Dagblaðið - 09.06.1980, Page 10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1980
10
ElSalvador:
Þrjátíu og fjórir
drepnir um helgina
— þrjú þúsund fallnir síðan herforingjastjómin tók við völdum í
október síðastliðnum
Óeirðir í E1 Salvador mögnuðust
um allan helming um helgina eftir
nokkurt hlé. Er talið að að minnsta
kosti þrjátíu og fjórir hafi fallið viðs
vegar um landið og þá aðallega í
höfuðborg þessa striðsþjáða Mið-
Ameríkuríkis. Eru þær tölur sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu
landsins. Voru það vinstri og hægri
sinnaðir öfgamenn sem stóðu fyrir
morðunum.
Meðal þeirra sem fundust láinir
um helgina voru fimm nienn, sem
áður hafði verið rænt. Meðal þeirra
var barnshafandi kona. Lík þeirra
fundust í San Miguel. Sjö lík fundust
í borginni Santa Ana, var eitt h'kanna
merkt með störfunum EM á brjósti.
Skólanemi var skotinn með vélbyssu í
borginni San Vicente og auk þess
féllu tuttugu og einn í höfuðborg
landsins, San Salvador.
EM er skammstöfun á nafni
hægri sinnaðra hermdarverkamanna,
sem lýst hefur yfir stríði gegn vinstri
sinnum.
Vinstri sinnar vilja steypa her-
foringjastjórninni sem ríkir í E1
Salvador síðan í október síðast-
liðnum. Talið er að rúmlega þrjú
þúsund manns haft fallið í landinu
siðan herforingjastjórnin tók við
völdum.
Miklar sprengingar voru í San
Salvador um helgina. Að sögn lög-
reglunnar varð sprenging á skrif-
stofum blaðs eins í háskólahverfinu
og bankastofnun. Miklar skemmdir
urðu, en engir slösuðust við spreng-
ingarnar.
Erlendar
fréttir
REUTER
Fimmburar
íBremen
Þrítug kona i Bremen í Vestur-
Þýzkalandi fæddi á föstudaginn
fimmbura. Voru þetta tveir
drengir og þrjár stúlkur. Ein
stúlknanna er þegar látin. Hin eru
I súrefniskössum. Nafn konunnar
hefurekki veriðgefið upp.
Tveir arabiskir borgarstjórar á vesturbakka árinnar Jórdan, en þar ráða Israelsmenn rikjum. særðust alvarlega af völdum
sprenginga i fyrri viku. Á myndinni sést er öórum þeirra er ekið á sjúkrahús en þar varð að taka af honum vinstri fótinn.
Annar starfsfélagi hans missti báða fætur i sprengjutilræðinu.
Bandaríkin:
SOVEZKURI
LANDHELGI
Sovézkur verksmiðjutogari var tek-
inn að meintum ólöglegum veiðum
innan bandarískrar efnahagslögsögu
við strendur Alaska i gærkvöldi. Yfir-
lýsing þessa efnis barst frá bandarisku
strandgæzlunni.
Þetta er í fyrsta skipti sem slíkur at-
burður verður síðan Jimmy Carter
Bandarikjaforseti bannaði öliunt
sovézkum skipum veiðar innan banda-
rískrar lögsögu eftir að sovézki herinn
réðst inn í Afganistan. Áður höfðu gilt
um veiðarnar ýmsir samningar.
Áhöfn sovézka togarans mun vera
um eitt hundrað manns. Fóru banda-
rískir strandgæzlumenn um borð og
var togaranum skipað að sigla i fylgd
með strandgæzluskipinu til Kodiak á
Alaska. Þar munu réttarhöld fara fram
vegna meints landhelgisbrots.
Sovézk fiskiskip geta veitt á nokkru
hafsvæði við strendur Alaska sam-
kvæmt samningi sem í gildi var á milli
Bandarikjanna og Sovétríkjanna áður
en til Afganistanstyrjaldarinnar kom.
Sovézki verksmiðjutogarinn var hins
vegar talinn vera utan þess svæðis en
innan bandarískrar efnahagslögsögu.
Verðhækkanir
í Póllandi
Afganistan:
TÍU ÚR FYRRI
STJÓRN TEKN-
IR AF LÍFI
bil hálfu ári.
Stjórn Amins ríkti þar til rétt fyrir
siðutu áramót er Karmal og menn hans
tóku völdin í landinu með hjálp
sovézkra hermanna. 1 hópi þeirra sem
tilkynnt var að hefðu verið teknir af lífi
var einn bræðra Amins sem áður var
herstjóri í norðurhéruðum Afganistan.
Annar var frændi forsetans fyrrverandi
og stjórnaði leynilögreglunni. Einnig
lögreglustjóri, flutningamálaráðherra,
fangelsismálaráðherra auk annarra ná-
inna aðstoðarmanna Amins. Ekki er
fullljóst hvort Amin sjálfur var drepinn
í byltingunni um síðustu áramót eða
hann lézt á sóttarsæng.
Leiðtogar Kommúnistaflokksins i
Póllandi reyna núaðsannfæra þjóðina
um að rétt sé að aflétta verðstöðvun á
nokkrum mikilvægum neyzluvörum,
sem gilt hefur í einn áratug. Miklir
efnahagserfiðleikar steðja nú að Pól-
landi og hafa skuldir landsins við riki
Vestur-Evrópu aukizt mjög á undan-
förnum árum.
Ef úr verður er þetta þriðja tilraun
pólskra stjórnvalda til að hækka
neyzluvöruverð siðan árið 1970. Var
það árið 1970 og 1976. í bæði skiptin
urðu blóðugar óeirðir og stjórnin
neyddist til að afturkalla fyrri hækk-
anir að mestu. Að þessu sinni hafa
stjórnvöld fullvissað almenning um að
ekki muni koma til mikilla og skyndi-
legra hækkana eins og reitti fólk svo
mjög til reiði i fyrri skiptin.
Edward Babiuch forsætisráðherra
Póllands tók við völdum í febrúar
síðastliðnum. Hefur hann beitt sér fyrir
verulegum aðhaldsaðgerðum. Seglin
hafa verið dregin saman á mörgum
sviðum. Eyðslu ríkisins hafa verið sett
mikil takmörk. Heimildir til bifreiða-
notkunar ríkisstarfsmanna lækkaðar,
fjárframlög til listamanna minnkuð
mjög. Jafnframt hafa komið upp
raddir að ríkisvaldið hefði ekki tök á
því öllu lengur að greiða fyrir þær
miklu niðurgreiðslur sem tíðkast á mat-
vörum vegna banns við verðhækkun-
um.
Stjórnvöld i Kabul í Afganistan til- verið glæpir gegn afganska ríkinu. Af
kynntu i gær að tíu háttsettir meölimir i þessum tíu sem féllu fyrir böðlunum að
fyrrverandi ríkisstjórn landsins, sem þessu sinni voru tveir nánir ættingjar
var undir forustu Amins forseta, hefðu fyrrverandi forseta. Hafði áður veriö
verið teknir af lífi. Hefði sök þeirra tilkynnt um aftöku þeirra fyrir um það
Washington:
Linast á ásök-
unum á Clark
Stjórnin í Washington virðist gaer, að stjórnvöld vcstra væru að
heldur vera að linast í þvi að ákæra kanna hvort Clark og félagar hefðu
Ramsey Clark fyrrum dómsmála- brotið bandarísk lög með því að fara
ráðherra Bandaríkjanna og félaga til Iran.
hans fyrir að bregða sér til íran i Skilja mátti ráðherrann
heimildarleysi. Clark sótti þar ráð- þannig að hann teldi ekki líkur á
stefnu sem fjallaði um störf og mis- hörðum aðgerðum af hálfu stjórn-
gerðir fulltrúa Bandarikjastjórnar valda vegna þessa máls. Ef Clark
gegn fólki i íran á dögum keisara- væri sekur ásamt ferðafélögum
stjórnarinnar þar. sinum gæti það kostað þá allt að tíu
Edmund Muskie, utanríkis- ára fangelsi og tugþúsunda dollara
ráðherra Bandaríkanna, sagði þó í sekt.
Tólf manns létust, þar af sjö skólabörn I járnbrautarsiysi I Svlþjóð I f.vrri viku. Myndin er af slysstaðnum. Farþegalest rakst
á vöruflutningalest. Orsök slyssins er ekki kunn.