Dagblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
ísraelskir hermenn hafa nú blandað sér i styrjöldina i Libanon, einmitt á þeim
tima þegar vopnahléi hafði verið komið ,á.
Skammvinur f riður f Líbanon:
ísraelsmenn komnir
í slaginn í Líbanon
—ísraelskar hersveitir réðust inn í Líbanon í gærkvöldi og
bardagar stóðu e“'J"—
ísraelskar hersveitir, studdar stór-
skotaliði og þyrlum, réðust á fjöl-
mörg skotmörk í suður Líbanon í
gærkvöldi og að sögn palestínsku
fréttastofunnar Wafa stóðu bardagar
enn í morgun.
Wafa sagði að hér væri um mjög
umfangsmikla árás að ræða og stæðu
harðir bardagar á milli ísraelsmanna
annars vegar og Palestínumanna og
vinstn manna í Líbanon hins vegar.
Fréttir um árásina bárust skömmu
eftir að greint hafði verið frá því að
vopnahlé hefði náðst í Beirút og
borginni Zahle í austur Líbanon en
sýrlenzkar hersveitir höfðu setið um
borgina í átta daga.
Wafa sagði að ísraelsmenn hefðu
látið tii skarar skríða á fimm stöðum
norðvestur af borginni Nabatiyeh,
sem er um fjörutíu kílómetra fyrir
norðan ísraelsku landamærin.
Talsmaður sameinaðra sveita
vinstrisinnaðra Palestínumanna
sagði að mannfali hefði orðið í liði
ísraelsmanna og flyttu þeir hina
særðu á brott í þyrlum.
Talsmaður ísraelska hersins i Tel
Aviv kvaðst ekki hafa neinar
upplýsingar um þessa árás. Banda-
rískir embættismenn í Washington
sögðust vita um einhver umsvif
ísraelska hersins en gátu ekki staðfest
fréttir um mjög umfangsmikla árás
eða harða bardaga.
Waga sagði að ísraelsk herskip og
fallbyssubátar hefðu stutt við bakið á
árásarliðinu með því að halda uppi
ðflugum sprengjuárásum á ströndina.
Palestínskar heimildir sögóu að
aðalbardagarnir virtust vera á mótum
þriggja vega í dalnum norður af Deir
Zahrani.
Þessi árás ísraelsmanna kann að
auka á þann ótta Palestínumanna og
Sýrlendinga að þeir verði að berjast á
tveimur vígstöðvum, við ísraelsmenn
í suður Líbanon og hina hægrisinn-
uðu falangista í norður Líbanon.
Sýrlendingar höfðu einmitt sakað
falangista um að vera verkfæri í
höndum ísraelsmanna í þeim átökum
sem átt hafa sér stað í Líbanon
síðustu daga.
Ekkert lát á
morðunum
Lögreglan í Atlanta í Bandaríkjun-
um fann í gær enn eitt lik af lista þeirra
25 svartra ungmenna sem myrt hafa
verið eða er saknað á síðustu tuttugu
mánuðum. '■
Þó ekki hefði fullkomlega tekizt að
greina dánarorsök Larry Rodges, 21
árs gamals pilts, þá telur lögreglan full-
víst að um enn eitt morðið hafi verið
að ræða. Rodgers var andlega vanheill
með þroska sjö ára barns.
Hann er 23. fórnarlambið sem vitað
er um í þeirri glæpaöldu sem hófst í júlí
1979. Tveggja ungmenna er enn
saknað.
Rodgers hafði verið saknað síðan 30.
marz síðastUðinn en þá sást hann fara
inn í grænan flutningabíl í norðvestur
Atlanta.
Vitni sagði lögreglunni, að bUstjór-
inn hefði verið blökkumaður á
fimmtugsaldri.
Fram undir það síðasta hafa öll
fórnarlömbin verið á aldrinum sjö tU
fimmtán ára en síðustu daga hafa
fundizt lík tveggja manna á þrítugs-
aldri. í báðum tUfeUum hafa það verið
menn mjög andlega vanþroska.
Lögreglan telur að hinar miklu
varúðarráðstafanir, og vitneskja barn-
anna um hættuna sem felst í því að vera
einn á ferð, hafi leitt til þess að
morðinginn verði nú að leita að eldri
fórnarlömbum.
Geimskutlan
áloftídag
Bandarísku geimskutlunni verður
skotið upp í dag frá Kanaveralhöfða í
Flórída ef ekkert óvænt kemur upp á
síðustu stundu. Þar með hefst ný tíu
ára áætlun Bandaríkjamanna á sviði
geimvísinda sem áætlað er að kosta
muni níu mUljarða doUara. Geimskutl-
an mun verða 54 klukkustundir og 27
minútur á lofti og lenda síðan í eyði-
mörkinni í KaUfomíu. Geimfararnir
sem stjórna skutlunni em tveir, John
Young og Robert Crippen.
Afganistan:
Engin fjölgun
íliði Rússa
Bandaríska utanríkisráðuneytið
sagði I gær að ekki væri fótur fyrir
fréttum frá Nýju Delhi og Islamabad
þess efnis að Sovétmenn hefðu fjölgað
um 20 þúsund hermenn í Uði sínu í
Afganistan.
VIÐ SKORUM Á ALLA LANDSMENN,
að taka þátt í almenningshlutafélagi
um stofnun og rekstur
stálverksmiðju á íslandi
í framhaldi af áætlunum, sem gerðar hafa verið um framleiðslu steypustyrktarjárns á íslandi, höfum við sem eigum sæti í undirbúningsnefnd Stálfélagsins h.f., ákveðið að bjóða öllum landsmönnum þátttöku í stofnun félags um verksmiðju til framleiðslu á steypu- styrktarjárni úr íslensku brotajárni.
Stofnun stálverksmiðju og framleiðsla innlends steypustyrktarjárns er verulegt hagsmunamál fyrir íslendinga, - jafnt fyrir einstaklinga, fyrirtæki og sveitarfélög. Verksmiðjan kemur til með að veita aukna atvinnu- möguleika í iðnaðí, verslun og þjónustu, jafnframt þvi sem hún mun losa sveitarfélög við brotajárn með til- tölulega jöfnu millibili.
Ekkert ný-iðnaðarfyrirtæki, einvörðungu í eigu ís- lendinga, hefur fengið nánari umfjöllun um arðsemi og rekstraröryggi, en ætla má að 3-400 manns fái atvinnutækifæri í sambandi við starfsemina. Helstu atriði varðandi stofnun stálverksmiðjunnar eru þessi:
1. Stofnkostnaður 2. Framleiðsla: 3. Markaður: 4. Söluverðmæti: 5. Starfsniannafjöldi: .. 6. Byggingartími: 7. Mestu afköst: 8. Brotajárnsþörf: 9. Virkjað afl: 10. Hlutafé: ..100 milljónir kr. . .Steypustyrktarstál. ..12700 tonn áætlað 1983 og 2.1% árleg aukning. . .40 millj. kr. 1983. . .63 fyrir utan brotajárnsvinnslu. ..18-24 mánuðir. . .24 þúsund tonn pr. ár. ..U.þ.b. 14600 tonn fyrir 12700 tonna framleiðslu. . .10 megawött. . .30 milljónir kr.
Stærð verksmiðjunnar er ekki mikil, en samt sem áður telst stofnun slíkrar verksmiðju vera stórátak sé miðað við hérlendar aðstæður. Þess vegna hefur undir- búningsnefnd Stálfélagsins h.f. talið eðlilegt að mynda almenningshlutafélag um verksmiðju, sem breytti brotajárnsrusli í nauðsynlegt byggingarefni.
Þetta hlutafjárútboð er sérstætt að því leyti, að lögð er áhersla'á tvö meginatriði: •'
1. Mistakist hlutafjárútboðið, sem er mjög stórt á islenska visu, er þess gætt,~að þeir sem þátt hafa tekið í útboðinu og lagt fram fé, geti fengið framlag sitt svo gott sem endurgreitt með fullri verðtrygg- 2. Einkaaðilar, fyrirtæki og sveitarfélög eigi meiri- hlutaaðild í fyrirtækinu, en fyrirhugað er að ríkið eignist allt að 40% hlutafjár.
Munið fundinn í Húsi iðnaðarins við Hallveigarstíg
sunnudaginn 12.apríl kl. 16.30.