Dagblaðið - 04.08.1981, Síða 6

Dagblaðið - 04.08.1981, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 1981. Vestmannaeyjar: Mörg smærri tjöld f uku aðfaranótt mánudagsins Þjóðhátlö Vestmannaeyinga tókst með ágætum að þessu sinni. Þaö eina sem skyggði á góða helgi var hvassviðri aðfaranótt mánudagsins en i því fuku fjölmörg smærri tjöld. Gæzlumenn og eigendur tjaldanna gengu þó vasklega fram við að taka niður tjöld og tókst að fella öll hústjöldin áður en óveðrið skall á. Þeir sem misst höfðu tjöld sín fengu inni I matsal Fiskiðjunnar I Eyjum um nóttina. Færra fólk tók þátt I þjóðhátiðinni að þessu sinni en oft áður og gizkaði lögreglan á að um 4000 manns hefðu verið i Herjólfsdal þegar fjölmennast var. Sem fyrr flúðu fjölmargir Éyja- skeggjar upp á land, enda oft mikill skríll sem sækir þjóðhátíðina. ölvun var með minnsta móti en fjórir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Engin slys urðu um helgina á fólki. -SA. Umf erðin víða um land: Bflvelta í Mývatnssveit —en f riðsælt eins og í sumarbústað áAkranesi „Hér er eins friðsælt og i sumar- bústað,” sagði lögreglan á Akranesi er DB hafði samband við hann i gær. Sömu sögu var að segja víðar af landinu. Á Vestfjörðum var umferð með minnsta móti og á Norðurlandi eystra gekk umferðin vel fyrir sig. Þar var aðeins vitað um eitt óhapp er bifreið valt í Mývatnssveit á föstudagskvöld. Þrir farþegar voru fluttir á sjúkrahúsið á Húsavík en fengu að fara heim að lokinni skoðun. Laugahátíðin i Reykjadal fór fram með friði og spekt en þar voru dansleikir þrjú kvöld í röð. Á Akureyri var aðeins kunnugt um tvö umferðaróhöpp og í bæði skiptin var ekið út af veginum. Hið fyrra gerðist á laugardagskvöld og hið síðara á sunnudagsmorgun. Engin slys urðu á fólki. Að sögn lögreglunnar var minna að gera en um venjulega helgi. Bærinn tæmdist af fólki og má nefna sem dæmi að í Sjallanum voru aðeins 400 mannseitt kvöldið, flest aðkomufólk. -SA. Um fjögur þúsund manns sóttu þjóðhátiðina í Eyjum en þessi mynd var tekin á bryggjunni á föstudag. Þá streymdu þjóðhátiðargestir til Vestmannaeyja og er úr Herjólfi var stigið biðu bilar sem fluttu gestina til tjaldbúðanna f Herjólfsdal. DB-mynd: Ragnar Sigurjónsson. skal uifi götur aka yUMFHROAR RÁD Mikil ölvun íAtlavík Mikil ölvun var á útihátiðinni í Atlavfk um helgina. Þar voru um 5 þúsund manns þegar flest var og drukku flestir ósleitilega. Alt fór þó að mestu slysalaust fram. Umferð í kring- um víkina var mikil. Vegir voru þurrir þannig að mikið ryk fyllti sveitir. -DS. Fjölmenni var saman komið í Húsafelli um helgina en þar var þó ekki um skipulagða samkomu að ræða. En þótt ekki séu keyptir skemmtikraftar er hægt að gera sér glaðan dag. Gftarar eru fram dregnir, raddböndin stillt og siðan er sungið fram eftir nóttu. í kjarrinu er siðan hægt að ganga örna sinna eins og pilturinn hér á myndinni virðist vera að gera. Eða er hann aðeins aö sýna ljósmyndaranum að hann er ekki í nær- buxum? DB-myndir: Sig. Þorri. Hætt kominn í Krossá Ungur maður var hætt kominn i Krossá aðfaranótt laugardagsins. Hann hafði komið gangandi frá Húsa- dal í Þórsmörk og að ánni og hugðist vaða yfir. Björgunarsveitarmenn sem nærstaddir voru heyrðu síðan i honum hljóðin þegar honum tókst ekki að vaða. Drógu þeir hann upp úr ánni mjög kaldan og lerkaðan. í Þórs- mörkinni var komið í hann yl og þurfti hann ekki að leita Íæknis. Maöurinn varmjögdrukkinn. -DS. Mikið drukkið á Vind- heimum „Það var mikið drukkið og við höfum nóg að gera,” sagði Guðmundur Pálsson lögregluþjónn á Sauðárkróki. Á Vindheimamelum í Skagafirði var um helgina haldið hesta- mannamót og kom mikill fjöldi fólks og hesta þangað úr öllum lands- fjórðungum. Böll voru haldin öll kvöldin i Miðgarði og var þar fullt út úr húsi. Allt gekk nokkurn veginn átaka- laust fyrir sig, þrátt fyrir nokkra pústra. Við heyrðum að hestur hefði slegið mann illa en að öðru leyti virtust menn komast sæmilega frá þessari miklu drykkju. -DS. Róleg helgi í Reykja- vík Verzlunarmannahelgin var með eindæmum róleg i Reykjavík. Mikil umferð var út úr bænum á föstudags- kvöld og laugardag. Taldi árbæjarlög- reglan 4 bíla á mínútu eftir klukkan átta á föstudagskvöldið. Allt gekk friðsamlega fyrir sig í bænum. Umferðin byrjaði síðan í gagnstæða átt á sunnudaginn. Þá var mikil umferð austan úr sveitum enda veður þar leiðinlegt. í gærmorgun var síðan mikil umferð að vestan og eins I gærkvöldi. Dóra Stefánsdóttir Mikil umferð um Suðurland: Ekið á mann við Árnes og umferðaróhöpp f Þjórsárdal Geysimikil umferð var um Suðurlandsundirlendi um helgina en að sögn lögreglunnar á Selfossi gekk hún stórslysalaust fyrir sig. Þó urðu allmargir smærri árekstrar og um- ferðaróhöpp og 46 voru teknir fyrir meinta ölvun við akstur. Á föstudagskvöld var ekið á gang- andi mann við Árnes en þar voru haldnir dansleikir þrjú kvöld I röð um helgina. Maðurinn slasaðist nokkuð og var fluttur á sjúkrahús á Selfossi. Aðfaranótt laugardags valt einnig bifreið við Kjartansstaði I Flóanum. ökumaður var einn í bíln- um og skrámaðist hann eitthvað, en hann var grunaður um ölvun. Þá urðu nokkur óhöpp á sunnudag. Harðasti áreksturinn varð i Þjórsárdal um hádegisbilið en þá skullu tveir bílar saman á veginum. Mikið eignatjón varð en engin slys á fólki. Um klukkan 19 sama dag valt opin jeppabifreið inni við Skriðufell. Sex farþegar voru í bílnum og slösuðust þrir. Voru þeir allir fluttir á sjúkrahús. Sem fyrr getur voru dansleikir haldnir í Árnesi og einnig í Borg, Grímsnesi. Þar var þó fátt fólk, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Aðrir vinsælir tjaldstaðir þessa helgi voru Þingvellir, Laugarvatn og Þjórsár- dalur. ölvun var töluverð, en þó ekki meiri en undanfarin ár. Ekki var lög- reglunni á Selfossi kunnugt um að mikið hefði verið um þjófnaði úr tjöldum, enda sagði lögreglan að kærur þar að lútandi kæmu ekki fyrr en eftir helgina. -SA.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.