Dagblaðið - 01.06.1981, Side 29

Dagblaðið - 01.06.1981, Side 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. JÚNÍ1981 29 4 * Dr. Stefán Aðalsteinsson sýnir okkur sérkenni íslenzku ullarinnar, langt togið og þéttan þelfótinn sem er ákaflega fjaðurmagnaöur. Mismunur á ullar- verðmæti getur verið tæpar 6 þús. gkr. á kind Segja má að lögmálið um framboð ogeftirspurnráði þegar ullinerann- ars vegar. Það er nefnilega þannig að fyrir lélegustu ullina fær bóndinn lé- legasta verðið og hæsta verðið fyrir beztu ullina. Getur þarna munað tals- verðum upphæðum. í leiðbeiningum fyrir ullarframleiðendur, sem dr. Stefán Aðalsteinsson hefur tekið saman, er eftirfarandi dæmi (að vísu er þetta tilbúið og e.t.v. nokkuð ýkt dæmi): Ull af ærgildi, kg Úrvalsull %.................... I.flokkur %.................... III. flokkur %................. Ullarverðmæti eftir ærgildi, gkr. Mismunur gkr................... Bóndi A Bóndi B 3,0 1,5 80 0 20 20 0 80 6806 1116 5690 Fremst á myndinni er skjannahvita gæran og fyrir ofan hana eru treflarnir scm unnir voru úr mismunandi hvitri ull. Á blaðaljósmynd er erfitt að sjá nokkur mun á þessu en hann var greinilegur „augliti til auglitis”. Enga kjallara í fjárhúsin — látið féð ganga á taðinu „Fyrir nokkrum árum var mjög í tizku að hafa kjallara undir fjárhús- unum. Eru þessir kjallarar um 40% af byggingarkostnaði fjárhúsanna. Nú er verið að reyna að losna við kjallarana og láta féð ganga á tað- inu,” sagði dr. Björn Sigurbjörnsson á blaðamannafundinum þegar kynnt var verkefni Rannsóknastofnunar landbúnaðarins um bætta ullarfram- leiAsln. „Það er um að gera að halda fjár- húsunum þurrum. Það er hægt að gera annaðhvort með því að koma fyrir viftum sem fara sjálfkrafa í gang eða með því að fjármaður hugar að því að opna glugga þegar rakinn er kominn í ákveðið hámark. Það síðar- nefnda er að sjálfsögðu mun kostnaðarminna en jafnframt fyrir- hafnarmeira.” Dr. Björn nefndi dæmi um fjár- húsagerð er hann þekkti frá norður Kanada þar sem vetrarkuldi getur farið niður í um það bil 20 stiga frost. Þar voru fjárhúsin ekki annað en skýli með þaki og engum veggjum. Næddi þvi um féö allan veturinn en ullin hélzt hrein vegna þess að rakinn var enginn í fjárhúsunum og féð gekk á taðinu. - A.Bj. íslenzka sauðkindin hefur haldiö lífinu í landsmönnum í meira en ellefu hundruð ár. Nú eru viðhortln oröin breytt. Aður fyrr var mesta kappið lagt á að féð væri sem allra feitast. — Ullin skipti ekki svo miklu máli. Í dag er þessu öðruvísi farið. Nú á kjötið að vcra „vænt” en alls ekki feitt. Ullin þarl' hins vegarað skila sér mikil og góð. Á erlendum markaði fæst fiórfalt verð fyrir unna flik miðað við það sem fæst fyrir hana á innanlandsmarkaði. Lætur nærri að það sé nákvæmlega öl'ugt hlutfall við kjötið á innlendum og erlcndum markaöi. DB-myndir Bjarnleifur. / Breiðari dekk EXTRA breið Cooper með hvítum stöfum. Skoðið dekk sem setja svip á bílinn. Smiðjuvegi 32-34 Sími: 44880

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.