Dagblaðið - 09.06.1980, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR9. JUNÍ 1980
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1980
23
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Stjómarkreppa
hjá HSÍ
— í kjölfar mjög erfiðrar
fjárhagsstöðu sambandsins
„Fjárhagurinn er í svo ömurlegu ástandi að ekki
er hægt að halda uppi eðlilegu sambandi við erlend.
ríki,” sagði Júliús Hafstein, formaður HSÍ, i
samtali við Dagblaðið i morgun. Um helgina var
haldnn aðalfundur Handknattleikssambandins og
var slakur fjárhagur sambandsins þar mál málanna.
Jón Sæmundur Sigurjónsson, gjaldkeri HSÍ , og
fleiri stjórnaraðilar lýstu þvi yfir að þeir vildu hætta
störfum. Ákvarðanir þessara manna standa f beinu
sambandi við erfiða fjárhagsstöðu sambandins.
Vegna þessarar stjórnarkreppu sem upp kom varð
að fresta lokastörfum þingsins um hálfan mánuð.
Ef til vill er það dæmigert fyrir hina slæmu fjár-
hagsstöðu sambandsins að á fundinum kom fram
tiilaga um að leggja niður öll erlend samskipti. Þar
sem tillaga kom svo seint fram þurftu 2/3 fundar-
manna til að samþykkja að hún yrði rædd og sá
meirihluti fékkst ekki. ,,Því miður fékkst þessi
tillaga ekki rædd,” sagði Július. „Ef slik tillaga
hefði verið samþykkt þá hefði það þýtt stöðnun í
7.—10 ár og við hefðum sjálfkrafa fallið niður f C-
riðil. Það var mjög eðlilegt og gott að fá fram þessa
tillögu til að sýna erfiða stöðu fþróttasamtakanna,”
sagði Július.
Á aðalfundinum var samþykkt fjárhagsáætlun
upp á 124 milljónir króna. Þar er gert ráð fyrir
ýmsum nýjum fjáröflunarleiðum.
Meðal tillagna, sem samþykktar voru á
aðalfundinum má nefna breytingu á reglugerð um
bikarkeppni. Nú er gert ráð fyrir aðeins einum úr-
slitaleik, sem leikinn skuli til þrautar. Af öðrum
nýmæium má nefna að tvö efstu ogneðslu félög í
hverri deild skuli sjálfkrafa færast milli deilda.
Þá stjórnarkreppu sem nú er komin upp í HSÍ.
sagði Júlíus að talsverðan tfma þyrfti til að leysa, þar
sem hann treysti sér ekki til að velja einhvern og ein-
hvem í stjórnina. Ekki hefði unnizt timi til að finna
gott fólk og því hefði verið ákveðið að fresta
þinginu i hálfan mánuð.
Rússi til Ár-
menninganna
Ármenningar ætla sér stóra hluti í handknatt-
leiknum i vetur. Ráðinn hefur verið sovézkur
þjálfari til félagsins, A.Z. Akbashev. Hann hefur
verið aðalþjálfari hins þekkta sovézka 1. deildarliðs,
Kuntzevo. Liðið hefur náð frábærum árangri undir
hans stjóm, unnið meistaraititlinn þrisvar og 7
sinnum orðið i 2. til 3. sæti. Margir af fremstu hand-
knattleiksmönnum Sovétrikjanna hafa hlotið
þjálfun hjá honum, meðal annarra Bélov, fyrirliði
landsliðsins, ásamt nokkrum unglingalandsliðs-
mönnum.
Akbashev kemur um mánaðamótin júli-ágúst og
hefst þegar handa við þjálfunina. Hann mun þjálfa
bæði eldri og yngri flokka, kvenna og karla.
Til stóð að Akbashev yrði þjálfari íslands
meistara Vikings, en þar sem Bogdan þjálfara þeirra
tókst að fá leyfi til að vera hér áfram, réðst
Akbashev til Ármcnninga.
Ármenningar hafa leikið i annarri deild karla
undanfarin ár, en ætla nú að blása nýju lífi i lið sitt
með aðstoð hins þekkta sovézka þjálfara. Sovézkur
handknattleikur er i fremstu röð i heiminum í dag og
er ekki að efa að koma Akbashevs verður islenzkum
handknattleik til framdráttar.
Kist skoraði
tvívegis fyrir
Hollendinga
Hollendingar sigruðu ilalska 1. deildarfélagið
Udinese með fjórum mörkum gegn engu i æfingaleik
um helgina. Hollendingar mæta Grikklandi siðar i
vikunni i átta landa úrslitum Evrópukeppninnar.
Hollenzki markakóngurinn Kees Kist skoraði
tvívegis í leiknum. Hin mörkin skoruðu Ari Haan og
Anton Vreijsen.
Hinn heimsþekkkti knattspyrnukappi Paolo
Rossi, sem nú er i þriggja ára keppnisbanni í kjölfar
mútuhneykslisins mikla á ítaliu, fylgdisl með
leiknum og sagði að honum loknum að Hollending-
ar hlytu að vera i hópi þeirra liða, sem ættu mesta
möguleika á að vinna Evrópumeistaratitilinn.
Róbert f rá
næstu vikur
Róbert Agnarsson, miðvörðurinn sterki úr Vík-
ingi, meiddist illa i leiknum gegn Breiðabliki i gær-
kvöld og verður ekki með næstu vikur. Gamalt brot
tók sig upp i fæti og getur hann þvi ekki beitt sér. Er
þetta tilfinnanlegt áfall fyrir Víkingana, sem hafa!
verið ákaflega ósannfærandi i sumar.
DB-myndir: Þorri.
að snúast allan leikinn. Hér hann við öllu búinn en knötturinn fór að þessu sinni í hliðarnetið.
Páll Pálmason hafði í
ISLANDSMEISTARAR
ÍBV í KENNSLUSTUND
—Valsmenn lögðu sitt af mörkum til Listahátíöar og unnu Eyjamenn 7-2
Hafi menn hallazt að því að knatt-
spyrnan í ár væri slakari en e.t.v. í
fyrra og næstu ár þar á undan er
áreiðanlegt að Valsmenn gerðu sitt
bezta til að hnekkja þeirri rikjandi
skoðun. Þeir tóku íslandsmeistara
Vestmannaeyinga i slíka kennslustund í
Laugardalnum á laugardag að víst er
að Eyjamenn fá ekki næstu árin
jafnslæma útreið. Valur sigraði með
7—2 eftir að hafa leitt 3—0 i leikhléi.
Yfirburðir Vals voru slikir að Eyja-
menn gætu vart hafa kvartað þótt 10—
0 hefði staðið á markatöflunni i leiks-
lok. Valsmenn voru þeim fremri á öll-
um sviðum knattspyrnunnar. Leik-
skipulag miklu betra, þeir voru fljótari,
tekniskari og unnu flest návigi.
Miðjumenn Vals fóru á koslum i
leiknum og ekki var veikan hlekk að
finna. Eyjamenn hins vegar léku afar
illa frá fyrstu mínútu til hinnar siðulu
og þegar þetta tvennt fór saman, Valur
í stuði og Eyjamenn ólíkir sjálfum sér,
hlaut útkoman að verða óvenjuleg.
Valsmenn gáfu
strax tóninn
Eyjamenn fengu strax á 2. minútu
forsmekkinn af því sem koma skyldi.
Guömundur Þorbjörnsson tók þá
skemmtilegan þríhyrning við Þorstein
Sigurðsson en skot hans hafnaði á
stönginni utanverðri. Sókn Vals var
þung en varla hefur nokkurn órað fyrir
því er koma skyldi. Mark hlaut þó að
koma fyrr en síðar og á 8 mín. leit það
fyrsta dagsins Ijós.
Albert Guðmundsson fékk knöttinn
rétt utan vítateigs og var ekkert að
tvínóna. Sendi knöttinn með
þrumuskoti í stöng og inn. Næstu 20
mínútur voru tíðindalitlar en síðan fóru
Valsmenn aftur i gang. Þeir fengu
aukaspyrnu rétt utan vítateigs skammt -
frá hornfána. Hermann Gunnarsson
lyfti knettinum mjög laglega inn i
teiginn, þar sem Magnús Bergs var fyrir
og skallaði af feiknaafli í netið, 2—0.
Rothöggið
Á 39. mínútu kom síðan rothöggið.j
Albert gaf þá góða sendingu fyriri
markið. Matthías skallaði laglega og
boltinn var á leið í netið er einn varnar-
manna ÍBV sló knöttinn með höndun-|
um. Úr vítaspyrnunni sem dæmd var;
skoraði Guðmundur Þorbjörnsson, en:
ekki nema með herkjum. ^Minnstu
munaði að Páll Pálmason gómaði
knöttinn.
Við þetta mark var allur vindur úr
Eyjamönnum. Jón Einarss. kom í stað
Þorsteins i hálfleik og lagði hann upp
4. markið á 47. mínútu. Hann lék þá
sérdeilis liðlega á 3 varnarmenn ÍBV
áður en hann gaf fyrir markið. Þar
voru einnir 3 Valsmenn dauðafríir en
það kom i hlut hins síunga útvarps-
manns, Hermanns Gunnarssonar, að
senda knöttinn i netið við mikil
fagnaðarlæti áhorfenda. Var þetta 95.
mark Hermanns í 1. deildinni.
Algerir yfirburðir
Valsmenn fengu síðan þrjú
dauðafæri áður en þeir bættu fimmta
markinu við á 61. mínútu. Jón Einafs-
son tók á rás á miðju vallarins. Honum
var brugðið en náði að standa á fætur
og halda áfram. Sendi knöttinn síðan
út til Alberts, sem gaf gullsendingu
fyrir markiö til Matthíasar, sem
þrumaði boltanum í netið, 5—0. Þarna
sýndi Guðmundur Haraldsson dómari
frábærlega rétt viðbrögð í því að lofa
leiknum aðhaldaáfram.
Sjötta markið kom á 69. minútu.
.oert tók þá fallega hornspyrnu og
sendi knöttinn í mittishæð fyrir
markið. Þar stökk Sævar Jónsson upp
utarlega í teignum og þrumaði
boltanum í netið, 6—0. Einkar
glæsilegt mark eins og reyndar öll mörk
Vals í leiknum.
Síðbúið svar ÍBV
Eyjamenn náðu loks að svara fyrir
sig á 79. mínútu. Þá brá Gústaf
Baldvinsson sér í sóknina og sendi
knöttinn í netið af markteig, eftir
fallega sóknarlotu, 6—1. Valsmenn
voru greinilega ekki hættir og sjöunda
markið- sannkölluð perla — var eftir.
Guðmundur Erlingsson sendi knöttinn
þá óvart á Matthias, sem var úti á kanti
'rétt framan við miðju. Hann leit
snöggt upp, sá Albert óvaldaðan á
miðjunni og sendi mjög fallega
sendingu til hans. Albert tók á rás að
markinu og Páll Pálmasott á móti.Um
25 metra frá markinú lyfti Albert
knettinum fallega yfir Pál og í netið,
7—1!
Jón Einarsson einlék í gegnum
sofandi vörn ÍBV á 85. mínútu en Páll
var við honum búinn og bjargaði vel.
Síðara mark Eyjamanna kom á Ioka-
minútu leiksins og vildu margir halda
því fram að þar hefði verið um rang-
stöðu að ræða. Sigurlás, sem annars
var afar daufur í leiknum eins og
reyndar félagar hans allir, fékk þá
stungubolta í gegnum vörnina og
skoraði örugglega, 7—2.
Þar með voru mörkin upptalin í
þessum leik en marktækifæri
Valsmanna voru ótalmörg þó ekki hafi
verið minnzt á nema hluta þeirra hér.
Liðið lék allt mjög vel en þó voru
nokkrir sem báru af. Má þar nefna
Albert og Guðmund á miðjunni svo og
Hermann, sem átti stórleik. Magnús
Bergs og Sævar voru sem klettar í
vörninni og Jón var frískur í s. hálf-
leiknum. Þó þessir hafi allir leikið vel
er enginn vafi á að maður leiksins var
Albert Guðmundsson, sem átti hlut að
máli í fjórum marka Vals. Var ólíkt að
sjá til hans nú og gegn Fram fyrr í
vikunni.
. Hjá Eyjamönnum var Gústaf
Baldvinsson einna beztur en sannast
sagna léku allir Eyjamanna undir getu í
leiknum. Þeir voru alltaf „skrefinu á
eftir” eins og það er oft kallað og
komust aldrei inn í gang leiksins. Mjög
góður dómari leiksins var Guðmundur
Hsraldsson.
-SSv.
Mér tókst að fara I höggi á 3. braut í
fyrsta hringnum en var þrátt fyrir það
cinum þremur höggum á eftir fyrsta
manni þegar lokaumferðin hófst,”
sagði sigurvegarinn í Pierre Roberts
golfkeppninni úti á Nesi í gær, Hannes
Eyvindsson íslandsmeistari í fþróttinni.
Má geta þess i leiðinni að þetta er í
þriðja sinn sem hann fer holu í höggi á
golfferli sinum. „Ég held nú samt að
bn.ö hafi alveg eins verið slök spila-
mennska keppinautanna eins og góð
hjá mér, sem tryggi mér sigurinn því
skorið var engan veginn gott hjá
neinum af efstu mönnunum. Ég er að
er hann sigraði í Pierre Robert golf mc
sjálfsögðu langt i frá ánægður með
minn eigin áranguren ég hef ekki æft
mikið að undanförnu, fór t.d. aðeins
tvisvar upp á völl í sl. viku. Þá er ég
farinn að finna fyrir því núna að fólk
bókstaflega ætlast til þess að ég sigri í
þessum mótum. Það er því talsverð
pressa á mér og það er nokkuð sem
ekki hefur háð mér mikið áður. Einnig
virðist ég vera farinn að láta alls kyns
smáatriði fara í taugarnar á mér og það
er ekki nógu gott.” Þó svo að Hannes
Ihafi ekki verið ánægður með sjálfan sig
í þessu móti tókst honum engu að síður
að bera sigur úr býtum og bæta þar
Ali óhræddur
við Holmes
— hyggst endurvinna titilinn í f jórða sinn
Muhammed Ali, fyrrum heimsmeist-
ari i þungavigt í hnefaleikum, lýsti því
yfir um helgina að hann hefði enn í
hyggju að mæta heimsmeistaranum
Larry Holmes í hringnum. Eins og DB
hefur áður greint frá hefur Ali talsvert
verið i fréttum að undanförnu erlendis
þar sem því hefur verið haldið fram að
hann hafi orðið fyrir heilaskemmdum
og frekari barátta hans í hringnum gæti
reynzt honum hættuleg. Ali lætur slíkt
hins vegar ekkert á sig fá.
Á blaðamannafundi um helgina í
Harvard háskóla sagði Ali: „Ég ætla
að mæta Larry Holmes. Umboðsmenn
mínir eru að undirbúa einn leik á undan
keppninni við Holmes. Þessir tveir
leikir þýða 20 milljón dollara pakka
fyrir mig.”
Umboðsmaðurinn Don King sagði i
New York á laugardag að verið væri að
undirbúa keppni við Bernardo
Mercado frá Kólumbíu en hann er
Ægismenn
í efsta sæti
íslandsmeistaramótið í sundknattleik
hófst í Laugardalslauginni á föstudag
og sigraði KR þá Ægi 10—8 eftir að
Ægismenn höfðu leitt lengst af. KR-
ingum gekk illa að ráða við Axel
Alfreðsson, sem skoraði 7 af mörkum,
Ægismanna. Ægisliðið leikur aftarlega
og freistar þess að ná upp skyndisókn-
um með Axel Alfreðsson I broddi fylk-
ingar. Þá hafa Ægiringar þá Sigurð
Ólafsson og Bjarna Björnsson i sínum
röðum og munar um minna.
í gærkvöld voru siðan tveir leikir.
Ármann sigraði KR I hörkuleik 7—6.
Fyrsta lotan endaði jöfn 2—2, aðra
unnu Ármenningar 3—2, þriðju 2—0
en KR vann þá siðustu 2—0. Þá sigraði
Ægir Sundfélag Hafnarfjarðar 9—6 í
gærkvöld. Hafnfirðingarnir eru að
koma sér upp liði og eru á stöðugri
uppleið.
Næsti leikur I mótinu verður annað
kvöld kl. 21.30 og leika þá Ármann og
Sundfélag Hafnarfjarðar.
Fjórða mark Valsmanna. Hermann Gunnarsson, sem skki sést á myndinni, hefur sent
knöttinn I netið og Páll hvergi sjáanlegur.
Fimmta markið staðreynd. Matthias, sem sést ekki heldur á þessari mynd, hefur sent
knöttinn i netið með miklu þrumuskoti.
efstur á lista yfir áskorendur hjá
Alþjóðlega hnefaleikasambandinu
(WBC).
„Barátta mín til að endurheimta titil-
inn verður mesti viðburður í sögu
iþróttakeppni," sagði Ali.
„Ég vil verða eini maðurinn til að
setja met sem ekki er hægt að slá og
það er að endurvinna titilinn í fjórða
sinn."
Aðspurður um líkamlegt ástand
sagðist Ali hafi létzt um 10 kg eftir átta
vikna æfingar. Hann hefði hrapað úr
125 kgniðuri 115kg.
Muhammed Ali hyggst mæta Holmes í
sumar þrátt fyrir aðvaranir sérfræð-
inga.
Staðaní
1. deild
Staðan er nú þannig í I. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu eftir leiki
helgarinnar:
Valur — ÍBV
FH — KR 1—2
Vikingur — Breiðablik 1—2
Valur
Fram
Keflavík
Breiðablik
Víkingur
Akranes
KR
ÍBV
FH
Þróttur
Markahæstu menn eru:
Matthías Hallgrimsson, Val
Ingólfur Ingólfsson, Brbliki
Sigurður Grétarsson, Brhliki
PéturOrmslev, Fram
Ólafur Danivalsson, Val
Magnús Bergs, Val
Sævar Jónson, Val
Albert Guðmundsson, Val
Sigurður Halldórsson, Akranesi
Steinar Jóhannsson, Keflavik
Heimir Bergsson, FH
MagnúsTeitsson, FH
með nokkrum stigum í safn sitt til
landsliðs.
Sveinn Sigurbergsson hafnaði í 2.
sæti í gær, varð höggi á eftir Hannesi
og lék á 152 höggum. Það gerði
reyndar Óskar Sæmundsson einnig en
hann tapaði í bráðabana fyrir Sveini í
baráttunni um 2. sætið. Keppnin var
mjög hörð og minnstu munaði að
landsliðseinvaldurinn, Kjartan L. Páls-
son, fengi sjálfur stig til landsliðs.
Hann varð i 11. sæti en með því að
tryggja sér 10. sætið hefði hann nælt
sér í stig og komið til álita við val lands-
liðsins. Til þess kom þó ekki og víst er
að sá „gamli” hefur ekki syrgt það að
losna við að velja sjálfan sig í lands-
liðið.
Keppt var í mörgum flokkum á
mótinu, sem hófst á föstudag og voru
verðlaun að vanda glæsileg. í unglinga-
flokki voru þvi miður aðeins þrír kepp-
endur og vakti það nokkra athygli en í
drengjaflokki voru keppendur hins
vegar fjölmargir og mikil keppni.
Úrslitin urðu þessi.
Meistaraflokkur (forgj. undir 7).
Hannes Eyvindsson, GR 151
Sveinn Sigurbergsson, GK 152
Óskar Sæmundsson, GK 152
Gylfi Kristinsson, GS 153
Geir Svansson, GR 153
Sigurður Hafsteinsson, GR 154
Hilmar Björgvinsson, GS 155
Loftur Ólafsson, NK 155
Björgvin Þorsteinsson, GA 155
Ólaur Skúlason, GR 158
Meistaraflokkur (forgj. 7—231.
Tómas Holton, NK 75
Ólafur Skúlason, GR 76
Ólafur Á. Þorsteinsson, GK 78
Jón Ögmundsson, NK 79
Sigurður Ág. Jensson, GR 79
Hilmar Steingrímsson, NK 79
Jóhann Benediktsson, GS 79
Meistarafl. 7—23 með forgj.
Jón Ögmundsson, NK 63 nettó
Sigurður Ág. Jensson, GR 64 nettó
Ingólfur Isebarn, GR 67 nettó
Þóri Sæmundsson, GR 67 nettó
Kvennaflokkur
Jakobína Guðlaugsdóttir, GV 85
Kristín Þorvaldsdóttir, GK 87
Guðfinna Sigurþórsdóttir, GS 87
Sjöfn Guðjónsdóttir, GV 88
Steinunn Sæmundsdóttir, GR 90
Hannes Eyvindsson selur hér niður siðasla púttið i keppninni í gær.
-DB-mynd SSv.
Ásgerður Sverrisdóttir, GR 90
Sigrún Ragnarsdóttir, GR 91
Lóa Sigurbjömsdóttir, GK 96
i Kvennafl. mefl forgjöf
Guðfinna Sigurþórsdóttir, GS 69 nettó
Sjöfn Guðjónsdóttir, GV 70nettó
Steinunn Sæmundsdóttir, GR 72 nettó
Drengjaflokkur
Helgi Ólafsson, GR 75
Héðinn Sigurðsson, GK 77
Jón Örn Sigurðsson, GR 77
ívar Hauksson, GR
Gísli Sigurbergsson, GK
Úlfar Jónsson, GK
Karl Ó. Karlsson, GR
Guðmundur Arason, GR
Hörður Arnarson, GOS
Ásgeir Guðbjartsson, GK
Unglingaflokkur
Frans P. Sigurðsson,
Kristján Hauksson
Ólafur Oddsson
B0RG REYNDIST
ENN ÓSIGRANDI
sigraði á opna f ranska meistaramótinu í f immta sinn
íröðmeðyfirburðum
Björn Borg frá Sviþjóð sigraði
Bandaríkjamanninn Vitas Gerualitis
með yfirburðum í úrslitaleik opna
franska meistaramótsins i tennis um
Bjöm Borg var enn sterkastur allra.
helgina. Björn sigraði i öllum lotunum
þremur, 6—4,6—1 og 6—2.
Hinir miklu yfirburðir Svíans ollu
hinum 18.000 áhorfendum von-
brigðum. Þeir höfðu vonazt eflir lengri
leik og jafnari. Sigur Borgs kom i veg
fyrir að Bandaríkjamenn ynnu alla
titlana á mótinu þar sem þeir unnu öll
önnur verðlaun á mótinu en í einliða-
leik karla.
Chris Evert-Lloyd sigraði í kvenna-
flokkinum í fjórða sinn. Victor Amaya
og Hank Pfister sigruðu i tviliðaleik
karla, Kathy Jordan og Anne Smith
sigruðu í tvíliðaleik kvenna. Anne
Snith sigraði einnig i tvenndar-
keppninni ásamt Billy Martin.
Þetta var stór stund fyrir Borg eins
og hann sjálfur sagði: „Það var mjög
þýðingarmikið fyrir mig að vinna
þennan sigur vegna þess að enginn
hefur áður sigrað fimm sinnum í þessu
móti.”
Þetta var næstþýðingarmesti sigur
Borgs næsl á eftir Wimbledon sigrinum
í fyrra. Þá setti hann mel með því að
sigra fjórum sinnum i röð á þessu
sterkasta tennismóti heimsins.
H0LA í HÖGGIHIÁ HANNESI!