Dagblaðið - 09.06.1980, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1980
5
Ávörp, nikkuspil og bumbur barðar á „uppákomu”
Guðlaugsmanna á Bemhöftstorf unni:
„Guðlaugur uppfyll-
ir allar kröfur”
„Við skulum vera kröfuhörð. Við
hljólum að krefjasl þess að forsetinn
hafi staðgóða þekkingu á fólkinu í
landinu og þeim atvinnuvegum sem
gera okkur kleift að búa hér. Við
viljum forseta, sem þekkir sögu
landsins, menningu og listir á umliðn-
um öldum og í nútímanum. Við viljum
forseta, sem skilur og skynjar
erftðleika einstaklings og þjóðar. Við
viljum forseta, sem bindur sig ekki við
Bessastaði heldur gerir sér far um að
koma til þjóðarinnar og kynnast henni.
Við viljum drengskaparmann stað-
ráðinn i að vinna þjóð sinni vel með
manndóm til að taka af skarið þegar
embættið leggur honum þær skyldur á
herðar,” sagði Ásta Thoroddsen
hjúkrunarfræðingur meðal annars í
stuttu ávarpi á Bernhöftstorfunni í há-
deginu á föstudaginn. Þá efndu
stuðningsmenn Guðlaugs Þorvalds-
sonar og Kristínar til „uppákomu” á
Torfunni. Auk Ástu löluðu þau Stein-
unn E. Sigurðardóttur, Þorvaldur
Jónsson og Óskar Magnússon. Grettir
Björnsson spilaði á harmóníku og
Guðmundur Steingrimsson trommaði
með. Jón Sigurbjörnsson leikari stýrði
samkomunni sem stóð í hálfa klukku-
stund i blíðskaparveðri sem var i
höfuðstaðnum á föstudaginn.
Ásta Thoroddsen lauk ávarpinu með
þessurn orðum:
„Kvölin er okkar að velja þann for-
seta sem við teljum hæfastan. Ef
grannt eru skoðaðar þær kröfur sem
við gerum til forsetans þá er Ijóst að
Guðlaugur Þorvaldsson uppfyllir þær
allar. Val okkar allra hlýtur að vera
Guðlaugur fyrir næsta forseta.”
-ARH.
115. - .k#*|
Kisastór mynd at frambjóóandanum var sett upp á Torfunni. Til vinstri er Grettir Björnsson meó dragspilió þanió. Stúlkan
meó fánann heitir Tinna Víóisdóttir.
Asta Thoroddsen hjúkrunarfræðingur flytur ávarp sitt: „Við viljum forseta sem
þekkir sögu landsins, menningu og listir á umliðnum öldum og í nútimanum.”
-DB-myndir: RagnarTh.
Allir út að labba
—á göngudegi f jölskyldunnar 14. júní
„Einhver allra bezta og hollasta
skemmtunin er sú að skoða fegurð
landsins, einkum á sumrin. Ganga út
um holl og mela, hamra og hraun,
brckkur og runna og skoða plöntur
og enda steina. Ganga upp á fjöll til
þess að fá l'agurt útsýni og sjá fallegar
plönmr. Þær gróa á efstu lindum.
Mörg fjöll hér á landi eru vel löguð lil
þessa.”
Þannig var skrifað i Skinfaxa, rit
Ungmennafélags íslands, árið 1910.
Auðvitað eru þessi orð ennþá i fullu
gildi þrátt fyrir að mikið vatn hafi
runnið til sjávar á þeim 70árum, sem
liðin eru síðan þau voru skrifuð.
Gönguferðir og útivera er nokkuð
sem seint verður úrelt. Menn kynnast
landinu sínu betur með því að ganga
ttm það og auk þess er labbið
nauðsynlegt til að halda við likam-
legri hreysti og andlegri reisn.
Ungmennafélag íslands vill leggja
sinn skerf af mörkum til að efla
göngugleði landsmanna. I.augar-
dagurinn 14. júní nk. hefur verið út-
nefndtr g mgudagur fjölskyldunnar
af s'iórn UMFÍ. I fundargerð stjórn-
arinnar frá 21. október stendur
skrifað:
„Hvert ungmennafélag skal i
upphafi skipa starfshóp er velji
gönguleið, helzt í nágrenni félags-
svæðis. Gönguleið mætti hugsa sér
2—7 tíma gang. Hvert félag getur
valið fleiri leiðir. Starfshópurinn
skrifi leiðarlýsingu og verði hún
fjölrituð. Munn UMFÍ aðstoða þau
lelög er- þess óska. Ferðir þessar
verði vel auglýstar og fólk hvatt til
göngunnar og verði þær öllum
opnar.”
Sem sagt gott fólk: Bregðum
strigaskó á betri fótinn á laugar-
daginn. Sjáumst í labbinu!
-ARH.
Allar skraytingar unnar af fag-
mönnum.
liioMíwixmt
HAFNARSTRÆTI Slmi 12717
LETTIR KVEN
SUMARSKÓR
Leðurfóðraðir,
með hrágúmmisóla.
Lrtur: Beige.
Stærð: 36-41
Verðkr. 27.800.-
Litur: Natur og
rauðbrúnt
Stærð: 36-41
Verðkr. 22.800.
Utur: Ryðrautt
Strmrð: 36-41
Verðkr. 24.800.
Leðurfóðraðir
með
hrágúmmrsóla.
Lrtur: Beige.
Stærð:36—41
Verökr. 27.800.
PÓSTSENDUM
Stigahlíð 45—47. Sími 83225.
Barna-
gallabuxur j
Partner 106
Barna t’lauelsbu
Partner 107
Barna
kanvasbuxur
Partner 112