Dagblaðið - 09.06.1980, Side 35
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR9. JÚNÍ 1980
39
«
Útvarp
Sjónvarp
i
Nýir þættir í útvarpi:
Skemmtiþættir
taka við hlut-
verki sjónvarps
Þegar sumarið heldur innreið sína
með veðurblíðu og fuglasöng þykir
hæfa að nýir þættir hefji göngu sína í
útvarpi. Til að fræðast örlítið um
nýjungar, höfðum við tal af Baldri
Pálmasyni, dagskrárstjóra og
spurðum frétta úr þeim herbúðum.
Á sunnudögum verða sex nýir
þættir í sumar. Róbert Arnfinnsson
er nýhafinn lestur ísraelskra smá-
sagna eftir skáldið Efraim Kishon, en
sögur þessar eru margar bráð-
smellnar. Lestrar Róberts verða sex
til tíú. Sigmar B. Hauksson verður
með þáttinn Þetta vil ég heyra. Sig-
mar fær til sín kunna hljóðfæra-
leikara til að velja lög í þáttinn og á
sunnudag var Viðar Alfreðsson
hornleikari gestur hans. Fararheill er
annar nýr þáttur en hann er í umsjá
Birnu G. Bjarnleifsdóttur. Fjallar sá
um útivist og ferðamál. Þessir tveir
þættir verða annan hvern sunnudag
en hina dagana verður Böðvar Guð-
mundsson með þætti um ákveðin
byggðarlög. Þættirnir eru tveggja
tima langir og fjallar Böðvar um
viðkomandi byggðarlög og fær sér-
fróðan mann sér til aðstoðar i þeim
efnum. Loks má nefna að Óli H.
Þórðarson er nýbyrjaður með léttan
þátt á sunnudagskvöldum. Syrpa er
nafn hans og kennir þar margra
grasa.
Nýr unglingaþáttur
Á mánudögum og þriðjudögum er
saga lesin klukkan 17.20. Á morgun
hefst lestur nýrrar sögu Brauð og
Fjölmargir sumarþættir verða á dag-
skrá útvarps en annar dagskrárstjóra
útvarps er Baldur Pálmason.
DB-mynd Þorri.
Skemmti- og afþreyingarefni ræður ferðinni i sumar.
WKHra , irMæmm ' ' T
Ææaliwffir- íjik1 \ ''b
hunang, en stefnt er að þvi að velja
sögur við allra hæfi. Sagan er eftir
Ivan Southall, en Ingibjörg Jóns-
dóttir þýddi hana. Lesari er Hjalti
Rögnvaldsson.
Óvist er hvort Víðsjá verður einu
sinni eða tvisvar í viku hverri en sakir
mannfæðar á fréttastofu útvarpsins
gæti orðið nauðsynlegt að fella
þriðjudagsþáttinn niður.
Bjarni P. Magnússon og Ólafur
Jóhannsson verða á miðvikudags-
kvöldum með sérstakan unglingaþátt
en sá hefur ekki enn hlotið nafn.
Miðvikudagskvöldin eru sérstaklega
ætluð unglingum en á eftir þættinum
koma Misræmur i umsjá Þorvarðs
Árnasonar og Ástráðs Haraldssonat
Misræmur er tónlistarþáttur. Með
því að hafa þannig fimm stundar-
fjórðunga langt útvarpsefni á
miðvikudagskvöldum vonast út-
varpið til að geta koniið til ntóts við
ungu kynslóðina.
Styttri leikrit.
Fimmtudagsleikritin verða á
sínum stað í dagskránni en þau verða
styttri en yftr veturinn. Að sögn
Baldurs þykir hæfa að stytta leitfritin
þegar sumarið gengur í garð. Sömu
kvöld verður Sumarvaka útvarpsins
en hún er lítið annað en stytt kvöld-
vaka.
■ Til gamans má geta þess að 19.
þessa mánaðar verður leikritið
Galdra-Loftur flutt en þann dag er
aldarafmæli Jóhanns Sigurjóns-
sonar.
Föstudagar verða notaðir til
endurtekningar og verða þá m.a.
endurteknir þrír sunnudagsþættir,1
þættir Birnu og Sigmars aðra vikuna
en hina vikuna þáttur Böðvars. Þá
verða fluttir landsbyggðatþættir á
föstudögum en umsjónarmaðurinn
hefur ekki verið ákveðinn. Þættirnir
koma í stað Að vestan og Reykja-
víkurpistils og verða tveir i hverri
viku fyrir sinn landsfjórðunginn
hver.
Skemmtiþættir í
stað sjónvarps
Í júlimánuði, þegar sjónvarpið fer
i sumarfri hefja göngu sina tveir nýir
skemmtiþættir. Annar verður á laug-
ardögum og er i umsjá Sigurðar
Skúlasonar og Randvers Þorláks-
sonar. Hinn verður á flakki milli
daga, en þann þátl annast Hrafn
Pálsson og Jörundur Guðmundsson.
í vikulokin flyzt aftur um hálfa
klukkustund en lengist þess í stað um
30 minútur. Sömu stjórnendur verða
með hann og áður og verður hann
með svipuðu sniði og verið hefur að
undanförnu.
Að endingu má minnast á Vissirðu
það? sem er einkanlega ætlaður
börnum og unglingum, þótt
almennir hlustendur hafi eflaust
einnig gaman af honum. Þetta er
spurningaþáttur i léttum dúr, sem
Guðbjörg Þórisdóttir sér um.
-SA.
Ófyndnar teikni-
myndir og iþróttir
Fátt er það sem augað gladdi í
sjónvarpsdagskrá föstudagsins. Bezti
liður kvöldsins kom strax að Ioknum
fréttum er Baldvin Halldórsson,
leikari las Timann og vatnið eftir
Stein Steinarr. Ljóðið var mynd,-
skreytt og undir var leikin
frumsamin tónlist eftir Eyþór
Þorláksson, sem féll einkar vel að
Ijóðinu.
Laugardagurinn var tekinn
snemma, kveikt á tækinu hálf-fimm,
og þess beðiö aö fimleikum og
frjálsum íþróttum lyki. Bjarni
Felixson á mikið hrós skilið fyrir
fjölbreytta og góða iþróttaþætti. Að
vísu koma tímar, cinkum yfir
veturinn, þegar ekki er hægt að
skilja einokun ákveðinna íþrótta-
greina á þættinum. Sérstaklega á
þetta viö um skiðaíþróttina, en
aldrei fæ ég skilið hvers vegna
nauðsynlegt er að sýna hvern einn og
einasta af 30 beztu sklðamönnum
hvers móts. Og til að kóróna allt
saman eru sýndar báðar ferðir
keppendanna.
Nú Tara í hönd dimmir og langir
mánuðir, ensku knattspymunni lokið
og hún hefst ekki að nýju fyrr en í
lok ágúst. Það er ekki annaö að gera
en bíta á jaxlinn og vona áð tíminn
fljúgi áfram næstu vikurnar. Og fyrr
en varir er þá kominn miður ágúst og
West Ham og Liverpooi komin á
Wembley til að leika um góðgerðar-
skjöldinn.
Nýi gamanmyndaflokkurinn lofar
svo sannarlega góðu. Þessir brezku
þættir, sem mikið byggja á
orðaleikjum, hafa ætið verið í miklu
uppáhaldi hjá mér og Shelley er þar
engin undantekning. Nú bíð ég
spenntur eftir viðureign letingjans og
húsráðanda.
Síðustu kosninganótt bauð
UM
HELGINA
sjónvarpið upp á ákaflega einkenni-
legt skemmticfni. Meðal þess voru
teiknimyndir Mordillo, sem á laugar-
dag hrelldu enn sjónvarpsáhorf-
endur. Ófyndnari teiknimyndir hef
ég aldrei séð, og ég get aðeins vonað
að sjónvarpið veröi bráðum
uppiskroppa með teiknimyndir þess-
ar.
I gærkvöldi var hins vegar litið um
gott efni i sjónvarpi. Þar sem ég er
ákaflega litill aðdáandi einsöngslaga
og aría skrúfaði ég niður i talinu er
Tónstofan hófst. En þegar ég ætlaði
þess i stað að hlusta á útvarpið varð
ég fyrir sárum vonbrigðum. Þar var
verið að leika létta tónlist og sá
sinfóniuhljómsveit norska útvarpsins
um leikinn. Þar á eftir fylgdi pistill
Hauks ísleifssonar um hemám íslands
og heimsstyrjaldarárin. Fróðlegur og
góðurþáttur.
-SA.
Kurt Vonnegut er höfundur nýju kvöldsögunnar.
KVÖLDSAGAN - útvarp kl. 21,45:
Ævintýrasaga sem
gerizt í nútímanum
Fyrsti lestur sögunnar, Fuglafit,
eftir Kurt Vonnegut, er i útvari i kvöld
en Hlynur Árnason þýddi söguna. Les-
ari er Anna Guðmundsdóttir. Sagan er
er ævintýrasaga sem gerist í
nútímanum og fjallar um fjölskyldu og
tilveru hennar. Ekki verður þó gerð
tilraun til að* fara nánar út í efni
sögunnar því Vonnegut er erfiður
höfundur og flókinn.
Á ensku heitir bókin „Cat’s cradle”
og er talin til visindaskáldsaga þar
ytra. Kurt Vonnegut er þekktur
höfundur en hans kunnasta bók er
sennilega Slaugterhouse five, sem sýnd
var hér um árið í einu kvikmyndahúsa
borgarinnar.
-SA.
LÖG UNGA FÓLKSINS - útvarp kl. 20,40:
Nýr umsjónarmaður
tekinn við
„Mér likar starfið bara ágætlega,”
sagði Hildur Eiríksdóttir, en hún er
nýtekin við umsjón þáttarins Lög unga
fólksins. ,,Ég var ekki ráðin upp á
neinn ákveðinn starfstíma, en mér
finnst að maður megi ekki vera of lengi
í svona starfi.”
„Þátturinn finnst mér vera
fjölbreyttur, öll nýjustu lögin eru leikin
i honum og ég hef ekki i hyggju að
breyta honum neitt. I síðustu viku
bárust 80 bréf til þáttarins en ég get
ekki leikið öll lögin sem beðið er um.
Nei, ég held ekki að krakkar skrifi neitt
verr en fullorðnir, það þarf aðeins að
lesa bréfin vandlega yfir áðuren haldið
er i upptöku.”
Hildur sagði að Billy Joel væri lang-
vinsælastur nú en næstir kæmu Johnny
Logan og Áhöfnin á Halastjörnunni.
-SA.
þættinum
Billy Joel er vinsælastur hjá ungu
kynslóðinni.
HÁRGREIÐSLUSTOFA
í fullum rekstri til sölu. Stofan er i miðborginni I rúmgóðu húsnæði, nýlega
endurbætt.
Kjörið fyrir tvo hárgreiðslusveina, sem vildu sameiningu og sjálfstæði.
Tilboð sendist auglýsingadeild Dagblaðsins fyrir 13/6 merkt „Hár-
greiðslustofa 924”.