Dagblaðið - 04.08.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 1981.
I
V
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
REUTER
Tveirfangar
létustum
Forseti Gambíu hvetur uppreisnarmenn til að gefast upp:
Uppreisnarmenn í Gambíu
haida um þrjátíu gíslum
—Meira en 300 hafa fallið frá upphafi valdaránstilraunarinnar í síðustu viku
helgina
Tveir fangar úr hópi IRA-manna í
Maze-fangelsinu á Norðurírlandi létust
um helgina eftir að hafa verið í mót-
mælasveiti í meira en sjötfu daga. Alls
hafa nú átta IRA-menn svelt sig til
bana í Maze-fangelsinu til að leggja
áherzlu á kröfur sínar um að reglum í
fangelsinu verði breytt. Til óeirða kom
í borgum á Noðrur-írlandi er fréttist
um lát þeirra.
Fjölskylda eins fanganna sem verið
hafa f mótmælasvelti bað á föstudags-
kvöld lækna um að reyna að bjarga lífi
hans eftir að hann hafði misst meðvit-
und. Urðu læknar við beiðni fjölskyld-
unnar.
Marxiskir uppreisnarmenn sem
enn berjast gegn stjórnarhermönnum
í Gambfu hafa látið lausa tvo
stjórnarerindreka frá Senegal úr hópi
um þrjátíu gísla sinna.
Stjórnarerindrekarnir tveir voru
látnir lausir eftir að Dawda Jawara
forseti Gambíu flutti útvarpsávarp
þar sem hann hvatti uppreisnarmenn
til að gefast upp og láta alla gíslana
lausa. Heimildir innan stjórnarhersins
greina að meðal gfslanna sé eiginkona
forsetans, átta börn hans og nokkrir
ráðherrarlandsins.
Fréttamaður Reuters f Banjul,
höfuðborg Gambiu, skýrði frá þvf í
gærkvöldi að meira en 300 manns
hefðu fallið í bardögum frá því
valdaránstilraunin í landinu hófst.
Fréttamaðurinn sagði að upp-
reisnarmennirnir, undir forystu ungs
sósfalista að nafni Kukli Samba
Sanyang, ættu enn í bardögum við
hersveitir frá Senegal sem forseti
Gambfu hafði kallað á vettvang.
Talsmenn hersveitanna frá Senegal
segja að tfu menn hafí fallið úr þeirra
röðum og 36 særzt.
í útvarpsávarpi sfnu f gær sagði
Dawda Jawara forseti Gambíu að lífi
uppreisnarmanna yröi þyrmt ef þeir
legðu niður vopn og létu gíslana
lausa.
Forsetinn, sem var staddur f
London vegna brúðkaups Karls
prins og lafði Díönu Spencer, þegar
valdaránstilraunin var gerð, hvatti
alla íbúa Gambíu til að snúa aftur til
vinnu.
Að sögn sjónarvotta i Banjul hefur
verið mikið um þjófnaði í borginni
eftir valdaránstilraunina. í mörgum
tilfellum hafa þar átt hlut að máli
fangar sem uppreisnarmenn létu
lausa og fengu vopn í hendur.
Stjórnarhermenn hafa nú hafizt
handa um að afvopna borgara sem
uppreisnarmenn höfðu vopnað.
Verkfall f lugumf erðarst jóra
íBandaríkjunum:
Reagan hótar flug-
umferðarstjórunum
—brottrekstri úr starf i ef þeir snúa ekki
afturtil vinnu
Flugumferðarstjórar í Bandarikjun-
um halda áfram verkfalli sínu í dag
þrátt fyrir að Reagan forseti hóti þeim
brottrekstri úr starfi ef þeir snúa ekki
aftur til vinnu. Einnig hóta dómstólar
þeim milljón dollara sekt á dag.
Flugumferðarstjórar segja að þessar
hótanir breyti engu um afstöðu þeirra.
Helmingur alls innanlandsflugs í
Bandaríkjunum lá niðri í gær vegna
verkfallsins,
Fullyrt er að verkfall flugumferðar-
stjóranna kosti Bandaríkin 250 milljón
dollara á dag.
Begm reymst
stjómarmyndunin
mjög erfið
Menachem Begin, forsætisráð-
herra ísraels, hefur enn ekki tekizt að
mynda nýju samsteypustjórnina sem
hann hefur unnið að, síðustu vikur.
Búizt hafði verið við að hann kæmi
stjórninni saman um helgina en af því
hefur enn ekki orðið vegna ágreinings
milli tveggja trúarlegu flokkanna sem
hann ætlar sér að styðjast við. Verði
af stjórnarmynduninni er reiknað
með að hin nýja stjórn verði sú
ósveigjanlegasta í sögu ísraels.
Heimildir er standa nærri Begin
sögðust í gærkvöldi búast við að
ágreiningurinn yrði jafnaður mjög
fljótlega og Begin myndi þegar á
morgun gefa út yfirlýsingu um að ný
stjórn hefði verið mynduð.
Andlegir leiðtogar heittrúarflokks-
ins Agudat Israel gáfu þingmönnum
flokksins í gærkvöldi leyfi til að
ganga til stjórnarmyndunar eftir að
Begin hafði heitið að beita sér fyrir
breytingum á lögum um inntöku
nýrra gyðinga í samfélagið. Agudat
Israel hefur krafizt þess að þeir einir
skuli fá full borgararéttindi gyðinga í
ísrael sem hafa verið teknir inn i sam-
félagið af rétttrúuðum rabbium.
Þetta atriði kann að valda mjög
alvarlegum ágreiningi ísraels og hins
gyðinglega samfélags í Bandaríkjun-
um og sýnir vel hversu langt Begin
hefur þurft að ganga til að koma
saman starfhæfri stjórn.
Þar sem samstarfsflokkar Begins í
þeirri stjórn sem hann er talinn í þann
veginn að mynda byggja allir á trúar-
legum grunni verða mörg atriðin i
málefnasamningnum trúarlegs eðlis.
Þannig er talið að þau lög er gilda um
hvíldardaginn (sabbatinn) verði hert
svo mjög að flugvellir og hafnir i
ísrael verði næstum algjörlega lokuð
á hvíldardegi og starfsemi flugfélags-
ins El Al muni liggja niðri.
Það er enda fastlega reiknað með
að stjórnarmyndunin muni mæta
mjög mikilli andstöðu meðal þeirra
sem ekki teljast til rétttrúaðra.
Þegar hefur orðið vart nokkurra
mótmæla. í gærkvöldi festu nokkrir
ungir liðsforingjar í ísraelsher upp
skilti á sinn trúfræðiskóla í landinu.
Á skiltinu stóð: „Undirritið hér og
sleppið þannig við herþjónustu.”
Með þessu vildu þeir mótmæla
væntanlegu ákvæði í málefnasamn-
ingi nýju rikisstjórnarinnar sem gerir
fleiri trúfræðistúdentum kleift að
sleppa við herþjónustu.
Menachem Begin. Honum sækist stjórnarmyndunin seint. Til vinstri á myndinni
er Jósef Burg, formaður Þjóölega trúarflokksins.
Mikii mótmælaalda hetur gengið yfir Nýja-Sjáland að undanförnu vegna heimsóknar „rugby”-fótboltaliðs frá Suður-
Afríku þangað. Robert Muldoon, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur boðað til fundar með andstæðingum heimsóknar
„rugby”-liösins og þar verður væntanlega tekin ákvörðun um hvort fyrirhugaðir leikir liðsins verði afboðaöir.
Suður-afrfska liðið hefur þegar leikið þrjá af fyrirhuguðum sextán leikjum i Nýja-Sjálandi en einum leiknum varð að aflýsa
vegna öflugra mótmæla. Myndin er frá mótmælum er urðu í Gisbone á Nýja-Sjálandi vegna heimsóknar liðsins.
Megum við benda yður á!
Ath.
SKOVERZLUN S. WAAGE
Domus Medica, Egilsgötu 3 — Sími 18519
Utsalan er í minni fiindarsal.
Gengiö inn um aðaldyr - salur til vinstri.
■ J