Dagblaðið - 18.02.1980, Síða 8

Dagblaðið - 18.02.1980, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980. Stórflóö íKalifomíu og leðian rennur undan húsum Frá Sigurjóni Sighvatssyni, fréttaritara DB í Los Angeles. Stórflóð cru nú víða i Kaliforníu- riki vegna mikilla rigninga og storms þar um slóðir. Mikið tjón hefur (regar orðið og hafa sjö manns látizt | og margir slasazt. Mest er tjónið í og við stórborgina Los Angeles þar sem mörg hús i Hollywoodhæðum og Malibugili og víðar hafa eyðilagzt er leirinn hefur runnið undan þeim. Erfiðleikar hafa verið við björgunar- starfið vegna þess að vegir hafa lokazt eða einfaldlega runnið á brott. Þeir sem hafa farizt af völdum flóðanna hafa annaðhvort grafizt í leðjuna sem skríður fram eða þá drukknað í vatnselgnum. Vitað er að eignatjón nemur þegar mörgum milljón 'uollara. Samkvæmt spá veðurfræðinga er talið að veðrinu muni ekki slota fyrr en í fyrsta lagi á miðvikudaginn. Lögregla og slökkvilið vinnur nú að því ásamt íbúum þeirra hverfa sem eru í hættu að koma i veg fyrir skemmdir. Eina ráðið er talið að byggja varnargarða til að reyna að stöðva vatnsflóðið eða þá að hlaða sandpokum að grunnum húsanna. í einu hverfanna sem verst hefurorðið úti hafa tveir þriðju ibúanna verið fluttir á brott. Aðrir hafa ekki komizt heim til sín. Rauði krossinn i Kaliforníu hefur veitt tugþúsundum aðstoð og komið hefur verið upp búðum til hjalpar þeim sem orðnir eru heimilislausir. Erlendar fréttir mynda minnihlutastjórn að kosningunum loknum ef spár reyndust réttar. Joe Clark Ieiðtogi íhaldsflokksins og fráfarandi forsætisráðherra ber sig þó vel og telur lítið að marka niðurstöður skoðanakannana. Vel gæti þó farið svo að Trudeau fengi hreinan meirihluta á þingi. Sam- kvæmt spám fær flokkur hans um það bil 20% meira fylgi en íhalds- flokkurinn. í þriðja sæti kemur síðan Nýi lýðræðisflokkurinn, sem þykir standa lengst til vinstri af þessum þrem flokkum. Kosningaspár gerðu ráð fyrir á milli 10 til 20% meira fylgi til flokks Trudeaus en til íhaldsflokks Joe Clarks. Fam ísraels ífyrsta skipti yf ir Kairó borg Fáni ísraels verður dreginn að húni í Kairó i fyrsta skipti í dag, þegar sendi- ráð landsins þar verður formlega opnað. Er þetta í fyrsta skipti, sem slíkt er gert í riki araba frá því að ísrael var stofnað fyrir rúmum þrjátíu árum. Fremur lítið var þó gert úr þessum atburði í blöðum í Egyptalandi en þau njóta viss frelsis þó þau séu einnig undir verulegum áhrifum frá stjórn- völdum. Hópur sendimanna frá ísrael mætti til Káiró i gær vegna opnunar sendi- ráðsins, sem táknar veruleg þáttaskil i sambandi landanna tveggja, ísraels og Egyptalands. Þrátt fyrir þetta lét eitt af egypzku blöðunum, hið áhrifaríka Al- Gomhouria, ekki svo lítið að minnast atburðarins. Annað blað Al-Akhbar, sem er mjög útbreitt, gat opnunar sendiráðsins í sjö lína frétt. Hið hálfopinbera málgagn egypzku stjórnarinnar, Al-Ahram, fór svipað að og faldi fréttina á innsíðu. I rit- stjórnargrein voru orð ísraelska sendi- herrans um stefnu stjórnar hans i búsetustefnu gagnrýnd. Voru þau talin óviðeigandi með tilliti til stöðu hans sem fulltrúi í Egyptalandi. FALLEGT OG STERKT Þú getur valið um 11 gerðir eldhúsa frá NOREMA í mismunandi verðflokkum. AUar eiga þær það sameiginlegt, að vera fallegar og sterkar. Við gerð þessara innréttinga hefur verið lögð sérstök áhersla á að þær þyldu mikia notkun. Við veitum þér allar ráðleggingar og gerum þér verðtilboð þér að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga. Hringdu eða komdu, og fáðu litprentaðan bækling frá Norema innréttingahúsiö BIIMOREMA Háteigsvegi 3 Verslun sími 27344 Kanadamenn ganga í dag til kosninga og kjósa 282 þingmenn á þing landsins. Samkvæmt niðurstöðum úr siðustu skoðanakönnunum bendir allt til þess að Pierre Trudeau fyrrum forsætis- ráðherra og leiðtogi Frjálslynda flokksins muni komast aftur til valda en flokkur hans fái ekki hreinan meirihluta á þingi. Mundi Trudeau þá Ein þeirra aðgerða sem Jimmy Carter Bandarikjaforseti hefur boðað til vegna harðnandi afstöðu beggja risaveldanna gegn hvoru öðru er að aftur verði tekin upp tak- mörkuð herskylda i Bandaríkjunum. Geta þá vissir aldurshópar átt von á að lenda í hernum hvort sem þeir vilja eða ekki. Væri nafn þeirra þá dregið út. Ekki hefur staðið á mót- mælaaðgerðum gegn þessari hug- mynd forsetans. Myndin er frá einum slíkum mótmælafundi í New Jersey. Herskylda hefur ekki verið í Banda- ríkjunum síðan við lok styrjaldar- innar í Vietnam. Kanada: SPÁ TRUDEAU YFIRBURÐA- SIGRI í DAG

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.