Dagblaðið - 25.01.1980, Blaðsíða 23
■»
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1980.
<§
Útvarp
27
Sjónvarp
»
Fólk hefur hringt hér á ritstjórnina og spurt hvort hægt verði að endursýna Út í óvissuna á öðrum dögum. Ekki verður
það gert, að sögn Hinriks Bjarnasonar. Þeir sem missa af þáttunum verða því að bíta í það súra epli. Myndina tók
Hörður Ijósmyndari DB i Austurstræti þar sem verið var að taka upp atriði í Út í óvissuna.
ÚT í ÓVISSUNA
EKKIENDURSÝND
— ekkert nýtt framundan hjá sjónvarpinu
„Út í óvissuna verður ekki endur-
sýnd á öðrum dögum. Það væri sama
á hvaða dögum þættirnir yrðusýndir,
það væru alltaf einhverjir sem
mundu missa af þeim,” sagði Hinrik
Bjarnason, forstöðumaður lista- og
skemmtideildar sjónvarpsins, í sam-
tali við DB.
Hinrik var að þvi spurður hvort
hægt væri að endursýna þættina Út i
óvissuna á öðrum tíma en DB hefur
fengið fyrirspurn um það mál.
í leiðinni spurði DB Hinrik hvort
eitthvað nýtt yrði á skjánum á næst-
unni. Hann kvað þaðekki vera, sjón-
varpsdagskráin væri í föstu formi
þessa dagana.
Sjónvarpið biður nú eftir að fá
senda sýningakópíur af Greifafrúnni
i Greifastræti sem sýna á á sunnu-
dagskvöldum.
Að sögn Hinriks verða innlendir
skemmtiþættir öðru hvoru á laugar-
dagskvöldum á næstunni. Sagði hann
að ekkert væri enn farið að ákveða
með þá, né umsjónarmenn þeirra. Þó
er víst að Hildur Einarsdóttir mun
annast einn þátt í viðbót með blönd-
uðu efni.
Af erlendu efni er það að segja að
engir nýir þættir fyrir utan greifa-
frúna verða fyrr en í marz.
Aðspurður um spurningakeppni í
sjónvarpssal sagði Hinrik að þar sem
annasamur tími hafi verið hjá sjón-
varpinu undanfarið hefði ekki verið
nægilegur undirbúningstími. Yrði
spurningakeppni því að sitja á
hakanum. -ELA.
ÞRÁHYGGJA - sjónvarp kl. 22,10:
Ijögf ræðingur í
morðhugieiðingum
— í mynd kvöldsins
„Þetta er grín- og sakamálamynd.
Hún fjallar um lögfræðing sem er
orðinn leiður á eiginkonu sinni og
ákveður að drepa hana,” sagði
Ragna Ragnars þýðandi frönsku
sjónvarpsmyndarinnar Þráhyggja
sem sjónvarpið sýnir i kvöld kl.
22,10.
„Lögfræðingurinn er verjandi
glæpamanns sem situr í fangelsi og
hann leitar til hans um ráðleggingar
við að drepa konuna,” sagði Ragna
ennfremur.
„Lögmaðurinn reynir að fara eftir
þessum ráðleggingum en allt mis-
lekst hjá honum. Að lokum kemur
tengdamamma hans í spilið. Að mínu
áliti er þetta bæði fyndin og skemmti-
leg mynd,” sagði Ragna.
Með aðalhlutverk í Þráhyggju fara
Francoise Brion og Jacques Francois.
-ELA.
Útvarp
í
Föstudagur
25. janúar
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa. Dans- og dægurlög og iétt-
klassisk tóniist.
14.30 MÍddegLssagan: „Gatan” eftir Ivar Lo-
Johansson. Gunnar Benediktsson þýddi. Hall
dór Gunnarsson les <21).
15.00 Popp. Vignir Sveinsson kynnir.
•15.30 Lesin dagskrá næstu viku. 15.50 Tilkynn
ingar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veöurfrcgnir.
16.20 Litli barnatiminn: feg vil ekki mat. Sigrún
Sigurðardóttir sér um timann.
16.40 Útvarpssaga barnanna: „Hreinnino fót-
frái” eftir Per Wcsterlund. Margrét Guð-
mundsdóttir les (6).
17.00 Slðdegistónlcikar. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur „Mistur” eftir Þorkel Sigurbjörns
son; Sverre Bruland stj. / Fllharmoníusveit
New York-borgar lcikur dans úr „Music for
the Theatre" eftir Aaron Copland; Leonard
Bernstein stj- / Sinfóniuhljómsveit Lundúna
leikur „Þriðju sinfóniuna" eftir Aaron Cop-
land;höfundurstj.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfrcgnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Viðsjá. 19.45 Tilkynningar.
20.00 Tónleikar frá útvarpinu I Stuttgart. a.
Sónata í c-moll fyrir fiðlu og planóop. 30 nr. 2
eftir Beethoven, Henryk Szeryng og James
Tocco leika. b. Sönglög eftir Debussy og
Strauss. Reri Grist syngur; Kenneth Broad-
way leikurá pianó.
20.45 Kvöldvaka á bóndadaginn. a Finsöngun
Ólafur Þorsteinn Jónsson syngur lög eftir
Karl O. Runólfsson. Ólafur Vignir Albertsson
ieikur á pianó. b. Sjómaður, bóndi og skáld.
Jón R. Hjálmarsson talar við Ragnar Þor-
steinsson frá Höfðabrekku; — síðara samtal. c.
Kvaði eftir Stephan G. Stephansson. Valdi
mar Lárusson les. d. Þar flugu ekki steiktar
gssir. Frásöguþáttur um selveiðar á húðkeip
og með gamla laginu í Jökulsá á Dal. Halldór
Pjetursson rithöfundur skráði frásöguna að
mestu eftir Ragnan B. Magnússyni. óskar
Ingimarsson les. e. Á sumardögum viö
Önundarfjörð. Alda Snæhólm lcs úr minning-
um Elinar Guðmundsdóttur Snæhólm. f. Kór-
söngun Liljukórinn syngur isienzk lög. Söng-
stjóri: Jón Ásgeirsson.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun
dagsins.
22.30 Kvöldsagaiu „Hægt andlát” eftir Simone
de Beauvoir. Bryndís Schram les þýðingu sína
«S). .
• ,23.00 Áfangar. Asmundur Jónsson og Guðni
Rúnar Agnarsson sjá um þáttinn.
.23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
1
Sjónvarp
n
Föstudagur
25. janúar
20.00 Fréttir og vcður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
■ 20.40 Skonrok(k). Þorgeir Ástvaldsson kynnir
ný dægurlög.
21.10 Kastljós. Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Ingvi Hrafn Jónsson.
22.10 Þráhyggja. Ný, frönsk sjónvarpskvik-
mynd. Aðalhlutverk Francoise Brion og
Jacques Francois. Lögfræðingur nokkur hefur
fengið sig fullsaddan af ráðrlki eiginkonu-
sinnar og hann einsetur sér að koma henni
fyrir kattarnef. Þýðandi Ragna Ragnars
23.50 Dagskráriok.
Er réttara að selja þann gula f stautum úr landi en að selja hann nýjan upp úr
sjónum?
KASTUÓS — sjónvarp kl. 21,10:
FISKUR 0G MENN-
INGARVERDMÆTI
Kastljós kvöldsins er í umsjón
■ Ingva Hrafns Jónssonar frétta-
'manns. Tekin verða fyrir tvö mál.
Þeirri spurningu verður fyrst
varpað fram hvort rétt sé að fiskiskip
okkar selji tugi þúsunda lesta af
óverkuðum, ísuðum bolfiski úr landi
á sama tíma og atvinnuleysisdagar á
landinu nálgast hundrað þúsund.
Jafnframt verður rætt um hvort ekki
væri réttara að fullvinna fiskinn hér
heima. Frystihús Sigurðar Ágústs-
sonar í Stykkishólmi er þegar komið
með vélar til framleiðslu á fiskstaut-
um fyrir erlendan markað og á
vinnslan að hefjast strax í vor. Um
málið verður rætt við sjávarútvegs-
ráðherra, Kjattan Jóhannsson,
Kristján Ragnarsson, formann LÍÚ,
og talsmann sölusamtaka frysti-
iðnaðarins.
Aðstoðarmaður Ingva Hrafns í
Kastljósi i kvöld er Ingólfur
Margeirsson, blaðamaður á
Þjóðviljanum. Hann tekur fyrir
varðveizlu menningarverðmæta á
íslandi. Meðal annarra ræðir hann
við Bjarna Vilhjálmsson þjóðskjala-
vörð og Finnboga Guðmundsson
landsbókavörð. Litið er inn á við-
gerðarstofur safnanna og staldrað
við á ýmsum stöðum þar sem
skjölum og bókum er staflað og
iiggja undir skemmdum. Er svo víða
á kirkjuloftum til dæmis.
Stjórnandi upptöku Kastljóssins er
Örn Harðarson. Það hefst að loknu
Skonroki klukkan 21.10. -DS.
KVOLDVAKA — útvarp M. 20,45:
Bóndadagsins minnzt
á kvöldvöku ” SgaijSasogur
I Kvöldvöku i kvöld, sem kennd er
við bóndadaginn í dag, kennir ýmissa
gra.su. Ólafur Þorsteinn Jónsson
syngur Iög eftir Karl Ó. Runólfsson
við undirleik Ólafs Vignis Alberts-
sonar.
Jón RT' Hjálmarsson ræðir við
Ragnar Þorsteinsson frá Höfða-
brckku. Ragnar hefur starfað sem
sjómaður, bóndi og skáld. Er það
síðari hluti víðtalsins sem fluttur er í
kvöld.
Að þeini þætti loknum les Valdi-
mar Lárusson kvæði eftir Stephan G.
Stephansson. Þá les Óskar Ingimars-
son frásöguþátt um selveiðar.
Halldór Pjetursson rithöfundur
skráði söguna að mestu eftir Ragnari
B. Magnússyni.
Á sumardögum við Önundarfjörð
nefnist endurminningasaga Elínar
Guðmundsdóttur Snæhólnt. Alda
Snæhólm les.
Að lokunt i h ■ndadagskvoldvök-
unni er kórsöngur. Liljukórinn
syngur íslenzk lög undir stjórn Jóns
Ásgeirssonar. Kvöldvakan er cinnar
og hálfrar stundar löng. -ELA.
VEITINGAHÚS
Lokað.