Dagblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981. .1 Mannólar: Niðurbinding á sál og líkama Pönktónlist: Ekkert nema frumstætt öskur út floftið — eftir að mesta hellan erfarin úreyrunum þá komið þið til með að kunna að meta diskótónlist Magnús, Birgir og Samúel hringdu: Kæru öskuráhugamenn og aðrir heilalausir aðdáendur pönktónlistar ef hægt er að kalla pönk tónlist. Okkur hefur lengi langað til að senda þetta bréf en ekki þorað vegna hættunnar á aðkasti frá vissum aðilum. Það hefur lengi þótt flott að hlusta á pönk sem er ekkert annað en misheppnuð tilraun misheppnaðra tónlistarmanna til að draga að sér athygli. Við erum ákafir aðdáendur diskótónlistar, þar teljum við allt það bezta sem á boðstólum er um þessar mundir koma fram. Hvernig væri að hætta aðeins að hlusta á þessa öskurapa. Við erum vissir um að eftir að mesta hellan er farin úr eyrunum þá komið þið til með að kunna að meta diskótónlist sem er hin eina sanna tónlist. Bræðurnir Gibb verða ekki kenndir við pönktónlist né heldur eru þeir dæmigerðir fulltrúar diskótónlistar eins og hún er um þessar mundir. En engu að siður hefur diskóbylgján skolað þeim þangað sem þeir eru nú. — „eftir útlendum sið apar sig skoff ínið og segist dóttir sjóla” J.P. skrifar: Mannólar: Niðurbinding á sál og líkama. Síðasta afrekið hjá ráðamönnum umferðarmála er að gera gælur við að fá þingmenn til að samþykkja niðurbindingu á fólki í bifreiðum. Þetta er talið komið í lög einhvers- staðar úti í heimi og „eftir útlendum sið apar sig skoffínið og segist dóttir sjóla” segir í ljóðinu. En hvergi í heiminum mun vera Iögboðin niður- binding þar sem hámarkshraði er aðeins 70 km á klst. í flestum til- vikum og miklu lægri í þéttbýli. Þessir menn virðast ekkert hafa heyrt um það að bannað er í öðrum löndum að hafa búfé á vegunum og liggja stórsektir við. Ekki virðast þeir háu herrar heldur telja það nokkurs vert að skrá hverja bifreið sem til landsins kemur með ákveðnu númeri sem hún heldur svo þar til hún er af- skráð og margt fleira má telja, sem til bóta mætti gera en ekki er hreyft við. Mannólarnar, sem sumir kalla bíl- belti, en er algert rangnefni vegna þess að því nafni heita belti á snjó- bílum, voru á sínum tíma samþykkt að tillögu þingmanns nokkurs, sem varð fyrir slysi en talið var að það hefði orðið fyrst og fremst vegna slæmrar merkingar á hættulegum stað. Þá var og álitið að slysið hefði orðið minna ef fólkið hefði verið bundið við bílinn. Siðan þetta gerðist hefur mikið vatn runnið til sjávar og sumt meira en litið gruggugt. Nú á að gera atlögu að þessum málum á ný og skipa fólki að binda sig niður með þessum andstyggilegu ólum. Síðan verður svo, þegar í ljós kemur að þetta er svo tilgangslaust og getur í sumum tilfellum verið hættulegt, að lögbjóða fólki sem ferðast í bílum að vera með hjálm á höfði og þar næst í brynju og er hvort um sig sennilega gagnlegra en ólarnar. Ef ekið er með allt öðrum hætti en lög og reglur segja til um má liklegt telja að stundum geti ólarnar dregið úr slysum á fólki en ef ekið er á eðli- legan hátt eru þær sem betur fer gagnslausar því á þær reynir ekki, og geta þar að auki verið hættulegar. í „rally” akstri og öðrum slíkum er enginn vafi á að mannólar, hjálmar og brynjur geta verið nauðsynlegar en í venjulegum akstri ekki sem betur fer. Ef ökukennslan í ríkisfjölmiðlun- um og í hinum ríkisstyrktu blöðum á að vera í formi „rally” aksturs og teljast til íþrótta þá er þessi varúð áríðandi en ef þessir áhrifamiklu miðlar sneru hins vegar af villu síns vegar og færu að kenna hvernig á að aka bifreið þá mundu umferðarmálin smátt og smátt þokast í rétta átt. Þótt það óhapp gerðist að mannólarnar yrðu lögboðnar verða þar gerðar ótal undantekningar og frávik og það þarf að sjálfsögðu stóraukna lög- gæzlu til að fylgjast með því að lögum og reglum sé hlýtt. En það þarf ekki að spara þann kostnað því honum má jafna niður á bíleigendur og hann fer ekki inn í vísitöluna. Ótal margt fleira má segja um hin fáránlegu umferðarmál hér á landi en nú er sennilega kominn tími til að bregða plötu á fóninn. Bréfritari vill kalla bílbeltin mannólar. Spurning dagsins Hver er uppáhalds- útvarpsþátturinn þinn? Mlkael Jónsson múrari: Íþrótta- þættirnir, íþróttir eru númer eitt. Friðgerður Jónsdóttir nemi: Eg hlusta nú lítið á útvarp. Lög unga fólksins eru minn uppáhaldsútvarpsþáttur. Elisabet Rlchter húsmóðlr: Ég veit það nú eiginlega ekki. Jú, annars, Út og suður er góður þáttur og Morgunpósturinn hjá honum Páli Heiðari er líka mjög góður. Magnús Slgurðsson læknir: Ég hlusta litið á útvarp, jú, ég hlusta á Morgunpóstinn ef ég hef tækifæri til. Elin Rósa Guðmundsdóttir neml: Syrpuþættirnir hjá Þorgeiri Ástvalds- syni og Páli Þorsteinssyni á mánu- dögum og fimmtudögum. Benedikt Aðalstelnsson sjómaður: Ég hef fá tækifærí til þess að hlusta á út- varp, en ég missi ógjarnan af þættinum Á frívaktinni. Einnig hlusta ég á Morgunpóstinn ef ég get.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.