Dagblaðið - 26.04.1980, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1980.
Sígarettureykingar aukast:
Kjörskrá
i
Kjörskrá til forsetakjörs er fram á að fara 29.
júní næstkomandi liggur frammi almenningi til
sýnis á Manntalsskrifstofu Reykjavíkurborgar
Skúlatúni 2, 2. hæð, alla virka daga frá 29. apríl
til 27. maí næstkomandi, þó ekki á laugardögum.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa boriztí
skrifstofu borgarstjóra eigi síðar en 7. júní næst-
komandi.
Reykjavik 26. apríi 1980
Borgarstjórinn / Reykjavík.
Kvikmyndafjelagið sýnir í Regnboganum:
Vikan 27. apríl-4. maí:
Sunnud. kl. 7.10
Ape and Superape.
Mánud.kl.7.10
Criminal Life of Archibaldo de la Cruz. I.eikstj. Luis Bunuel.
Þriðjud. kl.7.10
Johnny Came Lately m/James Cagney. Leikstj. W.K. Howard.
Miðvikud. kl. 7.10
Criminal Life of Archibaldo de la Cruz. Lcikstj. Luis Bunuel.
Fimmtud. kl. 7.10
Kameliufrúin m/Gretu Garbo. Leikstj. George Cukor.
Föstud. kl. 7.10
Sympathy for the Devil m/Mick Jagger. Leikstj. Jean Luc
Godard.
Laugard. kl. 7.10
Kameliufrúin m/Gretu Garbo. Lcikstj. George Cukor.
Uppl. í sima 19053/19000 - GeymiA auglýsmguna.
NÝTT HAPPDRÆTTI/ÁR
Næstu framkvæmdir við Hrafnistu í Hafn-
arfirði, bygging hjúkrunardeildar ffyrir
75—80 manns eru að hefjast. Vonast er til
að hægt verði að taka bygginguna í
notkun á árinu 1982.
híver miði í Happdrætti DAS er framlag,
sem kemur gamla fólkinu til góða,
framlag sem mikils er metið.
Miði er möguleiki.
miÐI ER mÖGULEIKI
Dúum ÖLDRUÐUm
ÁHYGGJULAU/T ÆVIKVÖLD
Dúum ÖLDRUÐUm
ÁHYGGJUIAU/T
ÆVIKVÖLD
RUMLEGA 82 PAKKAR
Á HVERT MANNSBARN
— Rolf Johansen seluf.sjö af hver jum tíu sígarettum og 60%
af vindlunum
Aukning á sígarettusölu hér á landi
varð 6,75% á liðnu ári, miðað við árið
1978, en þá varð aukningin 4,8%
miðað við árið á undan. Það ár, 1977,
varð hins vegar nokkur samdráttur i
sígarettusölu eða um 5%. Þá var al-
gjörlega tekið fyrir auglýsingar á þeim.
Salan á liðnu ári varð 371.946 millj.
eða rétt um 18,6 milljónir sígarettu-
pakka. Svarar það til þess að hvert
mannsbarn á íslandi hafi keypt rúm-
lega 82 pakka.
Samkvæmt lista yfir seldar sígarettu-
tegundir í Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins, sem birtist í nýjasta eintaki
tímaritsins Samúel, eru tegundimar
fjörutiu og þrjár. Mest er selt af
Winston King Size Filter, Camel
Regular Size ogViceroy KingSizeFilter.
Athyglisvert er að af þeim fjörutíu
og þrem sígarettutegundum, sem seldar
voru frá ÁTVR, eru þrettán tegundir
sem Rolf Johansen & Co hefur umboð
fyrir.
,,Samkvæmt upplýsingum ÁTVR
eru sígarettur sem Rolf Johansen hefur
umboð fyrir 70,5% af öllum seldum
sígarettum hér á landi,” sagði Friðrik
Theódórsson framkvæmdastjóri hjá
Rolf Johansen & Co í viðtali við DB í
gær.
Hann sagðist ekki geta séð að auglýs-
ingabann á sígarettum hefði haft
merkjanleg áhrif á sígarettusölu eins og
tölur um aukna sölu þeirra bæru með
sér. Hann benti á að auk auglýsinga-
bannsins hefði einnig komið til stór-
aukins áróðurs gegn sigarettureyking-
um.
Fyrirtækið Rolf Johansen & Co
hefur einnig umboð fyrir ýmsar vindla-
tegundir. Þar mun hlutdeild þeirra vera
um 58% af íslenzka markaðinum.
Aðallega er þar um að ræða fjórar
danskar tegundir. -ÓG
$tofnanakepp$n í skák:
Búnaðarbankinn efstur
— með íslandsmeistarann Jóhann Hjartarson á 1. borði
Að loknum þremur umferðum í
stofnanakeppninni í skák er sveit
Búnaðarbankans í I. sæti með 9,5
vinninga af 12 mögulegum. f 2. sæti
er sveit Útvegsbankans, með 9
vinninga og í 3.-5. sæti eru Klepps-
spítalinn, Verkamannabústaðir og
læknar á Landspítalanum með 8,5
vinninga.
Margir af sterkustu skákmönnum
landsins taka þátt í mótinu. Ekki
þarf að koma á óvart, að Búnaðar-
bankinn hafi forystuna því að þar er
sjálfur íslandsmeistarinn, Jóhann
Hjartarson, á 1. borði. Aðrir í
sveitinni eru allir þekktir skákmenn:
Bragi Kristjánsson, Leifur Jósteins-
son og Hilmar Karlsson.
Útvegsbankinn er einnig með
mjög öfluga sveit. Þar er Björn Þor-
steinsson á 1. borði en aðrir í
sveitinni eru Gunnar Gunnarsson,
Jóhannes Jónsson og Bragi Björnss.
í sveit Verkamannabústaðanna tefla
feðgarnir Jóhannes Gísli Jónsson og
Jón Þorsteinsson á tveimur efstu
borðunum. Reiknað er með að
baráttan um efsta sætið komi einkum
til með að standa á milli þessara
þriggja sveita.
Tefldar verða 7 umferðir eftir
Monrad-kerfi.
-GAJ.
Grafíska
sveinafélagið
Aðalfundur GSFV verður haldinn föstudaginn
2. maí kl. 20 að Bjargi.
Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga um félagsslit.
3. Önnur mál. stjórnin.
Atvinna óskast
Ungur reglusamur maður óskar eftir starfi, helzt
við akstur úti á landi, er með meirapróf- rútu-
prÓf' UppLísíma 17658.
TRÉSMIÐIR
Vantar nokkra trésmiði í mótauppslátt.
Löng vinna.
Upplýsingar í síma 71594 eftir kl. 19 í
kvöld.
Mercedes Benz 250 árg. 1976
Til sölu þessi stórgiæsilegi Benz sem er nýinnfluttur, 6 cyl.,
sjálfskiptur og með vökvastýri, rafmagnstopplúgu og út-
varpi, ekinn aðeins 80 þús. km. Skipti möguleg á ódýrari.
Uppl. í sima 85788.
Vladimir Ilich Lenin.
LENIN
110 ÁRA
Um þessar mundir eru 110 ár liðin
síðan Vladimir Ilich Lenin, einn af
áhrifamestu stjórnmálamönnum þess-
arar aldar, var 1 heiminn borinn og
minnast sósíalísk ríki viða um heim
fæðingardags hans með miklum
hátíðahöldum, sýningum og útgáfum á
bókum, frímerkjum og hljómplötum.
Af þessu tilefni hafa sendiráð
Austur-Evrópuríkjanna, undir forsæti
sendiráðs Sovétríkjanna, opnað sýn-
ingu í kjallara Hallveigarstaða við Tún-
götu. Eru þar til sýnis nýjustu útgáfur á
verkum Lenins á ýmsum tungumálum,
grafikmyndir sem fjalla um aðdrag-
anda og framgang októberbyltingar-
innar 1917, frímerki, ný og gömul, til
heiðurs Lenin, svo og hljómplötur
tengdar honum sjálfum og þjóðlífi i
hinum ýmsu austantjaldslöndum.
Emuig er þarna að Finna bækur um
Lenin eflir ýrr;sa höfunda og stjórn-
málaskörunga og plaköt tengd hinum
ýmsu gjörðum hans.
Sendiherra Sovétríkjanna ávarpaði
blaðamenn og gat þess m.a. að sam-
kvæmt skýrslum UNESCO væri Lenin
nú mest lesni höfundur í heimi en á
síðasta ári voru verk hans þýdd meira
en 200 sinnum á erlend mál en alls hafa
þau verið gefin út á 130 tungumálum.
Sýningin að Hallveigarstöðum
verður opin til 29. apríl milji kl. 14 og
19hverndag. -AI