Dagblaðið - 09.06.1980, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 09.06.1980, Blaðsíða 8
Min Tanaka á Listahátíð: Allsnakinn í Höllinni Japanir eiga sér langa danshefð sem tengist i senn helgisiðum og hinu eiginlega leikhúsi. Hún á afskaplega lítið skylt við vestrænan listdans og er í senn stíliseruð á expressjóníska veginn og sneisafull af fínlegum jiokka — oft í sama dansinum. En þrátt fyrir að mikið bil ríki milli hins settlega vestræna dansmáta og hins stílfærða japanska dans, sem gjarnan nær yfir það sem við mundum nefna mímu eða látbragðsleik, þá hafa þessar tvær greinar dansins haft nokkur áhrif hvor á aðra, einkanlega i seinni tíð. Strax upp úr 1920 skutu upp kollinum japanskir dansarar í Evrópu og Ameríku, sem innleiddu nýja siði og þau austrænu áhrif má m.a. finna í verkum Mörtu Graham i Bandarikjunum. í regnkápu Ekki þykir mér líklegt að hægt sé að flokka dans Min Tanaka beint undir japanska hefð, nema ef einhver kynni að sjá i ýkjum hans og undar- legri stillingu áhrif hennar. Tanaka er sprottinn upp úr hinni alternatifu hefð, andófinu og á kannski eitthvað skylt við japanska frumkvöðla á sviði gjörninga, Gutai hópinn svonefnda sem á árunum 1955—57 stóð fyrir herjans miklum uppákomum og látum í Tókýó og Ósaka. Sumir þátl- takenda, eins og t.d. Tetsumi Kudo, sneru síðan til Vesturlanda og tóku þátt í uppákomum Flúxus hreyfing- arinnar. Á laugardag hófst spunadans Tanaka í Laugardalshöll á því að hann birtist í silfurlitaðri regnkápu í opnum dyrum hallarinnar. Eftir að þvi er virðist óralanga stund í kyrr- stöðu, hóf hann að hreyfa sig hraðar og hraðar inn eftir gólfinu og er á leið urðu hreyfingar hans æ krampakenn- dari, i senn eins og flogaveikur og hreyfilamaður maður væri að verki. Sönglað og dansað Það fór litið fyrir fótahreyfingum eða eiginlegum fótsporum, heldur sveigði hann líkamann og beygði sem Min Tanaka stigur dans sinn í Laugardalshöll á laugardaginn. OB-mynd: Þorri. nsn LISTAHÁTÍÐ 1980 AÐAL STE'K'N INGÓLF8SON mest hann mátti og sveiflaði höndum. Eftir að hafa farið eina umferð um salinn þar sem áhorf- endur sátu með krosslagða fætur á gólfi hvarf hann aftur út i sólskinið. Þetta var fyrsti þáttur, — tentpestoso. I öðrum þætti birtist hann hægt i útidyrunum með krúnurakað höfuðið á undan sér og nú hófu hjálparmenn hans í salnum að kalla og söngla milli þess sem þeir börðu á bumbur og önnur sláttuhljóðfæri. Köllin voru eins og í íslenskri mýri, spóahljóð, kjóavæl og kannski hljóð i jarðrakan. Hjálparmennirnir stigu með þessu einkennileg spor eða val- hoppuðu, bæði utan við áhorfendur og meðal þeirra, mörgum þeirra til auðsjáanlegs uggs. Tanaka var nú allsnakinn, þakinn farða og nú voru hreyfingar hans hægar til að byrja með, eins konar adagio og það var eins og maðurinn væri í leiðslu. Sefjun Jókst nú hraðinn, eftir hrynjandi þeirri sem hjálparmenn framkölluðu og ekki var hægt að hafa augun af hreyfingum Tanaka, sem ekki virtust lúta nokkrum reglum eða kerfi, nema hvað fótahreyfingum var haldið í lág- ntarki. Eftir smástund var eins og sefjun gripi um sig i salnum og áhorf- endur sátu sem límdir til enda. Varla er hægt annað en lýsa dansinum, því ekki er mér Ijóst hverjar forsendur liggja að baki hon- um eður lífsspeki, þrátt fyrir upplýsingar um samband „staðar, lima og rúms” sem Tanaka ku vinna að. Óneitanlega voru innlifun hans og vald yfir líkamanum aðdáunar- verð. -Al. Nýtt fyrír dömur og herra w Hvítt ledur Stæröir: 36—46. Verð kr. 21.850 PÓSTSENDUM SKOVERZLUN ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR Kirkjustræti 8 v/Austurvöll, Sími 14181. Laugavegi 95. Sími 13570. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR9. JÚNÍ1980 I kvikmyndinni Skemmtilegt sumarfri festir Tati endanlega i sessi sköpunarverk sitt Hulot og er skipað á bekk með meisturum þöglu gamanmvndanna. Hér getur að lita atvik úr Skemmtilegu sumarfrii. Hinn kostu- legi Hulot Kvikmynd: Skemmtilegt sumarfrí (Les Vacances de Monsieru Hulot) Leikstjóri: Jazues Tati. Handrit: Jaques Tati og Henri Merquet. Kvikmyndataka: J. Morcanton. Tónlist: Alain Romans. Meðal leikenda: Jaques Tati, Nathalie Pascaud, Lucien Frógis. Sýningarstaður: Hóskólabió (mónudagsmynd). Háskólabíó hefur tekið ástfóstri við Jaques Tati. Siðasta mánudags- mynd þess var Playtime (1967), um þessar mundir sýnir það Skemmtilegt sumarfrí (1953) og innan skamms er væntanleg myndin Mon Oncle eða Frændi mitin (1958). Það er ekki illa til fundið, að kvikmyndahús taki á þennan hátt til sýninga nokkrar myndir eins og sama leikstjórans — með þvi gefst skemmtilegt tækifæri til að bera einstaka myndir hans saman og eins má fræðast nokkuð um hann i leiðinni. Þetta á ekki sist við um Jazues Tati, sem leikur jafnan aðalhlutverkið i myndum sínum sjálfur — hinn kostulega monsjör Hulot sem stöðugt lendir i undar- legum uppákomum og óvæntum vandræðum. Tati hóf feril sill sem kvikmynda- leikari og leikstjóri með nokkrum stuttum skopmyndum en það er ekki fyrr en í fyrstu löngu mynd sinni, Jour de féte (1948), sem hann festir sig endanlega i sessi sem einn af fremstu gamanleikurum kvik- myndanna og er skipað í flokk með meisturum þöglu myndanna, Chaplin og Buster Keaton. Monsjör Hulot festist í sessi i þeirri rnynd sem nú má líta i Háskóla- bíói: Skemmtilegt sumarfrí. í þeirri mynd bregður Tati upp Ijóslifandi mynd af fólki í sumarfríi. Hann vinnur mynd sina af afburða ná- kvæmni og iðulega er það sem manni flýtur í hug, að sitthvað sé leikið af fingrum fram fyrir framan töku- vélina — sitthvað er þannig gert, að það er eins og það verði til i sjálfum leik Tatis i hlutverki Hulots. Og það er ekki síst fyrir þá sök, að myndin verður öll skemmtilegri og persóna Hulots skoplegri. Það er einn af meginkostum Talis hve sparlega hann notar orð i myndum sínum. í þeim skilningi eru þær næstum þöglar. Hins vegar er nóg fyrir eyrað — ef svo má að orði komast — í myndum Tatis. Alls kyns hljóð úr umhverfinu skipa veiga- mikinn sess sem eins konar undir- leikur meðan Hulot ýmist kemur sér i vandræði eða bjargar sér úr þeim — ef hann hefur þá á annað borð áttað sig á því að hann hefur lent í vand- ræðum. Skemmtilegt sumarfri er svo sannarlega ntynd sent óhætt er að mæla með. Kvik myndir FAT4ITHÐ4R I fyrsta sinn á íslandi getum við boðið prentun á fatamiðum á sambærilegan hátt og erlendis. Getum prentað 2 liti á miðann að framan og 1 lit að aftan í einni og sömu ______umferð og á góðu verði. Þvottekta. M lindargötu 48. Vönduð vinna reynið viðskiptin ii 14480. Póstbox 769. Reykjavík, jsland.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.