Dagblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 4
4 • DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981.
Barnabflstóll fyrir börn
upp til sex ára
Á bílasýningunni Auto ’81 kynnti
Veltir hf. nýjan barnabílstól. Stóllinn
er festur í hægra framsæti eða í aftur-
sæti þannig að bakið snúi gegnt
akstursstefnu. Stóllinn er ætlaður
börnum frá 9 mánaða aldi i upp í sex
ára. Þá kynnti Veltir einnig öryggis-
belti fyrir börn eldri en sex ára.
Af 65 börnum sem létu lífið í bif-
reiðaslysum i Svíþjóð 1973-75 létust
a.m.k. 20 vegna þess að þau
köstuðust út úr bílnum.
Afgreiðslumaður hjá Velti vissi
ekki hvort hægt væri að nota stóla
þessa í allar tegundir bíla, hann bjóst
þó við að svo væri. Stóllinn er
uppseldur hjá þeim núna en er
væntanlegur aftur og kostar hann um
1100 krónur með festingum.
-ELA.
Þannig er bílstóllinn sem Veltir
kynnti á bílasýningunni. Hann er
væntanlegur og kostar um 1100
krónur með festingum.
Gæta ber þess að vökva plöntuna vel hálfri
klukkustund fyrir umpottun.
Ef nota á leirpott, þarf hann að liggja í bleyti
drjúga stund fyrir notkun, helzt yfir nótt.
Enginn munur er á leirpotti og plastpottí að öðru
leyti en þvi að oftar þarf að vökva plöntu i
Hafsteinn skellti pottinum við borðbrúnina
þannig að plantan losnaði úr pottinum.
Þvi næst er öllu skeilt í vatnsfötu, moldin losuð
af rótunum og þær þvegnar vel.
Þegar búið er að skola moldinni af rótunum eru
skemmdar rætur (brúnar og brotnar) klipptar
burt.
Ef notaður er leirpottur, er gott að setja leir-
pottsbrot í botninn. Þar sem Hafsteinn hafði
engin slík brot við höndina, sleppti hann þeim. I
plastpotta þarf ekkert í botninn. Mold er sett í
botn pottsins þannig að gott pláss sé fyrir
ræturnar. Því næst er plantan sjálf snyrt og
ræturnar settar ofaní.
Þá er moldinni dreift yfir og gott er að greiða
með fingrunum ofan í ræturnar þannig að
moldin komist vel á milli þeirra. Plantan er vel
skorðuð og skilin eftir brún fyrir vatn.
Þegar búið er að vökva plöntuna vel og vatnið er
runnið niður er sett örlitið meiri mold. Að
lokum er plantan sett á skuggsælan stað þar til
hún fer að vaxa, en þá má hún fara aftur á sinn
gamlastað.
DB-myndir Einar Ólason.
Nú er sá tími sem huga ber að pottaplöntunum. Vafalaust kunna allir þeir
sem eiga pottaplöntur að skipta um mold og pott, en þeir sem eru að byrja
ræktunina eru kannski enn óklárir. Þess vegna leitaði Neytendasíðan á náðir
Hafsteins Hafliðasonar garðyrkjumanns og bað hann um að leiðbeina Ies-
endum DB. Hafsteinn tók mjög vel í að gera þetta fyrir okkur og við látum
myndirnar ásamt myndatextum tala. -ELA
ER PRINCE P0L0
MEGRUNARKEX?
Kona hringdi til Neytenda-
siðunnar og sagði: „Mig langar svo
að vita hvort það er rétt að Prince
Polo sé megrunarkex. Ég hef heyrt
það oftar en einu sinni, að það sé
notaður gervisykur í það og sé þess
vegna ekki mjög fitandi. Getið þið
komizt að þessu fyrir mig?
Neytendasíðan hafði samband við
heildverzlun Ásbjörns Ólafssonar
sem er innflytjandi Prince Polo. Þar
var okkur tjáð að enginn gervisykur
væri í Prince Polo, hins vegar væri
mjög lítið súkkulaði. Prince Polo
byggist að mestu upp á kexi. Hins
vegar vakti það athygli okkar, að
innihald er ekki merkt á umbúðir
Prince Polo. -ELA.
Raddir
neytenda
Ert þú búin aö skipta um
moíd á pottaplöntunum?
— nokkur góð ráð ef svo er ekki