Dagblaðið - 18.02.1980, Qupperneq 16
16
i
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Gullverðlaun
dreifast
Sovélríkin hlutu Ivenn gullverlllaun
á ólympíulcikunum íLake Placid á laug-
ardag. í tvíkeppni i skídagóngu og
skotkeppni varð Anatoli Alyabiev sigur|
vcgari á 1 klst. 8 mín. 16.31. Frank.
Ullrich, Austur-Þýzkalandi, varð i
öðru sæti 11 sek. á eftir og þriðji varð
Krberhard Rosch, Austur-Þýzkalandi.
NorAmaðurinn Svein Engen varð í
fjórða sæti.
í slcðakeppni (luge) varð Vera,
Zozulia, Sovétríkjunum, sigurvegari á
2:36.537 mín. Önnur varð Mclitta
Sollmann, A-Þýzkalandi og þriðja
Ingrida Amantova, Sovétríkjunum.
í tveggja manna boðsleðakeppni
urðu Svisslendingarnir F>ich Schárer
og Josef Benz óíympiumeistarar á laug-
ardag á 4:09.36 mín. Næstir komu
Bernhard (íermeshausen og Hans-
Jiirgen (íerhardt, Austur-Þýzkalandi, á
4:10.93 mín. og í þriðja sæti urðu
Austur-Þjóðverjarnir Meinhard
Nehmer og Bogdan Muiol.
í slcðakeppni karla (luge) varð
Bernhard Glass, A-Þýzkalandi,
ólympíumeistari á laugardag á 2:54.796
mín. Annar varð ítalinn Paul'
llildgartner á 2:55.372 mín. og þriðji
Anton Winkler, Vestur-Þýzkalandi.
íslendingarnir
aftarlega
Árangur islenzku göngumannannu í
15 km göngunni i Lake Placid í gær olii
talsverðum vonbrigðum þar sem menn
höfðu gert sér vonir um betri árangur.
Alls fóru 63 keppendur af stað og 61
kom í mark. íslendingarnir þrír voru
allir i þeim hópi en gekk ekki vel.
Haukur Sigurðsson varð 47. á 47,44
minúlum, Þröstur Jóhannsson 51. á;
49,32 min. og Ingólfur Jónsson 54. á
51,54 mínútu.
Brautin var afar erfið í gær en engu
að síður er árangur piltanna nokkru
slakari en ráð var fyrir gert. Enn er
ekki komið að alpagreinafóikinu, þeim
Steinunni Sæmundsdóttur, Sigurði
Jónssyni og Birni Olgeirssyni. Þeirra
greinar verða síðar i þessari viku.
Enn missir
Beth Heiden
af verðlaunum
Það var sovézka stúlkan Natalie
Petruseva sem sigraði í 1000 metra
skautahlaupi í Lake Placid í gær er hún
varð rúmri sekúndu á undan þeirri
næstu, sem var Leah Muller frá Banda-
ríkjunum. Hún rann skciðið á 1 mínútu
24,10 sekúndum og er sá tími nýtt
ólympíumet. Gamla metið var 1 mín.,
28.43 sek.
Önnur í hlaupinu í gærð varð sem
fyrr sagði Leah Muller á I mín. 25,41
sek. A-þýzka stúlkan Silvia Albrech
varð þriðja á 1 mín. 26,46. Karin Enke
frá A-Þýzkalandi fjórða á 1 mín. 26,66
og Beth Heiden frá Bandaríkjunum
hafnaði i 5. sætinu og allir
ólympiudraumar hennar eru fyrir
löngu að engu orðnir.
Hún var talin sigurstranglegust í
1000 og 1500 metra hlaupunum og
alin að auki eiga góða sigurmögúleika
i 500 metrunum. En hún hefur einfald-
lega mætt ofjörlum sínum i I.ake
Placid.
Eric Heiden hefur gert það gott á ólympiuleikunum og hlotið tvenn gullverðlaun til þessa. Systur hans hefur hins vegar gengið illa. Eric sést hér á fullri ferð i
skautahlaupi.
Heiden með tvenn gullverðlaun
— Sigraði og setti ólympíumet í5000 m skautahlaupi
Bandariski skautahlauparinn Eric
Hciden, sem stefnir á fimm
gullverðlaun á ólympíuleikunum í
I.ake Placid, vann sin önnur
gullverðlaun á laugardag, þegar hann
varð langfyrstur í 5000 m skauta-
hlaupinu. Setti nýtt ólympiumet —
7:02.29 min. Á föstudag sigraði Heiden
i 500 m skautahlaupinu en fyrir leikana
taldi hann að erfiðust yrði fyrir sig að
sigra í þeirri grein.
Heiden bætti ólympiumetið um
meira en 210 sekúndur. Það átti
Norðmaðurinn Fred Anton Maier, sett
á leikunum í Grenoble 1968, 7:22.40.
Heimsmethafinn á vegalengdinni,
Norðmaðurinn Kai Arne
Stenshjemmet, varð að láta sér nægja
annað sætið á leikunum á laugardag.
Heimsmet hans er 6:56.90 mín.
Úrslit í 5000 m hlaupinu.
Loks sigraði
Anne-Marie
— varð langfyrst í bruni kvenna
,,Ég get bara ekki trúað því að mér
hafi loks tekizt að sigra á ólympíulcik-
unum," sagði austurríska stúlkan
Anne-Marie Moser Pröll er hún hafði
sigrað í hrunkeppni kvenna í Lake
Placid um helgina. í stólparoki þeysli
hún niður hina 2,698 metra löngu braut
á frábærum tíma — kom í mark á 1.
mín. 37,52 sekúndum og var 7/10 úr
sek. á undan næstu manneskju.
Moser keyrði brautina mjög glæsi-
lega. Þegar þriðjungi leiðarinnar var
lokið hafði hún þegar keyrt á sekúndu
betri tima en sú er næst kom og þegar
leiðin var hálfnuð var hún 3 sek. á
undan næstu. Lokakaflann slakaði hún
örlítið á en sigraði samt með miklum
yfirburðum. Hanni Wenzel frá
Lichtenstein varð í 2. sætinu á I mín.
38,22 sek. og þriðja varð landa Moser,
Marie Teresa Nadig. Hún sagði eftir
keppnina: ,,Ég varð einfaldlega að lúta
í lægri haldi fyrir mun sterkari stúlku
þar sem Moser. var. Ég get aðeins
samglaðzt henni, hún átti þetta svo
innilega skilið.
„Þetta er hápunktur ferils míns,”
sagði Moser við fréttamenn eftir
keppnina. ,,Ég held samt að ég hafi
aðeins haft heppnina með mér í dag.”
Sigurinn var henni svo sannarlega
kærkominn og mikil gleði rikli i
Austurríki vegna sigurs hennar.
Árið 1972 á OL í Sapporo átti hún
alla möguleika á sigri en missti af öllum
verðlaunum þar. Hún hætti siðan
keppni fyrir leikana í lnnsbruckl976en
hóf siðan að æfa aftur af fullum krafti
og loksins náði hún því sem hana hefur
alltaf dreymt um — ólympíugulli.
1. Eric Heiden, USA, 7:02.29
2. K. A. Stenshjémmet, Nor. 7:03.28
3. T.E. Oxholm, Noregi 7:05.59
4. Van der Duim, Hollandi, 7:07.97
5. O. Tveter, Noregi, 7:08.36
6. Piet Kleine, Hollandi
7. Michael Woods, USA,
8. Ulf Ekland, Svíþjóð
9. Yep Kramer, Hollandi,
7:08.96
7:10.39
7:13.13
7:14.09
10. Andreas Ehrig, A-Þýzkal. 7:14.56
Tony Innauer er hér i stökki á OL i Innsbruck 1976.
MUNURINNIMARKINU EINN
HUNDRAÐASTIÚR SEKÚNDU!
— Þegar Svfínn Thomas Wassberg sigraði í 15 km
skíðagöngu íLake Placid ígær
Mestu keppni, sem um getur i,
ólympiskri göngukeppni, lauk í gær;
með sigri Svíþjóðarmeistarans Thomas
Wassberg. Hann varð einum
hundraðasta úr sekúndu á undan
Einnanum Juha Mieto í mark. Gekk á
41:57.63 min. en Mieto fékk tímann
41:57.64 mín. Lengi vel hafði Wassberg
góða forustu í göngunni — 15 km —J
Hann fór síðastur af stað 63 keppenda
og sá um tíma meira að segja til
Finnans. Finninn hafði rásnúmer 54 og
sést úr talsverðri fjarlægð. Risi að
vexti — hátt i tvo metra og95 kg.
Hins vegar var Finninn mjög sterkur
lokakafla göngunnar — og vann þá
4.83 sekúndur á hinn 23ja ára
Wassberg. Það nægði hins vegar exki.
15 km skiðagangan var mikill sigur fyr
ir Norðurlöndin. í þriðja sæti varð
Norðmaðurinn Ove Aunli á 42:28.62
mín. Síðan komu tveir Sovétmenn —
Nikolai Zimyatov fjórði á 42:33.9 mín.
og Beliaev fimmti á 42:46.02 min.
Brautin þótti erfið í skógi vöxnum
hlíðum Van Hoevenberg-fjalls.
TonyInnauer
vann stökkið
Það stenzt cnginn Tony Innauer
snúning á stökkpallinum. Það fengu
keppinautar hans að reyna í keppni á
70 metra stökkpallinum i Lake Placid.
Hann sveif hæst, lengst og hafði falleg-
asta stílinn og sigraði með miklum yfir-
burðum í stökkkeppninni. Þar með
bætti hann; einum ólympíuverðlauna-
peningi í safnið en hann hlaut silfrið á
OL í Innsbruck fyrir 4 árum. Innauer
ersamt enn aðeins 21 árs gamall.
Sigur hans kom nokkuð á óvart þar
sem honum hafði gengið fremur illa í
æfingastökkum fyrir keppnina. En
þegar að henni sjálfri kom stóðst
honum enginn snúning. Hann átti
lengstu stökkin í báðum umferðunum.
í fyrri umferðinni stökk hann 89 metra
og 90 í þeirri síðari og hlaut fyrir þau
266,3 stig. Annar varð Manfred
Deckert — 18 ára A-Þjóðverji ásamt
Hirokazu Yagi frá Japan. Þeir fengu
jafnmörg stig en Deckert stökk lengra.
Hann stökk 85 og 88 metra en Yagi 87
og 83,5 metra. Báðir hlutu þeir 249,2 i
einkunn.
Bronsverðlaunin komu i hlut
Japanans Masahiro Akomoto. Hann
fékk 248,5 stig og stökk 83,5 og 87,5
metra. Fimmti varð Finninn Pentti
Kokkonen, sem hlaut 247,6 stig. Hann
stökk 86 og 83,5 metra.
LAKE
PLACID