Dagblaðið - 18.02.1980, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980.
Ólafur Jóhannesson á f undi hjá Varðbergi SVS:
„Obreytt stefna
varðandi NATO og
öryggi íslands”
— haldið fast við 200 mflna ef nahagslögsögu f Jan Mayen-málinu”
,,Stefna ríkisstjórnarinnar verður
óbreytt i utanrikismálum á meðan ég
verð ráðherra. Þessa yfirlýsingu gef ég
og mun við hana standa,” sagði Óiafur
Jóhannesson, utanrikisráðherra, á
fundi Varðbergs og Samtaka um
Vcstræna samvinnu síðastliðinn laug-
ardag.
„Frá stofnun NATO hefur jafn-
vægi haldist i Evrópu, þrátt i'yrir
styrjaldir i öðrum heimshlutum,” sagði
Ólafur cnnfremur. Hann kvað (rað
eftirteklar vert, að Afganistan væri
utan hernaðarbandalaga.
„Engin þjóð getur lifað einangruð
nú,” sagði Ólafur. ,,Við erum mjög
háðir öðrum þjóðum i viðskiplum,
bæði i austur og veslur.”
Utanríkisráðherra vék að
tilraunum, scm gerðar hal'a verið til
þess að draga úr spennu á alþjóðavctt-
vangi. l.ikti hann spennunni nú á milli
Moskvu og Washington við spcnnuna
vegna Kúbu árið 1972. Með innrás
Sovétríkjanna i Afganistan hefði
slökunarslefnunni verið varpað fyrir
borð, að minnsta kosti um sinn.
,,Hætta er á, að slökunarstefnan eigi
erfitt uppdráttar á næstunni,” sagði
Ólafur Jóhannesson.
,,Við hljótum að óska slökunar-
stefnu,” sagði hann og bætti þvi við,
að vonir okkar væru nú mjög bundnar
við Madrid-ráðstefnuna, sem haldin
verður i nóvember. Er hún eins konar
framhald af Helsinki- og Belgrad-
ráðstefnum, sem haldnar hafa verið.”
Enda þótt ekki hcfði verið nrörkuð
tæmandi stefna rikisstjórnarinnar i
utanríkismálum, væri það Ijóst, að
Iram yrði l'ylgt óbreyttri stefnu
varðandi NATOogöryggi íslands.
,,Að sjálfsögðu verður haldið fast
við 200 milna efnahagslögsögu
íslendinga i Jan Mayen-málinu,” sagði
ulanríkisráðherra. -Hann kvað Jan
Mayen-málið á ýmsan hátt mjög vafa-
sarnt. Hann myndi kalla saman land-
helgisnefnd vegna þessa máls.
Hörður Einarsson, ritstjóri, og
Hannes Gissurarson spurðu Ólaf um
það, hver væri stcfna ríkisstjórnarinnar
varðandi þátttöku íslendinga i
ólympíuleikunum.
,,Ég var á sömu skoðun og Geir
Hallgrimsson og Benedikt Gröndal
varðandi ólympíuleikana, áður en ég
varð ráðherra, aldrei þessu vant, að
láta íþróttafólkið um það mál," sagði
ráðherrann. ,,Ég er nefnilega fylgjandi
frjálshyggju i anda lýðræðis. Ég er á
móti því, að rikið sé ofan i hvers manns
koppi.”
Fttndurinn var fjölmennur og
stjórnaði honunt Allreð Þorsteinsson,
formaður Varðbergs, Samlaka um
vestræna samvinnu.
-BS.
eltárcjrei&óluótolciH.
Sparta
NORÐURBRÚN 2 - SlMI 31755
Tempo — Retro
Avant Garde —
Nýjar greiðslur frá Ítalíu.
Nýtt bylgjupermanent.
OPIÐ LAUGARDAGA
Gústa Hreins — Inga Gunnars
Merkjasala á öskudag
Sölubörnum verða afhent merki Rauða krossins á
neðantöldum stöðum frá kl. 9.30 til kl. 12 nk.
miðvikudag (öskudag).
Gert er ráð fyrir að börn ljúki sölu og geri skil
fyrir kl. 14.30.
Reykjavíkurdeild RKÍ
afhendir merki á neðantöldum stöðum frá kl.
9.30 á öskudag, 20. febrúar.
Börnin fá 10% sölulaun og þrjú hæstu börnin'
fá sérstök árituð bókaverðlaun.
Vesturbær:
Skrifstofa Reykjavíkurdeildar RKÍ
Öldugötu 4
Verzlunin — Vesturgötu 53
Melaskólinn v/Furumel
Skjólakjör, Sörlaskjóli 42
Verzlunin Perlan, Dunhaga 20
Austurbær:
Skrifst. RKÍ Nóatúni 21
Háaleitis-Apótek, Austurveri/Háaleitisbr.
Silli og Valdi, Háteigsvegi 2
Sunnukjör, Skaftahlíð
Hlíðaskóli v/Hamrahlið
Austurbæjarskólinn
Verzl. Skúlaskeið, Skúlagötu 54
Smáíbúða-
og Fossvogshverfí:
Brauðstofan, Grimsbæ v/Bústaðaveg
Álftamýrarskóli
Laugarneshverfí:
Laugarnes-Apótek Kirkjuteigi 21
Laugalækjarskóli v/Sundlaugaveg
K/eppsho/t:
Langholtsskóli
Vogaskóli
Árbær:
Árbæjarskóli
Hraðhreinsun Árbæjar, Rofabæ 7
Breiðholt:
Breiðholtsskóli, Arnarbakka 1
Fellaskóli — Breiðholti III
Hólabrekkuskóli
v/Suðurberg/V esturberg
Ölduselsskóli v/Öldusel
Ronald Símonarson, ásamf verki af sýningu sinni. DB-mynd Þorri.
Nostrarí leit-
ar að stfl
í listum er stundum rætt um það,
meir í gamni en alvöru, að sunrir
listamenn séu svo gamaldags, að þeir
séu orðnir hæstmóðins. 1 þessari
meinlausu fullyrðingu felst eflausl
sannleikskorn um eilífa hringrás list-
arinnar og bylgjur tískunnar, en varla
er hún óbrigðul forskrift að fram-
förum eða velgengni, hver sem listin
er — ég tala nú ekki um ef hún tekur
aðeins til hinnar tæknilegu hliðar.
Hér á landi eru t.d. starfandi
myndlistarmenn, sem hafa tamið sér
sérstaka nostursemi í vinnubrögðum,
að fordæmi gamalla meistara, en á
þeint forsendum einum gera þeir
tilkall til lofs gagnrýnenda og buddu
almennings. Tæknin ein og sér, hvort
sem hún er ævaforn eða splunkuný,
nægir aldrei til að halda uppi mynd-
verki, til þess þarl' djúpstæðan
skilning á mannlegu eðli, tengslum.
ntanns við umhverfið og sterka
sannfæringu — svo eilthvað sé
nefnt.
Fyrsta yfirlits-
sýningin
Hugleiðingar þessar sóttu á mig
við skoðun á sýningu Ronalds
Símonarsonar í Ásmundarsal, en
henni lýkur 24. febrúar. Ronald
þennan verður að telja meðal sér-
vitringa á myndlistarsviði hérlendis. I
formála að skrá sinni, nefnir hann
þessa fyrstu sýningu sína „yfirlits-
sýningu”, merkir verkin sérstaklega
svo menn geti „rakið-þróun mynd-
verkanna frá upphafi” . og siðan
rammar hann þau inn eins og skilirí
gamalla meistara á heldri söfnum i
gyllta og flúraða breiðramma. Loks
segir hann verk sín bera „óvenjulega
sterk persónuleg einkenni”. Yflr-
lýsingar af þessu tagi bera vott um
talsvert sjálfstraust, ef ekki oflæti, —
sérstaklega þar sem verkin gefa ekki
augljós tilefni til þeirra.
Rómantísk
slikja
Engar upplýsingar er að finna á
sýningunni um nám Ronalds, en það
hefur augljóslega gengið út á þjálfun
i nákvæmri beitingu lita, nostri við
blæbrigði þeirra og dreifingu — og
raunsæja túlkun. En þarna er ekki
um harðsoðið ofurraunsæi að ræða,
heldur miklu frekar fólk, náttúru og
mannvirki umvafin ögn rómantískri
slikju.
En hafi Ronald náð nokkuð
góðum tökum á þessum ákveðna
þætti málaralækninnar, þá þarf
meira til, eins og minnst var á hér í
upphafi. Til dæmis skortir til-
finnanlega á lipurð i teikningu, sér-
staklega þegar kemur að túlkun
mannslíkamans og staðsetningu hans
í ákveðnu rými. Þessi ávöntun kemur
fram i stífum, oft kauðalegum
uppstillingum („Sóldýrkun”, „í
hlöðunni”, „Sofandi kona”, „í
skugga frelsisins” o. fI.), en þó er ein
stór undantekning þar á,: „Heint-
spekingurinn” frá 1969.
Úreinu íannað
Meiri galli er það kannski, að ekki
er ljóst hvað Ronald vill segja með
þessum málverkum sínum, svo mjög
sem þau hlaupa úr einu i annað,
gjarnan með breytilegum töktum
(„Þinghelgi”, „Skógarlundur”).
Listamaðurinn virðist þó vera
meðvitaður um þennan hringlanda
að einhverju leyti því hann vill kenna
sýninguna við stílleit. í vatnslitum
kemur í ljós að Ronald er ekki alls
varnað og þvi betri eru þær niyndir,
því frjálslegri sem handbragðið er.
Þetta á líka við um teikningar hans.
Nostrið verður stirt en frjálslegt riss
af fingrum fram („Ein lína”) hefur
sannfæringarkraft, þótt ekki
opinberi það sterkan listrænan per-
sónuleika. -AI.
Myndlist
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
Leiðrétting
Á FÓLK-siðu blaðsins sl. manns frá Keflavik. Hún- heitir Nina
fimmtudag var ranglega farið nteð nafn Lizell.
eiginkonu Þóris Baldurssonar tónlistar-
Eskifjörður:
SANNKÖLLUÐ
SUMARBLÍÐA
Eldvikin kom til Eskifjarðar fyrir
helgina með 1200 tonn af salti, sern
skiptist ntilli útgerðarmanna. Gott
fiskirí hefur verið á Eskifirði undan-
farið hjá sntærri bátum. Gæftir hafa
verið sæmilegar en bátarnir hafa róið
með linu. Nú er verið að skipta yfir á
net.
Verið er að pakka inn saltfiski á
Ítalíumarkað. Nóg atvinna er á
Eskifirði. Undanfarið hefur verið sann-
kölluð sumarbliða, alautt og logn. -Reg