Dagblaðið - 01.06.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. JÚNÍ 1981.
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
8
1
REUTER
8
Iranirfávopn
frá Rússum
— segir Sadam Hussein
Ziaur Rahman forseti Bangladesh myrtur:
Uppreisnín í Bangla-
desh kæfd í fæöingu
—samningaviðræðum við uppreisnarmenn var hafnað
Sadam Hussein, forseti íraks, sagði í
blaðaviðtali sem birtist í gær að franir
fengju vopn frá Sovétríkjunum og
kæmu vopnin um Libýu og Sýrland.
„Eitt er vist,” sagði Hussein i sam-
tali við timaritið Der Spiegel, „að fran
ræður yfir vopnum frá Austur-
Evrópu.....Þessi vopn hafa komiö
til írans í gegnum Libýu og Sýrland,”
sagði hann.
Hussein sagði einnig að íranir hefðu
fengið varahluti og vopn frá Vestur-
Evrópu, þar á meðal þyrlur frá ftalíu.
Hann sagði að írak hefði unnið sigur í
styrjöldinni við íran. „Her okkar hefur
hrakið irönsku kúgunaröflin á flótta.”
Norður-írland:
Tveir menn
myrtirígær
Lögreglumaður var skotinn til bana
á Victoria sjúkrahúsinu í Belfast í gær.
Lögreglumaðurinn var á verði á gangi
sjúkrahússins er þrir menn, tveir karl-
menn og ein kona að því taliö er, gengu
á móti honum og hófu skyndilega skot-
hrið á hann. Að svo búnu hlupu þau á
brott.
Fyrr í gær lézt brezkur sprengju-
fræðingur er sprengja sprakk i bifreið
nærri landamærabænum Newry. frski
lýðveldisherinn, IRA, hefur lýst sig
bera ábyrgð á sprengingunni.
Rikisstjórn Bangladesh sagði í
morgun að uppreisn nokkurra her-
foringja, sem um helgina myrtu
Ziaur Rahman forseta landsins, hefði
verið brotin á bak aftur.
Útvarpið i Bangladesh sagði að
uppreisnarmennirnir hefðu flúið úr
borginni Chittagong í gærkvöldi. 30
þúsund dollara verðlaunum var
heitið þeim er hefði upp á hers-
höfðingjanum Manzur Áhmed, lifs
eðaliðnum.
Talsmaður stjórnarinnar sagði að
stjórnarhermennirnir hefðu náð
Chittagong á sitt vald án þess að til
bardaga hefði komið. Hann sagði að
uppreisnarmennirnir hefðu óskað
eftir samningaviðræðum i gærkvöld
en þeim heföi verið sagt að ekki væri
um neitt að semja.
Fréttum bar ekki saman inn hvert
uppreisnarmenn hefðu flúið en helzt
var talið að þeir hefðu haldið til
fjallahéraðanna við landamæri
Burma.
Uppreisnin hófst á laugardag með
þvi að Zia forseti var myrtur ásamt
nokkrum fylgdarmönnum sinum. Lik
forsetans hefur enn ekki fundizt.
Uppreisnarmenn höfðu útvarpsstöð-
ina ( Chittagong á valdi sinu um hrið
en nú ráða stuðningsmenn stjórnar-
innar yfir henni og virðist mönnum
sem uppreisnartilraun þessi hafi verið
illa undirbúin.
Beinít:
Yfirtuttugu
félluígær
A.m.k. tuttugu manns létu lífið og
150 særðust í hörðum bardögum sem
urðu á milli kristinna manna og
múhameðstrúarmanna i Beirút í
Libanonígær.
Bardagarnir i gær eru fyrstu alvar-
legu bardagarnir sem orðið hafa i borg-
inni frá því vopnahléi var komið á fyrir
hálfum mánuði. Mjög dró úr bar-
dögunum þegar leið á kvöldið.
4
Barizt i Beirút.
Bandaríkja-
menneru
mestu hryðju-
verkamennimir
Gaddafi, leiðtogi Libýu, sagði i
blaðaviðtali, sem birtist í gær, að hann
styddi ekki við bakið á hryðjuverka-
starfsemi i heiminum eins og hann
hefur margsinnis verið sakaður um.
Hann sagði að Bandarikjamenn væru
mestu hryðjuverkamenn heimsins
vegna þess að þeir framleiddu kjarn-
orkuvopn.
Gaddafi sagði að Frelsissamtök
Palestínuaraba, PLO, og írski
lýöveldisherinn, IRA, væru ekki
hryðjuverkasamtök. Hann neitaði þvi
að Libýumenn væru í þann veginn að
koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Biblían kennd í
ungverskum
skólum
í Ungverjalandi er nú litið á Bibliuna
sem eðlilegan þátt i námsefni skólanna,
en hún er kennd og lærð vegna bók-
menntalegs og söguiegs heimildargildis,
en ekki sem trúarlegt verk.
— Við reynum hvorki aö andmæla
Biblíunni né að sanna þær mótsagnir
sem í henni er að finna, við einungis
rannsökum hana — segir í vikuriti sem
menntamálaráðuneytið gefur út.
Sem dæmi um ákveðið athugunar-
efni, sem tekið hefur verið fyrir, er
sköpunarsagan. Bent er á að sköpunar-
saga 1. Mósebókar jafngildi öðrum
goðsögum um sama efni og að hún
byggi á austrænum goðsögum, en í
þróuninni til eingyðistrúar, hafi hún
tapað vissum einkennum goðsögunnar.
Erlendar
fréttir
Bflamarkaðurínn
Grettísgötu 12-18 — Sími25252
Toyota Corolla KE 30. árg. 1978.
Brúnn. Ekinn 35.000 km. Verð
68.000 kr. Fallegur bfll.
Audi 80 LS, framdrifsbill. árg. 1977.
Silfurgrár. Útvarp, segulband. Ekinn
71.000 km. Verð: 65.000 kr.
Honda Civic sjálfskiptur. árg. 1978.
Silfurgrár. Ekinn aðeins 25 þús. km.
verð kr. 65.000.
Saab 99 árg. 1978. Ekinn 38 þús. km.
Brúnn. Útvarp, sumar + vetrardekk.
Skipti möguleg. Verð 85.000. Mjög
fallegur bfll.
Dodge Aspen Special Edition árg.
1979. Brúnsanseraður m/vinyltopp. 6
cyl. m/öllu. Gullfallegur. Verð
115.000. Skipti á ódýrari bil möguleg.
möguleg.
Toyota Cressida árg. 1978. Blá-
sanseraður. Ekinn 50 þús. km. Gott
lakk. Endurryðvarinn. Verð 80.000.
Citroen CX 2000 árg. 1975. Grænn,
ekinn ca 100 þús. km. Bill I góðu lagi.
Verð 58.000. (Skipti möguleg á
ódýrari).
Land Rover dfsil árg. 1975. Hvftur,
m/vegamæli, ekinn 150 þús. km. Verð
kr. 48 þús.
Bronco árg. 1979. Rauður og hvftur, 8
cyl., m/öllu, ekinn 34 þús. km. Góð
innrétting. Fallegur bill. Verð kr. 185
þús.
Chevrolet Caprice Estate station árg.
1978. (nýinnfluttur). Blásanseraður
m/viðarklæðningu, 8 cyl., m/öllu. Ath.
7—8 manna bfll. Verð kr. 135 þús.
(Skipti á ódýrari).
Ný lúxusbifreið. Pontiac Safari Grand
LeMans árg. 1980. Blásanseraður
m/viðarklæðningu, V-6, sjálfsk. m/öllu.
Ekinn 1400 km. (Kom á götuna fyrir 3
vikum). Verð kr. 165 þús.
A.M.C. Spirit Hatshback árg. 1980.
Grásanseraður. Ekinn 15 þús. km, 4
cyl., sjálfsk., aflstýri, litað gler, ýmsir
aukahlutir, sem nýr. Vcrð kr. 130 bús.
Volvo 343, framdrifsbfll. árg. 1977.
Gulur, sjálfskiptur. Ekinn 26.000 km.
Verð 60.000 kr.
Lada Sport árg. 1979. Gulur. Ekinn
32 þús. km. Verð kr. 72 þús.
Mazda 929 L station árg. 1981.
Drapplitur, aflstýri, ekinn 9 þús. km.
Bfllinn er sem nýr. Verðtilboð.
Mikil sala
Vantar árgeröir ’80—’81
á staöinn
Willys CJ-5 árg. 1974. Rauður, 6 cyl.,
veltigrind. Verð kr. 52 þús. Ýmis
skipti möguleg. (Dýrari eða ódýrari).
Citroen G.S. Pallas árg. 1978.
Brúnsanseraður. Ekinn 32 þús. km. út-
varp + segulband. Verð kr. 65 þús.
Willys CJ-5 árg. 1977. Blár og hvitur,
ekinn 37 þús. m. Verð kr. 85 þús.
(Skipti möguleg á nýlegum fólksbfl).
Mazda 929 L árg. 1979. Brúnsans-
craður. Ekinn 32 þús. km. aflstýri.
Verð kr. 87 þús.
Honda Prelude Coupé árg. 1979.
.Rauður, sjálfskiptur, Ekinn 37 þús.
km. Stereo útvarp. Topplúga. Fallegur
sportbill. Verð kr. 100 þús.