Dagblaðið - 07.10.1980, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1980.
Veðrið
Spáð er allhvassri norðaustan átt
um allt land. Égl verða á Norðurlandi
en bjart sunnan og suðaustan lands.
Kalt verður áfram.
Kiukkan sex í morgun var norðan
4, 1 stigs hiti og lóttskýjað í Reykja-
vik, austan 8, 1 og lóttskýjað á Gufu-
skálum, noröaustan 8,1 stigs frost og
snjókoma á Galtarvita, norðvestan 5,
—1 og ól á Akureyri, norðaustan 6, 1
stigs hiti og alskýjað á Raufarhöfn,
noröan 8, 3 og úrkoma ( grennd við
Dalatanga, norðan 8, 2 og hálfskýjað
á Höfn og norðaustan 9, 2 stiga hiti
og lóttskýjað í Vestmannaeyjum.
í Þórshöfn var lóttskýjað og 7 stiga
hiti, rigning og 10 í Kaupmannahöfn
og Osló, 11 og rigning f Stokkhólmi, 7
og lóttskýjað i London, 14 og rigning í
París, 12 og rigning í Hamborg, 11 og
lóttskýjað ( Madrid, 16 og lóttskýjað í
Lissabon og 12 stiga hiti og lóttskýj-
að í Lissabon og 12 stiga hiti og lótt-
skýjað var (New York.
Andlát
SigurAur G. Steinþórsson, sem lézt 28.
september sl., var fæddur I6. júlí I925
í Ólafsvík. Foreldrar hans voru Þor-
björg Guðmundsdótlir Ijósmóðir og
Steinþór Bjarnason sjómaður.
Sigurður stundaði sjóinn dengst af ævi
sinni. Árið I953 kvæntist Sigurður
Aðalheiði Kristjánsdóttur frá Mel i
Staðarsveit. Eignuðust þau 8 börn.
Magnús Jónsson frá Barði, sem lévl 22.
september sl., var fæddur 4. janúar,
1896 á Fallandastöðum (nú Braular-
holti) í Hrútafirði. Foreldrar hans voru
Guðrún Jónsdóttir og Jón Magnússon.
Árið 1919 giftist Magnús Halldóru
Sigriði Jónsdóttur. Eignuðust þau tvö
þörn.
Ragnhildur Guðbrandsdóltir, sem lé/t
24. september sl., var fædd 4. maí 1878
i Hörgslandi á Síðu. Dvaldist hún
mestan hluta ævi sinnar í Vestur-
Skaftafellssýslu. Síðan flutti hún til
Kópavogs þar sem hún bjó til dauða-
dags. Ragnhildur tók fyrslu skóflu-
stunguna að Hjúkrunarheimili aldr-
aðra I Kópavogi.
Kristín Þorsteinsdóttir, sem lézt 26.
september' sl., var fædd 18. ágúst I889
að Stóru-Skógum í Stafholtstungum.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Þor-
steinsson og ingibjörg Kjartansdótlir í
Stóru-Skógum. Árið 1927 réðst hún til
hjónanna Halldórs Hansen yfirlæknis
og Ólafíu Þórðardóttur, þar sem hún
bjó til æviloka.
Jón Guðmundsson lézt 4. okt.
Friðgerður Friðfinnsdóltir,
Bólstaðahlið 39, lézt 5. október.
Margrét Jónasdóttir verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni á morgun kl. 13.30.
Auðunn Gunnar Guðmttndsson,
Bólstaðahlíð 44 Reykjavík, lézt 5.
október.
Margrét Jónsdóltir frá Skuld, sem lé/.t
29. september, verður jarðsungin Irá
Landakirkju á rnorgun kl. 2 e.h.
Minningarathöfn um Gísla Vagnsson
frá Mýrum i Dýrafirði, sem lézt 4.
október, verður i Fossvogskirkju á
morgun kl I0.30. .larðsell verður frá
Mýrakirkju laugard. 11. október kl. 2.
Spilakvöld
Félagsvist
á vegum kvenfélags Hallgrímskirkju verður í kvöld,
.þriöjudagskvöld, kl. 21 i félagsheimili kirkjunnar til
styrktar kirkjubyggingunni. Spilað er annan hvern
þriðjudag á sama staö og sama lima.
Spilakvöld
Fyrsta spilakvöld sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi
verður i Sjálfstæðishúsinu Hamraborg I i kvöld kl. 21
2I.
Góð kvöldvcrðlaun. 4ra kvölda keppni.
Mætum stundvislega.
*táát (4.« ”
Fundsr
Kvenfélag
Háteigskirkju
Fundur verður i Sjómannaskólanum þriðjudaginn 7.
okt. kl. 20.30. Ragnhildur Helgadóllir alþingismaður
llytur crindi seni hún nefnir Fjölskyldan i nútima
þjóðfélagi. Mætið vel og takið með ykkur nvja félaga.
Kvenfélag
Breiðholtssóknar
Fundur verður haldinn þriðjudaginn 7. október kl.
20.30 í anddyri Breiöhollsskóla. Fundarefni: Rælt um
vetrarstarfið.
JC Reykjavík.
2. félagsfundur starfsársins verður haldinn að Hótel
Loftlciðum í kvöld kl. 20 stundvislcga.
Athugiðað þetta cr kaffifundur.
GcLsur fundarins verður Sigurður Hclgason. for
stjóri Fluglciða.
Félagar. þcssi fundur verður ekki endurtekinn.
Fjölnienniðog takið mcð ykkur gesti.
StjórnmáSafundir
L. A
Félag sjálfstœðismanna
í Háaleitishverfi
Aðalfundur félagsins vcrður haldinn þriðjudaginn 7.
okt. í Valhöll Háaleitisbraut I. og hcfst hann kl.l
20.30. I
Fundarefni: I. Venjulcg aðalfundarstörf. 2. Davið
Oddsson borgarfulltrúi flytur ræðu.
Miðstjórnarfundur
Miðstjórn Alþýðubandalagsins er boðuð til fundar i
Reykjavík klukkan 5 siðdegis, föstudaginn 10.
október. Fundurinn stcndur fösludag og laugardag.
Fundarhúsnæði auglýsl siðar. Dagskrá: I. Undirbún
ingur landsfundar Alþýðubandalagsins. Framsögu ‘
maður Lúðvik Jósepsson. 2. Orku- og iðnaðarniál.
Framsögumaður Hjörleifur Guttormsson. 3. Önnur
mál.
Tilkynningar
Samkoma Gilwellskáta að
Úlfljótsvatni 11. október
Skátar sem lokiö hafa foringjaþjálfun Gilwellskólans
halda mót að Úlfljótsvatni laugardaginn 11. októbcr.
Gilwellskólinn heitir svo eftir Gilwell Park á Eng-
landi. skammt frá London en þar stofnaöi Baden
Powell til foringjaþjálfunarnámskeiða árið I9I9.
Námskcið þessi eru alþjóóleg og hafa verið samein
ingartákn skátaforingja um heim allan. Fyrsta alþjóð
lega foringjanámskeið íslenzka Gilwcllskólans var
haldið I959 og hafa slík námskeið verið haldin
nokkuö reglulega siöan. þátttakendur hafa verið frá
Noregi og Bandarikjunum auk íslendinga.
Á Gilwellnámskeiðum eru helztu námsgreinar upp
eldisfræði. félagssálfræði og hagnýt skálafræöi ýmiss
konar. Einnig er stór þáttur námskeiðanna tjaldbúða
lif og útilif. Hafa þátttakendur verið 371 á nám
skeiðum þessum, sem hafa verið haldin að Úlfljóts-
vatni og vetrarnámskeið norðanlands.
Sú vcnja varð fljótlega til meðal þátttakenda nám .
skeiðanna að hittast árlega og rifja upp gömul kynni
og bera saman fræði sin. Hcfur sá siður einnig verið i
heiðri hafður hér á landi og verður samkoman að Úlf-
Ijótsvatni 11. október og hefst kl. I8.30siðdegis. Þátt
tökugjald er 1500 kr. fyrir kaffiveitingar og minjagrip.
Stjórnandi verður Björgvin Magnússon.
Kvenfélag
Óháða safnaðarins
Kirkjudagurinn verður sunnudaginn I2. október.
‘Laugardaginn 4. október verður fundur i Kirkjubæ kl.
I5. Fjölmennið.
Félag Framsóknarkvenna
Flóamarkaöur verður laugardaginn II. okt. nk. að
Rauðarárstig 18 (kaffitcríu) kl. 3.
Munum veitt móttaka á skrifstofu félagsins laugar
daginn 4. okt. og fimmtudaginn 9. okt. frá kl. I4.00
báða dagana.
Nefndin.
I
GÆRKVÖLDI
Átti Guð einhverra kosta
völ við sköpun heimsins?
Það er ekki ofl sem stjórn útsend-
ingar sjónvarpsfrétta misferst i hönd-
um Maríönnu Friðjónsdóttur. Tvær
vandræðalegar þagnir i gærkvöldi
hljóta þó að skrifast á hennar reikn-
ing. Slikar þagnir eins og urðu milli
fréttakynningar og sjálfra Iréttanna
og siðar í frétt um jarðstöðina
Skyggni eru ótrúlega vandræðalegar,
þegar vitað er að minnsta kosti hálf
þjóðin situr og gónir á skjáinn. Þagn-
irnar setja áhorfendur ,,úr stuði”
ekki siður en geta má sér til um
starfsfólkið sem að útsendingum
stendur.
Annars veltir maður því fyrir sér
þegar horft er á sjónvarpsfréttir,
hvort svo gífurlegur skortur sé á
kvikmyndatökum fréttakvikmynda í
Reykjavik, eða hvort fréttastofu-
mönnum hefur ekki enn skilizt það
hlutverk sjónvarpsfréttastofu að það
er kvikmynd frá atburðum sem sýna
á i sjónvarpi en ekki mynd af frétla-
þul að þylja fréttir né heldur nokk-
urra ára gömul „kyrrmynd" grafin
upp úr safnskúffu. Ólíkt virðist t.d.
kvikmyndatökumaður sjónvarpsins á
Akureyri virkari fréttamyndamaður
en sá eða þeir sem í aðalstöðvunum
starfa. En þetta er aðeins einn af
þeim göllum íslenzka sjónvarpsins
sem koma manni til að velta fyrir sér,
hvað allt starfsfólkið i aðalstöðvun-
um er að gera allan daginn. Þess sjást
ofl grátlega litil merki jafnvel vikuni
saman.
Þegar að íþróttaþæltinum kom
skýrðist þó liklega nokkurra daga
starf eins kvikmyndatökumanns.
Þáttur Jóns B. Stefánssonar var sér-
staklega liflegur — einn sá bezti sem
hann hefur gert. Langfróðlegast var
að sjá tækjakost og hina miklu virkni
iþróttahúss Garðabæjar. Það er
aðstaða eins og þar er sem ræður úr-
slitum um það hvenær borg eða bær
verður eftirsóknarverður dvalar-
staður fólks. Ef svona aðstöðu væri
komið upp víðar, jafnvel i smábæj-
unum út um land, þar sem fólk er að
sligasl af vinnuálagi og kafna í liski,
myndu konur og karlar, ungir sem
gamlir, una sér betur en nú fréttist af.
Og svo kom rúsinan í pylsuendan-
um; útskýring á afstæðiskenningu
Einsteins. Þetta var að sjálfsögðu
stórfróðlegur fræðsluþáttur. En
hann kom nú ekki til manns á bezta
tíma. Að horfa á svona þátt á 15.,
16. og 17. klukkustund eftir fóta-
ferðartíma er ekki það sem helzt
verður á kosið. En þegar sjálfur Ein-
stein sagði að dauðinn einn gæti
komið i veg fyrir skyssur manna, þá
er nú ekki nema von að svona smá-
timaskekkjur í uppsetningu dagskrár
islenzka sjónvarpsins líti dagsins ljós.
Ég skammast mín ekki fyrir að
viðurkenna að ekki skildi ég fram-
setninguna á öllunt kenningum meist-
arans. í fróðlegu inngangs-eða kynn-
ingarerindi sagði Þorsteinn Vil-
hjálmsson eðlisfræðingur lika að
nienn mvndu ekki gripa nema lítið
brot af vizkunni i einni yfirferð.
Þátturinn kristallaði vel hver vfir-
burðamaður Einstein var og hversu
langt á undan sinni samtíð hann var.
Ósjálfrátt lofar maður skaparann
fyrir að hann skuli ekki hafa verið
uppi á miðöldum og séð þetta allt
fyrir. Þá hefði hann vafalausl verið
brenndur á báli. Og hógvær voru
lokaorð þáttarins tekin úr ritum
meistarans á þá leið hvort Guð hafi
átt nokkurra kosla völ er hann
skapaði heiminn.
- A.Sl.
Útvarpsleikrit í prentaðri
útgáfu
Út er komið leikritið Heildsalinn, fulltrúinn oy kven-
maðurinn eftir Erlend Jónsson. Þaö var flutt i Ríkisút-
varpinu á siöastliönu ári. nokkuð stytt. en cr nú
prentað sem næst upphaflegri lengd. Persónur eru
þrjár: heildsali í Reykjavik og fulltrúi hans. sem eru að
koma frá laxveiöum uppi i Borgarfirði. og kona að
norðan sem er stödd á sömu slóðum og slæst i för með
þeim.
Þetta er sjötta bók F.rlends Jónssonar. en hann
hefur meöal annars sent frá sér þrjár Ijóðabækur.
Leikritið er gefið út á kostnað höfundar en Litbrá
offsetprentaði.
FARANOVEBKAFOLK
jom) Knjtiáosaon
H^BíNoyak
AnUO*kaf»«jo
Þórðof Hiaztamoo
Am< Beigmann
Qabrwt Oatcn
Tímarit MM
Tímarit Máls og menningar. 2. hefti 1980. er komið út
og er að nokkrum hluta helgaö málefnum farand-
vcrkafólks. Veigamesta greinin i þeim flokki er
Skýrsla um hreyfingu meðal farandverkafólks eftir
Jósef Kristjánsson þar sem rakin eru tildrög að stofn-
un Baráttuhóps farandverkafólks i Vestmannaeyjum i
fyrrasumar og saga hreyfingarinnar slðan. Þessum
efnisflokki tilheyra einnig tvær greinar eftir erlendar
farandverkastúlkur og viðtal við Ólafiu Þórðardóttur
i Sandgerði um verbúðalif fyrir strið, einnig Ijóð eftir
Helgu M. Novak og Kristínu Bjarnadóttur. Þá ritar
Árni Óskarsson greinina „Vinna, sofa, éta, þegja”,
sem er athugun á textagerð um sjómennsku og ver-
tiðarlíf.
Þá er löng grein i heftinu eftir Árna Bergmann sem
nefnist „Von um virðingu fyrir sjáifum mér”, þar sem
bornar eru saman skáldsögur Theódórs Friðrikssonar
og sjálfsævisaga hans, I verum. Ljóðeru i heftinu cftir
Vilborgu Dagbjartsdóttur. Véstcin Lúðviksson og
Anton Helga Jónsson, saga eftir Gabríel Garcia
Marquez i þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur og grein
eftir Jón Viðar Jónsson. Bertolt Brecht og Berliner
Ensemble. Ádrepa er eftir Bjarnfriði Leósdóttur og
bókaumsagnir eftir Pétur Gunnarsson og Silju Aðal
steinsdóttur. Fremst í heftinu eru minningarorð um
Þóru Vigfúsdóttur. ekkju Kristins E. Andréssonar.
eftir Rögnvald Finnbogason og Magnús Kjartansson.
Þetta hefti er 128 bls.. prentað i Prentsmiðjunni Odda
hf. Nokkur dráttur hefur veriö á útkomu Tímarits
Máls og menningar i ár af óviðráðanlegum ástæðum.
en tvö siðustu hefti ársins eru nú i undirbúningi sanv
hliða og stefnt er að þvi að bæði komi út fyrir áramót.
FerOafélag íslands
Miðvikudaginn 8. okt. kl. 20.30 stundvislega veröur
efnt til myndakvölds að Hótel Heklu. Rauðarárstig
I8. Grétar Eiriksson sýnir myndir frá Fjallabaksleið
syðri. Snæfellsnesi og viðar.
Allir velkomnir meðan húsrúm lcyfir. Veitingar i
hléilkr. ,2.300».
Samtök kvenna á
framabraut
halda upp á eins árs afmæli sitt i kvöld kl. 20.30 aö
Hótel Loftleiðum (Kristalsal).
Heiðursgestir verða þær Ingveldur lngólfsdóllir.
félagsmál. og Hólmfriöur Þórhallsdóttir. leiklist.
Allar konur velkomnar.
Námskeið fyrir skotveiði-
menn 1980 (rjúpnaskyttur)
Varúð og fyrirhyggja
Skotveiöifélag lslands heldur 2ja kvölda námskeiö um
meðferð skotvopna, notkun landabréfa og áttavita,
hjálp i viðlögum. öryggisútbúnaö og klæðnað i fjalla
ferðum. Námskeiðið verður að kvöldi miðvikudags 8.
og fimmtudags 9. okt. nk. i húsi Slysavarnafélags
Islands. Grandagarði I4. Námskeiðstiminn er um 3
klst. hvort kvöld. AHir áhugamenn um þessi mál eru
velkomnir.
DAGSKRÁ:
Miðvikudagur kl. 20:
Meðferð skotvopna og skotfæra á fuglaveiðum. Lcið
beinandi: Sverrir Sch. Thorsteinsson jarðfr.
Öryggisútbúnaðyr og klæðnaður. Leiðbeinandi: Óskar
Þór Karlsson erindreki.
Fimmtudagur kl. 20.
Hjálp í viðlögum. Hclztu atriði. Leiðbeinandi: Gunnar
Ingi Gunnarsson læknir.
Notkun landabréfa og áttavita. Leiðbeinandi: Thor B.
Eggertsson fulltrúi.
Námskeiðsgjald: 3.000 kr. Þátttakandi laki með
eigin skotvopn. óski hann leiðbeininga og umsagnar
um þau.
Neskirkja — Fótsnyrting
Fótsnyrting fyrir aldraða í sókninni er býrjuð. Tima
pantanir i sima I6783 á þriðjudögum milli kl. l4ogl6
eða 13855.
Hallgrímskirkjuturn
er opinn kl. 15.15—17 á sunnudögum. Aðra daga
nema mánudaga kl. 14—17.
Kópavogur
Fótsnyrting fyrir aldrað fólk í Kópavogi fer fram alla
mánudaga kl. 8.30 til I2 árdegis að Digranesvegi 12.
Pantanir teknar i sima 41888 og 42288.
Frá Mígrenisamtökunum
Skrifstofutími Migrenisamtakanna er einu sinni í viku.
kl. 17—I9á miðvikudögum.
Tónleikar
Píanótónleikar
í Norrœna húsinu
Miðvikudaginn 8. október kl. 20.30 heldur pianóleik-
arinn Anker Blyme frá Danmörku tónleika i Norræna
húsinu. Á efnisskrá verða m.a. nokkur af helztu verk-
um pianótónbókmenntanna: siðasta pianósónata
Beethovens (op. l.l 11 og úrval úr prelúdium Dcbussys.
Aðgöngumiðar að tónleikunum verða seldir við
innganginn.
MinningarspjöSd
Minningarspjöld
Kvenfélags Háteigssóknar
eru afgreidd í Bókabúð Hlíðar, Miklubraut 68, sími
22700. Hjá Guðrúnu Stangarholti 32, sími 22501.
Ingibjörgu, Drápuhlíð 38, sími 17883. Gróu, Háaleit-
isbraut 47, sími 31339 og Úra- og skartgripaverzl.
Magnúsar Ásmundssonar, Ingólfsstræti 3,slmi I7884.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
Nr. 190 — 6. október1980. gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 .-Kaup Sala Saia
1 Bandarlkjadolar 530.00 531.20 584.32
1 Sterlingspund 1270.10 1273.00* 1400.30*
1 KanadadoHar 455.65 456.65* 502.32*
100 Danskar krónur 9542^5 9563.85* 10520.24*
100 Norskar krónut 10920.00 10945.00* 12039.50*
100 Sasnskar krónur 12764.95 12793.85* 14073J4*
'100 Fkinsk mörk 14536.50 14569.40* 16026.34*
100 Fransklr frankar 12694.20 12722.90* 13995.19*
100 Ðelg. frankar 1834.90 1839.00* 2022.99*
100 Svissn. frankar 32455.60 32529.10* 35782.01*
100 Gylini 27093.65 27144.95* 29859.45*
100 V.-þýzk mörk 29444.40 29511.10* 32462.21*
100 Llrur 61.82 61.96* 68.16*
100 Austurr. Sch. 4158.50 4167.90* 4584.69*
100 Escudos 1061.10 1063.50* 1169.85*
100 Pesetar 718.90 720.50* 792.55*
100 Yen 255.51 256.09* 281.69* ‘
1 irskt pund 1103.85 1106.35* 1216.99*
1 Sérstök dráttarráttindi 696.71 698.29*
* Breyting frá slðustu skráningu. Sknsvari vegna gengisskráningar 22190.