Dagblaðið - 09.06.1980, Side 22
26
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR9. JÚNÍ 1980
Fleirfl ,
FOLK
fleira ,
FOLK
Leikajass íhverri viku
„Áhugi fyrir jasstónlisl er
vaxandi hér á landi, á þvi er ekki vafi.
Sérstaklega sýnist mér ungt fólk hafa
tckið vift sér," sagði Guðmundur
Ingólfsson píanóleikari og einn helzti
framlínumaður islenzkra jassista.
Guðmundur og félagar leika jass i
hverri viku i Stúdentakjallaranum á
sunnudagskvöldum og i Djúpinu á
fimmtudagskvöldum. Auk þess hafa
þeir spilað nokkrum sinnum jass á
Borginni við góðar undirtektir
undanfarið — og víðar. Sjónvarpið
sýndi fyrir skömmu þátt með tónlist
Guðmundar og félaga. En hvað með
hljómplötu?
,,Jú, það hefur komið til tals,
hvað sem úr verður. Forráðamenn
Djúpsins eru með hugmyndir um að
taka upp á nokkrum jasskvöldum i
Djúpinu, velja úr nokkur lög og gefa
út á plötu. Efnið gæti orðið
frumsamiðaðhlutatil.”
Eigendur Hornsins (og Djúpsins)
sóttu fyrir nokkru um vínveitinga-
leyfi. Enn hefur það ekki fengizt i
gegnum „kerfið”.
„Margir gestir á jasskvöldum i
Djúpinu eru langeygir eftir
vinveitingaleyfinu. Það myndi skapa
aðra og betri stemmningu ef menn
ættu kost á léttum vinum.”
-ARH.
Gunnar Þórðarson: Nœsta verk-
efni? Á ég ekki bara að gera Dag-
blaðspiötu?
DB-mynd: Árni Páll.
Iþróttafréttamenn Dagblaösins og Moggans
gefa út tímaritiö SPORT:
Lélegt Iþrótta-
blað er kveikjan
Guðmundur við hijóðfœrið: Forráðamenn Djúpsins gæia við hugmyndir um að taka upp lög á jasskvökfunum og
gefa út á plötu. DB-mynd: Ragnar
Guðmundur Ingólfs og félagar hafa nóg að starfa:
Sportblaðið, sem einu sinni kom út
og lognaði svo út, af, væni,” sagði
blaðaútgefandinn áminnandi. „Þetta
er annað blað og aðrir útgefendur.”
Hinn aðalútgefandinn er líka
íþróttafréttaritari, Guðmundur
Guðjónsson á Morgunblaðinu.
„íþróttablaðið er eiginlega
kveikjan að þessu. Það blað þykir
okkur og mörgum fleiri afspyrnu
slappt rit og ekki í takt við tímann.
Reyndar verður ekki annað séð en að
auglýsingar ráði mestu um innihald
íþróttablaðsins. Við viljum gefa úl
blað með breiðara efnissvið, sam-
bland af íþrótta- og útilifsblaði.
tGönguferðir, hestamennska, sigl-
ingar, fjallaklifur og margt fleira
þess háttar er efni sem við látum
okkur varða. Auk þess skrifum við
auðvitað um „hefðbundnar" íþrólta-
greinar, fótbolta, handbolta, frjálsar
iþróttir, veiðiskap o.s.frv.”
Fyrsta tölublað af SPORT er
eingöngu selt í lausasölu. Næsta blað
er þegar komið í vinnslu og að öllum
líkindum verður bráðlega tekið við
áskriftum að ritinu. Útgáfan er
alfarið áhugamannaverk og auka-
vinna félaganna.
Siggi Sverris atast í fleiru en að
þeytast milli iþróttakappleikja og
lýsa þeim fyrir lesendum Dagblaðsins
— og nú að gefa út SPORT. Hann er
sjúklegur aðdáandi Rauða hersins í
l.iverpool og hefur fest bæði myndir
af goðunum og félagsfána þeirra upp
á vegg nálægt ritvélinni sinni. Hann
er um þessar mundir að þýða bók um
Liverpool sem á að koma út fyrir árs-
lok. Það á að verða hugmynda- og
sagnfræðileg uppspretta fyrir
fylgifiska Liverpool hér á landi um
ókomna tíð. Og ekki veit ég hvort
satt er, en SSv fullyrðir að þessi
fiskistofn sé sá eini í islenzkri lögsögu
jsem stækkar og þroskast á sama tíma
og aðrir fiskistofnar eyðast upp hægt
ogbitandi. -ARH,
Fótbolti,
guöleysi
og
kommún-
ismi
„Víða má sjá skilti sem minna á
norrænan uppruna manna í borginni
og margar hefðir eru komnar úr
Norður-Evrópu. Þarna hefur til
dæmis verið stunduð knattspyrna í
mörg ár, kirkjusókn er minni en i
öðrum ríkjum Bandaríkjanna og
þarna er að finna fjölmennan
kommúnistaflokk, allt kunnar
staðreyndir úr þjóðfélögum Norður-
landa. . .” (Anders Hansen blm.
Moggans í grein um ferð fréttamanna
á vegum Flugleiða til Seatlle i Banda-
rikjunum).
Alvörusjúklingur
Stórslysaæfingin á Keflavíkur-
flugvelli i fyrri viku mun hafa tekist
með ágætum. Blaðið hefur þó frélt af
einum mistökum, sem urðu á Borgar-
sjúkrahúsinu i Reykjavík. Þangað
streymdu sjúkrabifreiðir og bílar frá
björgunarsveitum. Sjúklingarnir léku
hlutverk sín afar vel og þegar komið
var með þá stynjandi og kveinandi i
Borgarsjúkrahúsið voru þeir
flokkaðir niður eftir eðli
„meiðslanna.” Þá gerðist það að
komið var með mann inn og kvaðst
hann vera með verki i maganum. Var
honum komið fyrir innan um aðra,
sem „slasast” höfðu innvortis. Þar
var honum sagt að biða þangað til
unnt væri að sinna honum. Maður
þessi hélt áfram að nefna það við
hjúkrunarfólkið að sér væri verulega
illt i maganum. Var honum þá sagt
að bíða bara rólegum þangað til að
honum kæmi, þetta yrði allt að fara
eftir skipulaginu.
Heldur mun hjúkrunarfólkinu
hafa brugðið, þcgar það loksins átt-
aði sig á þvi að maðurmn var alvöru
sjúklingur og hafði ekki verið á
neinni stórslysaa'fingu. . .
(Úr Suðurnesjaiiöindum)
„Viðtökurnar hafa verið góðar,
ég trúi ekki fyrr en ég tek á að svona
blað gangi ekki,” sagði Sigurður
Sverrisson Hafnftrðingur, blaðaút-
gefandi, sportskríbent Dagblaðsins
og æstur aödáandi Liverpool þegar
FÓLK-síðan brá sér milli herbergja á
ritstjórn DB i Síðumúlanum til að ná
af honum tali.
Siggi Sverris er annar
aðalaðstandandi timaritsins SPORT
sem nýlega leit dagsins ljós í fyrsta
sinn.
„Blandaðu þessu ekki saman við
Sigurður Sverrisson (SSvJ iþróttafréttamaður og SPORT-útgefandi i riki
sinu á ritstjórn Dagblaðsins. Þama verða tH kjarnyrtar týsingar á kapp-
leikjum sem sportskribentum einum er iagið að semja L,Jói tækiaði Pál
upp úr skónum, minútu siðar var hann aftur á ferð með hörkuneglingu
rétt yfir... "o.s.frv.i.
Sonur
kolleg-
ans fékk
rósí
hnappa-
gatið
Erlendur Jónsson, einn bókmennta-
gagnrýnenda Morgunblaðsins, er ekki
þekktur fyrir varfærni í meðhöndlun
fyrstu Ijóðabóka ungra höfunda. En í
Mbl. þann 1. júni bregður svo við að
hann fer mörgum orðum og lofsamleg-
um um kornungan höfund, Þorra
Jóhannsson, sem er án efa allra góðra
gjalda verður. Hins vegar má velta fyrir
sér hvort umsögnin hefði orðið harka-
legri ef höfuridur væri ekki sonur
Jóhanns Hjálmarssonar, kollega
Erlendar í bókmenntaskrifum
Morgunblaðsins.
Þú og ég
syngja Á
Sprengi-
sandi og
Sveitin
milli
sanda
„Dansplata?— Jú, það má nefna
hana þvi nafni. Hún er þó ímeiri
rokkstíl en Ljúfa líf,” sagði Gunnar
Þórðarson tónlistarmaður er DB
innli hann frétla af nýrri plötu, sem
hann er að vinna að með dúettinum
Þú ogég.
Á þessari plötu, sem væntanleg cr
á markaðinn um mánaðamótin
júli/ágúst, verða níu lög. Gunnar
samdi sjálfur fjögur þeirra, Jóhann
Helgason tvö og Egill Eðvarðsson
eitt. Þá verða á plötunni lögin Sveitin
milli sanda eftir Magnús Blöndal
Jóhannsson og Á Sprengisandi eftir
Sigvalda Kaldalóns. Eitt laganna
hans Gunnars hefur áður komið út
á plötu. Það er lagið Starlight,
sem hljómsveitin Trúbrot flutti ásin-
um tíma. Annað lag eftir Gunnar
nefnist í útilegu. Það var einnig tekið
upp með enskum texta. Hann nefnist
It’s Shady Lady og fjallar unt
söngkonuna Shady Owens.
„Ég ætlaði að hafa Sveitina ntilli
sanda á fyrri plötunni með Þú og ég,
en hætti við það þvi að Brunaliðið
hugðist vera með það á plötunni
Útkalli,” sagði Gunnar. „Það fórst
fyrir og því notaði ég tækifærið
núna.”
Gunnar gefur nýju plötuna út
sjálfur. Hann kvaðst óviss um hvað
tæki við hjá sér þegar vinnu yrði
lokið við hana. „Á ég ekki bara að
gera Dagblaösplötu?” spurði hann
oghlóvið. -ÁT-
FÓLK