Dagblaðið - 18.02.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980.
9
Erlendar
fréttir
HUNDRUD
ÍFLÓDUM
FARAST
ÍÍRAN
Bani-Sadr forseti mættur á f lóðasvæðunum þar sem þrjú af hverjum f jórum
þorpum hafa skolazt íburtu
Júgóslavía:
Titotil með-
vitundar á ný
Tilo forseti Júgóslavíu komst
nokkrum sinnum til meðvitundar i
morgun. Hvila læknar hans hann nú á
aðgerðum til að lækna sjúkdóma sem
hrjá hjarta hans og lifur. Tito er þó enn
sagður mjög veikur og engin ástæða til
að halda að hinn 87 ára gamli forseti
muni aftur taka við stjórn lands sins.
Bani-Sadr forseti írans verður nú
að beina athyglinni frá deilunni við
Bandaríkin og að aðkallandi innan-
landsmálum. Mikil flóðganga nú yfir
héraðið Khuzestan í SV-íran og
lýsti forsetinn því yfir í gær að hann
mundi heimsækja flóðasvæðin idag.
Hérað þetta er mjög mikilvægt þvi
þar er unnin mikil olía. Ætlar
forsetinn sjálfur að stjórna
björgunaraðgerðum.
Flóðin hafa þegar kostað rúmlega
tvö hundruð og fimmtíu manns lifið
og að sögn kunnugra hafa þrjú af
hverjum fjórum þorpum í héraðinu
eyðilagzt og þúsundir misst heimili
sin.
Að sögn yfirvalda á staðnum hafa
flóðin nú náð hámarki en þó eru
mjög margir enn í nauðum staddir.
Eru þetta verstu flóð i manna
minnum í Iran.
Flóðin eru ekki eina vandamál
Bani-Sadr á heimavígstöðvum um
þessar mundir. Tvö þúsund hermenn
i flugher landins eru í setuverkfalli.
Mun þar vera um einhvers konar
ágreiningsatriði um afstöðuna til
byltingarinnar að ræða. Bani-Sadr
þarl' að leita sátta en hersljórnin
hefur aðeins veitt hermönnunum
frest l'ram yfir hádegi i dag til að laka
aftur upp vinnu sina.Ella er þeini
hótað að verða dregnir fyrir herrétl
og ákærðir fyrir brot á heraga eða
jafnvel landráð. Verkfallið hefur
staðið i fimm daga.
Fangar I ríkisfangelsinu 1 Santa Fe 1 Nýja-Mexikó gerðu uppreisn á dögunum. Þar
féllu þrjátiu og fimm manns aðallega I innbyrðis átökum á milli fanga. Á myndinni
sést er fangaverðir draga einn fanganna á milli sln eftir að aftur hafði komizt á ró i
fangelsinu.
Sardima:
Sjö sjómanna
saknað
Sjö sjómanna er saknað á
Miðjarðarhafi og óttazt er að þeir
hafi drukknað eftir að þeir yfir-
gáfu skip sitt nærri suðurhluta
Sardiníu snemma i morgun.
Yfirvöld á Sardiníu sögðu í
morgun að fimm öðrum af áhöfn-
inni, öllum ítölskum, hefði verið
bjargað í nótt úr björgunarbáti. Þar
var þyrla að verki og voru mennirnir
fimm teknir upp í hana af sjónum.
ihafi
Sjómannanna sjö var leitað bæði'
af sjó og úr flugvélum.
Skipið sem heitir Misurina og er
rétt um eitt þúsund tonn er ítalskt.
Sendi það út neyðarskeyti í morgun
og óskaði aðstoðar. Svo virðist sem
áhöfnin hafi yfirgefið það eftir að
farmurinn, sem er marmaraduft,
hafði gengið til í lestinni og skipið fór
að halla iskyggilega mikið. Ekki var
Ijóst af fregnum i morgun hvort
skipið var sokkið eða ekki.
Brot íranskeisara:
Rannsóknar-
nef nd í
burðar-
liðnum
Nefnd á vegum Sameinuðu
þjóðanna til að rannsaka meint
afbrot fyrrverandi Iranskeisara
gegn irönsku þjóðinni er nú í
burðarliðnum. Báðir aðilar,
Bandaríkjamenn og Iranir, hafa
samþykkt að henni sé komið á
fót. Samkvæmt fregnum i gær-
kvöldi hafa Bandarikjamcnn
þegar samþykkt þá menn sem til-
nefndir hafa verið i nefndina af
Kurt Waldheim aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna. íranir höl'ðu
ekki samþykkt þá i gærkvöídi.
Ekki var þó talið að slanda
mundi á slíku samþykki.
Gert er ráð fyrir að gislarnir
í sendiráði Bandaríkjanna i
Teheran verði látnir lausir eftir að
þessi rannsóknarnefnd hefur
lokið starfi sinu. Verið getur að
að það gæti hugsanlega orðið
fyrr.
Yfirvöld 1 Florida telja manninn í miðið hafa drepið að minnsta kosti tuttugu
konur. Hann hefur þegar verið fundinn sekur og dæmdur til dauða fyrir morð á
þrem ungum stúlkum. Maðurinn heitir Theodore Bundy, 33 ára gamall, og
stundaði áður laganám.
Úrvals snjódekk — Super verð
ATHUGIÐ VERÐIÐ. GERIÐ SAMANBURÐ
FÓLKSBÍLADEKK
155x12 (Daihatsu Corolla) 24.400.00
155 x 13 (Mazda-Lada-Subaru) 24.400.00
165 x 13 (Mazda-Lada-Subaru) 25.600.00
B 78x 14 (Volvo-Fairmont) 24.000.00
Br 78 x 14 (Volvo-Fairmont) 26.000.00
;i75 x 14 (Volvo-Fairmont) 31.000.00
195/75x14(c 78x14) 31.000.00
205/75x14 (E 78x14) (Malibu) 31.000.00
205/75x14 (E 70x14) (Breið dekk) 31.000.00
Fr 78x13 31.000.00
Gr 78x14 32.500.00
Hr 78x14 32.000.00
G 60x14 38.800.00
Br 78x15 (VW-Volvo-Saab) Fr 78 x 15 (Oldsmobile-dísil) Gr 78 x 15 (Oldsmobile-disil) 24.000.00 33.500.00 34.000.00
JEPPADEKK.
Hr 78 x 15 (Willys-Bronco-Scout) 36.500.00
Lr 78 x 15 (700 x 15) (Willys-Bronco-Scout)
39.500.00
700 x 15 (Willys-Bronco-Scout) 35.000.00
12x15 69.800.00
SENDIBÍLADEKK:
750 Rx16 65.300.00
800 Rx 16.5 56.500.00
875 Rx 16.5 59.400.00
950 Rx 16.5 67.000.00
VÖRUBÍLADEKK:
1100 x 20 AFTURDEKK
1100x20 FRAMDEKK
1000 x 20 AFTURDEKK
1000x20 FRAMDEKK
Stk.
218.500.00
209.000.00
198.500.00
189.000.00
i Sett
234.000.00
225.500.00
210.500.00
201.000.00
SÓLAÐIR HJÓLBARÐAR í FLESTUM STÆRÐUM.
Sendum gegn póstkröfu
um land allt
Gúmmívinnustofan
Skipholti 36
Sími 31055