Dagblaðið - 09.06.1980, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1980
3
PETUR: TAKTU
TILBODIESPANOL
Helga Guðmundsdótlir skrifar:
Ég vil aðeins vekja athygli á þvi að
ef Pétur Pétursson á kost á að leika
með liðinu Espanol frá Barcelona þá
ætti hann að þiggja það. Ég hef verið
Espanolisti i niu ár i Barcelona, með
fast sæti á leikvangi þeirra þar.
Ég er þess fullviss að hann yrði
ánægðari með þeim, jafnvel þótt
hann ætti kost á að leika með Barce-
lona-liðinu, þótt í eyrum fólks á ís-
landi sé Espanol ekki eins þekkt og í
Evrópu.
Ég vil ennfremur skjóta þvi inn i að
í Barcelona er bara um þessi tvö lið
að ræða og eru þau miklir keppinaut-
ar.
Ég vildi ógjarnan að Pétur yrði
fyrir eins miklum vonbrigðum á
Spáni (svo framarlega sem hann ætti
kost á að fara þangað) eins og hinn
snjalli leikmaður frá Danmörku,
Simonsen, varð fyrir i Barcelona-lið-
inu.
Ég veit að Espanol mun ekki ætlast
til of mikils af honum'þótt þeir munu
vissulega fagna komu hans, og
hlakka til þess að njóta árangurs
hans. Hann mun ekki verða svikinn
þar.
Pétur, taktu boði Espanol svo
framarlega sem þú átt nokkurn kost á
því og þú munt ekki verða fyrir von-
brigðum.
Sigurvegarar Ála-
fosshlaupsins 1921
Þór Jakobsson skrifar:
Jón Ólafsson, Ránargötu 17, spyr í
lesendadálkum DB 4. júni sl. um
þátttakendur i gamla Álafosshlaup-
inu. Visa ég til greinar, sem Hallur
Simonarson, iþróttafréttaritari Dag-
blaðsins, birti eftir mig á iþróttasiðu
blaðsins þann 19. marz sl. Greinin
fjallað einmitt um gamla Álafoss-
hlaupið í tilefni endurvakningar á
Vigdís Finnbogadóttir forsetafram-
bjóðandi.
Einstætt
foreldri
erí
framboði
2526—6412 skrifar:
Hér á síðum Dagblaðsins var fyrir
stuttu deilt um tvo forsetaframbjóð-
endur á grundvelli þess, hvor þeirra
skildi betur stöðu einstæðra foreldra
í þjóðfélaginu.
Nú hagar svo til að auk þeirra er
einnig i framboði hugrökk kona og
mikill persónuleiki, bæði skynsöm og
afburðamælsk. Hún hefur ekki ein-
asta kynnt sér stöðu einstæðra for-
eldra, heldur er hún í þeirra stöðu.
Með kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í
embætti forseta íslands, munum við
Íslendingar m.a. sigrast á þeim for-
dómum, sem útiloka menn eftir
frumstæðu mati á einkahögum.
hlaupinu á Iþróttahátíð ÍSÍ 29. júní
nk. Að visu verður Álafosshlaupið
með öðru sniði en áður, miklu víð-
tækara, þar sem þvi er samtimis ætl-
að að vera heilsubótarskokk trimm-
ara og kapphlaup æfðra langhlaup-
ara.
1 fyrrnefndri grein greindi ég frá
spjalli minu við þá Jóhann Jóhannes-
son, Ármanni og Oddgeir Sveinsson,
sem voru miklir hlauparar hér fyrr á
tið.
En fimm fyrstu menn i Álafoss-
hlaupinu 1921 voru:
1. Þorkell Sigurðsson
2. Ingimar Jónsson
3. Ágúst Ólafsson
4. Ámundinus Jónsson
5. Sigurbjörn Árnason.
Helga vill ólm að Pétur hverfi suður á
Spán.
HOOVER
ekki bara ryksuga...
Teppahreinsarinn frá HOOVER ekki aðeins
ryksugar teppið, hann hreinsar að-auki úr því
margskonar önnur óhreinindi sem ryksuga nær
ekki eins og t.d. • Klístur •Þráöarenda
• Dýrahár • Sand úr botni
• Bakteríumyndandi sveppa- og gerlagróöur
Jafnframt ýfir hann flosið svo aö teppið er ætið
sem nýtt á að líta, og það á jafnt við um
snöggtsem rya. Fjölþætt notagildi fylgihluta.
Og það er staðreynd að teppið endist þér lengur.
HOOVER
-
ég banka bursta
og sýg...
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
FALKINN
1904-1979
Spurning
Ertu hlynntur bann-
inu á myndinni
Dauði prinsessu?
Jón Björgvinsson sjónvarpsslarfs-
maður: Mér finnst alvarlegt mál ef
einstaklingar eða einstök fyrirtæki fá
að ráða efni fjölmiðla.
Sigrún Siguröardóttir skrifslofuslúlka:
Ég er á móti hvers konar boðum og
bönnum.
ÍS
Gunnvör Braga Sigurðardóttir dag-
skrárfulltrúi: Það er harl ef litlir hópar
geta komið og f :rið ofan í ákvarðanir
sem færir menn hafa tekið
Guðmundur Guðmundsson, vinnur hjá
Hafrannsóknarstofnun: Alveg
hlynntur banninu.
Árni Guðmundsson uppeldisfulltrúi:
Nei, ég er á móti því. Formálinn hefði
alveg nægt.
Gunnar Skúlason sendill: Já, ég er
það.