Dagblaðið - 01.09.1980, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1980.
.15
I
fþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
nXUnt»it> ÍWorjjuublnMíi
OXTUIV
Jtlorfitmlitntiio
Bankastrœti
Fyrra mark Framara i leiknum i gter. Eftir frábæran undirbúning þeirra Guðmundar Torfasonar og Péturs Ormslev
geystist sá siðarnefndi inn i vitateiginn út við endamörk. Sendi fallegan bolta fyrir markið og þar var Guðmundur Steins-
son einn og yfirgefinn á markteig.Hann kastaði sér fram eins og fimleikakappi og skallaði firnafast i netið án þess að Páll
Pálmason, sem sýndi góða tilburði, ætti möguleika á að verja. E.t.v. má segja að Páll hefði átt að hirða fyrirgjöfina en
það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á. DB-m.vndir Einar Ólason
Fyrsta mark leiksins
1,1 .."""""''V.. 1 ■» 9' . . .111111,1111 .. i._ _ i íííi«fnnPi!^*^n^ni»i^n^""M
I
NttHOI
Bankastrœti
29680
ignasaia
Þórsarar næsta ör
uggir um 2. sætið
Þróttur og Þór gerðu jafntefli, 1-1, í
2. deildinni á Neskaupstaö á iaugardag.
Þar með má segja að Þór hafi tryggt
sæti sitt i 1. deildinni. Aðeins krafta-
verk getur komið i veg fyrir að ekki
verði tvö Akureyrarlið i fyrsta skipti í
sögunni i 1. deild.
Annars var leikurinn á laugardag alls
ekki illa leikinn og fyrri hálfleikurinn
þótti einkum ágætur. Mark Þróttar
kom á 20. mínútu og var þar Magnús
Jónsson að verki. i siðari hálfleiknum
náðu Þórsarar að jafna metin með
marki Óskars Gunnarssonar. Þar við
sat og það sem eftir lifði var leikurinn
slakur. Mest um miðjuþóf og lítið um
almennileg færi og vel skipulagðar
sóknir.
-VS
Finnar unnu
Svía ífrjálsum
Finnar unnu Svia 232—178 í frjáls-
íþróttalandskeppni sem fram fór í
Helsinki um helgina. í kvennakeppn-
inni unnu Sviar hins vegar 79—78.
HANDÍD
—aö Laugavegi 26.
Inngangur er bæöi
frá Laugavegi og
Grettisgötu.
Eins og á gamla staðnum bjóöum viö
upp á fjölbreytt úrval af tómstunda-
og föndurvörum.
Velkomin í Handíö.
Bílastæöi viö Grettisgötu.
HANDÍD
Laugavegi 26 og Grettisgötu sími 29595
Hannes rak lestina
Fæstum hefur vafalitið dottið i hug að
það kæmi i hlut Hannesar Eyvindssonar
að hirða botnsætið i afrekskeppninni
sem fram fór um helgina hjá Neskiúbbn-
um. Það gerði hann engu að siður en
botnsætið var þó alltént ekki nema það
4. Aðeins 7 þeirra 12 kylfinga er rétt áttu
tóku þátt i keppninni. Eftir fyrri daginn
hætti Hilmar Björgvinsson ogþeirÓskar
Sæmundsson og Sigurður Hafstcinsson
voru reknir úr keppni fyrir að slá vit-
lausa bolta. Vixluðu þeir boltum sinum
og er það komst upp voru þeir dæmdir úr
leik eins og reglur kveða á um. Það voru
þvi aðeins fjórir eftir er keppni hófst-
siðari daginn. Jón Haukur Guðlaugsson,
NK, sigraði á 291 höggi, Gunnlaugur
Jóhannsson, NK, varð annar á 296,
Elvar Skarphéðinsson, GV, þriðji á 297
og Hannes Eyvindsson, GR, fjórði á 298:
Sigur Sovétmanna
Sovétmenn urðu um helgina Evrópu-
meistarar unglinga í körfuknattleik er
þeir sigruðu Júgóslava i úrslitaleik
keppninnar með 83 stigum gegn 81.
Júgóslavarnir komust fljótlega 17
stigum yfir i leiknum en Rússarnir höfðu
minnkað forystu þeirra niður i 4 stig
fyrir leikhlé. Siðan skiptust liðin á um
forystu i siðari hálfleiknum og það voru
Rússar er höfðu yfir þegar flautað var.
Dömur og herrar! Morgun-, dag- og kvöldtímar.
Komið og reynið gæðin. Losnið við vöðvastreitu og fáið brúnan lit í BEL-O-SOL sólbekknum.
Opið alla daga nema sunnudaga.
Pantið tímastrax. grohe gm.J.rvrfn/a., PfaASixfA. ffim/
vatnsnudd oo/DoosstOtsn ötronam 21116