Dagblaðið - 18.02.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980.
7
Athugasemdir
fólks:
„Slys að
Geir
varð for-
maður”
„Styð Gunnar af alefli sem sjálf-
stæðisniaður og vonast til að he*ta
verði til að hrista upp í flokknum
honum til góðs,” sagði karl á Akureyri
i svari sínu i skoðanakönnuninni. „Ég
styð Gunnar fyrst og fremst til að lýsa
vantrausti minu á Geir sem formanni
Sjálfstæðisflokksins," sagði kona á
Akureyri.
„Það var ekkert annað en slys þegar
Geir Hallgrimsson varð formaður
flokksins. Það er að verða stórslys að
hann skuli ekki getað talað við aðra
flokksmenn cn einhverja klíku sem er
einangruð frá hinum almenna kjós-
anda,” sagði karl i Reykjavik.
,,Ég hef ekki verið hrifin af Gunnari
Thoroddsen. En ef ég ætti um hann og
Geir að velja þá tel ég Gunnar fremri,”
sagði kona I Reykjavík.
„Auðvitað styð ég Gunnar frekar en
Geir, ég tel samt, að hvorugur þeifra
eigi að vera í formennsku i Sjálfstæðis-
nokknum,”sagði önnur kona i Reykja-
vík.
,,Ég styð Gunnar. Hann gerði það
sem Geir sagðist hafa reynt en gat
ekki," sagði karl i Reykjavík.
„Ég er sjálfstæðismaður, en þetta
var orðinn einn allsherjar sandkassa-
leikur og stjórnmálamönnum til
skammar. Gunnar Thor bjargaði
málinu, en samt er þetta leiðinlegt fyrir
nokkinn,” sagði kona úti á landi.
„Gunnar hefur sannað, að hann er
mikilmcnni” var skoðun konu á
Vesturlandi. „Gott framtak hjá
Gunnari og gaman að sjá, hvernig til
tekst,” sagði kona á Auslurlandi.
„Gunnar hefur sýnt forystuhæfileika
sina fram yfir Geir,” sagði karl á
Austurlandi.
„Gunnar sýndi kjark. Hann gat leyst
hnútinn,” sagði karl i Reykjavík.
„Ég styð hvorugan þeirra i raun. En
i því tilfelli sem upp hefur komið snýst
ég á sveif með Gunnari,”sagði karl á
Reykjavikursvæðinu. „Gunnar er
miklu hæfari stjórnmálamaður á allan
hátt og hann gerði rétt með því að rifa
sig lausan úr flokksböndunum,”sagði
karl á Reykjavikursvæðinu.
„Sveik
flokkinn"
„Ég er á móti Gunnari, þvi að hann
hefur komið aftan að floknum og
svikið hann,” sagði kona i Reykjavik.
„Ég styð Geir. Ég held, að hann hafi-
verið að reyna að mynda utanþings-
sljórn. Ég vildi, að hann hefði getað
það,” sagði karl í Reykjavík.
„Styð Geir Hallgrimsson en tel sanil
að hann sé of stifur á meining-
unni,” sagði maður úti á landi.
„Mér fannst þetta ekki fallega gert
af Gunnari,” sagði maður á Reykja-
vikursvæðinu. -HH.
Sa/t-
kjötið
KJÚTBÚÐ
SUÐURVERS
STIGAHLÍÐ - SÍMI35645
Niðurstöður skoðanakönn-
unarinnar urðu þessar:
Meðal stuðningsmanna Sjálfstœðisflokksins urðu
niðurstöður þessar:
Geir 38 eða 20,8%
Gunnar 122 eða 66,7%
Óákveðn. 23 eða 12,5%
Meðal stuðningsmanna annarra flokka urðu niður-
stöðurnar þessar:
Geir 13 eða 5,4%
Gunnar 192 eða 80,3%
Óákveðn. 34 eða 14,3%
Meðal þeirra sem voru óákveðnir um flokk urðu
niðurstöðurnar þessar:
Geir 4 eða 2,2%
Gunnar 118 eða 66,3%
Óákveðn. ■_ 56 eða 31,5%
Að öllu samanlögðu urðu niðurstöðurnar þessar:
Geir 55 eða 91/6%''
Gunnar 432 eða 72%
Óákveðn. 113 eða 18 5/6
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstööu verða
niðurstöðurnar þessar:
Geir 11,3%
Gunnar 88,7%
HAFSKIP HF
Hlutafjarutboð
Nýtt atak til sóknar
Að gefnu tilefni vill stjórn Hafskips hf.
vekja athygli þína á mikilvægi frjálsrar
samkeppni í öllum flutningum til og frá
landi okkar. Skipasiglingar milli íslands
og annarra landa er ein mikilvægasta líf-
æð þjóðarinnar og burðarstólpi frjáls at-
hafnalífs í landinu. Hafskip hf. gegnir hér
mikilvægu hlutverki. Við viljum benda á,
að með frjálsri samkeppni í flutningum
landsmanna er m. a. hægt að stuðla að
lægri tilkostnaði, betri þjónustu og mark-
vissari nýtingu tækniframfara, sem leiðir
til samkeppnishæfara verðlags á útflutn-
ings- og innflutningsvörum. Tilvera
framsækinna afla á þessu sviði er ein
mikilvægasta forsenda lýðræðislegrar
þróunar í atvinnulífinu. Hluthafahópur
Hafskips hf. er stór, en betur má ef duga
skal. Nokkur hundruð einstaklingar og
fyrirtæki hafa sameinast í
Hafskip hf., til þess að stuðla
að jafnvægi og frjálsari sam-
keppni íflutningamálum lands-
manna, og bættust hátt í 200
nýir aðilar í hópinn á s. I. ári.
En okkur er Ijóst, að ef
við ætlum að ná ár-
angri í baráttu við rót-
gróin einokunaröfl og
verjast ofríki á flutn-
ingamarkaðnum þarf
að koma til ný sóknar-
lota. Endurnýjun skipastóls Hafskips hf.
hófst meðtilkomu fjölhæfniskipsins Ms.
,,Borre“. En eitt nýtt skip í flota okkar
dugar ekki til að losa um einokunartök.
Við verðum að taka í notkun fleiri ný skip,
bæta tæknilega uppbygginu og vöru-
meðferð í landi, endurbæta skipaaf-
greiðsluna heima og heiman, lækka til-
kostnað flytjenda og tryggja enn betra
áætlana- og siglingakerfi í næstu fram-
tíð. Stjórn Hafskips hf. hefur því ákveðið
að leggja fram á næsta aðalfundi félags-
ins, 21. marz n. k., tillögu um 250 millj.
króna hlutafjáraukningu. Viljir þú leggja
okkur lið, þá er stjórn og starfsfólk Haf-
skips hf. reiðubúið að veita þér allar upp-
lýsingar og taka við hlutafjárloforðum.
Þú heldur ef til vill, að hlutafjárframlag
þitt sé aðeins dropi í hafið, en hafðu það
hugfast, að það kann að vera dropinn,
sem tryggir okkuröllum frjálsarsiglingar
um ókomin ár. Hafskip hf. heitir á allt
stuðningsfólk frjálsra viðskiptahátta að
standa vörð um félagið og efla það til enn
virkari siglingasamkeppni.
Febrúar, 1980
Stjórn Hafskips hf.