Dagblaðið - 01.09.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 01.09.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1980. 7 sagður vera ca 24 ár. eða yfir 40% ibúa undir 15 ára aldri! Það var greinilega þingkosninga- bragur á skipulagi starfs stuðnings- manna beggja frambjóðenda. Merkt var við í kjördeildum og menn sátu við simann og hringdu i alkvæðin og reyndu að fjölga í hópnum sem veðja á „þeirra mann”. Undir kvöldið var ætl- unin að hringja skipulega í þá sem áttu eftir að kjósa. Útlit var fyrir að kjör sókn yrði i meðallagi góð, en ein- hverjir spáðu því samt að hún færi upp undir 70%. Óskar Friðriksson. kosningastjóri séra Valgeirs, hefur stjórnað kosningabaráttu 8 presta áður i Reykjavík frá því 1972 og er þvi farinn að kunna sitt fag. Fimm sinnum hefur hans maður unnið. cn þrisvar sinnum þurfti hann að þola tap. Aðeins einu sinni af þessum 8 skiptum náði prestur lögmætri kosn- ingu. Það var i Laugarnesprestakalli árið 1976 og þá var 71 % kjörsókn. Séra Valgeir Ástráðsson sagðist hafa starfað vegna kosninganna i rétt- an mánuð. Hann kvaðzt hafa gengið i Óskar Friðriksson, kosningastjóri séra Valgeirs Astráðssonar, er enginn nýliði i faginu. Hann hefur stjórnað kosningabaráttu 8 annarra presta i Reykjavik, unnið fimm sinnum og tapað þrisvar. Og hann stjórnaði kosningabaráttu Péturs J. Thorsteinssonar forsetaframbjóðanda. Drulluspýjurnar gengu i allar áttir þegar keppendur tættu i gegnum þann hluta brautarinnar sem mýrlendur var. ákjósanlegasta. Keppendur á stærri mótorhjólunum óku 20 hringi i tveimur lotum I malargryfjunum. Brautin var hreint ekki auðveld yfir- ferðar, snarbrattar brekkur, hólar, hæðir, iausamöl, sandur og jafnvel drulludý. Menn urðu fyrir alls kyns skakka- föllum í akstrinum: Bensin þraut á einu hjólinu i miðri keppninni, sumir misstu stjórn á tækjum sinum og stungust á hausinn. Áhorfendur nutu þess í ríkum mæli að sjá kappana böðlazt í dýinu þar sem vatn og drulla gekk i gusum í allar áttir og gufu lagði upp af rymjandi mótor- um. Öryggiskröfur. sem keppendur verða að standast eru miklar, enda ekki vanþörf á. Hraðinn getur verið allt upp í 100 km á klst. og þar yfir. Það er ekkert grín að gera mistök á svo mikilli ferð. Enda er þessi íþrótt álitin ein sú hættulegasta og erfiðasta sem yfirleitt er stunduð. Slys eru þó sögð sjaldgæf og aldrei hafa t.d. •rðið slys á keppendum eða áhorf- endum í löggiltri motocrosskeppni hérlendis. ökumennirnir eru hinir vígaleg- ustu ásýndum í fullum keppnis- skrúða. Á höfði er hjálmur og hlífð- argleraugu. Þeir eru iklæddir brynju sem ver bak, axlir og brjóstkassa, nýrnabelti sem veitir nýrunum stuðn- ing, sérstökum buxum sem verja lend- ar, hnéhlífum, leðurhönzkum og stig- vélum. Motocross er fólgið I því að aka ákveðinn fjölda hringja á lokaðri keppnisbraut sem engu tæki er fær nema þessum sérsmíðuðu keppnis- hjólum. Alltaf er keppt í malargryfj- um eða á öðrum stöðum þar sem alls engin hætta er á að gróður skemmist. Göngum ávallt vinstra megln á mótl akandl umferð.. ass1"1" Keppnin í gær gaf stig i keppni mótorhjólamanna um íslandsmeist- aratitil í greininni. Fyrir keppnina hafði Oddur Vífilsson forystu með 63 stig. Þorvarður Björgúlfsson var með 55 stig, Heimir Barðason með 50 stig og Lárus Guðmundsson með 50 stig. Með sigri sínum í gær bætir Oddur enn stöðu sína og sér hilla undir meistaratitil í ár. -ARH. hús og rætt við fólk. Timi vannst þó ekki til að heimsækja alveg öll hús i hverfinu. Steinn Lárusson og Stefán Stefáns- son. kosningastjórar séra Úlfars. sögðu að þau hjón, Freyja Jóhanns- dóttir og séra Úlfar. hefðu gengið í öll hús í hverfinu undanfarnar vikur. Beint samband frambjóðenda við kjós endur væri alltaf bezta leiðin. Margir viðmælendur blaðsins á kosningaskrifstofunum létu i Ijós óánægju með þá skipan mála að al kvæði verði ekki talin fyrr en á fimmtudagsmorgun. Lög þar að lút- andi eru frá 1915. Sömuleiðis að engin utankjörstaðaatkvæðagreiðsla tiðkist Séra Valgeir Ástráðsson, t.h., fylgist með kosningastarfinu. Við hlið hans situr faðir hans, Ástráður Sigursteindórsson skólastjóri. Aðra á myndinni kunnum við þvi miður ekki að nafngreina. Það var óspart slegið á létta strengi á kosningaskrifstofunum og afslappað and- rúmsloft rikti. Hér eru frá vinstri: Guðrún Guðmundsdóttir (systir séra Úlfars), Freyja Jóhanns- dóttir (eiginkona séra Úlfars), Ásta Arnardóttir (dóttir Guðrúnar) og Stefán Stef- ánsson kosningastjóri. Séra Úlfar var ekki á staðnum þegar DB-menn komu á staðinn. við prestkosningar. Þar með séu margir í raun sviptir kosningarétti. Kærur vegna kjörskrár voru óvenju margar i Seljasókn eða á þriðja Itundr að. Þá má geta þess að sjómaður einn sem búsettur er i hverfinu hringdi á ritstjórn í gærkvöldi og gagnrýndi harðlega hvernig að málum væri staðið í kosningununt. Hann sagðist vera í hópi 60—70 manna sem reynd ust ekki vera á kjörskrá og ekki hafa haft tækifæri til að ganga úr skugga um það í tæka tið og kæra það fyrir 25. ágúst. Yfirkjörstjórn starfaði ekki i gær og því þurfti maðurinn að sitja heima á kjördag gegn vilja sinum. „Ég mun kanna þetta mál á morgun. Ég ætla ekki að láta biskupsskrifstofuna svipta ntig atkvæðisréttinum," sagði sjómaðurinn. •ARII. Finnsk glerlist er falleg gjöf littala listmunir veita þeim ánægju sem eignast þá og njóta. Heimsfrægir listamenn eins og Wirkala, Sarpa- neva, Vennola o.fl. starfa stöðugt að nýjungum hjá littala. í gler- og gjafavörudeild verslunar okkar vió Smiðjustíg gefst ykkur kostur á að velja fyrir ykkur og aðra. Meðal annars ARKIPE- LAGO seríuna eftir Sar- paneva. En hún er algjör nýjung í glerhönnun. OO KRISTJÁn SIGGEIRSSOn HF. LAUGAVEG113, SMIÐJUSTÍG 6, SÍMI 25870 argus SYNING 30. ágúst til 14.september. Opnunartími: Virka daga kl. 9—18.Fimmtudagskvöld til kl. 22.Laugardaga kl. 9—17.Sunnudaga kl. 13—18

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.