðalfundur félagisns verður haldinn i Domus Medica
þriðjudaginn 12. febrúar 1980 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kaffidrykkja.
3. Sigfús Johnsen eðlisfræðingur talar um rannsóknir
á iskjörnum úr Grænlandsjökli.
Aðalfundur
Manneldisfélags
íslands
verður haldinn í stofu I0l Lögbergi þriðjudaginn 29.
janúar kl. 20. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundar-
störf en að þeim loknum flytur dr. Laufey Steingríms-
dóttir næringarfræðingur erindi, sem hún nefnir
Offita og otsakir hennar.
Hvöt, félag
sjálfstæðiskvenna
í Reykjavík
heldur fund i Sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitis-
braut l, mánudaginn 28. janúar kl. 20.30.
Fundarefni: Staða Sjálfstæðisflokksins og horfur í
stjórnmálum. Framsögumaður. Ragnhildur Helga-
dóttir, fyrrverandi alþingismaður. Að lokinni fram-
söguræðu verða almennar umræður.
Félag ungra framsóknar-
manna mótmælir innrásinni í
Afganistan
Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna í Reykja-
vík, haldinn 12. janúar 1980, fordæmir harðlega inn-
rás Sovétríkjanna í Afganistan og varar við yfirgangs-
stefnu stórveldanna.
Krefst fundurinn þess að herir Sovétmanna verði
samstundis dregnir til baka.
Oregið í happdrætti
Krabbameinsfélagsins
Dregið hefur verið i hausthappdrætti Krabbameins-
félagsins 1979. Fjórar bifreiðir, sem voru i boði. komu
áeftirtalin númer:
115091 Dodge Omni
68800 Saab 99 GL
119300 Citroen Cisa Club
46395 Toyota Starlet 1000.
Sambyggð útvarps- og segulbandstæki, Crown. komu
áeftirtalin númer:
25019,49032,60727, 71258, 103927 og 147200.
Krabbameinsfélagið þakkar landsmönnum góðan
stuðning fyrr og siðar og óskar þeim farsældar á nýju
ári.
Frá landssamtökunum
Þroskahjálp
Dregið hefur verið i almanakshappdrætti Þroska-
hjálpar. Vinningur fyrir janúarmánuð er 8232.
Gengið
GENGISSKRÁNING Ferðmanna-
NR. 14-22. JANÚAR 1980 fljaldeyrir
Eining KU1Z00 •
Kaup Sala Sala
i 1 BandarfkjadoNar 398,40 399,40 439,34
1 Steriingspund 908,55 910,85* 1001,94*
1 Kanadadollar 343,15 344,05* 378,46
100 Danskar krónur 7381,05 7379,55— 8117,51*
100 Norskar krónur 8097,60 8117,90* 8929,89*
100 Sœnskar krónur 9584,25 9608,35* 10569,19*
100 Hnnsk möric 10779,20 10808,30* 11886,93*
100 Franskir frankar 9817,80 9842,30* 10826,53*
100 Belg. frankar * 1415,75 1419,35* 1561,29*
100 Svissn. frankar 24865,05 24927,45* 27420,20*
100 GyHini 20847,75 20900,05* 22990,06*
100 V-þýzk mörk 23002,35 23060,05* 25368,07*
100 Llrur 49,39 49,51* 54,46*
100 Austurr. Sch. 3203,90 3211,90* 3533,09*
100 Escudos 797,80 799,60* 879,58*
100 Pesetar 602,90 604,40* 664,84*
190 Yen 185,78 166,20* 182,82*
I 1 Sérstök dráttarróttindi 525,79 527,11*
- ->--■--->—- ------------•-----=--'•-■■ i .
* Brayting frá sföustu skráningu. Sfanavari vegna genglsskráningar 22190