Dagblaðið - 20.03.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981.
REUTER
Khomeini
segist
hress
Vegna stöðugra frétta um að Aya-
tollah Khomeini trúarleiðtogi í íran, sé
alvarlega sjúkur hefur hin opinbera
íranska fréttastofa PARS sent út mynd
af leiðtoganum þar sem segir að Khom-
eini sé hinn hressasti og sjálfur mót-
mælir hann fréttum um bágborið
heilsufar sitt.
Dayan
iser-
framboö
Moshe Dayan, fyrrum utanrikisráð-
herra fsraels, hefur ákveðið að bjóða
sig fram utan Verkamannaflokksins í
þingkosningunum 30. júní nk.
Þessi ákvörðun Dayans er mikið
áfall fyrir Verkamannaflokkinn, sem
talinn var eiga möguleika á að vinna
hreinan meirihluta í þingkosningunum.
Alvarlegustu átök í Póllandi síðan verkföllin hófust f fyrra:
Lögregluliði beitt gegn
pólskum bændum
Félagar í Einingu í borgunum
Torun og Grundzaiadz í Norður-
Póllandi hótuðu í morgun verkfalli
vegna atburðanna í nágrannaborg-
inni Bydgoszcz í gær, þegar lögreglan
réðst gegn 25 bændum þar og barði á
þeim.
Leiðtogi Einingar, Lech Walesa,
og öll framkvæmdanefnd Einingar,
voru væntanleg til Bydgoszcz í dag.
Talsmenn Einingar segja að íhlutun
lögreglunnar í gær sé án fordæmis
eftir að verkfallsaðgerðirnar í Pól-
landi hófust í júlí í fyrra.
Um 200 lögregiumenn réðust inn í
byggingu Kommúnistaflokksins í
Bydgoszcz og fjarlægðu bændur sem
þar hafa verið í setuverkfalli að
undanförnu til að leggja áherzlu á
kröfur sínar um að fá að stofna sjálf-
stæð verkalýðsfélög.
í yfirlýsingu frá aðalstöðvum segir
að deilan í Bydgoszcz hafi verið leidd
til lykta með sviksamlegum hætti.
Lögreglan skipaði fyrst öllum
bændunum að yfirgefa bygginguna.
Einn af leiðtogum bændanna, Jan
Rulpwski, mótmælti því að byggingin
hefði verið tekin á ólöglegan hátt en
hátalari sem hann talaði í var þá rif-
inn úr sambandi og lögregluliðið
ruddist inn. Bændurnir sungu pólska
þjóðsönginn meðan lögreglan ruddi
salinn. Bændurnir voru reknir út í
garð fyrir aftan bygginguna „Þar
vorum við barðir og hendur okkar
bundnar. Þegar okkur var ýttí áttað
hliðinu sáum- við að Rulewski lá á
jörðunni,” sagði einn bændanna.
Talsmenn Einingar segja að Rul-
ewski hafi verið fluttur á sjúkrahús
ásamt nokkrum mönnum öðrum.
Hin opinbera PAP fréttastofa Pól-
lands segir talsvert öðruvisi frá at-
burðunum og getur þess ekki að til
alvarlegra átaka hafi komið.
Pólskir verkfallsmenn mótmæla 3. október I fyrra. Átökin I gær eru þau fyrslu sem hafa orðið milli lögreglu og verk-
fallsmanna síðan verkföllin hófust I júlí I fyrra.
Michael Kennedy, 24 ára gamali sonur Roberts Kennedy, gekk I hjónaband síðast-
liðinn laugardag. Gekk hann að eiga jafnöldru sína, Vicky Gifford, sem er dóttir
þekkts fótboltakappa, Frank Gifford.
Brúðkmip hjá
Kennedyfjöl-
skyldunni
Það var að sjálfsögðu mikið um
dýrðir er' brúðkaup var haldið í
Kennedy fjölskyldunni um daginn.
Mikill mannfjöldi hafði safnazt saman
fyrir framan kirkju heilags Ignatiusar
Loyola í New York og mikil fagnaðar-
læti brutust út þegar öldungadeildar-
þingmaðurinn frá Massachusetts kom á
staðinn í „Límúsínu” ásamt dóttur
sinni, Cara. Skömmu síðar birtist fyrr-
verandi eiginkona hans, Joan. Hún
kom í leigubíl ásamt sonunum Patrick
og Ted yngri. Þetta er í fyrsta skipti
sem Edward Kennedy og Joan sjást
saman • eftir• að þau skildu, 20. janúar
síðastliðinn.
Taugaóstyrkastur allra meðan á
athöfninni stóð var sýnilega faðir
brúðarinnar. Hann ætlaði að kyssa
dóttur sína gegnum brúðarslörið áður
en hann sleppti henni til Michaels.
Ekki tókst þó betur til en svo að slörið
var næstum dottið af brúðinni.
Meðal þeirra sem viðstaddir voru
athöfnina má nefna móður
brúðgumans, Ethel. Einnig voru þau
Karólina og John, börn Johns F.
Kennedy, hins látna forseta, mætt svo
og Kennedy systurnar, Patricia
Lawford og Eunice Shriver. Af
ókunnum ástæðum mætti Jackie
Onassis hins vegar ekki, en hún hafði
þó boðað komu sína. Móðir Kennedy-
bræðranna, Rose, gat ekki heldur mætt
vegna heilsubrests.
VIAWB
! *******