Dagblaðið - 18.02.1980, Síða 20
20
I
DAGBLAÐIÐ. MANUD.AGUR 18, FPBR.UAR 1980.,
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Bjarni Hákonarson reynir hér markskot í leik Hauka og ÍR í gærkvöld.
DB-mynd Hörður.
IR-ingar köstuðu frá
sér stigi gegn Haukum
- í miklum fallbaráttuleik í Laugardalshöll í gærkvöld.
Haukar unnu 19-18 og skoruðu sigurmarkið tveimur
sekúndum fyrir leikslok
ÍK fór illa að ráöi sínu undir lok
leiksins viö Hauka í 1. deild handknatt-
leiksins i I.augardalshöll í gærkvöld.
Misnotuöu þá tvö vítaköst — hittu ekki
markiö — og tveimur sekúndum fyrir
lcikslok tókst svo Herði Haröarsyni aö
skora sigurmark Hauka. I'.ins marks
sigur 19—18. Mikil taugaspenna var
lokakafla leiksins. Bjarni Hákonarson
jafnaöi fyrir ÍR i 18—18, þegar II
min. voru til leiksloka.
Siöan var eins og leikmenn iiöanna
gætu ekki skoraö. Sókn eftir sókn
hjá báöum rann úl i sandinn — og þar
voru vítaköst ÍR þung á melunum. ÍR-
ingar voru í sókn en misstu knöttinn,
þegar 24 sek. voru til leiksloka, klaufa-
lega. Haukar brunuöu upp og Bjarni
Hákonarson braut harkalega á Júliusi
Pálssyni. Aukakast, þegar fjórar
sekúndur voru eftir. Gefið á Hörð og
honum tókst aö koma lágskoti framhjá
vörn ÍR og boltinn hafnaöi í netinu.
‘ Knappara gat þaö ekki verið.
Leikurinn var oftast mjög jafn — en
Hauka-liðið virkaði þó sterkara. Hins
vegar var gífurlegur munur á mark-
vörzlunni. Þórir Flosason, markvörður
ÍR, hélt liði sinu á floti með snilldar-
markvörzlu. Varði 15 skot í leiknum —
þar af átta fyrsta stundarfjórðunginn
— meðan flest lak inn hjá markvörðum
Hauka. Synd að Þórir skyldi veraí tap
liði. Hann átti það ekki skilið — og
jafntefli hefðu að mörgu leyti verið
sanngjörnustu úrslitin.
Allar jafnteflistölur sáust á ljóstöfl-
unni upp í 8—8 þar sem ÍR-ingar
skoruðu yfirleitt á undan. En siðan
náðu Haukar tveggja marka forskoti,
10—8. Staðan í hálfleik var 12—11
fyrir Hafnarfjarðarliðið.
Markhæsti leikmaðurinn i I. deild
Bjarni Bessason, ÍR, hafði látið litið að
sér kveða i fyrri hálfleiknum en í þeim
síðari tók hann heldur betur viðbragð.
Skoraði fjögur fyrstu mörk ÍR og tókst
að jafna í 15—15 eftir 40 mínútur.
Haukar náðu aftur tveggja marka for-
skoti, 17—15, en Guðmundur, víti, og
Bjarni Bessason jöfnuðu fyrir ÍR.
Siðan var markaskorunin alveg i lág-
marki það sem eftir lifði leiks. Í lokin
tryggðu Haukar sér svo sigurinn eins og
áður er lýst — ákaflega þýðingarmikill
sigur fyrir Haukaliðið, sem við það
náði Fram og ÍR aðstigum. Liðin hafa
sjö stig eftir 10 leiki — KR einu stigi á
undan en HK rekur lestina með 5 stig.
Fallbaráttan verður greinilega gífurlega
hörð.
Mörk ÍR skoruðu Bjarni Bessason 6,
Guðmundur 4/2, Bjarni Hák. 3,
Sigurður Svavarsson 2, Pétur 2 og
Bjarni Bjarnason 1. Mörk Hauka
skoruðu Árni Hermannsson 5 — öll i
fyrri hálfleik og öll mörkin eftir að
hafa komizt inn í sendingar ÍR-inga —
Hörður H. 4/2, Júlíus 4, Ingimar 2,
Stefán I. Sigurgeir I, Þorgeir I og
Hörður Sigmarsson 1.
-hsím.
ÍR-Haukar 18-19 (11-12)
íslundsmótið I handknattleik 1. deild karla, IR —Haukar 18—19 (11 — 12) í Laugardalshöll 17.
febrúar.
Beztu leikmenn. Þórir Flosason, ÍR, 8, Ámi Hormonnsson, Haukum 7, Bjami Bessason IR,
6, Hörður Harðarson, Haukum, 6 , Júlíus Pólsson, Haukum, 6.
IR. Þórír Flosason, Ásmundur Friðriksson, Bjami Bossason, Bjarni Hókonarson, Ársæll
Kjartansson, Guðmundur Þórðarson, Sigurður Svavarsson, Bjami Bjarnason, Ólafur Tómas-
son, Pótur Valdimarsson.
Haukar. Gunnar Einarsson, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Stefón Jónsson, Ámi Hormannsson
Hörður Harðarson, Ingimar Haraldsson, Júlíus Pólsson, Sigurgeir Martoinsson, Árni Svorris
son, Þorgeir Haraldsson, Hörður Sigmarsson, Sigurður Aðalstoinsson.
Dómarar Bjöm Kristjónsson og Karl Jóhannsson. ÍR fókk 4 vitaköst - misnotaöi tvö.
Haukar fengu tvö vitaköst Nýttu bæði. Einum úr IR var vikiö af velli, Bjarna Hókonarsyni og
oinum úr Haukum, Júlíusi.
Nú getur fátt orðið
Frömurum til bjargar
— réðu ekki einu sinni við ÍS án Smock og töpuðu 75-85
Frömurum er ekki viðbjargandi,
svei mér þá. Þeir höfðu ekkert
í Stúdenlana að gera í gærkvöld
og það þótt Trent Smock þyrfti að fara
út af á 7, min. síðari hálfleiks með 5
villur. Staðan var þá 60—50 fyrir ÍS og <
lokatölur urðu 85—75 eða sami munur
Það voru aðeins tveir menn í Fram-
liðinu sem léku af eðlilegri getu. Símon
og Þorvaldur. Þeir skoruðu ennfremur
bróðurpartinn af stigunum og undirrit-
uðum er til efs að nokkur útlendingur
hér á landi, sem á annað borð hefur
verið við körfuknattleik tengdur, hafi
nokkru sinni skorað jafnlitið og Darr-
ell Shouse í gær. Hann skoraði aðeins 8
stig og átti vægast sagt lélegan dag.
Hann klúðraði auðveldustu ,,lay-up”
(ækifærum og öðru sliku. Það stefnir
þvi allt i að Fram falli niður í 1.
deildina í vor, enda á liðið ekkert erindi
meðal þeirra beztu ef það leikur ekki
betur en í gær. Þelta eru e.t.v. hörð
ummæli en satt að segja er vart hægl að
taka vægar á liðinu.
Jafnræði var með liðunum framan
af og t.d. var staðan 8—8 eftir 5 min.
Síðan tóku Framarar góðan sprett —
sinn eina i þessum leik — og komust í
19—10. Dýrðin stóð þó ekki lengi og
Stúdentar náðu forystunni er um 7
mín. voru til lcikhlés og héldu henni
átakalítið út leiktímann.
Menn bjuggust þó við að Fram
tækisl að velgja Stúdentunum al-
mennilega undir uggum úr því Smock
varð að fara út af. En ekki aldeilis. ÍS
skoraði næstu 6 stig og munurinn jókst
i 66— 50. Minnstur varð hann 64—70
eftir þetta en sigur Stúdenta virtist
aldrei i hættu.
Sá sem langmest kom á óvart í
þessum leik var Steinn Sveinsson, hinn
eitilharöi baráttujaxl þeirra Stúdenta.
Hann var reyndar búinn að leggja
úrvalsdeildarskóna á hilluna í haust en
dustaði af þeim rykið fyrir nokkru og
átti mjög góðan leik í gær. Þá voru þeir
Jón Héðinsson og Gísli sterkir.
Hjá Fram stóðu þeir upp úr eins og
risar i dvergahóp Símon Ólafsson og
Þorvaldur Geirsson. Ómar var sæmi-
legur en aðrir vart með á nótunum.
Björn Magnússon hreint ótrúlega
slakur. Jón Otti Ólafsson og Sigurður
Valur Halldórsson dæmdu leikinn
prýðilega.
Stig ÍS: Trent Smock 24, Jón
Héðinsson 18, Gisli Gislason 16, Steinn
Sveinsson 13, Bjarni G. Sveinsson 6,
Ingi Gunnarsson 4 og Gunnar Thors 4.
Stig Fram: Þorvaldur Geirsson 25,
Simon Ólafsson 24, Ómar Þráinsson 8,
Darrell Shouse 8, Jónas Ketilsson 4,
Björn Jónsson 2, Björn Magnússon 2
og Hilmar Gunnarsson 2. -SSv.
Erfið fæðing
hjá Haukunum
— en þó sigur yf ir Þór, 16-14
Haukastelpurnar úr Hafnarfirði eru
enn með í baráttunni um 2. sætið i 1.
deild kvenna eftir 16—14 sigur á Þór
frá Akureyri um helgina. Um efsta
sætið þarf ekki að spyrja fremur en í 1.
deild karla. Framstúlkurnar eru
öruggar með sigurinn í dcildinni
fimmta árið í röð. Leikur Hauka og
Þórs á laugardag var fremur slakur —
einkum og sér í lagi fyrri hálfleikurinn.
í þeim siðari færðist hins vegar meira
fjör í leikinn og átti Margrét Theodórs-
dóttir þar stóran hlut að máli er hún
skoraði 8 mörk.
Leikurinn fór afar rólega af stað og
fyrsta markið kom ekki fyrr en á 8.
minútu er Margrét rauf leiðindin með
marki úr vitakasti. Haukar komust
síðan i 3—I og aftur í 5—3. Þór tókst
að jafna 5—5 þrátt fyrir að Sóley verði
tvivegis vitaköst frá Hörpu. Svanhildur
Guðlaugsdóttir átti svo lokaorðið í
fyrri hálfleiknum er hún skoraði gott
mark, 6—5.
Margrét skoraði tvö fyrstu mörk
síðari hálfleiksins úr vitum en Valdis
Hallgrímsdóttir, sem átti stórleik,
svaraði með einu fyrir Þór. Sóley varði
enn víti frá Hörpu og þá loks tók
Hanna Rúna Jóhannsdóttir við víta-
skyttuhlutverkinu. Hún hefði e.t.v.
betur verið í því frá upphafí þvi hún
sýndi mikið öryggi i vítunum. Haukar
komust í 11—6 en næstu þrjú mörk
komu frá Þór. Margrét brenndi á þeim
tíma aldrei þessu vant af vítakasti.
Munurinn smáminnkaði og þegar ein
min. var til leiksloka var staðan 14—13
Haukum í vil. Þórsstúlkurnar tóku þá
að leika rnaður á mann en það hefur
líkast til verið misráðið hjá þeim. Þær
réðu ekki alls kostar við þá leikaðferð
og vörnin fór fyrir ofan garð og neðan.
Lokamínútúna skoruðu Haukar tvö
mörk gegn einu frá Þór og tryggðu sér
sigurinn. Þórsliðinu hefur farið mjög
fram i vetur og er nú allt annar blær á
því en var i haust. Haukarnir fljóta
mjög á yfirburðum Margrétar og þá
varði Sóley mjög vel í markinu. Mörk
Hauka: Margrét 9/4, Sjöfn 3, Sesselja,
Halldóra, Svanhildur og Björg eitt
hver.
Mörk Þórs: Valdís 5, Hanna Rúna 4/3,
Harpa 2, Þórunn, Sigriður og Magnea
I hver.
-SSv.
Ármann vann
Tindastól
Ármenningar unnu Tindastól í I.
deildinni í körfu á laugardag 83—51
(44—26). Þar bar helzt til tiðinda að
Danny Shouse lék aðeins annan hálf-
leikinn með Ármanni en skoraði samt
34 stig. Fyrir Tindastól skoraði Kári
Marisson 33 stig. Þá sigraði B-lið KR
með gömlu kempurnar innanborðs 1.
deildarlið Þórs á föstudag 87—81.
I.oks má geta leiks Vals og Þórs í hikar-
keppni 2. flokks. Valur vann 61—60.
Tvö jafn-
tefliTýs
Þróltur og Týr gerðu jafntefli 22—
22 í skemmtilegum leik i 2. dcildinni í
handknattleiknum i I.augardalshöllinni
i gær. Leikurinn var oftast mjög jafn,
13—13 í hálfleik. Síðan komst Týr í
17—14 en Þróttur jafnaði í 17—17.
Mikil barátta var svo lokakaflann.
I.eikurinn var einvigi í markaskorun
milli Sigurðar Sveinssonar, Þrólti og
Sigurlásar Þorleifssonar, Tý. Þeir
skildu jafnir. Báðirskoruðu II mörk.
Á laugardag léku Afturelding og
Týr að Varmá. Jafntefli varð 17—17 og
þar köstuðu Týrarar frá sér sigri. Voru
komnir sex mörkum yfir um tima.
Haukar—Þór 16-14 (6-5)
íslandsmótið i handknattleik, 1. deild kvenna. Haukar—Þór 16—14 (6—5) Hafnarfirði 16.
febrúar.
Beztu leikmenn. Margrót Theódórsdóttir, Haukum 8, Valdís Hallgrímsdóttir, Pór, 8, Sóloy
Indríðadóttir, Haukum 7, Hanna Rúna Jóhonnsdóttir, Þór 7, Sjöfn Hauksdóttir, Haukum 7.
Haukar. Sóley Indriðadóttir, Hulda Hauksdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Margrót Theódórs-
dóttir, Sjöfn Hauksdóttir, Halldóra Mathieson, Björg Jónatansdóttir, Anna Karen Sverrís-
dóttir, Sessolja Friðþjófsdóttir, Hólmfríður Garðarsdóttir, Hlín Hormannsdóttir, Svanhildur
Guðlaugsdóttir.
Þór. Edda Oríygsdóttir, Krístin Ólafsdóttir, Magnea Friðríksdóttir, Guðný Bergvinsdóttir,
Sigríður Sigurðardóttir, Freydis Halldórsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Valdis Hallgrímsdóttir,
Hanna Rúna Jóhannsdóttir, Harpa Siguröardóttir, Dýrfinna Torfadóttir.
Engrí var vísað af leikvelli. Haukar fengu 5 víti — nýttu 4. Þór fókk 6 víti — nýtti 3. Áhorf-
endur um 50.
Gunnar Thors hefur hér betur I baráttu við Björn Magnússon undir körfunni. Tákn-
rænt fyrir leikinn. ÍS mun sterkari aðilinn. DB-mynd Hörður.