Dagblaðið - 09.06.1980, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 09.06.1980, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR9. JÚNÍ 1980 EINSTAKT TÆKIFÆRI SCOUT—JEPPI Af sérstökum ástæðum verður þessi bill að seljast strax. Árg. ’74, ekinn 56.000 km, 350 c. vél, sjálfsk. og með vökvastýri, góð dekk og gott ásigkomulag. Gott verð, góð kjör. Upp- lýsingar i simum: 36824, 32272 og 26280 næstu daga og kvöld. TjL SÖLU er ónotuð yf irbygging á sendibíl, 5.30x2.35x2.00. Upplýsingar gefur Hópferðamiðstöóin FRAMBOÐ GUÐLAUGS ÞORVALDSSONAR Funduri ki. 20.30. Stapa nk. þríöjudag, lO.júní Fundarstjóri: Tómas Tómasson. Ræðumenn: Páll Jónsson, Guðrún Ólafsdóttir, Jóhann Einvarðsson, Jón Böðvarsson, Hildur Júlíusdóttir, Halla Tómasdóttir, Gunnar Jónsson. Allir velkomnir STUÐNINGSMENN. Gestir dansleiksins mxttu í fjölbrevttum múnderingum. Hír ir einn í vinahöpi.sem allt oins ga'ti verið Vaskafat. bróöir Ara- fats. — Alla vega var hann með svipað höfuðfat. Eldfjörugur listahátíðar- dansleikur meó Þursum og spænskum gamanleikurum Þursaflokkurinn og leikflokkurinn Els Comedianis skemmlu geslum Laugardalshallarinnar konunglega á listahátíðardansleik. Ballið var haldið á laugardagskvöldið og var ágætlega sótt. Þursarnir stóðu sig prýðilega sem danshljómsveit. Á efnisskrá þeirra var að finna gömul lög sem Rolling Stones og Bítlarnir kyrjuðu hér fyrr á árum. Finnig brugðu þeir sér í Stuðmanna- tónlist öðru hvoru, enda er helmingur Þursaflokksins gamlir Stuðmenn. Sig- urður Rúnar Jónsson fiðluleikari og Sigurður Bjóla bættust í Þursahópinn seinnipartinn og fóru báðir á kostum. Það er ekki á hverjum degi sem maður sér íslendinga dansa við lúðra- sveitartónlist. Það gerðist þó er Els Contediams gengu á svið og hófu að leika fyrii dansi. Öðru hvoru brugðu félagar úr flokknum sér út í sal og stigu dans nteð áhorfendunum. Voru þeir af öllunt st.erðum og gerðum — einn á Iveggja mctra háum stultum, annar stuttur. Skcmmst er frá því að segja að Els Comeciants unnu hug og hjörtu áhorfenda, sem stigu hringdans, polka, skottísa, ræla og valsa og hvað þeir heita nú allir þessir dansar, sem helzt cru stignir i Hreyfilshúsinu og Lindar- bæ. Þursamir og Els Comediants höfðu einnig æft saman dágott atriði, þar sem kjörin var ungfrú Reykjavík. Það endaði með heiftarlegum slagsmálunt og ungfrúr Reykjavík 1979 og ’80 brugðu sér snarlega i pönkgervi og sungu saman hressilegan rokkara, sem hefði allt eins getað verið eftir Megas. Dansleik þessum lauk um þrjúleytið aðfaranótt sunnudags, utan Hallardyr- anna. Þar brenndu Els Comediants dansherra kvöldsins og skotið var nokkrum flugeldunt. -ÁT- Meðal annars krýndu Els Comediants ungfrú Reykjavik 1980. Hér er hún ásamt ung frú siðasta árs i villtum slagsmálum að krýningunni lokinni. Þær enduðu sýningu sina eftir að þær voru búnar að tæta fötin hvor utan af annarri með því að stiga trylitan dans og kyrja fjörugan pönkslagara. Fengu utanlandsferð i viðurkenningarskyni — fyrir sjátfboöavinnu í þágu Skáksambandsins Nýkjörin stjórn Skáksambands sjálfboðavinnu i þágu Skák- íslands hefur ákveðið að senda tvo sambandsins. Þeir Lárus og Páll voru fimmtán ára pilta á Opna báðir í sveit Álftamýrarskólans, sem Kaupmannahafnarmótið í skák, sem sigraði i skákkeppni grunnskóla á hefst 21. júní næstkomandi. Norðurlöndum. Meðal keppenda á Kaupmanna- Þorsteinn Þorsteinsson, sem á hafnarmótinu hafa jafnan verið sæti i stjórn Skáksambandsins sagði í nokkrir sterkir titilhafar og má búast samtali við DB i gær, að stjórnin við því að svo verði einnig nú. Tefld- hcfði ákveðið að senda þá Pál ar verða 11 umferðir eftir Monrad- Þórhallsson og Lárus Jóhannesson kerfi. utan i viðurkenningarskyni fyrir -GAJ. VARÐ UNDIR VALTARA Lítil telpa í Villingaholtshreppi slasaðist alvarlega er hún varð undir valtara, sem tengdur var aftan í dráttarvél. Slys þetta varð laust fyrir klukkan tvö á laugardag. Stúlkan var þegar flutt á Borgar- spitalann, á gjörgæzludeild. Að sögn lögreglunnar á Selfossi átti stúlkan, sem er sjö ára gömul að ganga á eftir valtaranum ásamt eldri systur sinni. Einhverra hluta vegna datt hún og lenti með höfuðið undir valtaranum. — Hún er nú á batavegi. -ÁT-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.