Dagblaðið - 01.06.1981, Page 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. JÚNÍ 1981.
Veðrið
Spáð er hasgri austlngH átt um aUt
land, bjart verður á Vesturfandi en
skúrír á Suður- og Suðousturiandi.
Dálftil súld á Austfjörðum en látt-
skýjað f svaitum norðanlands.
Klukkan 8 vor austan 2, skýjað og 6
stig f Raykjavlc, auetan 3, láttskýjað
og 4 stig á Gufuskálum, suðoustan 2,
láttskýjað og 2 stig á Galtarvlta, suð-
austan 2, heiðrikt og 1 stlg á Akur-
ayri, austan 2, skýjað og 0 stlg á
Raufarhöfn, norðaustan 5, abkýjað
og 1 sdg á Dalatanga, austan 4, látt-
skýjað og 3 stlg á Hðfn og austsuð-
austan 3, skýjað og 6 stlg á Stór-
hðfða.
I Þórshðfn var skýjað og 7 stlg, Mtt-
skýjað og 16 stlg í Kaupmannahðfn,
þoka og 12 stlg f Osló, heiðrikt og 6
stlg f Stokkhólmi, alskýjað og 13 stig
f London, skýjað og 17 stig f Ham-
borg, þokumóða og 16 stlg f Paris,
Mttskýjað og 16 stlg f Madrid, skýjað
og 17 stlg f Lissabon og heiðrikt og 16
stigfNaw York.
A.JHÁ1
syni og áttu þau tvær dætur, þau slitu
samvistum árið 1937 og fluttist Sigriöur
þá til Danmerkur. Vann hún meðal
annars fyrir sér með saumaskap.
Sigríður fluttist heim árið 1979 og
dvaldist siðustu árin að mestu í Hátúni
lOb. Hún verður jarðsungin í dag, 1.
júní, kl. 15 frá Fossvogskirkju.
Þorbergur Magnússon, sem lézt 20. •
maí sl., fæddist 5. júli 1953 i Kópavogi.
Foreldrar hans voru Magnús Kristjáns-
son og Bergþóra Þorbergsdóttir.
Þorbergur ólst upp í Kópavogi og
stundaði nám þar. Hann lætur eftir sig
eina dóttur.
Slgurður Guðmundsson húsasmíða-
meistari, sem lézt 25. mai sl., fæddist
23. júní 1920 að Stokkseyri. Foreldrar
hans voru Guðmundur Sigurjónsson og
Guðríður Jónsdóttir. Ungur að árum
fór Sigurður til Vestmannaeyja og
stundaði sjóróðra, síðar varð hann
verkstjóri i fiskvinnslustöð í Eyjum.
Um fertugt fluttist hann til Reykja-
víkur og hóf þá nám í húsasmíði. Eftir
að námi lauk fór hann að vinna sjálf-
stætt. SI. sumar fluttist hann til Selfoss
og hugðist vinna viö innrömmun. Sig-
urður var kvæntur Hönnu Jóhanns-
dóttur og áttu þau tvær dætur.
Áml Pétursson, sem lézt 20. mai sl.,
fæddist 18. maí 1927 i Esjberg í Dan-
mörku. Foreldrar hans voru Ignatz
Peter Michalik og Johanne Charlotte
Michalik. Árið 1968 gerðist Arni
íslenzkur ríkisborgari og tók sér þá sitt
íslenzka nafn. Árni kom til íslands árið
1954 og réðst þá til starfa á teiknistofu
Sveins Kjarval en réö sig síðan til Karls
Jóhanns Karlssonar í Neon. Árið 1969
réðst hann til starfa hjá Landsvirkjun
sem forstöðumaður á teiknistofu og
gegndi hann því starfi til dauðadags.
Árið 1960 kvæntist Árni Lilju Huld
Sævars og áttu þau tvær dætur. Hann
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni i
Reykjavík í dag 1. júní kl. 13.30.
Sigrfður Helga Jónsdóttlr frá Villinga-
holti, sem lézt 22. maí sl., fæddist 10.
apríl 1897 aö Villingaholti í Flóa. For-
eldrar hennar voru Kristrún Helgadótt-
ir og Jón Gestsson. Árið 1918 fór
Sigríöur til Reykjavikur og stundaði
nám í Kvennaskólanum í Reykjavík.
Árið 1919 giftist hún Ágústi Guðjóns-
Sigurjóna Pálsdóttir Frimann, sem lézt
24. mai sl., fæddist 17. júní 1909. For-
eldrar hennar voru Guðlaug Þórðar-
dóttir og Páll Jónsson. Árið 1929giftist
Sigurjóna Jóhanni Frimann, bjuggu
þau lengst af á Akureyri en um 2ja
Vilmundur Gislason, sem lézt 22. mai
sl., fæddist 21. október 1899 í Kjarn-
holtum 1 Biskupstungum. Foreldrar
hans voru Gísli Guðmundsson og
Guðrún Sveinsdóttir. Árið 1925 kvænt-
ist hann Þorbjörgu Guðjónsdóttur og
tóku þau við búi í Kjarnholtum til
ársins 1934, en þá fluttust þau að Króki
í Garðahverfi. Þau hjónin áttu 4 börn.
Síðustu árin dvaldist Vilmundur á
Hrafnistu i Reykjavik.
UM
HELGINA
Vanabindandi sjónvarpsefni
Lengi taldi ég, að við værum þrjú á
landinu, sem hefðum gaman af Löðri.
Eins og aðrir minnihlutamenn fannst
mér upphefð að. Líklega sýndi þetta
yfirburði okkar þriggja, eða svo sagði
ég. Þá var öldin önnur. Þetta er breytt.
Nú hitti ég sjaldan fyrir fólk, sem ekki
segist hafa gaman af Löðri.,
Raunar er Löður ósköp ómerkilegur
þáttur frá sjónarmiði menningarinnar.
Margir segja, að fyndnin sér úr hófi
fram, hrein vitleysa. En við höfum séð
margar sápuóperurnar, þar sem reynt
hefur verið að skírskota til okkar „í al-
vöru”. Löður er auðvitað háð um
sápuóperur, ætlað fyrir bandarískan
markað en hæfir einnig vel hinum ís-
lenzka, af þvi að einnig við höfum séð
ótal margar sápur.
Auknar vinsældir Löðurs sýna,
hvernig þættir verða vanabindandi,
eins og lyf. Auðvitað er það mín
skoðun, að þetta hafi alltaf verið ágæt-
ur þáttur. En flestum mun hafa geðj-
azt illa að honum í fyrstu en síðan
farið að kynnast söguhetjunum, þegar
þeir settust að i setustofunni viku eftir
viku. Sennilega fer eins fyrir Dallas,
sem er miklu ómerkilegri en Löður og
annars ekki sambærilegur. Mér
heyrast flestir álíta, að Dallas hafi
Löður virðist eiga vaxandi lýðhylli að fagna.
verið vondur til þessa. Það er einnig
skoðun undirritaðs. En líklega fer svo,
að fleiri og fleiri ánetjast þættinum,
þegar vikurnar liða. Þeir munu koma
fram, sem hafa samúð, einnig með JR,
og sjá sjálfan sig í honum.
Ég sá ýmislegt í sjónvarpi á föstu-
dag og laugardag. Skonroki hef ég
venjulega gaman af, en það var með
lélegra móti. Stórlega vantar sætar
söngkonur í þáttinn. Ömurlegt að
horfa á þessa gaura tugum saman þátt
eftir þátt. 1 nafni karlréttinda bið ég
um breytingu. - HH
ára skeið bjuggu þau 1 Reykholti í
Borgarfirði. Sigurjóna og Jóhann áttu
3 börn. Hún verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju í dag.
Ólafur Pálmi Erlendsson lézt fimmtu-
daginn 28. maí sl.
Stefán Ásgrimsson bóndi, Stóru-Þúfu,
lézt í sjúkrahúsi Stykkishólms 27. maí
sl.
Sif Bjarnadóttir lézt að heimili sínu 28.
maí sl.
Dagbjört Jóhannesdóttlr, Kleppsvegi
68, lézt í Landspítalanum fimmtu-
daginn 28.maísl.
Hálfdán Eiriksson, fyrrverandi kaup-
maður, Vesturgötu 54a, Iézt 28. mai sl.
Ásta María Elnarsdóttir, Lyngheiði 16
Selfossi, fyrrum húsfreyja á Bjarna-
stöðum i ölfusi, lézt í Sjúkrahúsi
Selfoss 28. maísl.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Svigna-
skarði, lézt í sjúkrahúsi Akraness 28.
maí sl.
Guðbjörg Glssurardóttir, Rauðarárstig
5, verður jarðsungin frá Hallgríms-
kirkjuídag, l.júní, kl. 15.
Steinar Öskarsson vélstjóri, Langholts-
vegi 172, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 2. júní kl. 15.
Stefán Jónsson frá Brennistöðum, Sól-
vallagötu 66 Reykjavík, verður jarð-
sungin í dag kl. 16.30 frá Fossvogs-
kirkju.
Árni E. Blandon, sem lézt 22. mai sl.,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
þriðjudaginn 2. júní kl. 13.30.
Július Evert, fyrrv. kaupmaður, Kapla-
skjólsvegi 11, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 3. júní kl. 13.30.
Fumlir
AA-samtökin
í dag mánudag vcrða fundir á vegum AA-samtak-
anna scm hér scgir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010)
græna húsið kl. 14, 21 og kvennadeild uppi kl. 21.
Tjarnargata3 (s. 91-16373) rauða húsiö kl. 18 og 21.
Langholtskirkja (opinn) kl. 21.
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39.........21.00
Dalvík, Hafnarbraut4...................... 21.00
Hafnarfjörður, Austurgata 10.............. 21.00
Hvammstangi, Bamaskóli.................... 21.00
Mosfellssveit, Brúarland................... 21.00
Raufarhöfn, Hótel Norðurljós............... 21.00
Selfoss, (99-1787) Selfossvegi 9.......... 21.00
Suðureyri Súgandafíröi, Aöalgata.......... 21.00
Vestm.eyjar, (98-1140) Heimagata 24 ....... 20.30
í hádeginu á morgun, þriðjudag, veröa fundir sem
hér segir: Tjarnargata 5, græna húsið kl. 14,
Tjamargata 3, rauöa húsiö, samlokudeild kl. 12,
Keflavíkurflugvöllur kl. 11.30.
Listasafn Einars Jónssonar
Frá og með 1. júní er Listasafn Einars Jónssonar
opið daglega, nema mánudaga, frákl. 13.30—16.
Eins og kunnugt er var heimili Einars Jónssonar
og önnu konu hans á efstu hæð safnsins og er það
opið almenningi til sýnis yfir sumarmánuðina á
sama tima.
ÁRBÆJARSAFN: Opið frá 1. júní til 31. ágúst frá
kl. 13.30—18 alla daga nema mánudaga. Strætis-
vagn nr. 10 frá Hlemmi gengur að Árbæjarsafni.
Þeir styrkja
einhverf börn
Þessir þrír félagar (tveir eru reyndar bræður) úr
Breiðholtfhéldu um daginn tombólu að Suðurhólum
6 í Breiðholti. Allan ágóða, sem var 102,05 kr., létu
þeir renna í húsbyggingarsjóð heimilis fyrir einhverf
böm sem um þessar mundir er verið að safna fé til.
Strákarnir heita f.v. Rúnar Freyr Gíslason, 8 ára,
örvar Sær Gislason, 7 ára, og Þórhallur Arnórsson,
6ára. DB-mynd Slg. Þorri.
Minningarspjöld
Minningarkort Hjúkrunar-
heimilis aldraðra í Kópavogi
erui seld á skrifstofunni að Hamraborg 1, sími 45550,
og einnig í Bókabúðinni Vedu og Blómaskálanum við
Nýbýlaveg.
Akranes:
Lýst eftir
hvítum Volvo
Lögreglan á Akranesi lýsir eftir
Volvo bifreiö, hvítri að lit, árgerð 1970.
Bifreiðin hvarf frá Skagabraut um sex-
leytið, að því er talið er, aðfaranótt
sunnudagsins. Bifreiðin er tveggja dyra
og ber einkennisnúmerið K-993. Þeir
sem kynnu að hafa orðið bifreiðarinnar
varir látið lögregluna á Akranesi vita.
-ELA.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna
NR.100-29.MAl 1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarlkjadollar 7,163 7,173 7390
1 Steriingspund 14,825 14J66 16363
1 Kanadadollar 5366 6,972 6309
1 Dönsk króna 0,9806 0,9833 1,0816
1 Norskkróna 1,2603 1,2538 13792
1 Sænsk króna 1,4602 1,4642 13996
1 Finnskt mark 1,6432 1,6478 13126
1 Franskur franki U994 13030 1,4333
1 Belg. franki 0,1689 0,1894 03083
1 Svissn. franki 3,4581 3,4677 33146
1 Hollenzk florina 2,7726 2,7802 3,0682
1 V.-þýzktmark 3,0866 3,0941 3,4036
1 Itölsk líra 0,00620 0,00622 0,00684
1 Aueturr. Sch. 0,4367 0,4379 0,4617
1 Portufl. Escudo 0,1161 0,1164 0,1280
1 Spánskur poseti 0,0772 0,0774 0,0861
1 Japansktyen 0,03198 0,03207 0,03628
1 írskt Dund 11,291 11,323 12,466
SDR (sérstök dráttarréttlndi) 8/1 8,0689 8,0000
Símsvari vegna gengisskráningar 22190.