Dagblaðið - 08.05.1981, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981.
31
Sjónvarp
í)
c*
Útvarp
KRISTJÁN MÁR
FRA TONLISTARHATIÐ UNGRA NORRÆNA TONUSTAR-
MANNA í KAUPMANN AHÖFN — útvarp kl. 21,10:
ísland stóð sig með sóma
rafvélaverkstæði. Simi 23621.
Skúlagötu 59,
í portinu hjá Ræsi hf.
—
IMOSKVU TEKUR ENGINN MARK A TARUM - sjénvarp kl. 22,10:
Tónlistarhátíð ungra
norrænna tónlistarmanna
var haldin í Kaupmanna-
höfn í janúar sl. ísland
hefur tekið þátt 1 hátíð þess-
ari síðan 1974, en þetta er
árviss viðburður sem hald-
inn er til skiptis á Norður-
löndunum fimm.
tsland var gestgjafi tón-
listarhátíðarinnar árið ’77,
og verður það aftur í
september 1982.
í þetta skipti voru flutt
tónverk eftir Hjálmar
Ragnarsson, Snorra Sigfús
Birgisson og Áskel Másson.
Flytjendur voru Manuela
Wiesler, flautuleikari,
Helga Þórarinsdóttir, víólu-
leikari, Ásdís Runólfsdóttir,
fiðluleikari, Guðrún Sig-
urðardóttir, sellóleikari, og
Unnur Sigurðardóttir,
fiðluleikari.
fslandi hefur vegnað
mjög vel á þessari tónlistar-
hátið, allar götur frá
fyrstu þátttöku, og bæði
flutningur og tónverk vak-
ið miklaathygli.
-FG.
Meðal þeirra sem áttu verk
á hátíðinni var Snorri Sigfús
Birgisson. Hér er hann
ásamt Manuelu Wiesler.
Sovézk óskars-verðlaunamynd
— þrjár vinkonur búa lengi að fyrstu gerð
Þrjár vinkonur búa saman í heima-
vist í Moskvu, eru ungar og ólofaðar
og eiga sína framtíðardrauma eins og
gengur. Ein er i byggingavinnu, önn-
ur — aðalsöguhetjan, Katja —
vinnur i efnaverksmiðju, en sú þriðja
vinnur í brauðgerð og er ævintýra-
manneskja, sem á sér þann draum að
ná sér í ríkan mann, eða mennta-
mann í versta falli. Vandamálið er
hvernig góma eigi slík fyrirbæri.
Tækifærið gefst og er gripið af mik-
illi innlifun.
Tíminn liður og einum fimmtán
árum siðar fáum við að sjá hvað varð
um æskudraumana. Katja býr nú ein
með óskilgetinni dóttur sinni og er
orðin forstjóri áðumefndrar efna-
verksmiðju. Segja má að brauðgerð-
armanneskjan, Ljúda hafi fengið
bakstur, en sú þriðja, Tonja hefur
spjarað sig einna bezt — hver veit
nema byggingavinnan hafi kennt
henni eitthvað um hornsteina.
Þessi mynd hlaut óskars-verðlaun
sem bezta erlenda kvikmynd ársins
1980. Leikstjóri er Vladimir Menskov
og Vera Alentova fer með aðalhlut-
verkið. Þýðinguna geröi Hallveig
Thorlacius.
-FG.
Úr myndinni t Moskvu tekur enginn
mark á tárum.
INNAN STOKKS 0G UTAN - útvarp kl. 15,00:
Vorverk, lánamál og
tónlistamám bama
Þrjú mál verða tekin fyrir í heimilis-
þættinum Innan stokks og utan sem
Kjartan Stefánsson ritstjóri og Sigur-
veig Jónsdóttir blaðamaður annast i út-
varpinu í dag kl. 15.
Nýtt fyrirkomulag lánamála í bönk-
um veröur kynnt. Húsbyggjendum hef-
ur verið gefinn kostur á að breyta
iausaskuldum í föst lán fyrir tilverknað
ríkisstjórnarinnar og mun Sigurður
Hafstein, framkvæmdastjóri Sam-
bands islenzkra sparisjóða, útskýra i
hverju þetta er fólgið og hverjir komi
til með að njóta nýja fyrirkomulagsins.
Tónlistarskólar landsins eru um þess-
ar mundir að fara í sumarfri og verður
rætt um tónlistarnám af þvi tilefni.
Spjallað verður við Stefán Edelstein,
skólastjóra Tónmenntaskóla Reykja-
víkur, aðallega um tónmennt bárna og
unglinga.
Þriðja efnið er garðrækt. Garðeig-
endur eru margir hverjir farnir að huga
að görðunum sínum og mun áhuga-
maður um garðrækt koma i heimsókn
og ræða um vorverkin. Sá er örn Ise-
barn. Hann fjallar sérstaklega um
geymsluþol matjurta.
-KMU.
Örn Isebarn, áhugamaður um garðrækt, spjallar um vorverk I görðum i þættinum
Innan stokks og utan. DB-mynd: S.
FRELSITIL AÐ VEUA
—sjönvarp kl. 21,15:
Umdeildur hagfræð-
ingur útskýrir
kenningar sínar
—margar ríkisst jómir hafa kenningar
hansað leiðarljósi
Sjónvarpið sýnir næstu þrjá föstu-
daga þætti eftir hinn umdeUda hag-
fræðing, Milton Friedman. Fjalla þeir
um þjóðfélagsmál, rikisafskipti og rétt
almennings gagnvart ríkisvaldinu. f
kvöld verða tveir þættir sýndir og
nefnast þeir Jafnbornir og Hvernig má
ráða nlðurlögum verðbólgunnar?
Milton Friedman hlaut nóbelsverð-
launin í hagfræði árið 1976. Verð-
launin fékk hann fyrir neyzlugreiningu,
sögu peningafræðinnar og kenningar
og fyrir lýsingu á óstöðugleika í efna-
hagslifinu.
Frjálshyggjumenn hafa löngum
hampað Milton Friedman enda eru
kenningar hans mjög i anda þeirra.
Hægri stjórnir í heiminum hafa einnig
margar hverjar haft kenningar Fried-
mans að leiöarljósi við stjórn efnahags-
mála. Má þar nefna Thatcher-stjórnina
í Bretlandi og stjórn Reagans Banda-
ríkjaforseta.
Jón Sigurðsson, ritstjóri Timans, er
þýðandi þáttanna.
-KMU.
Milton Friedman. Næstu þrjú föstudagskvöld útskýrir hann kenningar sínar fyrir
sjónvarpsáhorfendum.
Viö gerum við rafkerfið í bílnum þínum. 1