Dagblaðið - 04.08.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 04.08.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 1981. Léttur gúmmigalll frá Elllngseri. ís- lenzkur að gerð og hentar þvi i okkar rysjótta veðri. íslenzkir gallar í Ellingsen EUingsen getur státað af því að selja islenzkan regnfatnað eingöngu. Er hann frá Sjóklæðagerðinni og heitir 66 gráður norður. Fyrst skal telja vindþétta þunna galla. Þeir halda ekki vatni lengi en hrinda því frá sér í nokkurn tíma. Stakkur með rennilás kostar 209 krónur og 5 aura. Buxur kosta 131 krónu. Aðeins eru til fuUorðins- stærðir. Síðan er galli sem hentar betur i rigningu. Hann er úr léttu en þykku gúmmíi. Heill stakkur með hettu kostar 219,15 krónur og mittisbuxur 146,65 krónur. Til eru smekkbuxur i karlmannastærðum og kosta þær 200 krónur. Siðast kemur svo sjógallinn frá Sjóklæðagerðinni. Hann er úr vel þykku gúmmU. Stakkur kostar 231,90 og buxur 235,10. Eru þær með smekk. Einnig eru til sérlega sniðugar regnkápur. Þær ná niður á mið læri en hægt er að sikka þær niður að hné með þvi að losa nokkrar smellur. Kápan kostar 128 krónur og 10 aura. Stigvél eru til í góðu úrvali i EUing- sen fyrir fuUorðna. Kosta þau frá 151 krónu og 90 aurum upp i 285 krónur og 55 aura. Þessi dýrustu eru með sérstökum trébotni og fyrst og fremst ætluð þeim sem standa lengi stigvél- aðir. - DS r Núna errétti tíminn ab gera gób matarfcaup Verður lýst eftir þér í smáauglýsingum DB? —þá munt þú eiga þess kost að viima reiðhjól f rá Fálkanum Ailir áskrifendur Dagbiaðsins eiga jafnan möguleika á að eignast Raleigh- reiðhjól frá Fálkanum í þessari viku. Slíkt hjól er nefnilega vinningur vik- unnar i áskrifendaleik Dagblaðsins. Verðmæti þess er um 3.500 krónur. Einhvern dag i þessari viku birtast spurningar á baksfðu blaðsins sem tengjast smáauglýsingunum. Daginn eftir birtist síðan nafn einhvers áskrif- Raleigh reiðhjól frá Fálkanum. anda innan um smáauglýsingarnar. Sá áskrifandi á þess kost að svara spurn- ingunum. Geri hann það rétt er reið- hjóliðhans. Þegar hafa ellefu áskrifendur átt kost á að vinna til þeirra veglegu verð- launa sem í boði hafa verið í hvert skipti. öllum hefur tekizt að svara spurningunum rétt. Hver veit nema þú, lesandi góður, sjáir nafn þitt innan um smáauglýsing- arnar I Dagblaðinu i vikunni. Sértu á annað borð áskrifandi er möguleikinn fyrir hendi. Sjáir þú hins vegar nafn einhvers annars áskrifanda er möguleiki þinn alls ekki úti. Það kemur vika eftir þessa viku. Áskrifendaleikurinn verður nefnilega í gangi næstu fimmtán vikurnar. Og í hverri viku átt þú mögu- leika, sértu áskrifandi. -KMU Reykvíkingar greiða 822 milljónir í opinber gjöld: 11% minni hækkun skatta en í Reykjanesumdæmi Heildarálagningu opinberra gjalda á einstaklinga í Reykjavík er nú lokið, en alls greiða 62.598 manns tæplega 822 milljónir f skatta og skyldur að þessu sinni. Er þetta 46,89% hækkun frá fyrra ári, en þess má geta að meðaltals- hækkun i Reykjaneskjördæmi á milli ára var57,8%. Heildarálagning að frádregnum per- sónuafslætti og barnabótum nemur rúmum 725 milljónum kr. og er það 46,30% hækkun. Eignarskattur hækkar um 73,38%, er samtals tæpar 38 milljónir kr. Tekjuskattur hækkar að meðaltali um 54,52%, er rúmar 396 milljónir króna og útsvör hækka um 52,60% frá fyrra ári, eru nú samtals tæpar 321,5 milljónir kr. Þess má geta að sjúkratryggingar- gjald lækkar um tæpar 18 milljónir króna, eða um 243,74%, og persónuaf- sláttur til greiðslu sjúkratryggingar- gjalds lækkar um rúm tíu þúsund%, úr tæpum 3,4 milljónum kr. í tæpar 44 þúsund krónur. Alls greiða að þessu sinni 2567 börn rúma eina milljón króna i skatta. diet pepsi MINNA EN EIN KALDRÍA í FLÖSKU Sanilas VERZLARÐU VIÐ TOLL V ÖRU GEYMSLUN A? Þá átt þú erindi við Apple-tölvuna. Ert þú að dragast aftur úr bara af því að þú hefur ekki tölvu? Klukkustundir verða að mfnútum. Allir kannast viö pappirs- flóðið sem fylgir Tollvörugeymslunni og alla vinnuna. Það er því ómetanlegt að hafa möguleika á að útbúa nauðsynleg gögn til úttektar á sem skemmstum tíma. Ert þú einn þeirra sem segir við viðskiptavin: „Ég gat ekki af- greitt þetta í dag, þetta er nefnilega inni í Tollvörugeymslu,” og vi&kiptavinurinn fer ef til vill annað? Hefur þú efni á þvi? Hvað gerir Apple-tölvan fyrir þig? 1. Skrifar úttektarbeiðni. 2. Skrifar stöðu í hvert t-númer. 3. Skrifar stöðu hvers vöruheitis. 4. Skrifar heildarstöðu vörubirgða. 5. Skrifar heildarverðmæti vörubirgða. 6. Skrifar söluyfirlit með tölulegum upplýsingum og línu- ritum, þannig að sölu- og pantanaáætlun verður leikur Auk þess: Fjárhagsbókhald — Viðskiptamannabókhald. Birgðabókhald — Launabókhaid. Aðflutningsskýrsluforrit — Verðútreikningaforrit. Samninga- og víxlaforrit og svo framvegis. Apple-tölvan kostar svipað og ljósritunarvél. Hefurðu efni á þvi að vera án hennar? Apple kynnir nú yfir 30 ný forrit sem öll eru hönnuð fyrir Apple II plús. Hér eru nokkur: • Apple Project Manager • Redefinable Data Base • Personal Finance Manager • Visitrend/Visiplot • Visiplot • Visicalc • Apple Writer • Apple Plot • Apple Pilot • Pilot Animation Tools • Apple Graphics ^cipplc computcr — Nafn..................................... Fyrirtæki. Gerð fyrirtækis....................... Heimilisfang Póstnúmer............................. Sími....... tölvudeild, Skipholtí ’ Sími29800. Forrit sem ég hef áhuga á:.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.