Dagblaðið - 09.06.1980, Blaðsíða 36
Stærsti skuldunautur Rangárvallahrepps undir hamarinn:
75 millj. hreppsábyrgð
án vitundar sýslunefndar
—fjárhagsáætlun aðeins helmingi hærri — eignir „ björtustu vonar”
atvinnulífs á Hellu veðsettar upp í topp
„Sýslunefnd þarf að samþykkja
hreppsábyrgðir ef þær fara yfir viss'
mörk. Þessar tölur sem þú nefnir
koma mér mjög á óvart, ég hélt satt
að segja að þær væru miklu lægri.
Sýslunefndarfundurverður hjá okkur
í næstu viku og mun ég þá taka þetta
mál upp þar og rannsaka það,”
sagði Sigurður Óskarsson
sýslunefndarmaður í viðtali við DB er
hann var spurður um þær gífurlegu
hreppsábyrgðir sem Rangárvalla-
hreppur hefur veitt fyrirtækinu
Helluprent hf. á Hellu.
Á síðastliðnu hausti veitti
hreppsnefnd Rangárvallaýslu fyrir-
tækinu Helluprent hf. hreppsábyrgð
upp á 52,5 milljónir króna. Áður
hafði hreppurinn samþykkt 23
milljón króna hreppsábyrgð fyrir
þetta sama fyrirtæki. llla horfir nú
fyrir hreppnum, þar sem við
Helluprenti hf. blasir nauðungar-
uppboð, skv. upplýsingum, sem DB
hefuraflað sér.
Samkvæmt þeim upplýsingum er
húseign fyrirtækisins veðsett í topp
eins og sagt er — áhvílandi
veðskuldir hússins eru tæpar 100
milljónir króna. Skiptist það að mest
milli Byggðasjóðs, Iðnlánasjóðs og
Rangárvallahrepps eða rétt liðlega
tvöföld ábyrgðarupphæðin. Þá hefur
DB einnig frétt, að fjárhagsáætlun
hreppsins árið 1979 hafi verið 160
milljónir.
,,Ég ætla að kanna þetta mál og
mér ber skylda til þess,” sagði
Sigurður. „Það er ekkert launungar-
mál að miklar vonir voru bundnar
við þetta fyrirtæki í byrjun í sam-
bandi við vinnumarkaðinn. Því mið-
ur hafa þær vonir ekki staðizt.”
Þá hafði DB einnig samband við
sýslumann, en hann kvaðst ekkert
geta tjáð sig um þetta mál, þar eð
það hefði ekki borizt sýslunefnd.
Fasteignamat húss Helluprents
hf. er rúmar 80 milljónir og bruna-
bótamat 163 milljónir. Algengast er
að leyfa að veðsetja fyrir allt að
helmingi brunabótamats, í þessu
tilfelli er upphæðin nærri 2/3 hluta
matsins).
Oddviti hreppsins, sem DB hafði
ennfremur samband við út af þessu
máli sagði að fyrirtækið væri ekki
búið að nota ábyrgðina alla.
Hreppurinn veitti ekki ábyrgð nema
að hafa næga tryggingu sagði
hann. Ekki eru allir á sama máli og
oddvitinn og hefur DB fregnað að
óánægja sé á Hellu og í nágrenni með
þessa samþykkt hreppsins. Óánægja
hefur einnig verið meðal starfsmanna
fyrirtækisins og munu uppsagnir vera
mjög tíðar.
Helluprent hf. hefur nú starfað i
rúm tvö ár og að söen kunnugra eru
sterkar líkur á að það eigi eftir að
enda avi sina áður en varir og setja
hreppinn i verulegar fjárhags-
kröggur.
-ELA.
IngvarGíslason
menntamálaráöherra:
„Tel að út-
varpsráð haf i
gert form-
lega rétt”
— þegar myndin Dauði
prinsessuvartekin
útafdagskrá
„Ég hef ekki talið þetta ríkis-
sljórnarmál,” sagði lngvar Glslason
menntamálaráðherra i mórgun er DB
spurði hann álits á niðurfellingu
sjónvarpsmyndarinnar Dauði prins-
essu. „Ég hafna því að hafa nokkur
afskipti af þessu máli,” sagði
ráðherra. „Ég tel að útvarpsráð hafi
gert formlega rétt , þar sem það
hefur umsjón rneð dagskrá útvarps
og sjónvarps. Ég get því virt niður-
stöðuna.
Það er ákaflega hættulegt að yfir-
völd ráðskist með cfni í útvarpi. Sem
ráðherra tel ég að þetta komi mér
ekki við. Ég er algerlega á móti slíkri
ritskoðun ráðherra. Það verður að
treysta þeim mönnum sem hafa verið
valdir til þess að hafa umsjón með
þessum fjölmiðlum.” -JH.
Tilboð Ragnars
Arnaldstil BSRB:
Kaup-
hækkun
ílægstu
flokkum
Kauphækkun til hinna iægstlaun-
uðu innan Bandalags starfsmanna
rikis og bæja er þungamiðjan í
tilboöi, sem Ragnar Arnalds fjár-
málaráðherra mun gera BSRB á
morgun.
Kauphækkunin í tilboðinu er lítil,
örfá prósent. Auk þess felur tilboðið
í sér tillögur um vísitölukerfi. Þar er
svo kaliað „gólf” á verðbótum,
þannig að hinir lægst launuðu
hagnast. Þetta er þannig, að sett er
ákveðið tekjumark, sem verðbóta-
prósentan miðast við, og allir sem
eru undir markinu fá sömu visitölu-
hækkun.
Þetta er i fyrsta sinn í núverandi
samningum, að fjármálaráöherra
kemur með tilboð um kaupliði. Áður
hefur hann tekið undir nokkrar
kröfur un.ftlagsle réttindi og felast í
tilboðinu urba'tut a því sviði einnig.
-HH.
„Gangiþér allt íhaginn, ” sagði hafnfirzka konan við Vigdísi aðfundinum loknum ogfékk klapp á
öxlina frá frambjóðandanum í staðinn. DB-mynd: -ARH.
Troðfullt hús á stuðningsmannasamkomu Vigdísar í Hafnarfirði:
„Ágætlega frambærí-
leg og vel menntuð"
„Vigdís er ágætlega frambærileg
og vel menntuð, hefur hlýja og
aðlaðandi framkomu, á auðvelt með
að umgangast fólk af öllum stéttum.
Þess vegna er hún sigurstranglegust
frambjóðenda. Ekki vegna þess að
hún er kona heldur þrátt fvriraðhún
sé kona!” sagði Þorbjörg Samúels-
dóttir verkakona í ávarpi á stuðnings-
mannasamkomu Vigdísar Finnboga-
dóttur í veitingahúsinu Gafl-inn i
Hafnarfirði í gærkvöldi. Salarkynni
veitingahússins voru setin eins þétt
og unnt var, auk þess sem fólk stóð
hvar sem því var við komið. Kristján
Bersi Ólafsson skólameistari i Flens-
borg stjórnaði fundinum. Steingrím-
ur Gautur Kristjánsson borgar-
dómari talaði um kosningastarfið í
Hafnarfirði og Ólafur Ólafss. stýri-
maður ávarpaði samkomuna auk
Þorbjargar. Þá var flutt vönduð og
athyglisverð tónlistardagsskrá.
Sigurður Rúnar Jónsson.Jóhanna
Linnet og Ingveldur Ólafsdóttir
fluttu lög úr innlendum og erlendum
söngleikjum. Þórarinn Sigurbergsson
og Páll Eyjólfsson flutu klassíska
gítartónlist.
Vigdís Finnbogadóttir flutti ræðu
og svaraði fyrirspurnum. Einn fund-
armanna benti á að Vigdís hefði í út-
varpsviðtali tekið svo til orða: „Ef
svo óliklega vill til aðég verði kjörin.
. .” og spurði hvort ummælin sýndu
„meðfætt lítillæti frambjóðandans
eða vantrú á hagstæð úrslit í
kosningunum.”
„Svarið sýndi meðfætt lítillæti.
En nú hefur mér snúist hugur. Ég er
lOdögum eldri!” svaraði Vigdís.
-ARH.
frjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1980.
Verður
frysti-
húsunum
lokað?
— stjórn SH ræðir
máliðáfundiídag
Á fundi stjórnar Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, sem haldinn verður
í dag kl. 14, kemur m.a. til umræðu
hvort ástæða sé til að stöðva rekstur
frystihúsa um land allt, að sögn Eyjólfs
ísfelds Eyjólfssonar, forstjóra SH, i
morgun.
Erftðleikar hraðfrystiiðnaðarins
hafa aukizt mjög að undanförnu vegna
hækkunar fiskverðs, óvenjulegrar
birgðasöfnunar í frystigeymslum víða
um land og sölutregðu og verð-
lækkunar á mörkuðum erlendis eins og
DB hefur rakið að undanförnu.
Eyjólfur Ísfeld kvað enga ákveðna
tillögu um stöðvun frystihúsanna liggja
fyrir stjórnarfundinum, en málin yrðu
ræddalmennt. -GM.
12% hækkun
ríkisins voru lokaðar i morgun vegna
hækkunar áfengis og tóbaks. Eins og
siðast hækkaði varningurinn um tólf
prósent.
Vodkaflaskan hækkar því nú úr 12
þúsund krónum í 13.500. íslenzkt
brennivín kostar nú 10.000, en kostaði
áður níu þúsund. Algengustu tegundir
af viskii hækka úr 12.500 i fjórtán
þúsund.
Sígarettupakki kostaði í gær 1.015
kr„ nú 1.135. Sé tekið dæmi um tvær
vindlategundir, þá kostaði London
Docks 1490 krónur en hækkar nú í
1670. Fauna kostuðu fjórtán hundruð
og hækka upp í 1.570.
Áfengi og tóbak hækkuðu siðast 12.
marz. -ÁT-
FriðfinnurÓlafs-
son látinn
Friðfinnur Ólafsson fyrrum for-
stjóri Háskólabíós er látinn, 63 ára að
aldri. Friðfinnur lauk kandidatsprófi
frá viðskiptafræðideild Háskólans
1941 og starfaði að því loknu hjá
Viðskiptanefnd og síðar Viðskiptaráði.
Forstjóri Tjarnarbíós var hann í mörg
ár og forstjóri Háskólabíós frá 1961
þar til fyrir skömmu. Friðfinnur gegndi
margvíslegum nefndarstörfum og sat i
stjórn fjölmargra félaga. Hann átti um
skeið sæti í miðstjórn Alþýðuflokksins.
LUKKUDAGAR:"
8. júni 6321
Henson xfingagalli.
9. júní 3420
Kodak Pocket A1 myndavél.
Vinningshafar hringi
í síma 33622.
tóbaks
Útsölur Áfengis- og
TÖGGUR ?
UMBOÐIÐ
SÍMI
81530