Dagblaðið - 18.02.1980, Page 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. FEBRUAR 1980.
23
Reykvíkingar æstir í lóðir:
Fjórir sækja um hverja lóð
„Okkur bárust 965 umsóknir um
236 lóðir,” sagði Hjörleifur Kvaran,
fulltrúi borgarverkfræðings, um um-
sóknir um nýjustu lóðir borgarinnar.
Umsóknarfresturinn rann út á
föstudaginn var.
,,I Rauðagerðinu voru 12 lóðir
auglýstar en um þær bárust 332
umsóknir eða 27 umsóknir um hverja
lóð. Enn vinsælli varð þó ein lóð sen
við áttum við Tómasarhaga, um hana
sóttu 39 manns.
Um 35 einbýlishúsalóðir við
Eiðsgranda sóttu 155 manns og 88
um 62 raðhúsalóðir. Í Seljahverfinu
bárust 99 umsóknir um 64
einbýlishúsalóðir og 75 umsóknir um
10 raðhúsalóðir. í Hólahverfinuvoru
svo auglýstar 50 einbýlishúsalóðir en
alls bárust I63umsóknir.
Nokkrir sóttu svo um ótilgreint
eða um lóðir sem ekki höfðu verið
auglýstar. Við erum nú búnir að
flokka umsóknir eftir hverfum, en
eigum eftir að fara i gegn um það
hverjar eru gildar. Það fyrsta sem við
gerum að því loknu er að senda þetta
niður i gjaldheimtu til þess að vita
hvort umsækjendur eru skuldlausir
við hana.”
— En hver eru skilyrði önnur en
skuldleysi við gjaldheimtu til þess að
fá lóð:
„Menn þurfa að vera fjárráða,
íslenzkir ríkisborgarar og geta sýnt
frani á með eignuni eða Iáns-
möguleikum að þeir geti fjármagnað
það hús er þeir ætla sér að byggja á
lóðinni. Þeir sem uppfylta öll þessi
skilyrði sem flestir gera, fá svo
punkta eða stig fyrir ákveðin atriði
og er farið eftir þeim punktum við út-
hlutun.
Í fyrsta lagi eru punktar fyrir
búsetu i Reykjavik. Menn byrja að
safna punktum 18 ára og fá 8 á ári
fyrstu 5 árin. Eftir það 4 á ári. Há-
markið er 80 punktar. í þvi tilfelli að
hjón sækja um lóð eru fyrst reiknaðir
fullir punktar fyrir búsetu þess eldra
en siðan fær það yngra sina punkta
að einum fjórða.
Ef menn búa utan Reykjavíkur i
lengur en i 4 ár, falla fyrri punklar
þeirra niður. En búi menn utan
bæjarins i skemntri tíma fá þeir fulla
punkta fyrir búsetu sína í bænum.
Einnig er hægt að safna stigum
meðatvinnu i Reykjavík. Þá fá menn
4 stig á ári hvcrt ár sem þeir vinna,
uppi60stigahámark.
Hafi nienn sótl um lóð áður, en
l'engið synjun fá þeir fyrir það 8 stig.
Ekki eru þó taldar nenta 3 synjanir.
þannig að þau slig geta ntest rðið 24.
Menn fá einnig punkta l'yrir að
búa í leiguhúsnæði eða i of litlu
húsnæði. Fyrir leiguna, ef nienn eiga
ckki ibúð fá þeir 16 stig og geta
fengið mest 16 stig l'yrir þröngbýli.
Það er, cf ekki eru 12 fermctrar á
hvern íbúa.
Þegar úthlutun á einstökum
svæðum fer fram er byrjað á þeim
sem tlesta punkta hefur hcl'ur og sui
farið röðina niður úr. Ef margir eru
með jafnmarga punkta og geta ekki
allir l'engið e> dregið úr nöfnum
þcirra,” sagði Hjörleifur.
-DS.
m wf ÚTILÍF
Enskir hnakkar
með dýnu kr. 177.000.
ándýriukr. 166.000.-
Hubertus hnakkar
vestur-þýzkir kr. 145.000.
Nýkomið
dýnur á hnakka,
ekta /eður,
verð aðeins
kr. 12.200.-
niælonstali-
múlar
kr. 3.100.-
Pakistanskir hnakkar
kr. 76.800.-
Enskir barna hnakkar
■m/gjörð ogist kr. 57.000.
Höfuðleður
m/múlog taum
kr. 17.700,-
Krossmúll
kr. 7.100,-
Leðurstall-
múlar
kr. 6.200,-
Tamningamúlar
kr. 21.000.
Reiðhjálmar
nýgerð
kr. 12.800,- 16.900.
Reiðhjálmar
kr. 8.230.
Reiðar
kr. 9.900.
Gjarðir — margar gerðir
Bómullkr. 7.500,- Næton 9.300,- Borðar 8.900,- Leður 14.100,-
Öryggisístöð
bogin beggja vegna
úrkrómstá/i
kr. 41.100.-
Öryggisístöð m/teygju
Stærð 4 1/2 " Stál
Öryggisistöð
bogin á eina hlið
kr. 21.200.-
I 1 I
••
Hófhlifar opnar kr. 4.300.-
Hófhlifar m/velcro kr. 5.900,-
Taumar
Borðataumar
m/lásum kr. 6.360.-
Borðat m/leðrikr. 8.000.-
Flóttaðir leðurt kr. 12.300.-
Reiðstigvól
frönskogþýsk
Gíæsibæ
Sími
82922 og30350.