Dagblaðið - 09.06.1980, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1980
15
Hæfileikakeppnin 1980 hófst á Akureyri:
Evita hlaut frábærar viðtökur
ASGEIR
JÓMASSON
— Undanrásir í Grindavík um miðjan júnf
Söngleikurinn Evita fékk frábærar viðtökur á Akuri yri og llofsósi. Hér eru dansarar
i einu atriði leiksins.
Páll Jóhannesson sigurvcgari hæfileikakeppninnar i fvrra skemmti gestum með söng
sínum.
Fimm sinnum voru aðstandendur
söngleiksins Evitu klappaðir fram á
svið að frumsýningu í Sjálfstæðishús-
inu á Akureyri lokinni á föstudags-
kvöldið var. „Við erum alveg himinlif-
andi yfir móttökunum bæði á Akureyri
og Hofsósi,” sagði Birgir Gunnlaugs-
son hljómsveitarstjóri. „Við fengum
blóm úr öllum áttum. Mér þykir bara
verst að ég hafði svo mikið að gera að
ég mátti ekki vera að því að athuga frá
hverjum minn vöndur var.”
Hæftleikakeppni Dagblaðsins og
hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar
hófst á Akureyri að þessu sinni á föstu-
daginn var. Þar kepptu tvær konur um
réttinn til að taka þátt i úrslitakeppn-
inni í september. Halla Árnadóttir sigr-
aði. í öðru sæti varð Gréta Bjarnadótt-
Sigurvegari hæfileikakeppninnar á
Akureyri var Halla Árnadóttir frá Dal-
vik. Hún keppir á lokakvöldinu að Hótel
Sögu 28. september. — Þvi miður voru
ekki teknar myndir af keppendum á
Hofsósi.
DB-myndir: Guðmundur Svansson.
ir. Sakir þess hve vel hún stóð sig hefur
stjórn keppninnar ákveðið að gefa
henni kost á að keppa á úrslitakvöld-
inu.
Á Hofsósi báru Eirikur Hilmisson og
Magnús Helgason sigur úr býtum. Þeir
fluttu frumsamda tónlist.
Ákveðið hefur verið að efna til einn-
ar forkeppni í viðbót úti á landi áður en
hæfileikarallið sjálft hefst á Hótel
Sögu. Suðurnesingum gefst kostur á að
spreyta sig í Félagsheimilinu Festi í
Grindavik laugardaginn 14. júni. Þar
verður poppóperan Evita einnig sýnd,
Páll Jóhannesson söngvari kemur fram
og hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar
leikur fyrir dansi áeftir.
„Það er alveg bráðnauðsynlegt að
halda nokkrar undanrásir úti á landi til
að fá meiri breidd í lokakeppnina,”
sagði Birgir Gunnlaugsson í samtali við
DB. „Keppnin í fyrra var eingöngu
haldin á Hótel Sögu. Við fengum mjög
góðar undirtektir bæði á Akureyri og
Hofsósi. Hins vegar er mjög mikið verk
að koma öllum sviðsbúnaði vegna
Evitu fyrir. Það tók fjórtán klukku-
stundirí Sjálfstæðishúsinu.”
Hæfileikakeppnin i Reykjavík hefst
sunnudaginn 6. júlí og lýkur 28. sept-
ember, er lokakeppnin fer fram. Um
helgina á eftir, 3. og 4. október verður
síðan haldin skemmtun i Sjálfstæðis-
húsinu á Akureyri þar sem fólkið í
efstu sætunum kemur fram. Innritun í
keppni sumarsins er hafin. Allar upp-
lýsingar veitir Birgir Gunnlaugsson i
síma 45665. hann skráir jafnframt
væntanlega keppendur.
-ÁT-
Húsfyllir var I Sjálfstæðishúsinu á föstu-
dagskvöldið var, er Evita var frumsýnd
og fyrstu keppendur hæfileikarallsins
reyndu með sér. Hér eru nokkrir þeirra
360 sem komu til að fylgjast með.
Núer
sumar