Dagblaðið - 04.08.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 1981.
7
Breytingar á rekstrí Sýningahallarinnar?
Mimum fylla höll-
ina af húsgögnum
—segir Jón Hjartarson, eigandi hennar
Vegfarendur á leið fram hjá
Sýningahöllinni við Bíldshöfða hafa
veitt því eftirtekt að stór auglýsinga-
spjöld eru komin á þak og vegg
Sýningahallarinnar. Hafa getgátur
verið uppi um að breytinga væri að
vænta á rekstri hennar. Af því tilefni
hafði DB tal af Jóni Hjartarsyni, eig-
anda Sýningahallarinnar.
„Við höfum til hliðar við sýninga-
starfsemina notað húsnæðið á þeim
tímum þegar ekkert hefur verið um að
vera og keypt húsgögn. Þessi verzlun
hefur vaxið dag frá degi en eins og
flestir vita á Húsgagnahöllin þetta
hús,” sagði Jón Hjartarson.
Hann nefndi aðspurður að Hús-
gagnahöllin væri hlutafélag og aðaleig-
endur væru eiginkona hans, Maria
Sigurðardóttir og hann sjálfur.
„Þegar við sáum hvert stefndi
ákváðum við að nota allt húsið sjálfir.
Við keyptum hlutabréf í IDE-
innkaupasamsteypunni dönsku og
komumst þannig inn á mjög stóran
markað sem býður upp á hagstæð
innkaup. Við höfum einnig samið við
fjölmarga íslenzka framleiðendur og
munum leggja áherzlu á að selja allt
það sem íslenzkt er í húsgögnum.”
Jón sagði að jarðhæð Sýninga-
hallarinnar væri lofuð undir út-
sölumarkað í september, Sambands-
verksmiðjurnar á Akureyri yrðu með
verksmiðjuútsölu í október og í febrúar
á næsta ári væri pláss lofað undir
bókamarkað.
„Aðrar skuldbindingar eru ekki á
okkur og við munum fylla þetta hús —
sem héðan I frá heitir Húsgagnahöllin,
Jón Hjartarson fyrir framan Húsgagnahöllina — áður Sýningahöllina. Brátt verður
þarna stærsta húsgagnaverzlun landsins á 10.000 fermetra gólffleti.
DB-mynd Sigurður Þorri.
afhúsgögnum, fyrst 5.000 fermetraog
svo 10.000 fermetra.”
— Verða fleiri sýningar i þessu húsi?
„Það veit ég ekkert um. En eins og
málin horfa við mér í dag bendir flest
til að arðbærari rekstur sé að leggja
húsiðundirsig.”
-KMU.
Kaupmenn opna enn á laugardögum:
Lögreglan lokaði
f imm verzlunum
\
Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti
af fjórum kaupmönnum sem opnað
höfðu verzlanir sinar á laugardags-
morgun í trássi við borgarsamþykktir.
Fór hún að líkt og fyrr, stóð fyrir utan
dyr verzlana og hindraði fólk í því að
komast inn. Allt fór fram með mestu ró
og spekt. Nú er aðeins ágústmánuður
eftir af þeim tíma sem þessar umdeildu
samþykktir taka til. Haft hefur verið
eftir Sigurjóni Péturssyni, forseta borg-
arstjórnar, að liklega verði þessum
reglum breytt fyrir næsta sumar, enda
er borgarlögmaður, á þeirri skoðun að
þessar reglur brjóti jafnvel í bága við
stjórnarskrá. Stríðið virðist því brátt á
enda og hefur )>eim kaupmönnum
fækkað sem opið hafa á laugardags-
morgna.
-DS.
Einar Strand í dyrum verzlunar sinnar, Skjólakjörs. Hann fékk ekki að afgreiða
viðskiptavini sína á laugardag fremur en fyrri laugardaga i sumar.
DB-mynd Bj. Bj.
Spameytnar bif reiðir
lækka um 5%
Gefin hefur verið út reglugerð um
lækkun innflutningsgjalda á
sparneytnum bifreiðum. Lækkar
innflutningsgjaldið úr 50% i 35% sem
þýðir að sparneytnar bifreiðir lækka í
verði um sem svarar 5%.
Þessi reglugerð á einungis við um
bifreiðir sem eru með minni vélar en
2200 rúmsentimetra sprengirými og falla
því allar venjulegustu fólksbifreiðir
undir þessi ákvæði, en algengt er að
vélarstærð fólksbifreiða sá á bilinu
1100—1600 rúmsentimetrar. I frétt frá
fjármálaráðuneytinu segir að þessi á-
kvörðun sé tekin til þess að auðvelda
fólki að eignast bifreiðir og stuðla
jafnframt að sparnaði á innfluttu
bensíni. -ESE.
Rólegt við Galtalæk
Bindindismót var haldið í Galta- þess að valda sjálfum sér og öðrum
lækarskógi um verzlunarmanna- vandræðum. Margt fólk var hvarvetna
helgina. Fór það mjög vel fram aðsögn uppi á hálendingu en engin slys eða
lögreglu og skemmtu menn sér vel án önnur óhepp hentu það. -DS.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáísgötu 49 — Simi 15105
Sérpökkum
fyrir
ferðalanga
.
er a rettu Imunni
ÁRMÚLA 38 (Selmúlamegin), 105 REYKJAVIK
REYKJAVIK.
SÍMAR 31133, 83177, PÓSTHÓLF 1366.
• Vorum að taka upp nýja
sendingu af AIWA hljóm-
tækjum.
• Þar á meðal þessa nýju
línu af mini hljómtækjum
sem er bæði fyrir 220 volt
og 12 volt.
• Tilvalin í húsbílinn,
sumarbústaðinn eða hvar
sem er.
Skoðið í gluggana
Allt tíl hljómflutnings fyrir:
HEIMILIÐ, BÍLINN OG
DISKÓTEKIÐ
Sendum í póstkröfu